Morgunblaðið - 08.12.1996, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 08.12.1996, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996 MINNIIUGAR MORGUNBLAÐIÐ Bróðir okkar, t BJARNI JÓNSSON, byggingameistari, Laugateigi 5, Reykjavík, er látinn. Jarðarförin verður auglýst síðar. Alida Ó. Jónsdóttir, Guðmundur L. Jónsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi GUÐMUNDUR MAGNÚS KRISTJÁNSSON bifreiðastjóri, Einarsnesi 44, Reykjavík, lést sunnudaginn 1. desember. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 9. desember kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Félag aðstandenda alz- heimersjúklinga í símum 562 8388 og 562 1722 Rakel Malmquist, Valgerður Guðmundsdóttir, Svanhildur Guðmundsdóttir, Halldór Guðnason, Reynir Guðmundsson, Sigrún Sigurþórsdóttir, Ebenezer Garðar Guðmundsson, Lára Jónsdóttir, Ásgeir Guðmundsson, Ragna Emilsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir og mágur, ÓLAFUR GUÐMUNDSSON stýrimaður, andaðist laugardaginn 30. nóvember. Jarðarförin hefur farið fram i Williamsport, Pennsylvaníu. Minningarathöfn verður í Fossvogskapellu miðvikudaginn 11. des- ember kl. 13.30. Liz Gudmundsson, Elfrida Johanna Gudmundsson, Erica Jean Gudmundsson, Arnlaugur Guðmundsson, Anna Kristjánsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Björgvin Víglundsson. t Eiginkona mín og móðir okkar, ARNFRÍÐUR MATHIESEN, Austurgötu 30, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 10. desem- ber kl. 13.30. Ásgeir Gíslason, Guðmundur H. Jónsson, Svavar G. Jónsson, Erla Hildur Jónsdóttir, Kristólfna G. Jónsdóttir. t Okkar ástkæri sonur, eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR (SFELD FRÍMANNSSON, Hraunbæ 158, sem andaðist á Landspítalanum þann 1. desember sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 9. desem- ber kl. 15.00. Marta Sigurðardóttir, Erla Sigurðardóttir, Guðrún Marta Sigurðardóttir, Frímann Már Sigurðsson, Wimonrat Srichkham, Óskar ísfeld Sigurðsson, Sólveig Ágústsdóttir, Helga Sigurðardóttir, Ágúst Óskarsson, Erlendur ísfeld Sigurðsson, Fanney Kristjánsdóttir og barnabörn. SÆMUNDUR SIG URÐSSON Sæmundur Sig- urðsson var fæddur í Reykjavík 28. júl! 1909. Hann lést 1. desember síð- astliðinn. Foreldrar Sæmundar voru Sigurður Guð- mundsson pípu- lagningameistari, fæddur 21.7. 1881 í Miðhúsum á Vatns- leysuströnd, dáinn 26.12. 1967, og kona hans Guðrún Sigurðardóttir, fædd 3.10. 1876, dáin 23.3. 1958. Börn þeirra voru fimm auk Sæmundar. Þau voru Ingigerður Ósk, f. 5.8. 1901, d. 22.7. 1985, Sigurður, f. 27.1. 1903, d. 5.7. 1979, Katr- ín, f. 3.8. 1904, d. 16.7. 1971, Sigrún Helena, f. 7.3. 1907, d. 1921, Guðmundur Valur, f. 16.8. 1913, d. 5.8. 1981. Hinn 7. júní 1941 kvæntist Sæmundur Sigríði Þórðardótt- ur, f. 13.11. 1918, fv. fulltrúa í menntamálaráðuneytinu, dótt- ur Þórðar Björnssonar skip- stjóra í Neskaupstað og konu hans Stefaníu Armannsdóttur. Börn Sæmundar eru: 1) Inga Rúna, f. 19.9. 1931, gjaldkeri, gift Helga Hrafni Helgasyni, bókbindara, d. 9.3. 1976, og eignuðust þau þrjá syni. Núver- andi sambýlismaður Rúnu er Haraldur Hafsteinn Pétursson, prentari. Móðir hennar var Elín Guðjónsdóttir, f. 19.1. 1915, d. 30.3. 1989, 2) Kolbrún, f. 8.4. 1941, píanókennari, gift Birni Árdal, barnalækni og sérfræð- ingi i ofnæmis- og ónæmisfræð- um, og eiga þau þrjár dætur, 3) Auður Stefanía, f. 5.6. 1949, sérkennari. Hún var gift Her- manni Sveinbjörnssyni frétta- manni og eiga þau eina dóttur. Þau slitu samvistum. 4) Sigurð- ur Rúnar, f. 10.12. 