Morgunblaðið - 08.12.1996, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.12.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996 23 Gaf Helgafell út eftir hann greinasafn árið 1959, er nefndist „Milliliður allra milliliða og aðrar hugvekjur um lands- mál“. Hafa áreiðanlega sjaldan verið skrifaðar skemmtilegri greinar um hin döpru vísindi. Fagnaði Pétur því mjög, þegar stefnubreyting varð með viðreisninni 1960 og haftakerfið var loksins brotið á bak aftur. Eftir að skipulagi Landsbankans hafði verið breytt og seðlabankahlut- verkið fært til annarrar stofnunar, sneri Pétur sér af alefli að því að efla viðskipti bankans og bæta þjón- ustu hans við atvinnuvegina. Þrátt fyrir langa dvöl erlendis, hafði hann sem sendiherra fylgzt mjög vel með þróun íslenzks atvinnulífs, sérstak- lega sjávarútvegi og utanríkisvið- skiptum. Sá hann glöggt, hve nauð- synlegt var, að útflutningsfyrirtækin styrktu íjárhagsstöðu sína og endur- skipulegðu reksturinn til þess að geta nýtt þau tækifæri, sem aukið frelsi í viðskiptum sköpuðu. Voru nýjar áherzlur í starfsemi Landsbankans í þessum efnum mikilvæg forsenda þess mikla hagvaxtar, sem sigldi í kjölfar viðreisnarinnar. Pétur hafði frá upphafí brennandi áhuga á stjómmálum, enda var hann þannig skapi farinn að vera óljúft að sitja hjá, þegar barizt var um mál- efni, sem honum voru hugleikin. En þótt hann tæki dijúgan þátt í lands- máiaumræðu bæði í ræðu og riti eft- ir að heim kom, tók hann ekki virkan þátt í stjómmálastarfi, fyrr en hann bauð sig fram til þings í Reykjanes- kjördæmi 1967. Var hann áhrifamik- ill á Alþingi, en honum varð ekki auðið að beita kröftum sínum og hæfíleikum lengi á þeim vettvangi. Um þetta leyti kenndi hann alvarlegs sjúkleika, óg bar dauða hans brátt að 29. júní 1969. Af þessu fátæklega yfírliti um starfsferil Péturs Benediktssonar geta menn vonandi ráðið, hve víða hann kom við og hve dijúgur hlutur hans var í íslenzkum þjóðmálum á einu mesta umbrotaskeiði íslenzkrar sögu. Mun það koma æ betur í ljós, eftir því sem ný kynslóð sagnfræðinga rýnir frekar í frumheimildir um at- burðarás þessa tímabils. Hinu má þó ekki gleyma, að emb- ættisstörfín gefa aðeins ófullkomna mynd af manninum Pétri Benedikts- syni. Honum voru gefnir óvenjulega ijölbreyttir hæfíleikar. Hann hafði sérstakan áhuga á íslenzkri sögu og bókmenntum og eignaðist frábært bókasafn, sem var athvarf hans frá eriisömum störfum. Hann var gjör- kunnugur fombókmenntum íslend- inga, og var lengi í stjóm Hins ís- lenzka fomritafélags og forseti þess síðustu árin. Er mikill missir að því að hann skyldi ekki skrifa meira um hugðarefni sín, en hann ritaði svo léttan og glettnisfullan stíl, að jafnvel þurrustu embættisskýrslur frá hendi hans urðu að skemmtilestri. Pétur Benediktsson var tvíkvænt- ur. Var fyrri kona hans Guðrún Egg- ertsdóttir Briem, en þau skildu eftir fárra ára sambúð. Dóttir þeirra Ragn- hildur er búsett í Noregi. Síðari kona Péturs og ekkja er Marta, dóttir 01- afs Thors, forsætisráðherra, og Ingi- bjargar Indriðadóttur Thors. Gengu þau í hjónaband daginn áður en Pétur tók við sendiherrastarfi í Paris, en þar fæddust dætur þeirra tvær, Ólöf, dómstjóri, og dr. Guðrún, h'ffræðing- ur. Vom