Morgunblaðið - 08.12.1996, Side 37
t
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996 37
i
i
i
fl
fl
I
i
í
i
i
i
í
i
i
i
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
MINNINGAR
VALDIMAR RUNÓLFUR
HALLDÓRSSON
■+■ Valdimar Runólfur Hall-
1 dórsson fæddist á Bakka í
Skeggjastaðahreppi 26. maí
1924. Hann lést í Reykjavík 21.
nóvember síðastliðinn og fór
útför hans fram frá Fossvogs-
kirkju 29. nóvember.
Höfðingi er fallinn frá. Valdimar
Runólfur Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri og yfirmaður minn í
meira en 14 ár er látinn og vil ég
fá að heiðra minningu hans í fáum
orðum. Kynni okkar hófust í byijun
árs 1972 er Runólfur réð mig til sín
í Börk hf., sem þá nýlega hafði
reist 750 fm iðnaðarhús í Hafnar-
fírði. Það var mikil upplifun að
vinna með Runólfi, hann var mikill
atorkumaður og smitaði mig og
aðra samstarfsmenn með krafti sín-
um og útgeislun. Það var sjaldan
logn þar sem Runólfur var nærri,
hann talaði hreint út og var virkur
í samtölum og honum var alla tíð
mikið í mun að koma hlutunum
strax í verk. Þótt hann vildi fara
hratt í hlutina, þá var hann samt
skemmtilega íhaldssamur í aðgerð-
um og skoðunum.
Runólfur var kröfuharður en
mjög sanngjarn sem vinnuveit-
andi, og mestu kröfurnar gerði
hann til sjálfs sín. Sem stjórnandi
nutu kraftur hans og dugnaður sín
vel í hinum mikla og öra vexti sem
fyrirtækið Börkur hf. upplifði á
árunum 1972-1987. Húsnæði fyr-
irtækisins stækkaði í 4.200 fm og
starfsmannafjöldinn margfaldað-
ist. Það snerist allt um pólýúreþan
hjá okkur á þessum árum. Við
unnum mjög náið saman og upp-
lifðum bæði þröngan og rúman
kost á þessum árum. Aldrei barst
Runólfur mikið á þrátt fyrir þá
stöðu að stýra jafn öflugu fyrir-
tæki og Börkur hf. var á þessum
árum. Nægjusemi Runólfs, hóf-
semi og fórnfýsi gæti margur
stjórnandinn tekið sér til fyrir-
myndar. Þótt gustaði oft af Run-
ólfí, fann maður fljótt að hann var
heill í samstarfi. Ekki man ég þá
tíð, þrátt fyrir ágreining eða ólíkar
skoðanir stundum, að gagnkvæm
virðing hafi ekki alltaf staðið heil
eftir hjá okkur Runólfi, enda hefði
samstarf okkar ekki verið jafn
langlíft og raun bar vitni. Það var
alveg saman þótt brúnirnar frægu
sigu stundum og yfírborðið sýndist
hart, jafnan var örstutt í mannvin-
inn og kærleikann hjá Runa. Og
einnig var stutt í húmorinn hjá
Runa, enda var andinn á skrifstof-
unni í Berki hf. alla tíð mjög góður.
Þótt leiðir okkar Runa hafí ekki
legið oft saman síðustu árin, þá hitt-
umst við stundum í bankanum og
það voru jafnan fagnaðarfundir. Og
alltaf sá ég glitta í gamla góða neist-
ann hjá Runa og sama framkvæm-
dagleðin virtist sífellt vera fyrir
hendi. Og fram á síðasta fund okk-
ar fann ég ennþá fyrir hans ríkasta
mannkosti, sem einkenndi hann alla
tíð, sem var hjálpsemi við vini og
vandamenn.
Ég vil þakka Runólfi fyrir langa
og góða samfylgd og ég veit að
ég mæli einnig fyrir munn fyrrum
vinnufélaga okkar í Berki hf. Fjöl-
skyldu Runólfs, bömum og barna-
börnum og þá sérstaklega eftirlif-
andi eiginkonu hans Huldu Matthí-
asdóttur, sendi ég mínar dýpstu
samúðarkveðjur.
Björn Eysteinsson.
ÓLAFUR
ANDRÉS-
SON
+ Ólafur Andrésson fæddist í
Reykjavík hinn 17. nóvem-
ber 1949. Hann lést á Landspít-
alanum 24. nóvember síðastlið-
inn og fór útför hans fram frá
Bústaðakirkju 5. desember.
