Morgunblaðið - 01.12.1996, Qupperneq 8
8 SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fólki fækkar í Evium bráít fvrir uuusveiflu í alvinnulífiuu
EmGvMu^JO
NEI, nei, Gaui minn, bara losa þig við liðið sem þú ert hættur að nota,
ég skal ekki snerta fuglana þína . . .
Umboðsmaður Alþingis tekur af vafa um stöðu stjórnvalds
Hægt að kæra ákvarðanir
Húsnæðisstjómar til ráðherra
UMBOÐSMAÐUR Alþingis segir að
hægt sé að kæra ákvarðanir, sem
teknar eru af starfsmönnum Hús-
næðisstofnunar ríkisins, þar með tal-
in húsnæðismálastjóm, til félags-
málaráðherra til endurskoðunar.
Óvissa hafði ríkt um stöðu Húsnæðis-
stofnunar eftir að breytingar voru
gerðar á lögum um stofnunina árið
1993. Fyrir breytingarnar var Hús-
næðisstofnun skilgreind sem sjálf-
stæð ríkisstofnun, en umboðsmaður
segir hana nú hafa stöðu lægra setts
stjórnvalds gagnvart félagsmálaráð-
herra.
Umboðsmaður ákvað að eigin
frumkvæði að athuga skilyrði stjóm-
sýslukæru til félagsmálaráðuneytis-
ins samkvæmt lögum nr. 97 frá 1993
um Húsnæðisstofnun ríkisins. Tilefni
þessa var, að honum höfðu borist
kvartanir er lutu að afgreiðslu hús-
næðismálastjórnar annars vegar á
umsókn um svonefnt greiðsluerfið-
leikalán og hins vegar á umsókn um
skipti á fasteignaverðbréfi fyrir hús-
bréf, eftir að frestur til slíkra skipta
var liðinn.
Ráðuneytið taldi erfitt að
skýra sambandið
í bréfi félagsmálaráðuneytis til
umboðsmanns vegna þessa máls kom
fram, að erfitt hefði verið að skýra
kærusamband Húsnæðisstofnunar og
ráðuneytisins. Stofnunin hefði þing-
kjöma stjóm og því hefði ráðuneytið
litið svo á að ekki væri hægt að
kæra ákvörðun stjómarinnar til ráðu-
neytisins. Hins vegar væri Húsnæðis-
stofnun ekki lengur sjálfstæð ríkis-
stofnun. Félagsmálaráðuneytið taldi
nauðsynlegt að kveða á um kærusam-
band með lögum, en í áliti umboðs-
manns kemur fram að frumvarp þess
efnis hafi ekki verið lagt fram.
Húsnæðismálastjórn tók í sama
streng og ráðuneytið og taldi ekki
kærusamband þar á milli og engin
breyting hefði orðið þar á þótt Hús-
næðisstofnun væri ekki lengur sjálf-
stæð ríkisstofnun.
Umboðsmaður segir í áliti sínu,
að ekki sé sérstaklega tekin afstaða
til þessa álitaefnis í núgildandi lögum
um Húsnæðisstofnun og ráðist svarið
því af stÆu stofnunarinnar í stjóm-
kerfinu og stjórnsýslusambandi
hennar og félagsmálaráðherra. Úr-
siitum ráði því, hvort telja beri stofn-
unina sjálfstæða eða lægra sett
stjómvald gagnvart félagsmálaráð-
herra. Umboðsmaður segir, að kveði
lög ekki skýrt á um sjálfstæði stjórn-
valda og verði sú ályktun heldur
ekki leidd af ákvæðum laga með
fullri vissu verði talið, að um lægra
sett stjómvald sé að ræða.
