Morgunblaðið - 08.12.1996, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.12.1996, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ KARLAKÓR Reykjavíkur var stofnaður árið 1926 af Sigurði Þórðarsyni, sem sijórnaði kórnum í fjörutíu ár. Sigurður fékk ávallt til liðs við sig bestu einsöngvara á hverjum tíma og má þar nefna Stefán Islandi og Guðmund Jónsson. Síðar tóku aðrir við, til að mynda Svala Nielsen, Sigurður Björnsson, Kristinn Sigmundsson, Krislján Jóhannsson, Diddú, Signý Sæmundsdóttir og fleiri. Síðustu sex ár hefur Friðrik S. Kristinsson stjórnað kórnum. Meðal utanlandsferða má nefna ferð til Norður-Ameríku, Bandaríkjanna og Kanada 1946 og þá var sungið á um það bil sextíu Karlakór Reykjavíkur stöðum. Seinni ferðin var farin árið 1960 og stóð yfir í tæpa tvo mánuði. Kórnum var boðið á heimssýninguna árið 1967 í Montreal og til Kína árið 1979. Árið 1966 leigði kórinn rússneskt skemmtiferðaskip, Baltika, og sungu félagar víða um Miðjarðarhafslönd. Utanlandsferðirnar eru orðnar sautján. Á plötum er að finna um það bil tvö hundr- uð lög með Karlakór Reykjavíkur og í ár koma út tveir hljómdiskar; annar með þekkt- um og vinsælum verkum íslenskum og erlend- um. Hinn diskurinn hefur að geyma lög eftir Sigfús Halldórsson. Síðastliðið vor kom kórinn fram í fyrsta sinn í hátíðarbúningi íslenskra karla. í mars næstkomandi mun Karlakór Reykjavíkur flytja í fyrsta sinn hér á landi Requiem eftir Brahms og einsöngvari verður Rannveig Fríða Bragadóttir. Karlakórar í uppsveiflu Mikil gróska er nú í karlakórasöng sem og öllu tónlistarlífi landsmanna. Að minnsta kosti fímm karlakórar keppa nú á geisla- __ •• plötumarkaðnum. Einar Orn Gunnarsson hitti að máli formenn Karlakórs Reykjavíkur og Fóstbræðra og ræddi við þá um karlakórastarfið. NIÐURSTAÐAN er sú að það er afskaplega gaman að syngja í kór, sem veitir mönnum hvort tveggja í senn, listræna og félags- lega útrás. TIL merkis um blómlega starfsemi á meðal karla- kóra er hin mikla útgáfa á þeirra vegum. Karlakór- ar Reykjavíkur og Karlakórinn Fóst- bræður halda upp á 70 og 80 ára afmæli á árinu og senda báðir frá sér geislaplötur, Karlakór Selfoss er að gefa út sína fyrstu geislaplötu og hljómdiskar Karlakórs Keflavíkur og Karlakórs Akureyrar - Geysis eru komnir á markaðinn. Karlakórar og tónlistarlíf almennt á sér tiltölu- lega stutta sögu hérlendis," segir Bjarni Reynarson formaður Karla- kórs Reykjavíkur. „Á seinni hluta nítjándu aldar voru fyrstu karlakór- arnir stofnaðir af tónlistaráhugafólki í Reykjavík. Tengdist starfið Lærða- skólanum og Dómkirkjunni. Karla- kórar urðu snemma vinsælir og elsti starfandi karlakórinn er Þrestir í Hafnarfirði, sem stofnaður var árið 1912. Áhugi á karlakórasöng var vaxandi á fyrri hluta aldarinnar og á flestum stærri þéttbýlisstöðum landsins og víða í sveitum voru karlakórar starfandi um miðja öld- ina. Áhugi á karlakórum minnkaði vegna tónlistaráhrifa erlendis frá og á sjöunda og áttunda áratugnum fækkaði þeim umtalsvert." „Þegar sjónvarpið kom til sögunn- ar og íjölbreytni færðist í skemmt- analíf landsmanna, birtist það meðal annars í dvínandi áhuga á kórsöng og minni aðsókn á tónleika, sérstak- lega úti á landi,“ segir Stefán Hall- dórsson formaður Fóstbræðra. „Karlakórar urðu gamaldags í apg- um margra og þeim fór fækkandi sem vildu leggja slíkan söng fyrir sig. Nú ríkir hins vegar offramboð í fjölmiðlun og þegar hægt er að velja um á annan tug sjónvarpsrása, sætta margir sig ekki lengur við að vera eilífir þiggjendur, þeir vilja láta eitthvað að sér kveða, vera skapandi og þá er tilvalið að syngja í kór.