Morgunblaðið - 08.12.1996, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRAMTIÐARSTOFNUN,
svonefnd, var sett á fót
28. febrúar sl. af tólf ein-
staklingum. Ég hef verið
beðinn að segja frá því fyrirbæri.
Áður en ég ræði um stofnunina
sjálfa þykir mér nauðsynlegt að
hafa nokkurn inngang.
Umhverfið
Okkur mönnunum hættir til að
líta á sem sjálfgefið það um-
hverfi, sem við búum við á jörðu.
Ef við gefum okkur tíma til að
skoða það nánar opnast þó hinn
mesti furðuheimur. Staðreyndin
er, að það umhverfi, sem tug- ef
ekki hundruð milljóna ára þróun
hefur skapað lífi á jörðu, er ein-
stakt að því er við best vitum. Á
engum öðrum hnetti í alheiminum
hafa a.m.k. fundist aðstæður, sem
líkjast þeim sem við búum við.
Lítum til dæmis á andrúmsloftið.
Andrúmsloft jarðar er í mörg-
um lögum og gegnir margbreyti-
legu hlutverki. Ozonlagið skýlir
lífi á jörðu gegn banvænum ultra-
fjólubláum geislum sólar. Ef þess
nyti ekki væri ekki líf á jörðu
a.m.k. eins og við þekkjum það
nú. Þótt andrúmsloftið haldi þann-
ig frá okkur banvænum geislum
sólar sér það til þess að hleypa í
gegn nauðsynlegum ljós- og yl-
geislum hennar og önnur lög sjá
til þess að ylurinn hverfi ekki jafn-
harðan út í geiminn. Meðalhiti
jarðar er því um 15 gráður, sem
er hæfilegt fyrir það líf sem hér
er. Loks geyma neðstu lögin það
eldsneyti, súrefnið, sem er lífinu
nauðsynlegt.
Svipað má segja um aðra þætti
umhverfisins, hafið og gróður
jarðar og reyndar lífverurnar
sjálfar. Allir þessi þættir gegna
mjög mikilvægum hlutverkum.
Með margþættu samspili hefur
skapast hárfínt jafnvægi á jörðu,
sem er nauðsynlegt því lífi sem
þar hefur þróast í þess skjóli. Hin-
ir mörgu þættir umhverfisins eru
hlekkir í einni stórri keðju. Eins
og allir vita verður keðja aldrei
sterkari en veikasti hlekkurinn.
Maðurinn er mjög nýlega kom-
inn til sögunnar á jörðunni. Hann
hefur ekki verið hér nema, við
skulum segja, nokkur hundruð
þúsund ár: Hann fer ekki á skipu-
lagðan máta að hafa áhrif á sitt
umhverfi fyrr en fyrir u.þ.b. 10-20
þúsund árum og það er ekki fyrr
en á síðustu 5 þúsund árum eða
svo, að áhrifanna fer eitthvað að
gæta. Þau áhrif voru þó hverfandi
og ollu litlum eða engum skaða,
en áhrif mannsins fóru stig vax-
andi og fara enn. Mikið stökk er
tekið með iðnbyltingunni. Síðan
hafa breytingarnar, framfarir eins
og við gjarnan nefnum þær, orðið
með vaxandi hraða og áhrifin á
umhverfið í samræmi við það. Þar
sem ég var í háskóla í Banda-
ríkjunum fullyrti einn merkur
stærðfræðikennari, að hraði
breytinganna tvöfaldaðist á hveij-
um 7 árum, þ.e.a.s. að hverjum 7
árum liðnum hefði jafn mikið nýtt
verið skapað og til var samtals
áður. Ekki skal ég fullyrða, að
þetta sé nákvæmlega rétt, enda
mjög erfitt að meta. Hitt er vafa-
laust, að inngrip mannsins í um-
hverfi sitt hefur farið mjög hratt
vaxandi.
Nú er svo komið að fjölmargir
fræðimenn eru farnir að óttast að
maðurinn með aðgerðum sínum
setji úr skorðum það hárfína jafn-
vægi í umhverfinu, sem lífi á jörðu
er nauðsynlegt.
Hin „ódásamlegu" nýju efni
Árið 1962 gaf Rachel Carson
út bókina „Silent Spring", sem
þýdd var á íslensku og gefið nafn-
ið „Vorið þagnar“. Þar varaði
Rachel Carson mjög við hinum
fjölmörgu nýju efnum og efna-
samböndum, sem maðurinn hafði
þá þegar þróað og sett í notkun
án þess í raun að vita um áhrif
þeirra, þegar til lengri tíma er lit-
ið. Sem dæmi má nefna ýmis skor-
dýraeitur eins og DDT. Mörg þessi
efni hafa mjög langan líftíma og
safnast þvi saman í lífverum sem
Framtíðarstofnun
og umhverfismál
Tólf einstaklingar komu saman fyrr á árínu til að setja á fót svo-
nefnda Framtíðarstofnun. í samþykktum stofnunarinnar er tilgang-
inum lýst svo að hlutverk hennar sé að vera vettvangur umræðna
um málefni framtíðar, vistvæna þróun og stöðu íslands í samfé-
lagi þjóðanna. Steingrímur Hermannsson, einn tólfmenninganna,
gerir hér nánari grein fyrir stofnuninni og tilurð hennar.
2. mynd. Hitastig á yfirborði jarðar
0,6
0,4
0,2
Frðvlk samelnaðs meðalhitastigs jarðaryfirborðs (yflrborð lands,
yllrborð sjávar og lolt við ytlrborð) frá samskonar meðalhitastigi
árabllsins 1961-1990 (0,0)--------------------------------------
1 -°’2
£
■0,6
l ,t .
m'Ái íi
vi
■0,8
W
Súlurnar sýna frávik hverð árs frá meðaltalinu 1961-1990
Línan sýnir frávik meðalfráviks nokkurra ára („hiaupandi meðaltal")
1860 1880 1900 1920 £,1940 1960 1980 2000
eru hæst í fæðukeðjunni. Carson
taldi að í slíkum efnum gæti verið
um dulda tímasprengju að ræða,
sem reynst gæti lífi á jörðu mjög
hættuleg.
