Morgunblaðið - 21.02.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.02.1997, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir Veghefill valt á Ströndum Drangsnesi - Veghefill frá Vega- gerðinni á Hólmavík fór út af vegin- um rétt sunnan við Stóra-Fjarðar- horn í Kollafirði og valt á hliðina sl. þriðjudag. Vonskuveður var þegar atvikið Nýtt skóla- hús tekið í notkun á Stöðvarfirði Stöðvarfirði - Nýbygging Grunnskólans á Stöðvarfirði var tekin í notkun 15. febrúar sl. en hún hefur verið í bygg- ingu síðustu 14 árin. Bygging skólahússins hófst í maí 1983 og hefur húsið verið byggt í áföngum. Húsið varð fokhelt síðla árs 1988 en kennsla hófst í tveimur skóla- stofum í kjallara hússins 1989. Gengið var frá skólahúsinu að utan og það múrhúðað sumarið 1991 en hluti efri hæðar sem tengir það við gamla skólahúsið forstofa og snyrting var tekin í notkun í upphafi skólaárs 1992. í þessum áfanga, sem nú er verið að taka í notkun, eru þijár almennar kennslustofur, vinnu- aðstaða fyrir kennara, aðstaða fyrir bókasafn og fjölrými sem staðsett er í miðju hússins en það býður upp á marga kosti til félagsstarfa. Ekki er lokið við aðstöðu fyrir kennslu í heim- ilisfræðum og setustofu nem- enda en líkur eru á því að verki verði lokið á næstu mánuðum. Þessi lokaáfangi hefur verið átti sér stað, snjókoma, skafrenn- ingur og blint. Veghefilsstjórinn Sverrir Guðbrandsson marðist tölu- vert en er óbrotinn. Hann komst hjálparlaust úr vegheflinum og upp á veg og þar fékk hann fljótlega í höndum fjölda iðnaðarmanna víða að af Austurlandi en þeir hafa flestir unnið að verkþátt- um samkvæmt útboðsskilmál- um. Tæknivinna, útboðsgögn og eftirlit með framkvæmdinni eru í höndum Hönnunar og ráðgjaf- ar hf. á Reyðarfirði. Kostnaður við byggingu skólahússins er orðin 61 millj. kr. reiknað til núvirðis og er húsið 831 fer- metri brúttó. Hönnuður skóla- byggingarinnar er dr. Maggi Jónsson arkitekt. Fjölmenni var við þessa hátíð- far með bíl að næsta bæ, Stóra- Fjarðarhorni, þangað sem sjúkrabíll frá Hólmavík sótti hann. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni í Hólmavík virðist veg- hefillinn ótrúlega lítið skemmdur. arstund þegar þetta nýja skóla- hús var tekið formlega í notk- un. Sr. Gunnlaugur Stefánsson, sóknarprestur í Heydölum, flutti blessunarorð og óskaði skólanum, nemendum og kenn- urum velfarnaðar. Rakin var byggingarsaga hússins og ræð- ur fluttar. Skólanum voru færð- ar gjafir í tilefni dagsins. Nem- endur skólans sáu um veitingar og fjölbreytta skemmtidagskrá ásamt kennurum sínum. Skóla- sljóri Grunnskóla Stöðvarfjarð- ar er Jónas Ólafsson. Morgunblaðið/Bjami Gíslason FJÖLMENNI sótti samkomuna i tilefni af vígslu Grunnskólans á Stöðvarfirði. Leiktjöld urðu að málverki Hellu - Víða um land hafa undan- farið verið haldin þorrablót og mikil vinna verið lögð í undirbún- ing þeirra. Á Hellu eins og víðar skemmta menn sér sjálfir og vinna allt heima, í sjálfboðavinnu að sjálfsögðu. Þegar kom að því að hanna leiktjöld fyrir blótið voru nefndarmenn svo heppnir að hafa í hópnum myndlistarmanninn El- ías Hjörleifsson sem býr á Hellu. Elías gerði sér lítið fyrir og mál- aði fjalladrottninguna Heklu á tíu fermetra trévegg sem prýddi svið- ið á þorrablótinu. Hekla þótti fal- leg og viðeigandi umgjörð á þess- ari þjóðlegu samkomu. „Þetta átti nú eiginlega bara að vera skissa, en þróaðist út í þetta hjá mér, tíu fermetra málverk af Heklu sem ég býst við að gefa hreppnum," sagði Elías Hjörleifsson, myndlist- armaður á Hellu. VIÐSKIPTI Forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna Brýnt að reglu- gerðarbreyting verði staðfest BREYTING á reglugerð Lífeyris- sjóðs verslunarmanna, sem heimilar honum að taka við viðbótariðgjöld- um við þau 10% af heildarlaunum sem kjarasamningar kveða á um hefur ekki verið staðfest af fjármála- ráðuneytinu. Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunar- manna, segir að brýnt sé að reglu- gerðin verði staðfest, þar sem undir- búningur vegna þessarar breytingar sé í fullum gangi, og það hljóti að vera tímaspursmál hvenær það verði gert. Lífeyrissjóður verslunarmanna er stærsti iífeyrissjóður landsins og námu eignir hans um síðustu áramót um 45 milljörðum króna, sem er nálægt því að vera um 15% af öllum lífeyrissparnaði landsmanna. Þorgeir Eyjólfsson segir að ein- ungis sé beðið eftir formlegri stað- festingu fjármálaráðuneytisins á breyttri reglugerð lífeyrissjóðsins, þannig að honum verði kleift að taka við viðbótariðgjaldi frá sjóðfélögum. Öll aðildarsamtök að lífeyrissjóðnum hafi samþykkt slíka breytingu og hún sé því einungis til staðfestingar í ráðuneytinu. Samkvæmt lífeyrissamningi verslunarmanna og viðsemjenda þeirra sem gerður var síðla árs í fyrra er opnaður möguleiki á að hægt sé að greiða viðbótariðgjald af sjóðfélögum umfram það 10% ið- gjald af heildarlaunum sem kveðið er á um í kjarasamningum. Gert er ráð fyrir að viðbótariðgjaldið færist sem séreign hvers og eins. Þorgeir sagði aðspurður að þarna væri um fullkomlega eðlilegt fram- hald á starfsemi lífeyrissjóðsins að ræða. Hins vegar þyrfti að uppfylla það formsatriði að fjármálaráðu- neytið staðfesti breytta reglugerð og hefði ósk þar um verið send fyr- ir lok síðasta árs. „Þetta er bara eðiilegt framhald á þeirri starfsemi sem lífeyrissjóðirn- ir hafa stundað um áratugaskeið. Þarna er opnað á möguleika til þess að fólk geti aukið og bætt réttindi sín. Alls staðar í hinum vestræna heimi þykir það af hinu góða að fólk spari til eftirlaunaáranna og það er eðlilegt að fólk geti gert það með viðbótarframlagi í sinn starfstengda lífeyrissjóð," sagði Þorgeir. Dagaspursmál Sameinaði lífeyrissjóðurinn hefur kært málsmeðferð fjármálaráðu- neytisins varðandi hliðstæða ósk um stofnun séreignadeildar til umboðs- manns Alþingis, þar sem erindinu hafi ekki verið svarað þrátt fyrir að um þijú ár séu síðan upphaflega hafi verið vakið máls á því. Aðspurður hvort hann óttaðist að dráttur gæti orðið á staðfestingu ráðuneytisins á reglugerðarbeyting- unni sagðist Þorgeir telja það af og frá. „Það hvarflar ekki að mér að það verði. Ég lít svo á að það hljóti bara að vera dagaspursmál hvenær reglugerð Lífeyrissjóðs verslunar- manna verður staðfest í ráðuneyt- inu. Annað er óhugsandi," sagði Þorgeir að lokum. Nýsköpunarsjóður námsmanna Um 25 milljónum króna úthlutað NÝSKÖPUNARSJÓÐUR náms- manna úthlutaði um 25 milljónum króna til 130 verkefna á síðasta ári. Útlit er fyrir að svipað íjármagn verði til úthlutunar í ár en umsóknar- frestur til sjóðsins rennur út 10. mars. Nýsköpunarsjóður námsmanna var stofnaður árið 1992 til þess að útvega áhugasömum nemendum sumarvinnu við metnaðarfull og kreijandi rannsóknarverkefni. Styrkjum er úthlutað til kennara á háskólastigi eða fulltrúa fyrirtækja og rannsóknarstofnana til þess að ráða stúdenta til verkefna sem tengj- ast þeirra námi og áhugasviði segir Haraldur Guðni Eiðsson, fram- kvæmdastjóri sjóðsins. „Sjóðurinn er ljármagnaður með framlögum frá ríki og Reykjavíkur- borg auk þess sem önnur sveitarfélög taka þátt í fjármögnuninni. Eins hefur aukist að fyrirtæki taki þátt í launakostnaði við verkefni í formi mótframlaga og getur það haft áhrif á forgang við úthlutun." Haraldur Guðni segir að tugir fyr- irtækja, fjöldi stofnana, allar deildir Háskóla Islands og flestir skólar á háskólastigi hafi tengst verkefnun- um. „Sjóðurinn hefur hagnýtt gildi fyrir mjög mörg fyrirtæki og dæmi eru um að verkefni á vegum sjóðsins hafi leitt af sér vörur sem farið er að framleiða og eru á leið á markað þrátt fyrir að sjóðurinn sé aðeins fimm ára gamall.“ Umsóknareyðublöð til sjóðsins liggja frammi á skrifstofu Stúdenta- ráðs HÍ og þar eru ennfremur veittar allar frekari upplýsingar um sjóðinn. Fólk Forstöðumaður Póst- ogfjar- skiptastofnunar • GÚSTAV Arnar hefur verið ráð- inn forstöðumaður Póst- og fjar- skiptastofnunar frá og með 20. febr- úar. Gústav er fæddur í Reykjavík árið 1933. Hann útskrifaðist frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1953 og lauk B.Sc. prófi í rafmagnsverkfræði við háskólann í Endinborg 1957. Hann lauk námi í tæknilegri stjórnun við Massachusetts Institute of Techno- logy í Bandaríkjunum 1978. Gústav stundaði einnig nám í fjarskiptum við háskólann í Essex í Englandi og lauk þar M.Sc. prófi árið 1987. Gústav starfaði hjá Póst- og síma- málastofnuninni frá 1957, varðþar yfirverkfræðingur í tæknirekstar- deild og síðan yfirverkfræðingur í markaðs- og alþjóðadeild stofnunar- innar. Frá apríl 1995 til ársloka 1996 var hann aðstoðarframkvæmdastjóri fjarskiptasviðs auk starfa í markaðs- og alþjóðadeild. Gústav er kvæntur Elínóru Amar og eiga þau fjóra syni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.