þau hjónin mjög samhent, og á heimili þeirra í París og á Vestur- brún áttu vinir þeirra margar gleði- stundir. Þótt Pétur væri mikill alvöramaður og allra manna skylduræknastur, tók hann fáa hluti svo hátíðlega, að ekki mætti hafa þá að gamanmálum. Og þótt hann væri óvenjulega tilfínninga- ríkur, örlátur og hjálpsamur, þoldi hann hvorki tilfmningasemi né sjálfs- meðaumkun. Engan hef ég þekkt, sem hefur í lífí sínu betur fylgt þeirri lífsreglu Hávamála, að glaður og reif- ur skyli gumna hver, unz sín bíður bana. Ekta bísönsk helgimynd (ikon) frá verkstæði Pefkis. Verð frá kr. 2.800 Opið í dag kl. 13-18. Opið virka daga kl. 13-18, laugardaga kl. 11-18. Hverfisgötu 82 - við hliðina á Kjörgarði - sími 552 2608 TMý og bneytt versiun I tilefni breytinganna bjóðum vid 30% afslátt af jólastjömum 30% afslátt af afskomum blómum (- aldrei meira úrval -) Grenibúnt (ca 1/2 kg) kr. 195 (- tilboðin gilda frá laugard. - þriðjud^-) Fylgstu meb í Kaupmannahöfn Morgunblabib fæst á Kastrupflugvelli og Rábhústorginu $ JfiorjunblaJiÍb -kjarni málsins! NÝ VERSLUN EG SKRIFSTOFUBÚNAÐUR kynnir „vinnustöð" heimilisins Vandað og varanlegt beykiskrifborð með lyklaborðsútdragi og skúffuskáp á hjólum. Skúffuskáj Skrifborð, 140 x 65 sm. Stóll teg Vandaður skrifborðsstóll meðháu fjaðrandi baki og á parkethjólum L4.950, Lvklaborðsútdraa 12.900, Litir: Blár, svartur, rauður, grænn 14.300,4 EG Skrifstofiibúnaður ehf. Ármúla 20 sími 533 5900 fax 533 5901 Umboðsmenn: Akureyri, Rodíónousf Akrones, Hljómsýn, Bygingahúsið Bionduós, Kf Húnvefningo Borgornes, Kf Borgfirðinga Búðordolur, Einor Stefónsson Djúpivogur, KAS.K. Drongsnes, Kf Sleingrimsfjaróor fgilssloðir, Kf Héroðsbúo Eskifjorður, EltsGuðnoson fóskrúðsfjörður, Helgi Ingoson fkrteyri, Bjórgvin ÞórÓorson Grindovik, Rofborg Grundofjörður, Guðni Hollgrímsson Hofnarfj., Raftskjav. Skúb f>órss., Rofmætti Helto, Mosfell Hellisandur, Blómsturvellir Hólmovík, Kf Sleingrírmfjorðor Húsovík, Kf Nngeyingo, Bókov. Þ. Stefónss. Hvommstongi, Kf Vesfur- Húnvetninga HvobvöHur, Kf Rongæinga Höfn Hornofirði, K.A.S.K. Ísofjörður, Póllinn Keflovik, Somkaup, Rodwkiolkrinn Neskoupssfaður, VersIuninVík Ólofsfjörður, Volberg, Radíóvinnusfofan Poireksfjörður, Rafbúð Jónosor Reyðarfjörður, Kf Héroðsbúo Reykjovik, Heimskringlon Kringlunni Souðórkfóki, Kf Skogfirðingo Selfoss, Raísel Siglufjörður, Aðolbúðin Veslmonneyjor, Eyjorodió Portókshöfn, Rós Wrshöfn, Kflongnesingo Vopnafjörður, Kf Vopnfirðtngo Vik Mýrdal, Któkkur PHILIPS m yfirburði PHIUPS PHILIPS sjónvarpstæki er valið sjónvarp ársins ár eftir ár, nú síðast „Sjónvarp ársins '96-'97“ í Evrópu. PHILIPS PT 4521 er með nýjum Black Matrix Plus myndlampa með stórkostlegum myndgæðum sem finnast aðeins hjá PHILIPS. Fjárfestu í sjónvarpstæki frá PHILIPS og vertu öruggur með: Gœði, endingu og góða þjónustu! Verð 89.900 Stgr. PHILIPS PT 4521 • Black Matrix Plus myndlampi • CTI litastýring • Nicam stereo • íslenskt textavarp • Easy logic fjarstýring með aðgerðastýringu á skjá • 2 scarttengi • Beintenging fyrir hljómt. (Surround) • Spatial hljómbreytir úywwi M Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 OO
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.