Morgunblaðið - 08.12.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996 21
Forseti ASI segir að viðræðum verði haldið áfram við BSRB
Lausnin verður að
finnast fyrir áramót
GRÉTAR Þorsteinsson, forseti
ASÍ, segist ekki trúa öðru en að
ASÍ og BSRB leysi ágreining
samtakanna um í hvaða stéttarfé-
lögum starfsmenn Pósts og síma
verða þegar fyrirtækið hefur ver-
ið gert að hlutafélagi. Nauðsyn-
legt sé að lausn á deilunni finnist
fyrir áramót, Viðræður hafa stað-
ið um þetta milli samtakanna og
þeim verður haldið áfram eftir
helgi.
Ogmundur Jónasson, formaður
BSRB, brást mjög hart við álykt-
un miðstiórnar ASÍ frá 4. desem-
ber, en þar er þeirri skoðun lýst
að með breytingu ríkisfyrirtækja
í hlutafélög séu ekki framar til
staðar þær lagalegu hindranir
sem staðið hafi_ í vegi fyrir að
aðildarfélög ASÍ geti farið með
samningsrétt fyrir hönd þeirra
starfsmanna fyrirtækjanna sem
starfa í starfsgreinum þeirra.
Ögmundur sagði þessa ályktun
fallna til að grafa undan réttinda-
baráttu starfsfólks Pósts og síma
þegar það ætti í viðkvæmum við-
ræðum.
Rafiðnaðarsambandið, VR,
Dagsbrún og fleiri félög innan ASI
leggja áherslu á að starfsmenn
sem ráðnir verða til Pósts og síma
eftir að fyrirtækið verður orðið að
hlutafélagi verði félagsmenn í
þeim en ekki Póstmannafélaginu
eða Félagi íslenskra símamanna.
Ögmundur hafnar þessu alfarið.
Tvískiptur vinnumarkaður
Grétar sagði að ályktun mið-
stjórnar ASI hefði verið gerð í
kjölfar viðræðna stéttarfélaga inn-
an ASÍ við einstök félög opinberra
starfsmanna, en þær viðræður
hefðu ekki skilað árangri. „Álykt-
unin var sett fram til að vekja
athygli á því að náist ekki sam-
komulag milli stéttarfélaga á al-
mennum vinnumarkaði og sam-
taka opinberra starfsmanna vegna
einkavæðingar ríkisfyrirtækja er
verið að setja í uppnám þær leik-
reglur á vinnumarkaði sem þróast
hafa með samningum á undan-
förnum áratugum. Með ályktun-
inni er ASÍ að ítreka að þegar
stórfelldar breytingar verða á
hluta vinnumarkaðarins er það
skylda samtaka launafólks að setj-
ast niður og komast að sameig-
inlegri niðurstöðu."
Grétar sagði að um stéttarfélög
á íslandi giltu tvenns konar laga-
rammar og á þeim væru grundvall-
Fimm bíla
árekstur
FIMM bíla árekstur varð á Hafnar-
íjarðarvegi skömmu fyrir hádegi á
föstudag. Tveir voru fluttir á slysa-
deild með sjúkrabíl, en áverkar
þeirrar eru ekki taldir alvarlegir.
Tildrög slyssins voru þau að
strætisvagn á leið um Hafnarfjarð-
arveginn dró mjög snögglega úr
ferð. Engum togum skipti að tvær
bifreiðar lentu aftan á honum, en
aðrar tvær sem reyndu að sveigja
fram hjá rákust í vinstra horn
vagnsins og enduðu ferð sína utan
vegar.
Talsvert tjón varð á ökutækjun-
um og þurfti að draga eitt þeirra
á brott með kranabifreið. Að sögn
lögreglu í Hafnarfirði er ekki ljóst
hvers vegna ökumaður strætis-
vagnsins 'hemlaði jafn snögglega
og raun ber vitni.
armunur, annars vegar vinnulög-
gjöfin frá árinu 1938 og hins veg-
ar lög um kjarasamninga opin-
berra starfsmanna frá árinu 1986.
Verið að brjóta niður
skipulag á vinnumarkaði
„Þegar ríkisfyrirtæki eru
einkavædd hætta þau að falla
undir lögin um kjarasamning op-
inberra starfsmanna og starfa því
á almennum vinnumarkaði.
Stefna ASÍ hefur verlð sú að
reyna að ná kjarasamningum við
alla atvinnurekendur á almennum
markaði til að tryggja félagsaðild
sem allra flestra á vinnumarkaði
og tryggja að lágmarkskjör og
réttindi séu virt í
hvívetna. Með samn-
ingsbundnum for-
gangsréttarákvæð-
um, sem hafa verið
virt í verki á undan-
förnum áratugum,
eftir að launafólk
hafði háð harða bar-
áttu fyrir tilverurétti
samtaka sinna, hef-
ur verið komið í veg
fyrir innbyrðis átök
launafólks sem að-
eins geta veikt sam-
tök þeirra og rýrt
kjör og réttindi. ASl
hefur engar kröfur
gert um að einstök
stéttarfélög verði lögð niður og
ítrekar vilja sinn til samstarfs og
samvinnu til að forða átökum á
almennum vinnu-
markaði.
ASI harmar ef
samtök opinberra
starfsmanna telja
það þjóna hagsmun-
um launafólks að
ganga fram fyrir
skjöldu í því að
bijóta niður það
skipulag á vinnu-
markaði og þær
grundvallarreglur
sem launafólk í stétt-
arfélögum hefur bar-
ist fyrir að byggja
upp áratugum sam-
an. Slíkt mun ein-
göngu veikja heild-
arsamtök launafólks og þar með
vinna gegn hagsmunum allra á
vinnumarkaði," sagði Grétar.
Það er skemmtilegt w
að spara í Æskulínu
Búnaðarbankans
Þar fá allir félagar bæði vexti og verðlaun
NÝIR FÉLAGAR ERU ALLTAF VELKOMNIR
Þeir sem vilja gerast félagar
geta komið í næsta
Búnaðarbanka og gengið í
Æskulínuna með því að
leggja 1000 kr. inn á Stjörnubók
Æskulínunnar (30 mán. bundinn reikn-
ingur). Þeir fá þá afhent límmiðaspjald, bol og
sparibaukinn Snæfinn eða Snædísi.
SPARAÐU FYRIR VERÐLAUNUM
Þeir sem eru duglegir að spara í Æskulínunni eiga möguleika á verðlaunum.
í hvert sinn sem sparibaukurinn er tæmdur og lagt er inn á Stjörnubók Æskulínu fá krakkar flottan límmiða sem þeir
safna.Tvisvar á ári eiga þeir möguleika á verðlaunum.
Leikfangasaga
á myndbandi og lukkupottur
Nú er komið myndband með Leikfangasögu sem þú getur keypt í næstu verslun.
Með myndbandinu fylgir þátttökuseðill fyrir nýja og núverandi félaga í Æskulínu
Búnaðarbankans og gildir hann í
Lukkupott Leikfangasögu.
í hverjum mánuði verða
dregin út nöfn tíu krakka sem
fá verðlaun og stendur þessi
leikur til I. júní 1997.
TW7
STORY
c Disney
P I X A R
Vertu með því það er leikur að spara í Æskulínu Búnaðarbankans.
BUNAÐARBANKINN
Trauslur banki
Grétar Þorsteinsson