Morgunblaðið - 08.12.1996, Side 2
2 SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Formaður Verzlunarráðs um stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
Hægt að fjármagna stækkun
með leigu verzlunarrýmis
KOLBEINN Kristinsson, formaður Verzlunar-
ráðs íslands, segist telja að hægt sé að fjár-
magna viðbyggingu við Flugstöð Leifs Eiríksson-
ar með því að koma til móts við verzlunar- og
þjónustufyrirtæki, sem vilji greiða háa leigu fyr-
ir rými í flugstöðinni. Mál þetta hafi verið rætt
við þau þijú ráðuneyti, sem eigi hlut að fram-
kvæmdum á Keflavíkurflugvelli.
Aformað er að byggja við Leifsstöð, einkum
vegna aukinnar umferðar um Keflavíkurflug-
völl. Einnig þarf að gera breytingar á flugstöð-
inni vegna fyrirhugaðrar aðildar íslands að
Schengen-vegabréfasamkomulaginu. Fram-
kvæmdir munu hefjast með vorinu.
Stofnað verði rekstrarfélag
„Við höfum rætt málið í Verzlunarráðinu og
teljum að verzlunarrekstri og þjónustu í Leifs-
stöð eigi að koma í hendur einkaaðila. Við höfum
verið með tillögur um að stofnað verði rekstrarfé-
lag um það húsnæði, sem fer undir þennan rekst-
ur, og það myndi skipuleggja reksturinn og leigja
út einingar,“ segir Kolbeinn.
Hann segir að hugmyndin sé ekki að byggja
einhvers konar Kringlu á Keflavíkurflugvelli,
eins og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra
segir í Morgunblaðinu í gær, heldur sé hugmynd-
in um rekstrarfélag sambærileg við rekstrarfélag
Kringlunnar. Rekstrarfélagið myndi leigja verzl-
unarhúsnæðið af ríkinu og endurleigja til einka-
fyrirtækja.
Ekki fjárhagslegt vandamál
að stækka flugstöðina
„Það er hvergi borguð hærri leiga fyrir verzl-
unarhúsnæði en í Leifsstöð," segir Kolbeinn.
„Það er alveg ljóst að margir aðilar eru tilbúnir
að borga þessa háu leigu og þá er ekkert mál
að byggja þessa flugstöð og leigja út á þessum
kjörum. Við teljum að það sé ekkert fjárhags-
legt vandamál að stækka flugstöðina og leigja
hana út. Það hafa það margir sýnt áhuga á að
vera þar með rekstur.“
Kolbeinn segir að bæði vilji verzlunarmenn
að fýrirhuguð viðbygging við Leifsstöð verði
stærri en nú er fyrirhugað, þannig að þar verði
meira pláss fyrir verzlun og þjónustu, og að
meira rými fari til þeirra hluta í núverandi flug-
stöð. „Hún er mjög illa nýtt. Þarna eru 1.000
fermetra mötuneyti og skrifstofur, sem væri líka
hægt að breyta í verzlunarhúsnæði,“ segir hann.
Kolbeinn segir að verzlunarmenn hafi fært
áhuga sinn í tal við viðkomandi ráðuneyti. „Þetta
mál er hins vegar allt í sjálfheldu vegna þess
hvað mörg ráðuneyti hafa um það að segja,
samgönguráðuneytið, utanríkisráðuneytið og
fjármálaráðuneytið," segir hann.
Framkvæmdastjóri Sinfóníunnar um
hljóðritanir á verkum Jóns Leifs
Framhaldið í
höndum BIS
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
DAGNÝ Haraldsdóttir starfsmaður í HÞ innheimtir fargjaldið lyá
rússneska flugvélaverkfræðingnum Vladimír Kaschentev, en hann
hefur starfað við fiskvinnslu hjá Hraðfrystistöðinni i nokkur ár.
Fokkervél á Þórshöfn í fyrsta sinn
Fjölmenntu í höfuðstað-
inn eftir vinnutöm
Þórshöfn. Morgunblaðið.
RUNÓLFUR Birgir Leifsson,
framkvæmdastjóri Sinfóníu-
hljómsveitar Islands, segir að
framhald á samstarfi hljómsveit-
arinnar og sænsku BlS-útgáfunn-
ar um útgáfu á tónverkum Jóns
Leifs sé í höndum útgefandans,
Roberts von Bahr. Hann hafi tví-
vegis sent von Bahr fyrirspurnir
um framhaldið.
