Morgunblaðið - 24.11.1996, Side 37
h
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMNIIMGAR
SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 37
i
tvennum fótsporum í sandinum, önn-
ur tilheyrðu honum, og hin Guði.
Þegar síðasta atvik lífs hans birtist
honum, leit hann aftur á fótsporin
í sandinum. Hann tók eftir því að
mörgum sinnum í gegnum æviskeið
hans voru aðeins ein fótspor. Hann
tók líka eftir því að þetta gerðist
einmitt á erfiðustu tímabilum lífs
hans. Þetta angraði hann mikið, og
hann spurði Guð: „Guð, þú sagðir
að ef ég myndi ákveða að fylgja
þér, þá myndir þú ganga við hlið
mér alla tíð. En ég hef tekið eftir
því að á erfiðustu tímabilum lífs
míns, þá eru aðeins ein fótspor, ég
get ekki skilið af hveiju þú yfirgafst
mig þegar ég þarfnaðist þín mest.“
Guð svaraði: „Mitt dýrmæta barn.
Ég elska þig og ég myndi aldrei
yfirgefa þig. Á erfiðustu tímabilum
lífs þíns, þar sem þú sérð aðeins ein
fótspor, það var þá sem ég hélt á
þér.“
Ævinlega Guði falinn, elsku Finn-
ur minn.
Þóra Ingibjörg
Sigurjónsdóttir.
Baritónsaxinn í Tónlistarskólan-
um á Akureyri er þagnaður. Ein
röddin í kór tónlistarmanna á Akur-
eyri hefur lokið sínum söng.
Það er mikils virði að hafa fengið
að kynnast Finni Eydal tónlistar-
manni og kennara. Tónlistarmaður
sem verið hefur eins áberandi og
hann, hefur markað sín skref í tón-
Iistarmótun eftirkomenda sinna á
svo áberandi hátt að tilvist þess
þáttar í menningu samtímans þykir
okkur nánast sjálfsögð. Svo sjálf-
sögð að sá sem notið hefur á erfitt
með að ímynda sér hvernig verið
hefði að vera án þessa þáttar. Þann-
ig hefur Finnur verið fyrirmynd
ungra blásara um langa hríð og lagt
með lifandi leik sínum dijúgt af
mörkum til þess grunns sem hröð
uPPbygging tónlistarstarfs síðustu
áratuga hefur byggst á. Finnur hóf
kennslu við Tónlistarskólann á Ak-
ureyri árið 1981. Þar ekki síður en
í tónlistarflutningi hans hafa hinir
sérstöku mannkostir Finns notið sín
og haft áhrif á alla sem honum
kynntust. Jákvæð og vinsamlega
afstaða Finns og sú sérstaka elsku-
semi sem einkenndi framkomu hans
ávann honum væntumþykju og virð-
ingu nemenda hans svo að sérstakt
var. Með þessum einkennum persónu
sinnar og þeirri hlýju sem hann tók
á móti nemendum sínum með, er ég
viss um að hann hefur fært þeim
lærdóma og veganesti sem ná langt
út fyrir mörk tónlistariðkunarinnar.
Vonandi eigum við eftir að njóta
krafta sporgöngumanna Finns í
framtíðinni, þeirra sem hafa notið
ávaxtanna af starfi hans sem tónlist-
armanns og kennara. Sá er gangur
lífsins sinfóníu. Einn þáttur tekur
við af öðrum. En þó á það ekki við
nema um hina ytri þætti. Það sem
er sérstakt við hvern og einn, það
sem einkennir hveija persónu, það
verður ekki bætt en lifir áfram í
minningu þeirra sem fengu að njóta.
Og þar halda jákvæðir þættir áfram
að bera ávöxt í hugum þeirra sem
muna. í Tónlistarskólanum á Akur-
eyri lifir minningin um Finn Eydal
með þeim góðu straumum sem léku
um hann.
Tónlistarskólinn sendir aðstand-
endum Finns innilegar samúðar-
kveðjur.
Guðmundur Óli Gunnarsson.
Það kom ekki á óvart þegar hringt
var og sagt að Finnur væri dáinn.
Samt sem áður var þessi fregn frem-
ur óraunhæf. En Finnur hafði oft
áður verið milli heims og helju en
alltaf lifað af. Dauðinn kemur senni-
lega alltaf á óvart, sérstaklega þeg-
ar hann er óréttlátur og hinn dáni
ætti skilin einhver ár í viðbót. Það
hvernig litið er á dauðann fer að
vísu eftir því hvernig lífinu hefur
verið lifað og hve sáttur maður er
við sjálfan sig og sína nánustu. Einn-
ig skiptir máli hvort hugsað hefur
verið um dauðann sem eðlilega hlið
þess að lifa, eða hvort um hefur
verið að ræða afneitun á honum.
Menn hræðast oft að hugsa um
dauðann og tala um hann. Finnur
hafði ekki komist hjá því að velta
honum fyrir sér og takast á við
ýmsar af grundvallarspurningum
lífsins. Hann átti við langvarandi
veikindi að stríða, ekki einungis
nýrnasjúkdóm heldur einnig margs
konar önnur veikindi, sem oft hefði
mátt halda að legðu hann að velli.
