Morgunblaðið - 24.11.1996, Side 56
560 6060
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÖLF 3040, NETFANG MBL@CENTRVM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1
SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
* a
Formaður LIU
Hafnar
leiðum
Halldórs
KRISTJÁN Ragnarsson, formaður
LÍÚ, segir að ræða Halidórs Ás-
grímssonar utanríkisráðherra við
setnirigu flokksþings Framsóknar-
flokksins vekji þá spurningu hvort
ríkisstjómin ætli ekki að standa við
samkomulag um frumvarp um út-
hafsveiðar.
„Ég er sammála formanni Fram-
sóknarflokksins um að verð á afla-
heimildum er óeðlilega hátt, en
menn verða auðvitað að gera sér
grein fyrir að þegar einhver hlutur
er settur á markað er það markað-
urinn sem ræður verðinu og þyð
getur enginn haft áhrif á það. Ég
átta mig ekki á þeirri hugmynd að
taka einhveijar viðbótarheimildir og
selja þær í samhengi við þetta atr-
iði. Ég bendi á að við erum ekki
komnir með hálfar þær þorskveiði-
heimildir sem við höfðum þegar
kvótakerfið var sett á. Menn verða
að hafa þetta í huga þegar rætt eru
aukningu á þorskkvóta. Ég sé ekki
að stjómvöl geti með nokkrum hætti
komið inn í það mál með því að
taka einhverjar viðbótarveiðiheim-
. ildir og selja þær til þess að búa til
einhvern verðjöfnunarsjóð. Ég
hafna slíkum hugmyndum alfarið,"
sagði Kristján.
Samkomulag um
veiðar í úthafinu
Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp
um veiðar á úthafinu. Það gerir ráð
fyrir að útgerðarmenn skili hluta
aflaheimilda á heimamiðum vegna
veiða í úthafinu og þeim verði út-
hlutað til annarra útgerða til jöfn-
unar. Kristján sagði að þetta frum-
varp væri umdeilt meðal útvegs-
manna. Útgerðin hafi lagt mikið á
sig til að afla veiðiheimilda í úthaf-
inu. LÍÚ hafi engu að síður sam-
þykkt að styðja frumvarpið. „Um
þetta frumvarp hefur náðst sam-
komulag við ríkisstjórnina. Mér
finnst að formaður Framsóknar-
flokksins sé að gefa til kynna að
ríkisstjórnin ætli ekki að standa við
þetta samkomulag," sagði Kristján.
Morgunblaðið/Kristinn
Dragnótabátur faldi fimm tonn af þorski undir kola og ýsu
Sviptur veiðileyfi
Brúin yfir
Gígjn
tilbúin
FRAMKVÆMDUM við nýja brú
yfir Gígju er að ljúka, en brú yfir
ána eyðilagðist í hlaupinu fyrr i
mánuðinum. Þrátt fyrir frost og
moldrok hefur bygging brúarinn-
ar gengið vel og tekið skemmri
tíma en ætlað var í upphafi.
Unnið er hörðum höndum við
að ljúka gerð vega yfir Skeiðar-
ársand, en áætlað er að yfir 10
km af vegum hafi sópast burt eða
skemmst i hlaupinu. Reiknað er
með að vegurinn verði opnaður
almennri umferð í næstu viku.
MÍMIR ÍS, dragnótabátur frá Bol-
ungarvík, hefur verið sviptur veiði-
leyfi frá 11. nóvember til 15. desem-
ber samkvæmt ákvörðun Fiskistofu
fyrir að hafa falið 5,1 tonn af þorski
undir kola og ýsu í körum við iöndun
eftir róður í sumar. Mál vegna brota
á nýjum lögum um umgengni um
nytjastofna sjávar sem Fiskistofa
hefur haft afskipti af frá því að lög-
in tóku gildi nálgast nú tuginn.
Nokkur mál til skoðunar
Flest eru vegna vigtunarbrota og
í einu tilfelli er netabátur frá verstöð
við Eyjafjörð talinn hafa fært 5 tonn
af fiski úr netum yfir í krókabát.
Sömu viðurlög liggja við slíkum brot-
um og við því að koma ekki með
allan fisk að landi. Tvö slík mál eru
til skoðunar þar sem grunur leikur
á að á annað hundrað kílóum af fiski
hafi verið hent fyrir borð.
