Morgunblaðið - 21.02.1997, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ
48
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997
Vorvörurnar frá 'SiOMtfeK*
eru komnar.
Verðdæmi:
Jakkar frá kr. 5.900.
Buxur ffá kr. 1.690.
Pils ffá kr. 2.900.
Blússur ffá kr. 2.800.
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433.
BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR
fyrir WINDOWS
BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR
fyrir WINDOWS
Sjáðu nýjan frábæran
hugbúnað:
gn KERFISÞRÚUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
www.treknet.is/throun
Á annað þúsund
notendur
s\ KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
www.treknet.is/throun
39. útdráttur 20. febrúar 1997
íbúðarvinningur
Kr. 2.000.000________Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
32980
Kr. 100.000
4106
Ferðavinningar
Kr. 200.000 (tvöfaldur)
10366
28142
75400
Ferðavinningar
Kr. 50.000 Kr. 100.0 00 (tvöfaldur)
4375 22317 27772 32647 65286 72974
17663 26882 31787 61937 69270 75921
Húsbúnaðarvinningar
Kr. 10.000 Kr. 20.Í 100 (tvc faldur
694 13082 21451 31041 42109 50833 61389 71840
1185 13401 21463 32030 42164 51324 61581 72005
1224 13496 22468 33708 42625 51781 61940 72049
1547 13498 22702 33738 42906 52372 62584 72561
2317 14136 22731 33771 43069 52541 62612 72703
2907 14571 22836 33969 43086 52784 64008 72781
3347 14964 23295 34296 43195 53113 64828 73263
4346 15148 23554 34318 43344 53421 64956 73384
6324 15149 23946 34576 43407 53934 65267 74160
6522 15810 24281 34715 43853 54561 65693 74547
7412 15877 24476 34898 44095 54652 65867 74956
8072 16063 24907 35005 44349 55227 66147 75131
9758 16085 25331 35130 44374 55322 66301 75230
9891 16564 25573 35266 44701 55426 66810 76148
10138 16751 25643 35818 44846 55499 66912 76477
10260 16859 25861 36003 45766 55740 68025 76716
10290 16872 26024 36019 45785 56381 68183 77706
10321 16947 26955 36414 45816 56486 68370 77726
10399 17871 26974 37436 46241 56980 68388 77728
10606 17904 27073 37990 46570 56988 69014 77842
10735 18027 27438 38293 46718 57283 69512 77891
10783 18474 27589 38508 46762 57864 69753 78175
10857 18571 28290 39191 47604 58908 69932 78234
11037 18830 29184 39770 47923 59099 69983 78250
11202 19060 29419 39851 48452 59473 70807 78622
11409 19510 29623 39956 48645 59514 71155 78695
11636 19918 29812 40356 48925 59518 71207 79201
11788 20601 30069 40446 49217 60423 71236 79285
11993 20907 30419 40913 49281 60460 71362
12917 21021 30997 41177 50127 60736 71646
Heimasiða á Ioterneti: Http//www.itn.is/das/
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Rödd úr
fjöldanum
NÚNA þessa dagana
standa yfir viðræður um
kaup og kjör okkar lands-
manna, og á sama tíma er
tilkynna fjölmiðlar okkur
að bankastjóralaun hafí
hækkað um 27-52% á sex
árum, um leið og verka-
lýðshreyfingin er að berjast
fyrir hækkun lægstu launa
um 10 þúsund krónur.
Þetta finnst mér fulllangt
gengið og ég á varla til orð.
Hvað er að gerast hér
í landinu okkar? Fólk er
að æsa sig upp út af ál-
veri og mengun í Hval-
firði. Það fyllir bíla sína
og rútur af fólki og ekur
til Reykjavíkur til að mót-
mæla, en hvar er baráttu-
andinn þegar margbrotið
er á okkur í launamálum?
Er þetta ekki þjóðfélags-
mengun gegn okkur sem
verðum að sætta okkur
við lúsarlaun?
Og þegar digrir pen-
ingaverðir velta sér í vel-
lystingum, hvers vegna
gerir þjóðin ekki eitthvað
í þessu og fjölmennir út
á götur og torg eins og
þeir gera í Albaníu, Júgó-
slavíu, og fleiri löndum?
