Morgunblaðið - 24.11.1996, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
Að koma öskjum
upp á tuttug-
ustu pönnuhæð
Síldarvinna er í fullum blóma og Jóhanna
Kristj ónsdóttir reynir að halda í við sam-
starfskonur sínar á vaktinni og hefur
sett sér háleitt takmark í því efni.
AÐ má
með
sanni
segja að hér á
Þórshöfn hrær-
ist maður í
mjög alþjóðlegu
samfélagi. Hér
er fólk frá Fær-
eyjum, Pól-
landi, Frakklandi, Serbíu, Rúss-
landi og Ukraínu. Allir þessir út-
lendingar vinna í fiskvinnslunni,
sumir hafa verið hér æði lengi og
ætla greinilega að setjast að og
hafa keypt sér hús. Aðrir eru far-
fuglar eins og ég.
Sumir útlendinganna eru há-
menntað fólk sem hefur leitað
hingað vegna betri afkomu en
aðrir eru að safna í lífsreyns-
lusarpinn. Sumir Þórshafnarbúar
segja mér að útlendingarnir séu
milli 30 og 40 og það er hreint
ekki lítið þar sem íbúatalan er
nokkuð innan við 400.
Það er líf í öllum tuskum hér
um þessar mundir og undanfarnar
vikur hefur verið unnið allan sól-
arhringinn. Ég hef verið svo stál-
heppin síðustu viku að lenda á
vakt sem hefst klukkan átta á
kvöldin og lýkur klukkan ijögur
um nóttina. Við höfum verið að
frysta síld af mesta kappi og það
er deginum ljósara að stemmning-
in í kringum síldina jafnvel þótt
við stöndum ekki á haus í tunnum
er öðruvísi en þegar annar fiskur
er í vinnslu.
Það kemur einhver glampi í
augun, hreyfingarnar verða hrað-
ari og adrenalínið er á fullu. Hver
vakt reynir að afkasta sem allra
mestu, það er bæði vegna þess
að þá hækkar bónusinn en ekki
síður almennur metnaður í að ná
meiri afköstum en næsta vakt á
undan eða eftir.
Mér finnst sniðugt að fylgjast
með — svona
útundan mér
því ég er auðvit-
að að reyna að
keppast við eins
og hinar — hvað
vinnulag hverr-
ar og einnar
konu er ólíkt.
Sumar hafa svo
hröð handtök að það er eins og
mynd sem er sýnd á of miklum
hraða. Aðrar vinna jafnar en virð-
ast aldrei þreytast og þaðan af
síður fá verk í herðarnar eins og
ég sem er stundum hreint að fa-
rast. Enn aðrar djöflast af þvílík-
um krafti að allt leikur á reiði-
skjálfi en afköstin eru ekki alltaf
í samræmi við öll lætin.
Það rann upp fyrir mér þegar
ég byrjaði í síldarfrystingunni að
eins og í öllu sem að þessu snýr
eru handtökin ekki eins einföld
og þau virðast þegar maður horf-
ir á vanar og flínkar konur.
Það eitt að halda poka rétt
undir vigtinni svo alit sullist ekki
út úr, loka öskjunni rétt og það
sem reyndist mér lengi vel þraut-
in þyngst; koma öskjunni síðan í
pönnuna. Síldin flóði upp og út
úr pokanum og ég náði ekki haldi
á öskjunni með tíu kílóunum í til
að raða þessu í pönnuna. Sam-
starfskonur mínar á fyrstu vakt-
inni sem ég var á við þessa iðju
sýndu mér þó flestar mikla þolin-
mæði, þó það lægi auðvitað í aug-
um uppi að ég var að draga þær
niður í bónus.
En þetta er allt að koma og
nú er ég farin að geta lyft öskjum
upp á sextándu hæð af pönnum.
Það er sniðugt hvað ég finn til
mikillar ánægju með sjálfa mig
yfir því.
Og stefni ótrauð að nýju tak-
marki. Að geta náð upp á þá tutt-
ugustu. Hvorki meira né minna.
Dagbók frá Þórshöfn
SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 27
Lágmarks hita- og viðhaldskostnaður • FuHkomin hljóðeinangrun • Val á gólfefnum og innréttingum
Stórar svalir eða einkagarður • Sér inngangur í hverja íbúð • íbúðir afhentar fulibúnar
Þvottahús ■ íbúð • Skólar, leikskólar, félagsmiðstöðvar og verslanir í næsta nágrenni
Verðdæmi
Kaupverð 6.590.000
Húsbréf 70% 4.613.000,
Lán seljanda til 25 ára 1.477.000
Gr. við undirr. kaups. 500.000
Gr. byrði á mánuði 38.834
* Veitt gegn traustu fasteignaveði
Athugið! Húsbréfaafföll
lenda á seljanda en ekki þér
Sölumenn verða í Berjarima 36
í dag milli kl 13 og 15
Ármannsfell ht.
Leggur grunn að góðri framtfð
Funahöfða 19 • Sími 577 3700
Ármannsfell kynnir nýjan byggingar-
stað í Tröllaborg 15-17, þar sem þegar
hefur verið hafist handa. Á þessum
frábæra útsýnisstað verða reist stærri
hús með 3ja - 4ra herbergja rúmgóðum
íbúðum með stórum barnaherbergjum
og sérlega stórum svölum. Húsin eru
með innbyggðum bílskýlum sem
íbúðakaupendur geta keyþt með og
auðveldlega breytt í bílskúra.
Kynnið ykkur næsta áfanga Ármanns-
fells og skoðið teikningar á skrifstofu
félagsins að Funahöfða 19.
ALDREI HAGSTÆÐARA VERÐ!
ílustu skemmtisiglingar heimsins, lmagination, Sensation
Fegursta eyjan - DOMINICANA - allt innifalið. 'lí**
Öruggasta vetrarfríið - Jarðnesk paradís fyrir
þig og vini þína - klúbbinn - félagið þitt.
¥erð frá kr. 100 þús.
ÞÚ GERIR EKKIBETRIKAUP! S
CARNIVAL UMBOÐIÐ A ISLANDI
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
flusturstræti 17, 4. hæð 101 Reykjavík, simi 56 20 400, fax 562 6564
Vegna mikillar
eftispurnar!
Viöbótarsæti í hópferö
til Dominicana meö
fararstjóra 12. janúar
og 9. október.
- MEÐ HEIMSREISUSTÍL
12.-15. des., 4 dagar.
Áætlunarflug Flugleiöa út aö morgni fímmtudags, heim aö kvöidi sunnudags.
I jóla- * Gisting: ROYAL GARDEN HOTEL 5i*r - eitt glæsilegasta hótel borgarinnar viö Hyde Park
$ÍCQTU - gjörbreytir innihaldi þessarar einstöku feröar, ásamt frábærum menningarviðburðum og
leiösögn ingóifs Guðbrandssonar. Óstaöfestar pantanir seldar á moraun.