1959, barnatann- læknir, með masters- próf í heilbrigðis- fræðum og dokt- orsgráðu í faraldurs- fræði, kvæntur Önnu Maríu Steindórsdótt- ur, þroskaþjálfa, og eiga þau tvö börn. Sæmundur stund- aði sjómennsku á togurum frá 15 ára aldri til tvítugs, er hann hóf nám í mál- araiðn hjá Guðbergi G. Jóhannssyni í Reykjavík árið 1929. Hann lauk prófi frá Iðnskólanum í Reykja- vík og sveinsprófi vorið 1933. Meistarabréf í málaraiðn fékk Sæmundur árið 1936. Hann stundaði nám i Danmörku við Det Tekniske Selskabs Skole í Kaupmannahöfn 1934 og í Teknologisk Institut. Hann hóf eigin atvinnurekstur í málaraiðn 1939 i félagi við Steingrim Oddsson og störfuðu þeir farsællega saman í mörg ár, en lengst af rak hann iðnina i eigin nafni. Um árabil rak Sæ- mundur málningavöruverslunina Regnbogann. Hann var kennari við Iðnskólann i Reykjavík, mál- aradeild 1959-79, er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Sæmundur var mikill félags- málamaður. Hann var einn af stofnendum Málaranemafélags- ins í Reykjavík 1929 og formaður þess, meðan það starfaði. Hann var félagi í Málarasveinafélagi Reykjavíkur, varaformaður 1935 og formaður 1936-39. Hann var fulltrúi í Iðnsambandi bygginga- manna og átti sæti í prófnefnd málara 1936-61, þar af formað- ur í 17 ár. Hann var félagi í Málarameistarafélagi Reykjavík- ur og gegndi mörgum trúnaðar- störfum í þágu þess. Hann var í ritnefnd og var lengi ritstjóri tímaritsins Málarans. Hann sat í samninganefndum og i fræðslunefnd Málarameistara- félags Reykjavíkur um árabil og var sæmdur þjónustumerki þess 1968, kjörinn heiðursfé- lagi 1979 og sæmdur heiðurs- merki þess úr gulli. Árið 1978 var Sæmundur sæmdur heið- ursmerki Málarafélags Reykja- víkur. Hann átti sæti á iðnþing- um og í iðnráði um áraraðir. Hann var félagi í Iðnaðar- mannafélaginu í Reykjavik og var kjörinn heiðursfélagi þess 1979. Síðar var hann sæmdur æðsta heiðursmerki Landssam- bands iðnaðarmanna. Sæmundur hafði mikinn áhuga á samstarfi norrænna málarameistara og sat sem full- trúi Málarameistarafélagsins á þingum Nordisk Malermester Organisation frá 1950-80. Hann var forseti sambandsins 1970-72 og var m.a. gerður að heiðursfélaga í Landssambandi málarameistara í Noregi í Ósló 1980. Sæmundur var alla tíð list- fengur maður. Hann stundaði nám við Myndlistaskólann í Reykjavik 1949-53 og var í stjórn skólans og formaður skólanefndar i nokkur ár. Hann lagði stund á myndlist og tók þátt í myndlistarsýningum áhugamanna hérlendis, í Dan- mörku og Noregi. Hann nam listmálun á postulín í Kaup- mannahöfn og stundaði kennslu á því sviði um árarað- ir. Nú siðustu árin skrautmálaði Sæmundur gamlar kistur og húsgögn. Utför Sæmundar fer fram frá Langholtskirkju mánudag- inn 9. desember og hefst at- höfnin klukkan 15. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Ég vil þakka elsku tengdapabba mínum fyrir samfylgdina. Minning- amar eru margar og góðar. Heimili tengdaforeldra minna var heillandi heimur að kynnast. Mér fannst ævintýri líkast að ganga um stof- umar og vinnuherbergin og skoða í hillur, króka og kima. Alls staðar fundust skemmtilegir hlutir og þar af var margt handverk Sæmundar. Þar mátti fínna málverk eftir hann sjálfan og fleiri listamenn, fallega postulínshluti, handmálaða kistla og stórskrýtna spýtukarla úr rekaviði og alltaf var verið að bæta ein- hveiju skemmtilegu í safnið. Sæmundur var mikill selskaps- maður og vildi alltaf hafa líf og fjör í kring um sig. Hann átti líka auð- velt með að laða fólk að með sínum sjarma og húmor. Snilldarkokkur var hann og vílaði ekki fyrir sér að snara fram máltíð ofan í heila her- deild ef bankað var upp á. Það fékk nú enginn að fara svangur heim. Hann var bamakarl og veit ég að hann á eftir að lifa sterkt í minn- ingunni hjá barnabörnunum, ekki síst Steinari mínum sem alltaf Jítur á Sæmafa sem sinn besta vin. Ófátt hafa þeir brallað saman félagamir og margt hefur Steinar lært af afa. Elsku Sæmundur, takk fyrir allt. Kveðja, Anna María. Ég og afí gerðum margt saman. Ég, hann og amma fórum stundum niður í fjöru í Nauthólsvíkinni og söfnuðum rusli og rekaviði og kveiktum bál á skjólstæðum stað undir stómm steini sem hægt væri að klifra