Morgunblaðið - 24.11.1996, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 33
SKOÐUN
ákveðinn vanda gagnvart hinum
almenna prestsdómi. Hin lútherska
kenning, sem þjóðkirkjan byggist
á, er skýr en oft virðist hún gleym-
ast þegar í söfnuðinn er komið.
Vandinn er hér eins og annars stað-
ar að prestar vilja „leyfa“ hinum
almenna safnaðarmeðlimi að gera
ýmislegt og láta hann jafnvel axla
mikla ábyrgð o.s.frv., en hér fara
ábyrgð og vald sjaldan saman. Yfir-
leitt virðist aðeins eitt svar vera við
spurningunni um hver á að ráða:
Presturinn. Og er í því sambandi
jafnan vísað í vígsluna. Það er
spurning hvort við séum þá ekki
komin með rómverska klerka-
hyggju inn í okkar lúthersku kirkju.
Við megum ekki gera lítið úr
hinum almenna prestdómi því hann
mótar okkar kirkju svo mikið. Næg-
ir hér að minna á sóknarnefndir,
kirkjufólk í margs konar störfum
fyrir söfnuðinn, að ekki sé minnst
á allt sönglífið o.fl.
Við verðum að forðast þá órétt-
mætu gagnrýni að kirkjan sé eitt-
hvað annað en við. Allir skírðir
menn tilheyra kirkjunni, svo lengi
sem þeir játa trú sína með játning-
um kirkjunnar. Þannig erum við öll
embættismenn hennar og eigum að
sinna skyldu okkar sem hvert ann-
ars prestar: Að boða fagnaðarerind-
ið, fyrirgefa syndir og biðja fyrir
náunga okkar. Hinn versti prestur
getur ekki hindrað hinn kristna í
því að sinna skyldum hins almenna
prestdóms, sem hinn kristni uppfyll-
ir er hann spennir greipar sínar í
„prests“ stað og biður fyrir söfnuði
sínum og presti.14 Það er jafnframt
mikill misskilningur að vegna hins
almenna prestdóms séu allir lausir
undan prestsskyldum sínum og það
er rangt hjá Tómasi Mann að hinn
almenni prestdómur felist í því að
maðurinn sé sjálfum sér prestur.
Nei, við erum ætíð prestar fyrir
náunga okkar og því er hinn al-
menni prestdómur safnaðarbundinn
og safnaðarmótandi. Ekki bara inn-
an veggja kirkjuhússins, heldur á
heimili og meðal vina og í samfélag-
inu í heild. Og hinum almenna
prestdómi fylgja kærleiksverkin
sem spretta sem blóm í jarðvegi
boðunarinnar.
Það er því röng spurning þegar
spurt er hver eigi að ráða innan
kirkjunnar. Deilan stendur hér
hvorki um hvort söfnuður eigi að
lúta presti eða prestur söfnuði, né
hvort prestur beri söfnuð á herðum
sér eða söfnuður prest. Báðum ber
að lúta Kristi og þjóna náunganum
í ljósi fagnaðaerindisins. Kristur ber
alla trúaða hér í heimi og hér ber
hinum kristnu einstaklingum að
skilgreina vel og virða verksvið
hvers annars.
'Hér er að mestu stuðst við framsetningu
Gottfried Maron og Hans-Martin Barth á hug-
nyndum um almennan prestdóm í sögu og
samtíð. Sjá Barth, Hans-Martin: Einander
Priester sein. Allgemeines Priestertum in ök-
umenischer Perspektive, Vandenhoeck &
Ruprecht, Göttingen 1990; Maron, Gottfried:
„Allgemeines Priestertum im Protestantism-
us“, Reehtfertigung und Gerechtigkeit im Lic-
hte der Reformation, Göttingen 1990, 67-79.
Sjá einnig Luther, Martin: „An den christlic-
hen Adel deutscher Nation von des christlic-
hen Standes Besserung“ (1520), WA 6, 404-
469; Luther, Martin: „De captivitate Babyl-
onica ecclesiae prealudium" (1520), WA 6,
497-573; Luther, Martin: Um frelsi kristins
manns, Reykjavík 1967; Spener, Philipp Jacob:
Pia Desideria, Walter de Gruyter, Berlin 1964;
2Tómas Mann: Deutschland und die Deutsc^'
en, Gesammelte Werke 12, Berlin 1956 560n.
‘Þetta undirstrikar Gottfried Maron, sjá: Allge-
meines Priestertum im Protestantismus, 69.
4Maron: Allgemeines Priestertum im Protest-
antismus, 69.
:,Kenningin um þetta hefur verið nefnd gjör-
breytingarkenningin (transsubstantio), en hún
gengur út á það að hið ytra útlit brauðs og
víns haldist, en eðli þeirra breytist í blóð og
líkama Krists. Við framsetningu sína á kenn-
ingunni sóttu guðfræðingar miðaldakirkjunnar
í heimspeki Aristótelesar. Sjá Einar Sigur-
björnsson: Credo, 2. útg., Háskólaútgáfan,
Reykjavík 1993, 401-405.
GAn den christlichen Adel deutscher Nation
1520, (StA) 2, s.100.
7Sama rit Bd.2 s.359. Hér fylgir Lúther hefð
fornkirkjunnar, þá sérstaklega því sem mótað-
ist í deilum Ágústínusar við dónatista, en nið-
urstaðan úr þeim deilum var sú að það væri
ekki þjónninn að sakramentinu sem gerði það
virkt eða heilagt heldur Guð í Kristi. Sjá Andr-
esen, Carl: Geschichte des Christentums I.
