Morgunblaðið - 01.12.1996, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF TIL BLAÐSINS
• Reykjavíkurflugvöll burt
Frá Þórði E. Halldórssyni:
ÞAÐ er með algjörum ólíkindum
hvernig menntaðir, langskóla-
gengnir menn geta látið frá sér
fara ummæli sem enga stoð eiga
í veruleikanum, þegar villa þarf
um fyrir hinum almenna borgara
um framkvæmdir hins opinbera.
| Sunnudaginn 27. október er heil-
síðu grein á bls. 18 í Morgunblað-
inu ásamt veimur myndum, sem á
að lýsa væntanlegum samgöngum
milli Reykjavíkur og Keflavíkur-
flugvallar.
Tilefni greinarinnar er hugmynd
sem Guðrún Ágústsdóttir, forseti
borgarsjtórnar, lætur frá sér fara
um að leggja niður Reykjavíkur-
flugvöll og flytja flugið til Kefla-
víkur.
Samgönguráðherra, Halldór
Blöndal, er ekki lengi að redda
hlutunum. Hann ætlar að gera við
og endurbyggja Reykjavíkurflug-
völl fyrir aðeins 1,3 milljarða.
Hann getur þess vegna ekki hvað-
an þessi tala er komin, hvort það
er frá mönnum sem þekkja til
slíkra mála, eða hvort þær urðu til
í hans eigin heilabúi. Halldór skort-
ir svo sem ekki meðreiðarsveina.
i í þessari umgetnu grein er leitað
' til þess aðila, sem mestar líkur eru
til að hafi inngrip í þessi mál, Þor-
geirs Pálssonar flugmálastjóra.
Hann segir að miðað við reynslu-
tölur frá Finnlandi mætti gera ráð
fyrir að stofnkostnaður við hrað-
lest milli Reykjavíkur og Keflavík-
urflugvallar yrði 20-30 milljarðar
l króna. í framhaldi af þessu fer
hann að fílósófera um fleiri dæmi
máli sínu til áréttingar og segist
nýlega hafa fengið fregnir af því
að hraðslest sem á að tengja nýjan
flugvöll í Gardemoen og Osló
myndi kosta um 72 milljarða ísl.
kr. Vegalengdin milli Gardemoen
og Osló er 48 km. Eftir frásögn
Þorgeirs er áætlað að hraðlest
muni fara þá leið á 19 mínútum.
Ennfremur segir svo í Morgun-
blaðsgreininni: „Eina könnunin
sem gerð hefur verið a því að koma
I upp hraðlestarkerfi milli Reykja-
' víkur og Keflavíkurflugvallar er
arðsemismat sem fjórir nemar í
vélaverkfræði við Háskóla íslands,
þeir Guðjón Ásmundsson, Pétur
Órn Richter, Levi Guðmundsson
og Sveinn Stefán Hannesson gerðu
fyrir nýsköpunarsjóð námsmanna.
Samkvæmt arðsemismatinu yrði
heildarkostnaður við lagningu lest-
arteins og reksturs lestarkerfis um
7,3 milljarðar."
Allar þær upplýsingar sem að
framan getur eru svo hrópandi
andstæður að í þeim er ekki heil
brú, enda gerðar til þess eins að
villa um fyrir fólki sem gerir ráð
fyrir því að mennirnir sem fengu
embætti sitt út á sína námsmennt-
un væru ólíklegustu mennirnir til
að villa um fyrir fólki. Ég vil taka
fram að ég er enginn vikapiltur
fyrir Guðrúnu Ágústsdóttur. Hins
vegar sé ég ekki betur en hún
horfi raunsæjast á þetta mál. Til-
laga Guðrúnar hljóðar upp á það
að gera rækilega könnun á arðsemi
þess að íjarlægja Reykjavíkurflug-
völl, en það er sumum eins og
missir náins ættingja að tala um
að ijarlægja flugvöllinn.
Eitt er nokkuð merkilegt við
greinina í Morgunblaðinu, það
vantar hjá Þorgeiri flugvallarstjóra
að segja frá hvernig landshættir
eru milli Gardemoen og Oslóar, eru
það mýrarfen eða fjalllendi?
Það þorir enginn að nefna hætt-
una af staðsetningu Reykjavíkur-
flugvallar. Eitt af rökunum fyrir
því að koma Reykjavíkurflugvelli
í burtu er sú gífurlega hætta sem
af honum stafar, en enginn þorir
vegna samvistuleysis síns að
nefna. Reykjvíkurflugvöllur var
eins og allir vita byggður af
breska hernum sem hervöllur, á
sem stystum tíma og á sem ódýra-
stan hátt. Ég vann um tíma við
byggingu vailarins og veit nokkuð
um það hvernig undirstaðan undir
honum er á köflum, þar sem ekki
tókst að grafa niður á fast vegna
mýrlendis, var járntunnum raðað
hlið við hlið og þær fylltar með
gijóti. Hver er svo útkoman í dag?
Nýleg mynd birtist í blöðunum þar
sem stór hluti vallarins var ekkert
annað en pollar. Að lokum þegar
farið var að taka völlinn í notkun
var ég áhorfandi að þremur slys-
um við völlinn. Tvær sprengju-
Frá Einari Gíslasyni:
MAÐURINN er líklega eina
skepna jarðarinnar sem hefur
nautn af því að fremja ofbeldi,
hann er eina dýrið sem er illa inn-
rætt.