Finnur stóð alltaf upp aftur og hélt
áfram að takast á við lífið. Þess
vegna mátti vel halda að nú þegar
síðasta áfailið dundi yfir, myndi
hann jafna sig og fara norður, eins
og hann vildi, komast heim til Ákur-
eyrar fyrir jól. Líkaminn gaf sig að
lokum og úr því sem komið var hef-
ur hvíldin göfugan tilgang fyrir
Finn, veitir honum lausn frá frekari
þjáningum og varnar því að hann
þurfi að lifa lífinu heilsulítill.
Líkamlegu áföllin gerðu Finn and-
lega sterkan og var sálarstyrkur
hans aðdáunarverður. Hann var gott
dæmi um það hvernig áföll breyta
gildismati manna. Áherslur verða
aðrar og einkalíf og starf fá nýjan
tilgang. Persónuleiki Finns breyttist
aldrei. Hann var alltaf hinn sami
ljúfi, blíði, létti og skemmtilegi Finn-
ur. Stundum er sagt að menn breyt-
ist með árunum, verði mildari í allri
framgöngu og sýni meira umburðar-
lyndi og sveigjanleika. Finnur
breyttist ekki, heldur var sá sami
alla tíð. Hann hafði alltaf sína gömlu
góðu eiginleika. Auk þess var það
einkenni hans að vera lítillátur og
vera ekki fyrir að láta á sér bera.
Hann var ekki sjálfmiðaður, talaði
sjaldan um sjálfan sig, heldur spurði
um okkur hin, fjölskyldur okkar, líð-
an manna og hvað þeir hefðu fyrir
stafni. Þetta gerði hann líka á
sjúkrahúsinu fársjúkur. Húmorinn
var alltaf á sínum stað og fram
undir það síðasta gerði Finnur að
gamni sínu og gat brosað að því sem
sagt var.
Þegar Finns er minnst kemur
óhjákvæmilega upp í hugann teng-
ing íjölskyldna okkar í áranna rás.
Eydalsfjölskyldan var að mörgu leyti
mjög lík innbyrðis og virtist opin,
en var í reynd fremur lokuð. Fólk
er vel skapi farið, fremur róiynt og
léttlynt og alltaf stutt í brandarana.
En hver bar harm sinn í hljóði ef
eitthvað var að. Foreldrar mínir og
Finns byggðu fyrsta húsið saman
og þar átti Finnur heima alla æsku
sína, að Hlíðargötu átta. Margar eru
minningarnar þaðan, en þar sem nær
dregur jólum koma minningar um
þau sérstaklega upp í hugann. Þær
eru ómetanlegar og áttu bræðurnir
þrír og fjölskyldan í Hlíðargötunni
dtjúgan þátt í því að gera jólin
ógleymanleg okkur hinum börnun-
um í fjölskyldunni. Þegar árin liðu
og leiðir skildu vegna náms, var
samt alltaf fylgst vel með hinum.
Oft var ekki talað svo mjög saman
lengi vel en þegar hist var fór gamla
platan í gang og augsýnilegt var að
mikil væntumþykja ríkti, afslöppun-
in og léttleikinn réð.
Tónlistin átti allaf allan hug
Finns. Þegar ég kom í fyrstu heim-
sókn á spítalann er hann hafði verið
fluttur suður, sagði hann fyrst af
öllu: „Mér finnst bara verst ef ég
get aldrei spilað aftur.“ Hann gerði
sér vel grein fyrir að lítil tök yrðu
á því. Finnur hafði lifað og hrærst
í tónlist frá blautu barnsbeini. Hún
var örugglega besti vinur hans fyrir
utan fjölskylduna. Þangað var alltaf
hægt að leita bæði í gleði og sorg.
Fyrir mörgum árum þegar mér veitt-
ist sú ánægja að aðstoða Finn í erfið-
leikum sem tengdu okkur saman á
vissan hátt alla tíð, sagði hann mér
að tónlistin gæti þá linað hugarkvöl
sína. Nú geta þeir bræður, Finnur
og Ingimar, sem báðir hafa látist
langt um aldur fram, leikið áfram
saman undurfagra tónlist fyrir alla
heima. Það verður ekki amaleg tón-
list. Það hefur verið sagt að dauðinn
sé staðreynd staðreyndanna, óhagg-
anlegust allra staðreynda. Þar verði
engu þokað og að frammi fyrir þeirri
staðreynd verði allt smátt nema
kærleiksrík auðmýkt og trú. Flestum
fínnst þessi óhagganleiki erfiður við-
ureignar, en hvernig maður sættist
við hann er háð því hvernig maður
hefur mætt lífínu sjálfur. Helena
kona Finns hefur unnið þvílíkt þrek-
virki öll árin með Finni að sennilega
er annað eins vandfundið. Það er
einstakt hvernig hún stóð af ósér-
hlífni og dugnaði við hlið manns sín
á hveiju sem dundi. Þannig kona á
margar orður skildar. Það hlýtur að
vera huggun á sorgarstundu að vita
um að eigin heilindi, staðfesta og
algjört traust var alltaf ósvikið og
auðsýnt hvar og hvenær sem með
þurfti. Kærleikurinn á milli þeirra
hjóna var aðdáunarverður og aldrei
var hægt að sjá annað en mikil gagn-
kvæm virðing væri á milli þeirra.