Þar lætur fólkið heyra í
sér, hér situr hver í sínu
horni eða þingmenn rífast
hver við annan á Alþingi;
fólk lætur níðast á sér og
lætur gott heita að ráðist
sé á kjör þess og kjör ör-
yrkja og aldraðra. Enginn
segir neitt, stjórnin er
bara látin um allt, og jafn-
vel sumir ráðherrarnir
segja okkur að engin fá-
tækt sé í iandinu, þótt
þorri fólks lifi ekki af
launum sínum.
Alls staðar blasir við
okkur óréttlætið og okkur
er sagt að nú sé komið
góðæri - en hvar er góð-
ærið? Ég lýsi hér með eft-
ir því. Þetta er ísland í
dag. Við hljótum að mega
vona að við eigum betri
tíma í vændum, fyrir okk-
ur, börn okkar og bama-
börn, og þjóðarkökunni
verði nokkuð jafnt skipt á
milli manna. Að bilið
minnki milli ríkra og fá-
tækra. Við sem búum í
góðu og fallegu landi sem
er með því besta í heimi
þar sem allír ættu að hafa
það gott. Ég vona sannar-
lega að svo verði í framtíð-
inni.
Edda Júlíusdóttir,
Furugrund 38, Akranesi.
Tapað/fundið
Jens-næla
tapaðist
JENS-næla, gull og silfur,
tapaðist vestur í bæ 8. jan-
úar. Skilvís finnandi vin-
samlega hringi í síma 552
0784.
Armband
fannst
ARMBAND fannst á
göngustígnum í Fossvogs-
kirkjugarði sunnudaginn
16. febrúar. Upplýsingar
hjá Sif í síma 552 4749
eða 568 6868.
Giftingarhringur
tapaðist
GIFTINGARHRINGUR
tapaðist í námunda við
Bókasafn Kópavogs,
Fannborg 3-5, eða á bíla-
stæðinu fyrir utan. Hann
er merktur Dídí. Skilvís
finnandi vinsamlega
hringi í síma bókasafnsins,
554 1577, eða skili á bóka-
safnið.
Ferðataska
tapaðist
NÝLEG svört, meðalstór
ferðataska með brúnum
ólum tapaðist í flugi frá
ísafirði til Reykjavíkur
með íslandsflugi um há-
degisbil^ mánudaginn 27.
janúar. í töskunni eru sam-
kvæmiskjólar. Skilvís
finnandi vinsamlega hringi
í síma 557 6928.
Gleraugu í óskilum
KVENGLERAUGU hafa
verið í óskilum í sölutum-
inum á Hagamel frá því
15. febrúar sl. Spurt var
um gleraugum en þau voru
þá ófundin. Eigandinn er
því beðinn um að vitja
þeirra aftur í söluturninn.
Dýrahald
Tomma vantar
framtíðarheimili
3JA ÁRA svartan og hvít-
an högna, hálfan síams,
geltan og bólusettan, þrif-
inn og skemmtilegan,
vantar nýtt heimili vegna
flutninga. Upplýsingar í
síma 551 2549.
Ketti vantar
gott heimili
TVEIR faliegir og
skemmtilegir kettlingar
fást gefins. (Jppl. í síma
565 3672. Á sama stað
vantar eins árs gamlan
kött gott heimili.
Kanína þarf gott
heimili
SVÖRT ung, snyrtileg
dvergkanína þarf að eign-
ast gott heimili. Áhuga-
samir dýravinir eru vin-
samlega beðnir að hringja
í síma 561-2129.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pctursson
Staðan kom upp á stór-
mótinu í Linares á Spáni
sem lauk á sunnudag-
inn. Lettinn Aleksei
Shirov (2.690) hafði
hvítt en Rússinn
Vladímir Kramnik
(2.740) var með svart
og átti leik. Það virð-
ist mjög halla á svart,
sem er skiptamun
undir, en hann lumaði
á laglegri leið til að
rétta sinn hlut:
28. - Ra3->-! 29. Kcl
(Ekki 29. bxa3? -
Hb8 og 29. Kal -
Rc2+! kemur auðvit-
að ekki neinu til leið-
ar) 29. - Bf4+!! 30. gxf4
- Dxf4+ 31. Hd2 - Hd8
32. Hedl - Hxd2 33.
Hxd2 og hér sættust tefl-
endur á jafntefli. Svartur
nær þráskák með 33. —
Dfl+ 34. Hdl - Df4+.
