Morgunblaðið - 01.12.1996, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 01.12.1996, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996 51 Y i i i i i j i ; : I I - I í í i i i i i i ( i i i i i ÍÞRÓTTIR Morgunblaðið/Sigurgeir FORYSTUMENN íþrótta í Eyjum, f.v. Þór I. Vilhjálmsson Þór- ari, Viktor Helgason Týrari og Jóhannes Ólafsson ÍBV-maður. 52 milljónir kr. Þetta eru eðlileg viðskipti en ekki styrkur til félag- anna,“ segir Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri. Hann segir að það hafi þó einnig haft áhrif að menn telji að sameining félaganna verði mikið framfaraspor í æskulýðsmálum og æuni vafalaust bæta árangur íþróttafólksins í framtíðinni. Að- spurður um kaupverðið og áhrif á fjárhag bæjarins bendir bæjarstjór- inn á að sumum íþróttamönnum hafi þótt þetta of lágt verð miðað við hvað kostar að byggja svona aðstöðu en sumum skattgreiðend- um hafi þótt þessar eignir of dýru verði keyptar. „Ég tel að flestir geti verið sáttir við niðurstöðuna," segir Guðjón. Hann segir að á móti sé hætt við áform um að byggja nýtt stórt íþróttahús. Sam- kvæmt samningum hafi bærinn átt að greiða 80% byggingarkostnaðar, eða 107 milljónir kr., en íþróttafé- lögin 20%. í staðinn verður íþrótta- hús Týs nýtt betur. Guðjón segir að vissulega hefði verið gott að fá nýtt íþróttahús með handboltavelli samkvæmt Evrópustöðlum en það yrði að bíða. ÍBV vantar bakland En hvað breyttist hjá félögunum? Viktor Helgason svarar því til að þeim íþróttamönnum sem hafi alist upp við það að keppa meira undir merkjum ÍBV en Þórs eða Týs hafi runnið til rifja umkomuleysi ÍBV. Það hafi verið andlitið út á við en eignalaust og enginn vildi eiga það þegar illa gengi. „ÍBV hefur ekki haft neitt bakland og það hefur lent á fáum mönnum að reka félagið. Það var orðin brýn nauðsyn að breyta þessu,“ segir Viktor sem var í sameiningarnefndinni fyrir hönd Týs. „Þessi félög áttu sinn tilveru- rétt en eru böm síns tíma. Nú emm við ekki aðeins í samkeppni innbyrð- is heldur alveg eins í samkeppni um íþróttafólkið við félög uppi á landi og jafnvel erlendis,“ segir hann einnig. Þór I. Vilhjálmsson, sem sat í sameiningarnefndinni fyrir hönd Þórs, segir að Þórarar hafi staðið á móti sameiningu vegna þess að félagið hafi staðið vel fjárhagslega en það hafi verið fjármálin sem á endanum ýttu félögunum í eina sæng. „Sameiningin er ekki sárs- aukalaus. Það em margir búnir að vinna mikið fyrir félagið sitt, sumir í áratugi. Þessi hús og íþróttasvæði voru byggð í sjálfboðavinnu, og menn hafa miklar taugar til félag- anna. En það þýðir ekki að velta sér upp úr fortíðinni heldur líta fram á veginn," segir Þór. Jóhannes Olafsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV, segir að mikið óhagræði hafi verið að því að reka þrjár einingar með tveimur þjálfumm og framkvæmdastjómm og tvöföldu kerfi á öllu. Það væri öllum fyrir bestu að nýta íjármagn- ið betur. En ástæðurnar fyrir sam- einingu era ekki síður faglegar. „Það er fleira sem glepur hjá ungl- ingunum en áður og sífellt að verða erfiðara að halda úti tveimur liðum í yngri flokkunum," segir Jóhannes. íþróttaklúbbur í Týsheimilinu Aðalfundir beggja félaganna samþykktu samrunann í nóvember. Ágreiningur kom upp um afgreiðsl- una hjá Þór og ákvað stjórn félajgs- ins að leita álits dómstóls ISÍ. Niðurstaðan varð sú að boða nýjan fund næstkomandi fimmtudag til að bera málið aftur upp. Þór Vil- hjálmsson á ekki von á að það breyti neinu. Þegar er farið að vinna að undirbúningi að stofnun og starfi nýja félagsins, KH-ÍBV, og telur Þór allar líkur á að það verði stofnað í lok desember. Þá verður kosin stjórn og ráðinn fram- kvæmdastjóri. Félagið fær afnota- rétt af félagsheimilunum og Vest- mannaeyjabær