Morgunblaðið - 08.12.1996, Page 50
50 SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
KORFUKNATTLEIKUR
Bovain stigahæstur
Eftir níu umferðir í úrvalsdeildinni
í körfuknattleik er Andre Bova-
in, sem leikur með Breiðabliki, stiga-
hæstur. Hann hefur gert 326 stig,
eða 36,22 stig að meðaltali í leik.
Það hefur þó ekki dugað Blikum því
þeir hafa enn ekki hlotið stig í deild-
inni.
Tito Baker, ÍR, kemur næstur
Bovain með 282 stig. Fred Williams,
Þór, er þriðji með 252 stig og Dam-
on Johnson, Keflavík, fjórði með 241
stig. Stigahæsti íslendingurinn er
Guðjón Skúlason, Keflavík, með 187
stig eða 18,7 stig að meðaltali í leik.
Bestu skotnýtinguna það sem af
er hefur John Torrey, leikmaður
Njarðvíkinga. Hann hefur skotið 131
sinni á körfuna og hitt 89 sinnum,
sem er 67,9% skotnýting. Hrafn
Kristjánsson, KFÍ, er með 100%
skotnýtingu úr vítum. Hann hefur
tekið 17 skot og hitt úr öllum. Besta
þriggja stiga skyttan er Eiríkur
Sverrir Önundarson úr ÍR, en hann
hefur 56,3% nýtingu - skotið 32 sinn-
um og 18 sinnum hefur boltinn rat-
að ofan í.
Fred Williams, Þór Ak., hefur
hefur tekið flest fráköst allra leik-
manna deildarinnar, eða 152 alls
sem er 16,9 fráköst að meðaltali í
leik. Jeffrey Johnson, Tindastóli,
kemur næstur með 130 fráköst.
Landsliðsþjálfarinn, Jón Kr. Gíslason,
hefur hins vegar gefið flestar stoð-
sendingar það sem af er. Hann hefur
gefíð 72 sendingar í 9 leikjum, sem
er 8 stoðsendingar að meðaltali í leik.
GUÐJÓN Skúlason er stiga'
hæstur íslendinganna.
Slendertone er
vöðvaþjálfunartœki sem styrkir þig
og grennir, án þess að þú þurfir
að œfa. Þú getur horff á sjónvarp,
gengið úti með hundinn eða sinnt
störfum þínum. Á meðan senda
tœkin þœgilegar rafbylgjur
misdjúpt í vöðvana og láta þá
taka á, hvorf sem er lítið eða mikið,
allt eftir þínum óskum. Tœkin
ganga fyrir rafhlöðum og öryggið
er fullkomið. Silicone-blöðkur sem
endast og endast. Þú kemst í
toppform með Slendertone!
0
slmderkmé
Face Up-andlitstækið er
með 4 rásum og gefur mjög
þægileg átök a andlits-
vöovana og húðina. 15 mín.
æfing á dag er ailt sem þarf.
Rakakrem fyrir æfinp og
Herbal-ávaxtakrem tylgja,
ásamt hárbandi og tósku.
ekkert
stress
0
shmdertoné
TopTone 12 er frábært tæki
með 12 blöðkum og þremur
innbyggðum kerfum.
1 Vöovaæfing, styrkingog
fitubrennsla. 250 æfingar.
2 Fyrir appelsínuhúð
3 Otrúlega þægilegt og
árangursríkt punktanudd
■irvöðvabólgu
fyrir vöðvabófgu. Taska fylgir.
þcegilegt
0
slmdertone
Celluforme er tæki fyrir
appelsínuhúð. Það er með
8 stórum blöðkum og
tækið er með þriú þrep,
upphitun, djúpæfingu og
endar á slökun. Cellu-
form-krem og taska íylgja,
ásamt myndbariai.
arangurs-
ríkt
0
slmdertone
Gymbody 8 er tæki sem
sér um styrkingu og fitu-
brennslu. 8 blöðkur.
40 mínútur gefa 240
æfingar. Einnig mjög gott
við vöðvabólgu,
liðverkjum og fleira.
Myndband fylgir og taska.