Robert von Bahr sagði í viðtali
við Morgunblaðið í gær að hann
væri tilbúinn að taka upp meira
af verkum Jóns Leifs en væri
bara að bíða eftir Sinfóníuhljóm-
sveit íslands.
„Við höfum mjög mikinn áhuga
á að vinna áfram í samvinnu við
BIS,“ sagði Runólfur Birgir Leifs-
son. Hljómsveitin hefur þegar
gefið út Sögusinfóníu Jóns Leifs
á geisladiski frá BIS og einnig
hljóðritað verk Jóns Leifs fyrir
Chandos-útgáfuna, en Runólfur
Birgir segir að hljómsveitin hafí
reynt að geyma sér hljóðritanir á
verkum Jóns Leifs fyrir BIS-
útgáfuna, ekki síst vegna áhuga
von Bahr á málinu.
„Ég hef í raun verið að bíða
eftir svari frá BIS um hvenær von
Bahr sé tilbúinn og hvemig við
MEÐ blaðinu í dag fylgir aug-
lýsingablað frá versluninni
Hreysti.
munum halda áfram með þetta
samstarf. Það hefur ekki staðið á
okkur og við höfum mikinn áhuga
og munum taka frá þann tíma
sem þörf er á, en hins vegar verð-
um við að skipuleggja þetta með
1-2 ára fyrirvara. Samstarf okkar
von Bahr hefur alltaf verið mjög
gott og hann hefur aldrei nefnt
við mig að það stæði á hljómsveit-
inni.“
Runólfur Birgir segir að um
tíma hafi kjarasamningar hljóð-
færaleikara komið í veg fyrir að
hægt væri að vera með tvær hljóð-
ritunarlotur á dag, en þeirri hindr-
un hafi verið eytt í síðustu samn-
ingum. Eins hafi von Bahr ekki
sætt sig við önnur húsakynni til
hljóðritunar en Hallgrímskirkju
og því hafi fylgt nokkur vand-
kvæði.
Osmo Vánská í veginum
„Það sem hefur kannski helst
komið í veg fyrir þetta núna er
að sá hljómsveitarstjóri sem bæði
við og BIS höfum viljað að héldi
áfram með þessar upptökur,
Osmo Vanská, hefur sagt að hann
ýmist vilji ekki eða hafi a.m.k.
ekki tíma til að taka upp Jón
Leifs með Sinfóníuhljómsveit ís-
lands. í umræðum okkar von
Bahr hefur komið upp sá mögu-
leiki að gera þetta með öðrum
hljómsveitarstjóra en við ákváð-
um að von Bahr myndi fyrst reyna
til hins ítrasta að fá Vánská tii
að halda áfram þessum hljóðrit-
unum. Þetta hefur tafið málið.“
----------» » «---
Davíð
ræðumaður
í KVÖLD klukkan 20.30 verður
aðventuhátíð í Grafarvogskirkju.
Dagskrá hátíðarinnar verður fjöl-
breytt og aðalræðumaður verður
Davíð Oddsson forsætisráðherra.
Nafn hans féll niður í frétt um
hátíðina í blaðinu í gær og er
beðist velvirðingar á þeim mistök-
um.
ÞAÐ þótti nokkur viðburður hér
í plássinu þegar Sigdís, Fokkervél
Flugleiða, lenti á Þórshafnarflug-
velli hinum nýja á f östudag en
það er í fyrsta sinn sem slík vél
lendir á vellinum.
Þórshnfnarflugvöllur var tek-
inn I notkun sl. sumar með við-
höfn en hefur enn sem komið er
lítið verið notaður þar sem öll Ijós
vantar enn og eina fjarskiptatæk-
ið er sími í flugstöðvarbygging-
unni. Tækin eru þó komin til
landsins svo ástæða er til að ætla
að völlurinn verði fullbúinn innan
tíðar, að sögn Jóns Gunnþórsson-
ar flugvallarvarðar.