“ „Á seinustu árum hefur áhugi á TONLIST Illjómdiskar ÍSLANDS LAG Karlakór Reykjavíkur. Einsöngur: Sigrún Hjálmtýsdóttir, Kristinn Sig- mundsson. Sljómandi: Friðrik S. Kristinsson. Undirleikur: Anna Guðný Guðmundsdóttir, Jónas Ingi- mundarson. Tæknideild Ríkisút- varpsins hljóðritaði í Víðistaðakirkju 1994-96. Tæknimenn Hreinn Valdi- marsson og Þórir Steingrímsson. Tónmeistari: Bjami Rúnar Bjama- son. Japis JAP 9643-2. KARLAKÓR Reykjavíkur er án efa víðfrægastur íslenskra kóra. Hefur kórinn sjaldan eða aldrei sungið betur en nú. Þessar ágætu upplýsingar er m.a. að flnna á bak- síðu bæklings sem fylgir hljómdisk- inum og það liggur við ég trúi þeim karlakórssöng farið vaxandi aftur,“ segir Bjarni. „Kórarnir hafa stækkað og má segja að þeir séu allt annað hljóðfæri nú en áður. Lagávalið er eftir að hafa hlýtt á diskinn. Kórinn er firnagóður og hljómmikill og greinilegt er að stjórnandainn, Frið- rik S. Kristinsson, kann sitt fag og er enginn meðalskussi. Það er ann- ars merkilegt að hljómur kórsins virðist hafa „erfst“ milli kynslóða, en hann varð sjötugur á þessu ári (kórinn og hljómurinn, sem er þéttur og öflugur en ekkert tiltakanlega unaðslega fagur, kannski hefur stærð kórsins eitthvað með það að gera?). En það er rétt að sjaldan hefur hann sungið af meiri styrk (í öllum skilningi) og af jafn miklum og ég leyfi mér að segja, músikölsk- orðið fjölbreyttara þó að kjarninn sé ætíð sá sami, það er íslensk sön- glög. Nú er meiri áhersla lögð á óperukóra og kirkjuleg verk, jafnvel um aga (fínar áherslur), en auðvitað hjálpa þar líka til nýjar eða nýlegar hljóðritanir. Viðkvæmari stemmn- ingslög, t.d. Nú hnígur sól, eru einn- ig fallega sungin. Söngskráin samanstendur af ellefu velþekktum íslenskum lögum og fimm erlendum. Islensku lögin eru flest alþekkt og sígild karlakórs- lög, ísland, ísland! Ég vil syngja - nemahvað? - Hér eru líka landið vort fagra, Sefur sól hjá Ægi, Nótt, ísland ögrum skorið, Bára blá, Brennið þið vitar og fleiri alþekkt lög. Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur einsöng í íslandslagi Björgvins Guð- eru sungin dægurlög til að ná meiri vinsældum.“ „Nú ríkir mikil gróska almennt í starfsemi kóra,“ segir Stefán, „en segja má að meiri áhugi hafi verið á blönduðum kórum síðustu tvo ára- tugina. Hjá okkur ákváðu til dæmis marg- ir kórfélagar að hætta í kórnum eft- ir Bandaríkjaferðina árið 1982 og í kjölfarið tókst kórnum ekki að end- urnýja sig eðlilega. Segja má að nokkur lægð hafi ríkt um miðjan síðasta áratug, þegar fjöldi kórfé- laga var um 35 manns. Síðan þá hefur þetta verið að breytast og ásókn í kórinn hefur verið mikil undanfarin ár. Og í haust gátum við valið úr úrvals söngkröft- um og núverandi fjöldi kórfélaga er 70.