Við Óli kynntumst fyrir u.þ.b. 26
árum í gegnum sameiginlega vin-
konu okkar. Á þessum tíma vann
ég með móður hans, Halldóru, á
Elliheimilinu Grund, en hún starfaði
þar í mörg ár en ég um nokkurra
mánaða skeið. Dóra varð góð vin-
kona okkar sem yngri vorum, mikið
spjallað og ekkert kynslóðabil. Henni
varð tíðrætt um drengina sína þijá,
og var hin stoltasta og umhyggju-
samasta mamma sem hægt er að
hugsa sér. Ég votta þeim foreldrun-
um og bræðrunum mína dýpstu sam-
úð. En lífið er fullt af tilviljunum
eða er hægt að kalla það forlög?
Nokkrum árum síðar kynntist ég
eiginmanni mínum og Óli kynntist
fyrri konu hans, Hildi_ Leifsdóttur.
Þar af leiðandi varð Óli stjúpfaðir
stjúpbarna minna. Og hann var góð-
ur stjúpi, sem börnunum þótti vænt
um, og samband hans við þau rofn-
aði ekki þó leiðir þeirra Hildar skild-
ust. Þau eignuðust dótturina Berg-
lindi, sem er lifandi eftirmynd hans,
falleg og góð og mikil pabbastelpa
og bjó hjá honum síðustu árin.
Eftir að Óli og Hildur skildu hitt-
um við Óla sjaldan, enda hann alltaf
á sjónum. En seinnipart október s.l.
greindumst við Óli með svipaðan
sjúkdóm og við lágum á sama
sjúkrahúsi nokkra daga. Ég leit inn
til hans á þeim dögum og við rædd-
um mikið saman. Það var eins og
öll árin sem við sáumst lítið, væru
ekki til. Hann var sami rólegi og
góði Óli sem ég kynntist svo mörgum
árum áður. Við ræddum sjúkdóma
okkar eins og gengur, veltum fyrir
okkur rannsóknum og niðurstöðum
sem þá lágu fyrir o.s.frv. Við ákváð-
um að taka einn dag fyrir í einu og
umfram allt að vera jákvæð. En
hann hafði áhyggjur af Beggu sinni,
og hennar vegna ætlaði hann að
beijast, sem hann og gerði af mik-
illi karlmennsku. Eg ætlaði að
hringja til hans eftir að við vorum
komin heim, en það dróst og síðan
var það of seint. En ég frétti þó af
honum í gegnum stjúpdóttur okkar
Huldu og Hildi, sem reyndist honum
vel og studdi hann á þessum vikum
sem voru honum erfiðar. Elsku
Begga mín og aðrir ástvinir, við
samhryggjumst ykkur af öllu hjarta.
í lokin lítið ljóð sem minnir mig á
síðasta samtal okkar Óla:
„Þótt ég sé látinn, harmið mig
ekki með tárum. Hugsið ekki um
dauðann með harmi og ótta. Ég er
svo nærri að hveit ykkar tár snertir
mig og kvelur. En þegar þið hlæið
og syngið með glöðum hug lyftist
sál mín upp í mót til ljóssins. Verið
glöð og þakklát fyrir allt sem lífíð
gefur, og ég, þótt látinn sé, tek þátt
í gleði ykkar yfir lífinu.“ (Höf.ók.)
Nína og Guðmundur.
Splunkunýr
enn glæsilegri og betur búinn en áður
Svo ef þú átt þér draum um að eignast
eðalvagn, stóran bfl með virðulegu
yfirbragði, sem tekur öðrum fram í útliti
og aksturseiginleikum, þá er Hyundai
Sonata bfllinn. Og þér er óhætt að vakna
upp af draumnum og láta hann rætast
því verðið er í engu samræmi við gæði
þessa glæsilega bíls.
Hyundai Sonata
...ekki bara draumur!
HYUnDHI
til framtídar
Vél búin: QT
2.0 lítra rúmmáli ZD
16 ventlum O
tölvustýrðri fjölinnsprautun <
140 hestöflum
...........o
rvn
Loftpúðar _j
Rafknúnar rúöur <£
Rafknúnir hliðarspeglar (£$
Samlæsing í huröum <£
Vökva- og veltistýri
Tveir styrktarbitar í hurðum
Útvarp/kassettutæki
meö 6 hátölurum
Rafknúið loftnet <
Litaö gler
Statíf fyrir drykkjarmál
Hólf milli framsæta ^
Stafræn klukka ^
Snúningshraöamælir —I
o.m.fl. <
Verð frá
1.778.000 kr.
ÁRMÚLA 13, SÍMI: 568 1200
BEINN SÍMI: 553 1236