Ekki undanskilið í lögum
Máli sínu til stuðnings vísar um-
boðsmaður til þess að ákvæði um að
Húsnæðisstofnun skyldi vera sjálf-
stæð stofnun var fellt brott í nýjum
lögum og að við umræður á Alþingi
um nýju lögin hafi m.a. komið fram
í máli framsögumanns meirihluta fé-
lagsmálanefndar að stofnuninni væri
ætlað að vera sérstök ríkisstofnun
sem heyrir beint undir ráðherra en
ekki vera í hópi þeirra ríkisstofnana
sem flokkast sem sjálfstæðar ríkis-
stofnanir. „Fer því ótvírætt um stöðu
Húsnæðisstofnunar samkvæmt þeirri
meginreglu íslenskrar stjómskipunar,
að ráðherra fer með yfirstjóm stofn-
ana, sem undir hann heyra sam-
kvæmt reglugerð um Stjómarráð ís-
lands, sbr. 15. gr. stjómarskrárinnar,
nema hún sé að lögum undanskilin,“
segir umboðsmaður.
O/J/ð í dag
13-18
Kveikt á jólatrénu kl.14
KRINGMN
Blað allra landsmanna!
-kjarnimálsins!
Sigríður Ingvarsdóttir
►Sigríður Ingvarsdóttir er
fædd í Reykjavík og lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum
við Tjörnina árið 1974. Hún
lauk BA prófí í stjórnmálafræði
árið 1983 og stundaði nám í
viðskiptafræði við London
School of Economics and Poli-
tical Science veturinn 1988 til
1989. Hún lauk MA í Arts Adm-
inistration árið 1990 og hefur
síðan starfað hjá Sotheby’s í
London við listverkasölu. Hún
er formaður íslandsdeildar
Caritas, sem er hjálparstofnun
innan kaþólsku kirkjunnar.
Maki hennar er Herluf Clausen.
Safnað fyrir alzheimersjúklinga
Aðventusöfnun
Caritas
CARITAS, hjálpar-
stofnun kaþólsku
kirkjunnar, safn-
ar á þessari aðventu fé
fyrir alzheimersjúklinga
og helsti söfnunardagur-
inn er í dag, sunnudaginn
1. desember. Þá er safnað
fé í öllum kaþólskum
kirkjum landsins. Sigríður
Ingvarsdóttir er formaður
Caritas á íslandi og hefur
verið frá árinu 1993.
Hvers vegna er safnað
sérstaklega fyrir alzheim-
ersjúklinga núna?
- Hlutverk Caritas er
fyrst og fremst að afla
flár fyrir þá sem minna
mega sín. Alzheimer-
sjúklingar og aðstandend-
ur þeirra tilheyra þeim
hópi. Alzheimersjúkdóm-
urinn getur lagst á fólk
jafnvel innan við fimm-
tugt og hann er válegri en aðrir
sjúkdómar að því leyti að hann
deyðir fómarlömb sín má segja
tvisvar, fyrst hugann og síðar lík-
amann. Hann lýsir sér í hægt
vaxandi minnistapi sem síðan
ágerist uns sjúklingurinn á mjög
erfitt með að takast á við hluti
sem honum voru áður eðliiegir.
Sjúklingurinn man ekki eftir eigin
heimilisfangi, ratar ekki um eigið
húsnæði. Öll hugsun verður erfið
og við tekur rugl og lélegt raun-
veruleikaskyn þegar sjúkdómur-
inn ágerist. Að lokum verður
sjúklingurinn allsendis ófær um
að annast sjálfan sig og algerlega
háður öðrum. Alzheimersjúkling-
ar og aðstandendur eiga oft í
verulegum erfiðleikum, ekki síst
þar til hinum sjúka hefur verið
fundinn verustaður til frambúðar
því miklum vandkvæðum er
bundið að hafa slíka sjúklinga í
heimahúsum.
Hefur Caritas staðið oft fyrir
sambærilegum söfnunum?