Áfallið verður léttbærara með slíkt
í veganesti.
Á sorgarstundu sendi ég Helenu,
börnunum þrem, og öllum öðrum
aðstandendum mínar dýpstu sam-
úðarkveðjur. Minning um góðan
dreng, ástríkan eiginmann, einstak-
an listamann og heilsteypta persónu
verður dýrmæt gjöf á veginum fram-
undan.
Guðfinna Eydal.
Minningarathöfn um
JÓN GUNNAR HELGASON, VIGNI HÖGNASON OG GUÐJÓN KJARTAN VIGGÓSSON,
sem fórust með ms. Jonnu SF 12 þann 13. október 1996, verður haldin í
Hafnarkirkju laugardaginn 30. nóvember kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast þeirra, er bent á slysavarnadeildirnar Höfn, símar 478 1265 og 478 1352.
Sólveig Edda Bjarnadóttir, Laufey Hallgrímsdóttir, Kristrún Harpa Kjartansdóttir
og aðrir vandamenn.
t
Ástkær eiginmaður rninn,, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi, bróðirog mágur,
GUNNAR H. VALDIMARSSON
flugvirki,
Árskógum 6,
sem lést á heimili sínu föstudaginn
15. nóvember, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 26. nóv-
ember kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent
á heimahlynningu Krabbameinsfélags íslands.
Þorgerður Bjarnadóttir,
Guðrún J. Gunnarsdóttir, Birgir Birgisson,
Hallgrímur V. Gunnarsson, Kristbjörg Sigurðardóttir,
Guðbjörg K. Gunnarsdóttir, Björn Guðjónsson,
Margrét Á. Gunnarsdóttir, Eyjólfur Ingimarsson,
Gunnar R. Gunnarsson, Björg G. Gísladóttir,
Árni E. Valdimarsson, Þóra Gyða Gunnlaugsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur
hlýju og vináttu vegna fráfalls
HÉÐINS SKÚLASONAR
lögregluf ulltrúa.
Sérstakar þakkir sendum við starfs-
fólki öldrunardeildar Landspítalans,
Hátúni 10B, fyrir sérstaka umönnun í
veikindum hans.
Nanna Þorsteinsdóttir,
Margrét Héðinsdóttir, Ólafur Ingi Baldvinsson,
Þorsteinn Héðinsson, María Birna Gunnarsdóttir,
Hilmar Héðinsson, Lena Maria Nolen,
Örn Héðinsson, Guðrún Hanna Hilmarsdóttir.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim,
sem auðsýndu okkur hlýhug og samúð
við andlát og útför eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
KRISTJÁNS EDILONS
HJÁLMARSSONAR,
Hringbraut 54,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til allra, sem hjálpuðu
honum í veikindum hans.
Hulda Margrét Hermóðsdóttir,
Ingibjörg Kristjánsdóttir, Guðjón Hólm Guðbjartsson,
Hans Guðmundur Magnússon,
Hulda Margrét Ingibjargardóttir, Valtýr Bergmann,
Kristján Edilon Magnússon,
Hólmar Hólm Guðjónsson,
Ólafia Þyrí Hólm Guðjónsdóttir,
Orri Bergmann Valtýsson.
+
Þökkum allan stuðning og hlýhug, sem okkur hefur verið sýndur,
vegna fráfalls ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföð-
ur og afa,
EINARS BJÖRNS SIGVALDASONAR,
Laugarnesvegi 78.
Sérstakar þakkir sendum við þeim, sem önnuðust hann í veikind-
um hans.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Ólafsdóttir,
Einar Þórketill Einarsson, Sigriður Emilia Eiríksdóttir,
Olöf Einarsdóttir,
Sigvaldi Sveinbjörn Einarsson, Heiðdis Sigurðardóttir,
Ólafur Einarsson
og barnabörn,
Björn Einar Sigvaldason og fjölskylda,
Lennard Sigvaldason og fjölskylda.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vináttu við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, bróður, föður okkar,
tengdaföður og afa,
VALTÝS
HÓLMGEIRSSONAR
fyrrv. stöðvarstjóra
Pósts og síma
á Raufarhöfn.
Steingerður Theodórsdóttir,
Vilhjálmur Hólmgeirsson,
Sólveig Valtýsdóttir, Hörður Rúnar Einarsson,
Bragi Davíð Valtýsson, ,
Ragnheiður Valtýsdóttir, Sæmundur Einarsson,
Rósa Valtýsdóttir
og barnabörn.