Samkvæmt lögunum um um-
gengni um nytjastofna sjávar eiga
skipstjórar og útgerðarmenn hlut-
aðeigandi báta, auk veiðileyfasvipt-
ingarinnar, yfír sér að höfðað verði
gegn þeim opinbert mál til refsing-
ar. Kveðið er á um tveggja vikna
lágmarkssviptingu og 400 þúsund
króna lágmarkssekt fyrir fyrsta brot
á lögunum. Hámarksviðurlög fyrir
fyrsta brot er svipting í 12 vikur og
4 milljóna króna sekt.
Við ítrekað brot er lágmarkssvipt-
ing í 12 vikur og lágmarksrefsing
800 þúsund króna sekt. Hámarks-
svipting við ítrekun er 1 ár og há-
markssektin er þá 8 milljónir króna.
Séu brot stórfelld og ítrekað framin
af ásetningi varða þau auk þessa
varðhaldi eða fangelsi í allt að sex
ár. Eigi tveir bátar hlut að máli vinna
báðir til viðurlaga.
Sveppasýkingar mun útbreiddari hér en í nágrannalöndunum
Kostnaðiir vegna sveppa-
lyfja hefur sexfaldast
KOSTNAÐUR vegna kaupa á lyfj-
um gegn sveppasýkingum hefur
meira en sexfaldast á undanförnum
árum, úr tæpum 16,8 milljónum
króna á árinu 1989 í 104,5 milljón-
ir árið 1995. Búast má við að hann
eigi enn eftir að margfaldast á
næstu árum eftir því sem fleiri leita
sér lækninga. Gerð hefur verið ítar-
leg rannsókn á útbreiðslu sveppa-
sýkinga hér á landi. Náði hún til
Ijögur þúsund einstaklinga og
bendir til þess að sveppasýkingar
séu mun algengari en í nágranna-
löndunum. Bárður Sigurgeirsson
læknir, sem er einn þeirra sem
unnu að rannsókninni, segir að
SVEPPASÝKING í nögl.
sennilegasta skýringin sé sú, að
íslendingar sæki sundlaugar meir
en aðrar þjóðir.
Árið 1993 kom fram lyfið Terbin-
afin og var þá í fyrsta sinn hægt
að lækna sveppasýkingar í nöglum.
Islendingar áttu á því ári heimsmet
í notkun á lyfinu. „Það kemur fram
í rannsókninni að yfir 90 prósent
karla og kvenna vilja fá lækningu
á þessum kvilla. Fyrir nokkrum
árum gátum við lítið gert við honum
og menn urðu að sætta sig við hann.
Stundum var reynt að fjariægja
neglurnar og gefa lyf árum saman.
Árið 1993 gjörbreyttist þessi
staða.“
Bárður telur að tilhneiging til að
fá sveppasýkingar sé að einhveiju
leyti arfgeng. „Menn eru mjög mis-
munandi næmir fyrir sýkingunum
og sumir sem við höfum verið að
lækna smitast mjög fljótt aftur. Ég
hef tekið eftir því að sú tilhneiging
liggur oft í ákveðnum ættum.“
Bárður segir að einfaldasta ráðið
til að forðast sveppasýkingar sé að
forðast að stíga berum fæti á gólf
á sundstöðum og öðrum heilsurækt-
arstöðum. „Við vitum ekki nægi-
lega mikið um smitleiðirnar, til
dæmis hversu lengi sveppirnir geta
lifað á gólfum á opinberum stöðum
og hvort fýsilegt sé að eyða þeim
með einhveijum efnum. Ef okkur
tækist að draga úr þessum sýking-
um væri það mikill sparnaður fyrir
heilbrigðiskerfið."
Akureyri
Grunur
um kyn-
ferðislega
áreitni
MAÐUR á sextugsaldri hefur
verið úrskurðaður í gæsluvarð-
hald til 30. nóvember vegna
gruns um kynferðislega áreitni
við stúlkubörn á Akureyri.
Maðurinn var handtekinn í
byijun vikunnar og í framhald-
inu úrskurðaður í gæsluvarð-
hald að kröfu sýslumannsins á
Akureyri.
Málið er í rannsókn og á
afar viðkvæmu stigi, sam-
kvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni. Rannsóknardeild
lögreglunnar á Akureyri vildi
ekki tjá sig að öðru leyti um
málið í gær.