“ Karlakórarnir hafa byggt vin- sældir sínar og starf á styrktarfé- lagakerfi. Það er kreíjandi félagsstarf að vera í kór. Það eru haldnar skemmt- anir og/arið í ferðalög og tónleika- ferðir. í tengslum við kórana eru kvenfélög og er þetta orðið nokkurs konar hjónaklúbbur. Á bak við kór- ana í Reykjavík eru undirkórar eldri félaga sem halda hópinn. Til dæmis er til félagsskapur gam- alla Fóstbræðra, sem er afskaplega fínn og „fornem" klúbbur sem kem- ur saman einu sinni í mánuði og tekur lagið undir öruggri stjórn Jóns Þórarinssonar, en hann hefur stjórn- að þeim frá upphafi. Á íslandi eru nú starfandi tvö karlakórasambönd, annað er fyrir Norðurland, það er Hekla og hitt fyrir Suðurland og það nefnist Katla. Einnig er til landssamband karla- kóra. Hérlendis eru um það bil tutt- ugu virkir karlakórar. Niðurstaðan er sú að það er af- skaplega gaman að syngja í kór, sem veitir mönnum hvort tveggja í senn, listræna og félagslega útrás. mundssonar og Draumalandi Sigfús- ar Eymundssonar og Kristinn Sig- mundsson í Nótt eftir Árna Thor- steinson og Bára blá (þjóðlag). Söng- ur þeirra er í einu orði sagt frábær, þó hvarflaði að mér að Kristinn væri of „túlkandi" í Bára blá, kannski kom ljóðasöngvarinn upp í honum. Það liggur við að þessi 70 manna kór hafi einkarétt á Brennið þið vitar, enda ættu vel samstilltar raddimar að hljóma gegnum særok og veð- urgný. Útlendu lögin eru skemmtileg og vel valin og vel sungin. Með öðrum orðum ektagóð karla- kórssöngskrá (engin nýlunda) og magnaður söngur hjá kór og ein- söngvurum. Undirleikur (í fjórum lögum) fyrsta flokks. Það sama má segja um hljóðritun, sem hlýtur að hafa verið nokkrum vanda bundin með svona stórt og öflugt „hljóðfæri" í ekki stærra rými. Oddur Björnsson Aðventutón- leikar í Bessastaða- kirkju DÆGRADVÖL, lista- og menning- arfélag Álftaness, stendur fyrir að- ventutónleikum í Bessastaðakirkju þriðjudagskvöldið 10. desember kl. 20.30. Þar flytur Bachsveitin í Skál- holti tónverk og jólasálma frá gam- alli tíð. Flytjendur eru; Lilja Hjalta- dóttir barokkfiðla, Rut Ingólfsdóttir barokkfiðla, Sarah Buckley barokkvi- ola, Sigurður Halldórsson barokkselló og Helga Ingólfsdóttir semball. Bachsveitin í Skálholti hefur starf- að í áratug og einkum komið fram á Sumartónleikum í Skálholtskirkju. Hún er eina kammersveitin hér á landi sem sérhæfir sig í flutningi tónlistar fyrri alda og hefur hún afl- að sér hljóðfræa sem hæfir þeirri tónjist. Á efnisskrá sveitarinnar á að- ventutónleikunum í Bessastaðakirkju eru verk eftir barokktónskáldin HIF Biber, M. Cazzati og G. Ph. Tele- mann og verða sum þessara verka á tónleikaskránni í Frakklansferðinni. Auk þess flytur Bachsveitin jóla- sálma í útsetningu H.L. Hasslers og J.S. Bachs. Sýningar í Sýnirými SÝNINGAR í Galleríkeðjunni Sýni- rými í desember eru eftirfarandi; í gallerí Sýniboxi við Vatnsstíg sýnir að þessu sinni Lýður Sigurðs- son, en tengsl við sýningu hans má finna á internetinu: http//www.centrum.is/svidsmyndir. Vilhjálmur Vilhjálmsson sýnir í gall- erí Barm, berandi er Gera Lynd