Morgunblaðið - 01.12.1996, Qupperneq 1
160 SÍÐUR B/C/D/E/F
STOFNAÐ 1913
276. TBL. 84. ÁRG.
SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ertu sænsk og
ólétt? Má ég
fá starfið þitt?
RÍKISREKIN ráðningarstofa í Sví-
þjóð hefur verið gagnrýnd fyrir að
ráðleggja fólki í atvinnuleit að snúa
sér til ófrískra kvenna, spyrja þær
hvar þær vinni og hvort þær ætli í
fæðingarorlof.
Þetta ráð var birt í fréttablaði ráðn-
ingarstofpnnar og hópur atvinnu-
lausra kvenna hefur kvartað yfir því
við umboðsmann þingsins. „Þetta er
niðurlægjandi," sagði Siv Berglund,
ein kvennanna. „Hver verður næsta
ráðlegging? Að kanna hveijir séu
fluttir á slysadeildir sjúkrahúsanna?"
„Ég er sammála því að orðalag til-
kynningarinnar er fremur óheppi-
legt,“ sagði Hakan Lindgren sem gef-
ur fréttablaðið út.
Sænskar konur geta fengið fæðing-
arorlof í eitt ár á nær fullum launum
og atvinnurekendum ber skylda til að
veita þeim sambærilegt starf þegar
þær snúa aftur til vinnu.
Kúba fær rusla-
tunnur að gjöf
ÞRÁTT fyrir spennu í samskiptum
Spánveija og Kúbveija síðustu daga
hefur bæjarstjórn Sitges í Katalóníu
ákveðið að færa Kúbu stærstu gjöfina
sem hún segir að Katalónar hafi
nokkru sinni gefið þessari fátæku
eyju - 350 notaðar ruslatunnur.
Bæjarstjórnin tilkynnti þetta á
föstudag, þremur dögum eftir að mik-
il harka færðist í deilu ríkjanna vegna
gagnrýni spænsku stjórnarinnar á
kommúnistastjórnina á Kúbu. „Bæjar-
stjórn Sitges hefur ákveðið að sýna
kúbversku þjóðinni samstöðu með
þessum hætti vegna efnahagsþreng-
inga hennar og sterkra sögulegra
tengsla bæjarins við eyjuna,“ sagði í
tilkynningu frá stjórninni.
Útfararstjórar
bæta ráð sitt
HUNDRUÐ útfararstjóra frá Róm-
önsku Ameríku komu saman í Sao
Paulo í Brasilíu í gær til að ræða
hvernig þeir gætu hafið stéttina til
vegs og virðingar eftir að hafa sætt
gagnrýni fyrir lélega þjónustu. „Oft-
ast kvarta viðskiptavinirnir yfir því
að líkin séu ekki snyrt nógu vel,“ sagði
Lurival A. Panhozzi, formaður félags
útfararstjóra í Sao Paulo.
Reuter
Jólamarkaður opnaður í Niirnberg
ÞEKKTASTI jólamarkaður heims var opnaður við hátíðlega at- staddir athöfnina og búist er við tveimur milljónum gesta á mark-
höfn í Niirnberg i Þýskalandi á föstudag. 10.000 manns voru við- aðinn. Hér er átján ára stúlka klædd sem Jesúbarnið við opnunina.
Stj órnarandstæðingar mótmæla í Belgrad
Hóta að hunsa
þingið í Serbíu
Belgrad. Reuter.
STJORNARANDSTÆÐINGAR í Serbíu
hafa hótað að sniðganga þing og borgar-
stjómir landsins verði stjórnvöld ekki við
kröfu þeirra um að viðurkenna sigra stjórn-
arandstöðunnar í bæjar- og borgarstjórna-
kosningum 17. nóvember.
Zoran Djindjic, leiðtogi Zajedno, kosn-
ingabandalags stjórnarandstæðinga, sagði
á 100.000 manna mótmælafundi í miðborg
Belgrad í fyrrakvöld að fulltrúar bandalags-
ins myndu hunsa þingið ef það yrði ekki
við kröfunni á næsta þingfundi á þriðjudag.
Tugir þúsunda manna hafa komið saman
daglega í miðborg Belgrad í tvær vikur til
að mótmæla meintum kosningasvikum
stjórnarflokksins og búist er við enn fjöl-
mennari mótmælafundum um helgina.
Stjórnarandstæðingarnir saka stjórnar-
flokk Slobodans' Milosevic, forseta Serbíu,
um að hafa falsað kjörgögn í miklum mæli
til að geta ógilt kosningar í borgum þar sem
stjórnarandstaðan sigraði. Efnt var til nýrra
kosninga á miðvikudag og á föstudag var
tilkynnt að Zajedno hefði misst meirihluta
í nokkrum borgarstjórnum, meðal annars í
Belgrad.
Álitshnekkir fyrir Milosevic
Fréttaskýrendur telja ólíklegt að það
muni hafa mikil áhrif á störf þingsins þó
að stjórnarandstaðan standi við hótunina.
Milosevic sé einráður í landinu, þingið sé
aðeins notað til að fullnægja formsatriðum
og staðfesti gagnrýnislaust ákvarðanir for-
setans. Stjómarerindrekar í Belgrad segja
hins vegar að Milosevic bíði frekari álits-
hnekki heima fyrir og erlendis hætti stjórn-
arandstaðan að taka þátt í störfum þingsins.
Menn send-
ir til Mars?
London. Reuter.
BANDARÍSKA geimvísindastofnunin
NASA er að leggja drög að áætlun
um að senda sex geimfara til Mars
innan átta ára eftir að stjórnvöld
leggja blessun sína yfir slíka geim-
ferð, að sögn vísindamannsins Erics
McHenrys, sem stjórnar undirbún-
ingnum. Hann kvaðst hafa fengið
þetta verkefni eftir að NASA til-
kynnti fyrr á árinu að fram hefðu
komið vísbendingar um að frumstætt
líf þrifist á Mars.
McHenry sagði í samtali við breska
útvarpið BBCi fyrrakvöld að nauðsyn-
legt væri að senda geimfara til reiki-
stjörnunnar til að ganga úr skugga
um hvort örverur þrifust undir yfir-
borði hennar. Vélmenni, sem ráðgert
er að senda til Mars, gætu ekki borað
nógu djúpt til að hægt yrði að svara
þessari spurningu.
McHenry sagði að tæknilega væri
ekkert því til fyrirstöðu að senda geim-
fara til Mars. Það væri hins vegar
dýrt og erfíðasta verkefnið væri að
finna leiðir til að draga úr kostnaðinum.
Fyrrum yfirmaður KGB
VIÐ HÖFUM VERIÐ
VÆNGSTÝFÐIR
12