- Frá því íslandsdeildin var
stofnuð 1988 hefur verið staðið
fyrir fjársöfnun á aðventu og
lönguföstu. Það fé sem hefur
safnast á lönguföstu hefur verið
sent ti þróunarlanda en hins veg-
ar höfum við varið því fé sem
hefur safnast á aðventu innan-
lands. Þá höfum við verðið með
fláröflun fyrir þá sem minna
mega sín og reynt að vekja at-
hygli á málaflokkum sem hefur
ekki verið sinnt sem skyldi. í
tengslum við þijár síðustu safn-
anir héldu landsþekktir listamenn
glæsilega tónleika í Kristskirkju
þar sem þeir gáfu vinnuframlag
til styrktar þessum málefnum
sem sannarlega er þakkarvert.
Hvernig gengu þessar safnanir?
- Að undanförnu hafa þær
gengið vonum framar. í fyrra
tókst okkur að safna 600 þúsund
krónum fyrir misþroska og ofvirk
börn. Stuttu síðar kom lyfjafyrir-
tækið Pharmaco og gaf
þessum málaflokki 5
milljónir króna sem
skipti sköpum. Ég tel
að við megum vel við
una í þetta fámennum
söfnuði, en auðvitað
reynum við að leita út fyrir söfn-
uðinn í fjáröfiun okkar.
Eru Caritas-samtökin alþjóðleg?
- Caritas Internationalis
starfa innan rómversk-kaþólsku
kiijunnar og er ein umsvifamesta
hjálparstofnun í heiminum. í
Þýskalandi starfa t.d. yfír 400
þúsund manns hjá Caritas. Ka-
þólski söfnuðurinn hér er hins
vegar fámennur eins og áður seg-
ir eða um 2.700 manns og þar
af eru 20 til 30% virk í starfi.
Caritas aflar
fjár fyrir þá
sem minna
mega sín
Við höfum því enga burði til að
keppa við félagsmálastofnun í
hjálparstarfmu.
Eru fleiri hjálparstofnanir starf-
andi innan kaþólsku kirkjunnar
hériendis?
- Caritas er eina hjálparstofn-
unin sem er starfandi innan kaþ-
ólsku kirkjunnar hér á landi. Hins
vegar ber að minnast St. Jósefs-
systra sem komu hingað til lands
í byijun aldarinnar og lyftu hér
grettistaki í málefnum sjúkra.
Þær byggðu m.a. Landakotsspít-
ala sem þær ráku í þijá aldar-
fjórðunga. Þá söfnuðu þær fé,
byggðu og starfræktu St. Jósefs-
spítala í Hafnarfirði sem gegndi
stóru hlutverki í heilbrigðisþjón-
ustu Hafnarfjarðar og komu m.a.
á fót bamaskólum í Reykjavík
og Hafnarfirði sem gátu sér gott
orð. Nú eru þessi spítalar í eigu
hins opinbera. Systurnar fluttu
með sér mikla þekkingu til lands-
ins og voru margar vel menntað-
ar í hjúkrun og viðskiptafræðum
og gátu þess vegna rekið spítal-
ana með miklum myndarbrag.
Það má segja að þær hafí verið
okkar þróunarhjálp þegar okkur
lá mest á. Við fáa utanaðkom-
andi stendur íslenska þjóðin í
jafnmikilli þakkarskuld og þær
reglusystur. Kaþólska
kirkjan rekur Landa-
kotsskóla, sem nýtur
virðingar þeirra sem til
starfs hans þekkja.
Hann er af mörgun tal-
inn einn albesti bama-
skóli landsins. Ef við lítum til
þeirra þjóða þar sem kaþólska
kirkjan er sterk og söfnuðir fjöl-
mennir sjáum við að hjálparstarf
skipar veglegan sess þar sem
Caritas starfrækir skóla, sjúkra-
hús, aðstoð við aldraða og sinnir
ýmiss konar þróunarhjálp. Þeir
sem hafa áhuga á að styrkja alz-
heimersjúklinga geta lagt inn
framlög sín inn á póstgíróreikn-
ing 0900-196002. Einnig verða
seld jólamerki.