SVARTUR ieikur og
heldur jafntefli.
COSPER
ÉG hef á tiifinningunni að hundurinn sé svangur.
Víkveiji skrifar...
VÍKVERJI verður að segja að
honum finnst til fyrirmynd-
ar, þegar sjónvarpsstöðvar sýna
spennuþætti, sem framhald er á
dag eftir dag. Oft hefur það verið,
að heil vika líði á milli útsendinga
og þá vill oft verða erfitt að rifja
upp söguþráðinn, þegar svo langt
er um liðið. Þegar stöðvarnar sýna
framhaldsþætti, sem aðeins eru í
tveimur til þremur þáttum er það
sjálfsögð þjónusta við áhorfand-
ann að ekki líði of langt á milli
þátta.
XXX
ÝLEGA rakst Víkveiji í tölu-
blaði tímaritsins Stefnis á
umfjöllun um vísitölu, sem hann
hafði ekki áður heyrt um. Þetta
er svokölluð frelsisvísitala, en
markmið hennar er að bera saman
efnahagslegt frelsi milli landa og
á sama tíma að skoða þróunina
innan landanna og áhrif efnahags-
legs frelsis á efnahag þjóða. í rann-
sókninni eru tekin fyrir 102 lönd
á tuttugu ára tímabili og var til-
gangurinn að vinna hlutlausan
mælikvarða á efnahagslegt frelsi
á milli landa, svokallaða frelsisvísi-
tölu.
Frelsisvísitalan byggir á þremur
þáttum: Valfrelsi einstaklinganna,
vemd séreignar og viðskiptafrelsi.
Með greininni í Stefni er línurit
yfir vísitöluna og þegar það er skoð-
að er ísland í 31. sæti ásamt Bóliv-
íu, Ítalíu, Jamaíku, Máritus og Sví-
þjóð.
Mest er frelsisvísitalan í Hong
Kong, sem trónar í fyrsta sæti og
fylgir Nýja-Sjáland á eftir í 2. sæti,
þá Singapúr, í fjórða sæti eru
Bandaríkin og hinu 5. Sviss, þá eru
Bretland og Kanada í 6. sæti, ír-
land í 8. og Ástralía í hinu 9. I 10.
sæti er Japan, Holland í 11. og í
12. sæti eru þrjú lönd, Belgía,
Þýzkaland og Malasía. Það Norður-
landanna, sem hefur hæsta frelsis-
vísitölu er Danmörk í 16. sæti og
Noregur er í 22. sæti. Finnland er
í 26. sæti.
Minnst er frelsisvísitalan i ríkinu
Zaír og Iran. Níkaragva, Sýrland
og Alsír eru heldur ekki hátt skrif-
uð í 98, 99. og 100. sæti.
NOKKUR umfjöllun er um stöðu
íslands. Þar segir m.a.: „ís-
land er í 31. sæti á þessum frelsis-
kvarða og þó svo að landið hafi
hækkað mjög á umræddu 20 ára
tímabili, erum við mjög neðarlega,
ef miðað er við V-Evrópuríki. Af
þeim ríkjum eru einungis Portúgal,
Grikkland og Kýpur neðar á listan-
um. Allar fullyrðingar um að beita
þurfi ríkisvaldinu á Islandi til að
ná sambærilegum árangri við þær
bjóðir sem við viljum bera okkur
saman við hljóma því hjákátlega
þegar þessar niðurstöður eru skoð-
aðar. Sérstaklega er athygisvert að
skoða hinar nýríku þjóðir Austur-
Asíu, en því hefur oft verið haldið
fram að þær hafi ekki farið leið
frelsis til að ná árangri. Sú er aldeil-
is ekki raunin og ef t.d. Japan er
skoðað, sést að þar hefur um langa
hríð verið mikið efnahagslegt frelsi.
Eignaraðild hins opinbera í fyrir-
tækja- og fjármálakerfinu er mjög
lág og frelsi til fjármagnsflutninga
hefur verið til staðar mjög lengi.
Ríkisafskipti af efnahagslífinu eru
einfaldlega lítil."