Morgunblaðið - 01.12.1996, Page 5

Morgunblaðið - 01.12.1996, Page 5
Hðnnun: Gísli B. / Tölvuvinnsla: Gunnar Steinþórsson / FÍT /1996 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996 5 * o ^APp. rk> ÍSLENSK, HÓMILIUBOK FORNAR STÓLR/ÍÐUR Góðarbækur Sígild verk um valin efni Síöustu dagar Sókratesar DÓxMKIRKJAN í REYKJAVIK otrtinguf Maríukver Sögur og kvæði af heilagri guðsmóður frá fyrri tíð Maríu saga er lífssaga Maríu guðsmóður og hefur lengi verið rómuð fyrir stíl og lærdóm. Inn í frásögnina af ævi Maríu er ofið heimspekilegum og guðfræðilegum skýringum sem gerir söguna einstaka innan evrópskrar Maríuhefðar. Sagan er í fyrsta skipti prentuð á íslandi, ásamt úrvali jarteina, nokkrum hómilíum um Maríu, gömlum Maríu- bænum og úrvali Maríukvæða. Útgáfan er aðgengileg almenningi og fylgt úr hlaði með ítarlegum formála. Maríukver er gefin út í sama búningi og íslensk hómilíubók. Þessi rit eru góðir erfðagripir íslenskrar menningar. Lærdómsrit Bókmenntafélagsins Þessi vinsæli bókaflokkur hefur að geyma 32 sígild j bókmenntaverk, m.a. um hagfræði, skáldskap, sögu, I heimspeki, bókmenntir, stjórnmál, líffræði, siðfræði, sálarfræði, ; stærðfræði og eðlisfræði, svo fátt eitt sé nefnt. Ritin eru í : aðgengilegri útgáfu, með inngangi og skýringum, þar sem leitast er við að gera grein fyrir áhrifum hvers og eins þeirra á íslenska menningu og setja þau að öðru leyti í samhengi við íslenskar aðstæður. Vakin er sérstök athygli á ritunum: Síðustu dagar Sókratesar, Mennt og máttur, Birtíngur, Lof heimskunnar, Um vináttuna og Siðfræði Níkomakkosar. Dómkirkjan í Reykjavík 200 ára Saga húss og safnaðar Hluti I: Byggingarsaga Hluti II: í iðu þjóðlífs Höf.: Sr. Þórir Stephensen Glæsilegt rit, þar sem gerð er grein fyrir hugmyndum um helgisetur í Reykjavík frá upphafi íslandsbyggðar og rakin saga kirkju- bygginga, einkum núverandi húss sem er 200 ára. Sagt frá kirkjugripum, messunni, sætaskipan, söng- og tónlistarlífi í kirkjunni, sem er vettvangur hátíðar- og sorgarstunda, helsta jarðarfararkirkjan, kirkja biskupa, konunga og forseta. Sveinn luimrsson ISI.I’XSk L EIK LIS T II hi”i Skn.irðsson Samhengi og samtíð Fjórði og síðasti flokkur heildarútgáfu rita Sigurðar Nordals. Þrjú bindi í öskju. Meginviðfangsefnið nú er samhengi íslenskrar menningar frá fornbók- menntum og til vorra daga, þ.m.t. áður óprentaðir og víðkunnir háskóla- fyrirlestrar Sigurðar um íslenska bókmenntasögu 1350-1750, ritgerðir um þjóðsögur, alþingi hið forna, bókmenntir síðari alda og menningu almennt. Rækilegar nafna- og bókmenntaskrár yfir öll 12 bindi ritsafnsins eru í lokabindinu. Bókmenntafélagið hefur nú tekið við sölu á fyrri flokkunum þremur í heildarútgáfu rita Sigurðar Nordals. Ritsafnið er eitt hið viðamesta um íslenskar bókmenntir og listir og er nauðsynlegt á hvert menningarheimili. I i\ö bílciiska IV .k n tcnntal íi ctg Islensk leiklist II Höf.: Sveinn Einarsson Hér birtist framhald ritsins íslensk leiklist I, sem út kom 1991 og er nú rakin saga íslenskrar leiklistar á árunum 1890-1920, en á þeim árum var lagður grundvöllur að listrænu starfi á íslensku leiksviði. Sagt er frá frumherjum íslenskrar leiklistar, vinsælum leikstjörnum þessara ára, leikskáldunum sem gerðu garðinn frægan - líka erlendis. Þetta er bók fyrir alla leiklistarunnendur. Hugmytidaheimur Magn u sar 8tephensens Hugmyndaheimur Magnúsar Stephensen Höf.: Ingi Sigurðsson Magnús Stephensen dómstjóri (1762-1833) var helsti leiðtogi upplýsingarstefnunnar, hinnar fjölþjóðlegu hugmyndastefnu, á íslandi. Upplýsingin markaði þáttaskil í hugmynda- og menningarsögu á Vesturlöndum. Magnús gegndi forystuhlutverki í íslenskri menningu í heilan mannsaldur. Kannað er hvemig viðhorf Magnúsar tengjast hugmyndum síðari kyn- slóða. Þetta er bók handa áhugamönnum um sagnfræði - og öllum hinum. HIÐISLENSKA BOKMENNIAFEIAG SÍÐUMÚLA 21 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 588 9060 • FAX 588 9095 &SK)FNAÐ^ il816| G/SRn k ^

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.