Stytzel, myndlistarkona frá New York. Um miðjan mánuðinn mun Barmur síðan fara frá New York niður til Minneapolis. í símsvaragall- eríinu Hlust (s. 551-4348) sýnir Haraldur Jónsson verkið „Hreimur". Í síðasta mánuði hóf Haraldur boð- hlaupssýningu sína í Galleríkeðjunni Sýnirými með verki í Barmi og mun hann í næsta mánuði ljúka henni í Sýniboxi. Smámyndir í Gallerí Jörð NÚ stendur yfir smámyndasýning í Innrömmum - Gallerí Jörð, Reykja- víkurvegi 66 í Hafnarfirði. Fimm hafnfirskir listamenn eru þar með samsýningu á smámyndum I í Gallerí Jörð. Listamennirnir eru; ^ Gunnar Hjaltason, Halidór Árni Sveinsson, Jón Gunnarsson, Sigur- 1 björn Ó. Kristinsson og Yngi Guð- mundsson. Sýningin stendur til 22. desember og er opin mánudaga til föstudaga kl. 11-18, laugardaga og sunnudaga kl. 12-16. Sýningu Ebbu Júlíönu að ljúka i SÝNINGU Ebbu Júlíönu Lárusdóttur i í Sparisjóði Garðabæjar við Garða- ) torg lýkur í dag, sunnudag. Ebba Júlíana sýnir þar glerlist og hefur aðsóknin verið góð, segir í kynn- ingu. Auk þess verða listmunir henn- ar áfram til sýnis í Listgallerí, List- húsinu í Laugardal og í Rúbín, Kefla- vík. Sýningin er opin frá kl. 14-17. Aukasýning j á „Hrólfi“ i i ÁKVEÐIÐ hefur verið að endurtaka leikritið „Hrólfur" í flutningi Spaug- stofunnar næstkomandi mánudag 9. desember kl. 21 í Listaklúbbi Leikhú- skjallarans. Spaugstofumenn leika öll hlut- verk, jafnt konur sem karla. Spaug- stofumenn skipa þeir Sigurður Sig- uijónsson, Öm Árnason, Pálmi Gestsson, Karl Ágústs Úlfsson og f Randver Þorláksson. Húsið er opnað L kl. 20.30 en flutningurinn hefst kl. . 21. Aðgangur er 500 kr. en 400 kr. * fyrir meðlimi Listaklúbbsins. KARLAKÓRINN Fóstbræður á rætur sínar að rekja til söngstarfs innan vébanda KFUM þar sem séra Friðrik Friðriksson var driffjöðr- in. Reglulegu kórstarfi var komið á 1911 en stofnun kórsins er miðuð við nóvembermánuð árið 1916 þegar Jón Halldórsson er ráðinn söngstjóri. Kórinn hét upphaflega Karlakór KFUM en því nafni var breytt í Fóstbræður árið 1936. Kórinn hefur farið I fjölmargar utanlandsferðir og má sem dæmi nefna ferð til Finnlands og Sovétríkjanna árið 1961 en ^ þá hélt kórinn m.a. eftirminnilegan konsert í Fóstbræður Tsjaíkovskíj-höllinni í Moskvu. Þá var kórinn fulltrúi íslands við opnun menningarhátíðar- innar Scandinavia Today í Kennedy Center í Washington í september árið 1982. Kórinn hefur tvívegis unnið til verðlauna I alþjóð- Iegri keppni kóra. Fóstbræður sáu um allan söng karlakórsins í kvikmyndinni um karla- kórinn Heklu. Núverandi söngstjóri er Árni Harðarson, píanóleikari og tónskáld, en hann var ráðinn árið 1991. Geislaplatan „Stiklað á stóru“, þar sem Fóstbræður sungu við undirleik Sin- fóníuhljómsveitar íslands, kom út fyrir þrem- ur árum og í tilefni 80 ára afmælisins á þessu ári er nýkomin út geislaplatan „Ár vas alda“. Efnið á plötunni er allt íslenskt, allt frá þjóð- lögum til nútímans. Það nýjasta er eftir söng- stjórann Árna Harðarson, Spjótalög 2, sem hann samdi sérstaklega fyrir kórinn við sam- nefnt ljóð Þorsteins frá Hamri. Island, Island! Eg vil syngja!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.