örvun
Vœgar bylgjur eru sendar í vöövann
Samdróttur
Þegar bylgjurnar aukast spennlst vöðvínn
Slðkun
Þegar bylgjurnar hœtta, slaknar ó vöðvanum
Kynning alla virka daga
16.00- 18.00
laugardaga
kl. 11:00-16:00
Aöal
sólbaösstofan
Þverholti 14 • Sími 561 8788 • Fax 561 8780
Grensósvegi 11
Sími: 5 886 886
Grœnt númer: 800 6886
Fax: 5 886 888
■ SUK Hyung Lee markvörður
FH í handbolta hefur verið í æfinga-
búðum með landsliði S-Kóreu í
heimalandi sínu. Hann kom til
landsins í gær til að leika með FH
gegn Haukum í kvöld.
■ SIGURÐUR Sveinsson homa-
maður úr UMFA fékk afhentan
viðurkenningarskjöld frá FH fyrir
viðureign UMFA og FH sl. mið-
vikudagskvöld. Var það gert vegna
þess að Sigurður náði því tak-
marki í vor að leika 200 leiki með
meistaraflokki FH á þeim fimm
árum sem hann var í herbúðum
Hafnfiroinga. Hins vegar gafst
aldrei tóm til þess að afhenda hon-
um skjöldinn áður en hann hélt á
ný til heimahaga sinna í Mos-
fellsbæ í sumar.
■ JAVIER Clemente landsliðs-
þjálfari Spánar í knattspyrnu valdi
fyrir helgina miðvallarleikmanninn
Armando Alvarez hjá Deportivo
Coruna í landsliðshóp sinn sem
mætir Júgóslavíu í undankeppni
HM næsta laugardag.
■ ALVAREZ hefur aldrei verið
valinn áður og varð skiljanlega
mjög glaður þegar honum voru
færðar fréttirnar. „Ég trúði þessu
ekki fyrst og hélt að það væri verið
að gera grín að mér,“ sagði Al-
varez. Hann tekur sæti Jose Luis
Caminero hjá Atletico Madrid
sem er meiddur um þessar mundir.
■ RUUD Gullit knattspyrnustjóri
Chelsea hefur gert samkomulag
við breskan framleiðanda á íþrótta-
og útivistarfatnaði um að fatalína
sem kemur á markaðinn á næsta
ári beri nafn hans. Gullit mun hafa
hönd í bagga með framleiðslu fatn-
aðarins. Ekki fylgir sögunni hvað
Gullit fær í sinn hlut.
■ LEE Bowyer unglingalands-
liðsmaður Englendinga í knatt-
spyrnu, hefur verið sektaður um
4.500 pund fyrir að kasta stólum
að starfsfólki á skyndibitastað í
London. Bowyer sem er 19 ára
var keyptur til Leeds í sumar frá
Yorkshire fyrir 3,5 millj. punda.
■ GUÐMUNDUR Stephensen
borðtennismaður úr Víkingi lagði
félaga sinn Ingólf Ingólfsson 2:1
í úrslitaleik í meistaraflokki karla
í einliðaleik á Pepsimótinu nýlega.
■ LILJA Rós Jóhannesdóttir
sigraði í kvennaflokki á sama móti
með 2:0 sigri á Líneyju Árnadótt-
ur í úrslitum í einliðaleik. Báðar
stúlkurnar eru í Víkingi.
ÚRSLIT
Körfuknattleikur
Meistarakeppni Evrópu
Staðan að loknum 9. umferðum:
A-RIÐILL
CSKAMoskva...................9 6 3 15
Stefanel Mílanó..............9 6 3 15
Maccabi Tel Aviv.............9 5 4 14
Ulker Spor (Tyrk.)...........9 4 5 13
Limoges (Frakkl.)............9 3 6 12
Panionios (Grikkl.)..........9 3 6 12
B-RIÐILL
Teamsystem Bologna.............9 7 2 16
Olympiakos....................9 5 4 14
CibonaZagreb...................9 5 4 14
AlbaBerlin....................9 5 4 14
Estudiantes Madrid............9 5 4 14
Charleroi (Belg.).............9 0 9 9
C-RIÐILL
Panathinaikos.................9 7 2 16
Ljubljana.....................9 6 3 15
Villeurbanne (Frakki.).........9 6 3 15
Barcelona.....................9 4 5 13
Split.........................9 4 5 13
BayerLeverkusen...............9 0 9 9
D-RIÐILL
Efes Pilsen (Tyrkl.)..........9 7 2 16
Pau-Orthez (Frakkl.)..........9 5 4 14
Partizan Belgrade.............9 5 4 14
Kinder Bologna................9 4 5 13
Sevilla.......................9 4 5 13
Dynamo Moskva.................9 2 7 11