mun fela því rekst- ur allra íþróttamannvirkja bæjarins gegn ákveðinni greiðslu á ári. Þórs- heimilið verður stjórnstöð félagsins en gert er ráð fyrir að Týsheimilið verði félagsmiðstöð, þar verði ein- hvers konar íþróttaklúbbur ÍBV með aðstöðu. Bærinn stefnir að því að koma upp búningsaðstöðu og tækja- geymslu fyrir Hásteinsvöll í við- byggingu við Týsheimilið. Myndi það bæta úr brýnni þörf fyrir knatt- spyrnumennina, að sögn Jóhannes- ar, og jafnframt gætu þeir nýtt aðra aðstöðu í félagsheimilinu. Þá er að því stefnt að laga aðstöðu fyrir handboltamenn við íþrótta- húsið, meðal annars fyrir félags- starf og veitingar, en sú fram- kvæmd hefur ekki verið ákveðin. Fjögur lið í fyrstu deild íþróttaforystan í Eyjum er bjart- sýn á framtíðina. Félagið byijar með hreint borð í fjármálum en fær til sín þær tekjur sem Þór og Týr hafa haft af þjóðhátíð og stórum íþróttamótum yngri aldursflokka, til viðbótar þeim tekjum sem hand- boltinn og fótboltinn höfðu fyrir. „Nú fer fjármagnið í starfið en ekki í það að greiða afborganir og vexti af húsunum,“ segir Jóhannes. Viktor segir að hægt verði að vinna skipulegar að uppbyggingu yngri flokkanna. ÍBV er með karla- og kvennalið í 1. deild, bæði í hand- bolta og fótbolta. Ólíklegt er að tæplega 5.000 manna bæjarfélag hafi áður átt fjögur fyrstudeildarlið í þessum greinum á sama tíma. Forystumenn félaganna segja að þetta sé fullstór biti en segja að með þeim aðgerðum sem nú er verið að grípa til skapi möguleikar til að stefna enn hærra. „Við emm að feta okkur inn á nýjar slóðir og þurfum að byggja upp nýtt skipulag. Það skiptir miklu máli að bæjarbúar styðji strax vel við bakið á þessu nýja félagi svo starf þess verði árangursríkt," seg- ir Þór. Jóhannes segist verða var við miklar væntingar en segir að það taki sinn tíma að stokka spilin upp á nýtt og menn verði að sýna þolinmæði á meðan. Eyjamenn em þegar farnir að velta því fyrir sér hvaða áhrif það muni hafa á bæjarbraginn þegar íþróttafélögin Þór og Týr verða lögð niður. Hvaða farveg félagsrig- urinn finnur sér. Þegar er orðið ljóst að Týsgata og Þórsgata verða áfram á þjóðhátíð Vestmannaeyja. NÝ VERSLUN EG SKRIFSTOFUBÚNAÐUR kynnir „tölvumiðstöð" heimilisins Loksins er nú fáanleg alsherjar lausn á tölvuumhverfi heimilisins. Vandaður skrifborðsstóll á parkethjólum Stærð: lengd 80sm. dýpt 45sm. hæð 85sm Tölvumiðstöðin er úr beyki og á hjólum með útdraganlegri plötu með plássi fyrir lyklaborð og mús. Hún er rúmgóð hirsla þar sem vel fer um öll helstu tæki og fylgihluti tölvuheimilisins. Sófasett í miklu úrvali Val húsgöqn Ármúla 8-108 Reykjavík Sími 581-2275 ^ 568-5375 ■ Fax 568-5275 Sófas^tt, hormófar Cinniv sófasptt 3*2 Nykomíð mikið urval af borðstofuhúsgögnum, skenkum, skapum og híllusamstæöum BgiTlJ ALDREI HAGSTÆÐARA VERÐ! ilustu skémmtisiglingar heimsins, Imagination, Sensation Fegursta eyjan - DOMINICANA - allt innifalið. Öruggasta vetrarfríið - Jarðnesk paradís fyrir þig og vini þína - klúbbinn - félagið þitt. .1 . Verð frá kr. 100 þús. ÆSbM ÞÚ GERIR EKKI BETRl KAUP! '•ÆÍ' jfe CARNIVAL UMBOÐIÐ A ISLANDI FERÐASKRIFSTOFAN HEIMSKLUBBUR INGOLFS Austurstræti 17, 4. hæð 101 Reykjavík, sími 56 20 400, fax 562 6564 Vegna mikillar eftispurnar! Viöbótarsæti í hópferö til Dominicana meö fararstjóra 12. janúar og 9. febrúar. MEÐ HEIMSREISUSTIL 12.-15. des., 4 dagar. Aætlunarflug Fiugleiða út að morgni fimmtudags, heim að kvöldi sunnudags. Gisting: ROYAL GARDEN HOTEL 5* - eitt glæsilegasta hótel borgarinnar við Hyde Park - gjörbreytir innihaldi þessarar einstöku ferðar, ásamt frábærum menningarviðburðum og leiösögn ingóifs Guöbrandssonar. Óstaðfestar oantanir seldar á moraun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.