Efnaframleiðendur deildu á Car-
son af miklu offorsi. Hún var talin
andstæðingur framfara og lítið úr
henni gert, en bókin fór eins og
eldur um sinu og hefur nú komið
út i þrettánda sinn í Bandaríkjun-
um.
Nýlega kom út í Bandaríkjun-
um einskonar framhaldssaga af
bók Carsons, sem nefnist. „Our
Stolen Future“ (Okkar stolna
framtíð). Sú bók er skrifuð af
tveimur vísindamönnum ásamt
blaðamanni. Þar eru rakin hin
ótrúlegustu dæm; um skaðleg
áhrif þessara efna mannsins í
umhverfinu. Til dæmis hafa vís-
indamenn í Noregi nú uppgötvað
að ísbirnir á Svalbarða kunna að
vera í útrýmingarhættu. ísbirnir
borða selinn, selurinn fiskinn og
fiskurinn svifin o.fl., sem berst
með hafstraumum frá suðrænum
löndum og flytur skordýraeitur og
önnur eiturefni til íshafsins. Þessi
efni eru flest uppleysanleg í fitu
og safnast saman í hinu mikla
fitulagi ísbjarnarins. Það drepur
ekki fullorðna dýrið, en ruglar
hormónastarfsemina og drepur
afkvæmin.
Um þessar tvær bækur var ítar-
lega fjallað í ágætri grein í Morg-
unblaðinu fyrir skömmu.
Við skulum líta á dæmi um áhrif
mannsins á andrúmsloftið.
Máli mínu til stuðnings læt ég
fylgja nokkrar myndir um breyt-
ingar, sem eru að verða á and-
rúmsloftinu fyrir áhrif mannsins.
Þær eru allar frá alþjóðlegum
stofnunum á vegum Sameinuðu
þjóðanna. Fyrsta myndin er af
þynningu ozonlagsins yfir suður-
heimskautinu.
Ózonlagið
Árið 1974 birtu tveir vísinda-
menn grein um þynningu ozon-
lagsins yfir suðurheimskautinu.
Eins og áður er sagt, er það þetta
lag, sem heldur banvænum geisl-
um sólar frá jörðu. Þeir töldu að
fluorefni leituðu upp í ozonlagið
og eyddu því smám saman. Notk-
un flúorefna hófst í kringum 1930
og hefur vaxið gífurlega á síðustu
áratugum, enda þessi efni talin
meðal mestu dásemda í efnaheim-
inum. Þau eru bæði notuð til kæl-
ingar i frystivélum, t.d. í frysti-
húsum, kæliskápum og frystum
almennt, en einnig í einangrunar-
plötur, í úðabrúsa o.s.frv. Margar
milljónir tonna af þessu efni hafa
farið út í andrúmsloftið.
Framleiðendur á fluor tóku
skýrslu vísindamanna fálega.
Milljónum dollara var varið til
þess að afsanna þeirra kenningu.
Nokkrum árum síðar upplýstist
að Geimferðastofnun Bandaríkj-
anna hafði sent gervihnetti í gegn-
um andrúmsloftið og mælt sam-
setningu þess í áratug. Hins vegar
hafði tölvan, sem úr þessum upp-
lýsingum vann, ætíð kastað í
ruslakistuna tölum um ozonlagið,
þvi þær voru taldar utan skynsam-
legra marka og því rangar. Sem
betur fór geymdi tölvan þær þó í
ruslakistu sinni. Þegar þær voru
dregnar fram kom í ljós, að þétt-
leiki ozonlagsins hafði hrunið á
þessu tíu ára tímabili. Þetta varð
til þess, að á alþjóðafundi árið
1992 náðist loks samkomulag um
að stöðva notkun á fluorefnum
innan tíu ára.
Þessari samþykkt ber að sjálf-
sögðu að fagna. Hún gefur von
um að þjóðirnar geti sameinast
um að afstýra voða, þegar nauð-
syn krefur. Því miður er þessi
samþykkt þó víða enn virt að vett-
ugi og fluor jafnvel selt á svörtum
markaði. Talið er, að það muni
taka a.m.k. öld fyrir ozonlagið að
ná fyrri þéttleika, enda verði
banninu framfylgt.
Hækkun hitastigs á jörðu
Mynd 2 sýnir breytingar á með-
alhita á yfirbori lands og sjávar
frá 1861-1994. Núllið er meðalhit-
inn frá 1961-1990. Súlurnar sýna
árlegt hitastig, en línuritið meðal-
tal.
Þótt miklar sveiflur séu á hita-
stigi fer það augljóslega hækk-
andi. Af því hafa vísindamenn
haft vaxandi áhyggjur. Þessi þró-
un er rakin til svonefndra gróður-
húsaáhrifa, sem stafa af ýmsum
lofttegundum, einkum koltvísýrl-
ingi, sem myndast við bruna öllu
kolaefni. Um áhrif hinna ýmsu
lofttegunda hefur hins vegar verið
deilt. Sumar þeirra draga úr út-
geislun hitans frá jörðu og valda
því hækkun hitastigs eins og gler-
ið á gróðurhúsunum, en aðrar loft-
tegundir koma í veg fyrir að hita-
geislarnir komist til jarðar og
valda því kólnun.
Mynd 3 sýnir aukningu á koltví-
i
l
I
>
>
>
f
\
►
t
[
>
\-