Ofbeldishneigðin, eins og aðrar
kenndir mannsins, fær mismikla
ræktun í uppeldinu. Sums staðar
og á sumum tímum hefur verið
reynt að temja hana eða leggja á
hana hömlur. Það mætti e.t.v.
nefna forn menningarríki eins og
Fornegypta og Persa eða alda-
mótakynslóðina á íslandi og víðar.
Til dæmis um ofbeldisdýrkun má
nefna Asseríumenn, Rómaveldi á
keisaratímanum og, því miður,
okkar tíma. Kvikmyndir, sjónvarp
og tölvuleikir gera ofbeldi spenn-
andi og „skemmtilegt". Þetta er
vel unnið kennsluefni sem börn
og unglingar geta lært fljótt og
vel, en þeir eldri eru líka seigir í
náminu og ánetjast auðveldlega
ofbeldisvímunni.
Mörgum er ljóst að ofbeldi fer
ört vaxandi og viðurkenna að það
sé óæskilegt, jafnvel ógnvænlegt.
Það eru haldnir málfundir og þing
til að ræða hvað sé hægt að gera
til úrbóta. Alls konar fræðingar,
vitringar og listamenn mæta ábúð-
armiklir, geislandi af mannkær-
leika og mannviti svo að áhorfend-
ur að sjónarspilinu óttast að þeir
flugvélar og ein orrustuvél fórust
við völlinn án þess að nokkrum
yrði bjargað.
Nú er aðflugið frá norðri til suð-
urs yfir miðborg Reykjavíkur.
Átakanlegasta flugslysið við flug-
völlinn varð fyrir nokkrum árum
þegar tveggja hreyfla flugvél í
aðflugi yfir miðborgina frá norðri
náði ekki inn á brautarendann en
smaug rétt yfír girðinguna við
Hringbraut áður en hún fór á nefn-
ið við brautarendann, þar sem öll
áhöfnin fórst. Á þessari stundu var
Hringbrautin óvenju full bílaum-
ferðar enda síðla dags og fólk á
leið til síns heima eftir vinnu. Eins
og áður segir er aðflugið að þess-
ari braut beint yfir miðborgina.
Einnig beint yfir olíutankana í
Örfirisey, sem innihalda þúsundir
lítra af bensíni og olíu. Menn hafa
varast að minnast þessa í von um
að þögnin verði eilíf.
Einnig er hollt að minnast þess
að verði flugvöllurinn fjarlægður
kemur þar til byggingarsvæði
nýrrar miðborgar.
Eitt er alveg víst að verði slys
í eða við miðborgina, með missi
fólks og mannvirkja, verður
Reykjavíkurflugvelli samdægurs
lokað að fullu og öllu. Vilja aðdá-
endur flugvallarins bíða eftir slíku?
ÞÓRÐUR E. HALLDÓRSSON,
Sólheimum 23, Reykjavík.
kunni að springa eins og dvergarn-
ir sögðu um Kvasi forðum. Og
sjá! Þeir komast að niðurstöðu:
„Ekki gera neitt,“ því það má
ekki skerða tjáningarfrelsið helga
eða trufla markaðinn sem er auð-
vitað að fullnægja knýjandi þörf.
Auk þess „vinnst ekkert með höft-
um og bönnum“. Þetta elskulega
fólk hefur að vísu afbragðs lausn:
Fræðslu. Með fræðslu getum við
búið til fólk sem verður ónæmt
fyrir ofbeldiskennslunni, vill ekki
framar sjá neitt ljótt. Og framleið-
endur ofbeldisefnis fyllast iðrun,
fara að Iofsyngja lítilmagnann og
vinna góverk. Já „sælir eru hjarta-
hreinir“. Ekki hefur frést að neinn
hafí sprungið af mannviti.
Mörgum fínnst gáfulegt að vera
á móti höftum og bönnum. Hvers
konar ofstæki er það að banna
fólki að stela, selja eiturlyf eða
drepa menn sér til gamans? Hvers
vegna er ekki nóg að fræða hugs-
anlega glæpóna.
Eðlilegt væri að framleiðsla
óhugnanlegs ofbeldisefnis, sem
hefur það eitt að markmiði að
valda spennu og kitla ofbeldisfíkn-
ina, fengi sömu meðferð og fram-
leiðsla og dreyfing eiturlyfa. Það
þyrfti að verða mönnum of dýrt
að koma því á markað.
EINAR GÍSLASON,
Sóleyjargötu 15, Reykjavík.
Ofbeldi
SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996 41
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!
f • t u r
t q 1 a 5 í f r i & i
Nú þarftu ekki að hafa áhyggjur af svimandi háum símareikningum. Ný tækni og þróun
símamála markar endalok einokunar símafyrirtækja. Island hefur veigamiklu hlutverki að
gegna á alþjóðlegum vetvangi. Símkostnaður má ekki hindra samskipti okkar við
umheiminn. Þess vegna býður Friður 2000 allt að 73% ódýrari símtöl.
Þú færð einnig internetið, alþjóðlega neyðartryggingu og ýmis önnur fríðindi þegar þú
gerist félagi Friðar 2000.
m
Friður 2000, Ingólfsstræti 5, Reykjavík, sími 552 2000, www.peace.is/2000