Flugstjórinn á Sigdísi, Jóhann-
es Helgason, sagði að gott hefði
verið í lofti en vildi drífa sig til
baka í dagsbirtunni vegna Ijós-
leysis á vellinum. Fjarskipti við
vélina fóru fram á gamla flugvell-
inum við Sauðanes að sögn Jóns
flugvallarvarðar, en aðstoðar-
maður hans var í flugstöð nýja
vallarins á meðan. Auk flugstjór-
ans voru með í för flugmaðurinn
Kári Kárason og Þórdís Lárus-
dóttir flugfreyja.
Helgarferð eftir langa
vinnutörn
Um fjörutíu farþegar fóru í
loftið með Sigdísi en það voru
starfsmenn Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar á leið í helgarferð til
Reykjavíkur, eins konar árshátíð
á vegum starfsmannafélagsins.
Leið þeirra lá beint á Hótel ísland
í kvöldverð og skemmtun og kem-
ur hópurinn til baka á sunnudag.
Þessir fjörutíu farþegar eru um
helmingur starfsmanna í HÞ og
nærri 10 prósent íbúa hér á Þórs-
höfn voru samankomnir í einni
og sömu flugvélinni.
Fólkið kunni vel að meta beint
flug til Reykjavíkur en það er
nokkuð sem Þórshafnarbúar hafa
' ekki átt kost á hingað til. Hópur-
inn ætlaði að njóta helgarinnar í
botn eftir langa vinnutörn hjá
Hraðfrystistöðinni hér á Þórshöfn
og á það sannarlega skilið - að
eigin sögn.
Atvinnulíf og skóli
ganga ekki í takt
►Stefán Ólafsson prófessor hefur
rannsakað hvernig menntun nýtist
atvinnulífinu.Hann telur að há-
skólamenn vinni í of miklum mæli
við að eyða þjóðartekjum en í of
litlum mæli við að afla þeirra /10
Gamall draumur um
tunglstöðvar vakinn
►Því hefur löngum verið haldið
fram að fyndist vatn á tunglinu
mundi það skipta sköpum fyrir þá,
sem vilja stofna þar nýlendur. /12
Framtíðarstofnun og
umhverfismál
►Tólf einstaklingar komu saman
fyrr á árinu til að setja á fót svo-
nefnda Framtíðarstofnun. Hlut-
verk hennar er að vera vettvangur
umræðna um málefni framtíðar,
vistvæna þróun og stöðu íslands í
samfélagi þjóðanna. /18
Kúnninn kjaftar frá
►í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Sigurð Páls-
son í Smiðsbúð í Garðabæ. /24
B
► 1-32
Háski á Kólaskaga
►Hvergi í heiminum eru jafn-
margir kjarnakljúfar og við Múr-
mansk á Kólaskaga. Blaðamaður
Morgunblaðsins heimsótti þessar
eiturslóðir í Rússlandi. /1 og 2-5
Ég er minningasjúk
►Leikkonan Margrét Vilhjálms-
dóttir er ung að árum, en hefur
engu að síður skilið eftir sig spor
á leiksviðinu. /6
íslands er það lag
►Jóhann ísberg og Kjartan P.
Sigurðsson eru þessa dagana að
gefa út Islandsbókina, og leggja
áherslu á myndir með upplýsing-
um. /18
FERÐALÖG
► 1-4
ítölsk kynning á
landi íss og elda
►Eldgosið undir Vatnajökli,
stærsta jökli í Evrópu, og magn-
þrungið Skeiðarárhlaup í kjölfarið
vöktu mikla athygli ítölsku þjóðar-
innar. /2
Kína
►Eftirminnileg dvöl í framandi
borg. /2
13 BÍLAR_________________
► 1-4
Vegur íslenskrar
torfæru vex
►Eurosport-þættirnir hafa vakið
áhuga stórra bifreiðaframleiðenda
á smíði keppnisbíla. /1
Reynsluakstur
►Ánægja af akstri í Volvo S40. /4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Skák 42
Leiðari 28 Fóik i fréttum 44
Helgispjall 28 Bíó/dans 46
Reykjavíkurbréf 28 Iþróttir 51
Skoðun 30 Útvarp/sjónvarp 52
Minningar 32 Dagbók/veður 55
Myndasögur 40 Gárur 8b
Bréf til blaðsins 40 Mannlífsstr. 8b
ídag 42 Kvikmyndir 14b
Brids 42 Dægurtónlist 16b
Stjörnuspá 42
INNLENDAR FRÉTTIR;
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR;
1&6