upp á og horfa ofan í bál- ið. Stundum fórum við niður í Elliða- árdal og sigldum dótaskútu sem pabbi átti þegar hann var lítill. Stundum fórum við í Öskjuhlíðina og fengum okkur kakó og brauð í iautum, þá talaði afi stundum um þegar hann var krakki. Við fórum líka stundum í bíltúr og fengum okkur pulsu og ókum um höfnina. Lögðum bílnum, löbb- uðum um og skoðuðum bátana og horfðum á þá sigla í höfn og úr höfn í svolitla stund. Oft ókuin við Laugaveginn og fengum okkur svo kakó og kaffi á einhverju kaffihúsi. Kannski löbbuðum við svo og horfð- um í búðarglugga og ókum svo heim. Þá var afi stundum með kistu eða eitthvað sem hann var að mála fyr- ir einhvern og þá gat ég hjálpað að slípa gömlu málninguna af henni svo afí gæti málað hana. Ef kistan var öll einlit gat ég hjálpað afa. Hann skreytti kistur yfirleitt með alveg afskaplega fallegum blómum af öllum sortum sem til voru. Svo gat hann málað næstum nákvæma eftirlíkingu af alvöru viði. Hann var að kenna mér að gera svoleiðis en ekki er ég nú mjög góður í því. En nú er hann farinn. Afi var klár, afi var góður og kunni að meta pensla. Steinar Sigurðsson, 10 ára. Það er erfitt að setjast niður og kveðja þig, elsku besti afi minn. Þú varst svo yndislegur afi - síbros- andi, með brandara á reiðum hönd- um, alltaf svo ljúfur og góður. Að koma til ykkar ömmu inn í Miðtún var alla tíð ævintýri líkast fyrir litla stelpu. Málverk uppi um alla veggi og dýrgripir eins og steinar og skelj- ar út um allt og alltaf þessi unaðs- lega lykt inni í postulínsherbergi af olíu og spritti. Það er enginn vafi að allt þetta hafði mótandi áhrif á mig og varð mér hvatning til að fara í listnám seinna meir. En afi var ekki bara listamaður í sinni kúnst að mála postulín, málverk og kistur heldur var hann líka lífsins kúnstner - hann kunni að lifa lífinu lifandi og var alltaf kátur og smit- aði út frá sér. Þetta hafði ekki síður mikil áhrif á mig og kenndi mér hvað það er sem er mikilvægast í lífinu. Það er gott að vita til þess að núna líður þér vel og ég veit að það hefur verið vel tekið á móti þér. Ég veit líka að þegar við hittumst aftur þá verður himnahliðið nýmálað og fínt. Þakka þér fyrir allt og allt, elsku afí minn. Sigríður Þóra. Þegar ég fyrst hitti Sæmund Sig- urðsson, hann fjörutíu árum eldri en ég, fannst mér ég strax hafa fundið hálfgildings jafnaldra og eig- inlega jafningja. Þannig gat hann látið tvítugu unglingsgreyi líða, sem auk þess var svo djarft að vera að stíga í vænginn við yngstu heima- sætuna. En þannig var Sæmi alla tíð. Hann átti ekkert til í sér sem valdið gat einhveijum erfiðleikum sem oft fylgir því sem kallað er kynslóðabil. Hann var ekki deginum eldri én ég, og það var ekki vegna þess að ég þjáðist af einhveijum ótímabærum öldrunareinkennum. Hann var allra aldurshópa, enda var maðurinn ein- hvern veginn aldurslaus eða síuhgur - nema undir það síðasta. Og það líkaði honum alls ekki vel. Sæmi vat- lífslistamaður, hvernig sem á er litið. Hann var afar listelsk- ur og sjálfur mikill listamaður. Þeg- ar ég kynntist honum og Siggu hafði ég aldrei áður komið inn á heimili þar sem var að fínna jafn mikið af fallegum listaverkum - málverkum og fögrum munum. Þetta var heillandi heimur fyrir strák sem hafði alla tíð haft ein- hvern óljósan áhuga á myndgerð og myndlist. Andrúmsloftið á heim- ili Sæma og Siggu endurspeglaðist í þessari fegurð og hlýju. Sæmi var flinkur málari, ekki einungis góður fagmaður sem mál- arameistari, heldur einnig sem myndlistamaður. Á árum áður þegar ekki voru til málningarúllur og að- eins olíumálning og lökk, þurftu menn að geta handleikið pensilinn af lagni. Það gerði Sæmi. Enda hafði hann þann starfa með brauðst- ritinu um langa hríð að kenna ung- um málaranemum kúnstirnar. Verk- in hans með vatnslitum og olíulitum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.