Von den Anfángen bis zur Hochscholastik,
Kohlhammer, Stuttgart 1975, 47-49.
KLuther, Martin: „Von der Winkelmese und
Pfafweihe“, WA 38, 247.
9Maron: Allgemeines Priestertum im Protest-
antismus, 73.
"’Sjá Hans-Martin Barth: Einander Priester
sein, 54-78.
"Sama rit, 79-103.
'*Krumwiede, Hans-Walter (ritstj.): Kirchen-
und Theologiegeschichte in Quellen IV/2.
Neuzeit. 2. Teil, Neukirchener Verlag, Neu-
iikirchen-Vluyn 1980, 131.
"'Gottfried Maron hefur bent sérstaklega á
þetta atriði, sjá Maron: Allgemeines Priestert-
um im Protestantismus, 77-79. Máli sínu til
stuðnings vísar hann til Pius XII.: Enzyklika,
Meditor Dei, 1947. Sbr. Anton Rohrbasser:
Heilslehre der Kirche, Freiburg/Schw. 1953,
Nr.245 (í þýskri þýðingu).
"Maron ræðir þetta m.a. í samhengi við erfíð-
leikana í þriðja ríkinu, þar sem söfnuðir þurftu
oft að eiga við mjög svo ómögulegan kierk.
Vissulega má benda á það líka að prestar
hafa oft þurft að biðja og beijast fyrir sálar-
heill safnaðar sem óð í villu.
Höfundur er héraðsprestur.
Alþingismenn og borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins fyrir Reykjavík
eru með viðtalstíma í hverfum
borgarinnar á mánudögum.
A morgun verða
DAVÍÐ ODDSSON
forsætisráðherra
&
ÁRNI SIGFÚSSON
borgarfulltrúi
í Valhöll,
Háaleitisbraut 1
kl. 17-19.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla Reykvíkinga
að ræða málin og skiptast á skoðunum
við kjörna fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Hafðu áhrif og láttu þínar skoðanir heyrast.
Sj/tirSTftBISHOKKURtNN
E:
• • , i ,■ f „<■, ’ , „J , ■<,’ ~ , ’ ^ . ■ , B
p
VÖRÐUR - FULLTRÚARÁÐ SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANNA í REYKJAVÍK ;
húsgögn
Ármúla 44
sími 553 2035
Tannlæknastofa fyrir börn
Hef opnað tannlæknastofu mína að
Einholti 2, Reykjavík. Tannlæknastofan
er sérstaklega ætluð börnum og unglingum.
Tímapantanir í síma 561 3130
Sigurður Rúnar Sæmundsson
Tannlæknir, MPH, PhD.
Jólapakhar til
Murlanda
Afliendingarstaður:
Útflutningur - Sundahöfn, hlið nr. 2.
Tekið verður á móti pökkum 29. nóvember, 2. og 3. desember frá
kl. 8.00 til 14.00. Brúarfoss fer frá Reykjavík 5. desember 1996.
Aætlaðir komudagar: Árósar -11. des.
Kaupmannahöfn - 12.des.
Helsingborg - 12. des.
Gautaborg - 13,des.
Fredrikstad - 13 des.
Látið móttakendur vita um áætlaðan komudag skips því sækja þarf
pakka þann dag t samráði við skrifstofu eða umboðsmann Eimskips
t viðkomandi landi.
Pökkun og merkingar:
Merkja þarf pakka vel með nafni móttakanda, fullu heimilisfangi, síma og
upplýsingum um verðmæti jólapakka.Við afhendingu vöru í Sundahöfn
verður að fylla út eyðublöð þar sem fram kemur nafn, heimilisfang og
sími móttakanda (sami og merking á kassa). Ef pakkinn fer til Svíþjóðar
þarf einnig að skrá sænska kennitölu móttakanda.
Leyfilegt verðmæti er misjafnt eftir stöðum:
• í Árósum - 360 danskar krónur fyrir hverja sendingu*.
• í Kaupmannahöfn - engin ákveðin upphæð.
• Helsingborg/Gautaborg - 45 ECU fyrir hvern fjölskyldumeðlim,
skrifa skal fjölda fjölskyldumeðlima utan á kassann,**
• Fredrikstad - 200 norskar krónur fyrir hverja sendingu.
Tollayfirvöld erlendis heimila innflutning á alit að 1 kg af kjöti og
17 kg af fiski. Heilbrigðisyfirlýsingar er krafist með öllum matvörum.
Vottorð/yfirlýsingar eiga að fást í viðkomandi verslun.
* Ef kjöt er sent tii Árósa þarf að fylla út umsókn um innflutning á kjöti.
**Til Svíþjóðar er bannað að senda vín, tóbak og ilmvötn. Frekari
upplýsingar fást hjá Útflutningsdeild Eimskips í síma 525-7230.
Frá Norðurlöndum til íslands
Áætluð brottför skips frá:
Árósum -11. des.
Kaupmannahöfn - 12.des.
Helsingborg - 12.des.
Gautaborg - 13 des.
Fredrikstad - 13.des.
Skrifstofa Eimskips/umboðsmaður
DFDS, sími 89 347474
DFDS, sími 43 203040
Anderson Shipping, sími 42 175500
Eimskip Svíþjóð, simi 31 124545
| Áætlaður komudagur til Reykjavíkur - 17. des.
Áríðandi er að pökkum sé skilað til vöruafgreiðslu í viðkomandi höfh a.m.k.
Nánari upplýsingar veitirViðskiptaþjónusta
Eimskips í Sundakletti.sími 525 7700,
Innflutningsdeild Eimskips, sími 525 7240
EIMSKIP
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!