Morgunblaðið - 21.02.1997, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.02.1997, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ VALDASKIPTI í KÍNA Vel menntaður tæknikrati við stj órnvölinn í Kína Peking. Reuter, The Daily Telegraph. Reuter KÍNVERSK fjölskylda gengur fram hjá kínverska fánanum sem dreginn var í hálfa stöng í gær á Torgi hins himneska friðar, til að minnast andláts Dengs Xiaopings, sem lést á miðvikudag. JIANG Zemin, manninum sem var valinn til að feta í fótspor Maós formanns og Dengs Xiaopings og stjórna Kína næstu árin, er lýst sem vin- gjamlegum menntamanni, sem vitni oft í Abraham Lincoln, fyrr- verandi Bandaríkjaforseta. Hann er fyrsti háskólamenntaði maður- inn sem kemst til æðstu metorða í Kína. Deng valdi Jiang sem arftaka sinn árið 1989 og hann er þegar orðinn forseti landsins, leiðtogi flokksins og æðsti yfirmaður hers- ins. Jiang er sjötugur og þykir mjög ólíkur Maó og Deng, sem voru komnir af bændum og gengu ekki menntaveginn. Jiang er hins vegar stórborgarbúi, háskóla- menntaður tæknikrati, og var að hluta til valinn vegna þess að öld- ungarnir í forystusveit kommún- istaflokksins hrifust af gáfum hans, lærdómi og kunnáttu í er- lendum tungumálum. Kínverskir embættismenn segja að Jiang sé traustur í sessi sem æðsti leiðtogi Kína en orðrómur hefur verið á kreiki um að valdabarátta hafi geis- að í Peking um skeið. And- stæðingar Jiangs eru sagðir hafa gagnrýnt hann fyrir að safna að sér fleiri titlum en hann eigi skilið og þeim gæti tekist að vílq'a honum frá. Virðist óttast valdarán hersins Jiang hefur lagt mikla áherslu að rækta tengslin við kínverska hershöfðingja og þykir það til marks um póli- tíska kænsku en endurspegla um leið veikleika hans og áhyggjur vegna hugsanlegs valdaráns hers- ins. Erfitt er að meta hver stefna Jiangs verður þar sem hann hefur verið uppnefndur „vindhaninn" og er sagður haga seglum eftir vindi. Hann er þekktari fyrir varkámi en framsækna stefnumótun og hann er fyrsti leiðtoginn sem hefur enga reynslu af hermennsku. Hann nýtur því mun minni virðingar inn- an hersins en Deng. í öðrum Asíuríkjum hafa valda- Li Peng og fleiri valdamenn gætu reynst honum hættulegir skipti stundum leitt til valdaráns þegar nýr leiðtogi nýtur minni stuðnings innan hersins en fyrir- rennarinn og Jiang virðist óttast þennan möguleika. Hann er sagður hafa fyrirskipað fræðimönnum að semja ritgerð um valdarán í öðrum löndum og eitt sinn þegar hann ávarpaði kínverska lögreglumenn gerði hann það á bak við skothelda hlíf. Hann hefur því lagt mikla áherslu á að styrkja stöðu sína innan hersins og honum hefur gengið betur að fá hershöfðingjana á sitt band en flestir höfðu búist við. Margir telja að hann hafi ver- ið vanmetinn allan stjórnmálaferil- inn og reynst betri og þrautseigari stjómmálamaður síðustu árin en andstæðingar hans áttu von á. Hlynntur ríkisafskiptum Jiang nam verkfræði í rússnesk- um skóla og talar rússnesku reip- rennandi. Hann er einnig nokkuð fær í ensku og rúmensku, sem hann lærði þegar hann starfaði í verksmiðju í Rúmeníu. Hann á það til að heilsa japönskum gestum með nokkmm orðum á japönsku og vitnar í rúmenska skáldið Mihai Eminescu þegar hann hittir Rúm- ena. Ennfremur vitnar hann stund- um í ávarp Lincolns í Gettysburg 1863 þar sem bandaríski forsetinn lagði áherslu á jafnrétti og frelsi og hugmyndir sínar um lýðræðis- lega stjóm í þágu fólksins. Jiang þykir ekki eins hvatvís og Maó og Deng, sem voru báðir mikl- ir hugsjónamenn. Hann er hlynnt- ur auknu frjálsræði í efnahagsmál- um en leggur áherslu á að farið verði hægt í sakirnar og virðist þeirrar skoðunar að ríkisvaldið þurfi að gegna veigamiklu hlut- verki í efnahagslífinu. Deng var stoltastur af þróuninni í borgum eins og Shenzhen í suður- hluta landsins, þar sem efnahagur- inn blómstraði vegna einkafyrir- tækja og samstarfs við erlend fyrirtæki. Lífskjörin hafa stórbatn- að í þessum borgum en áhrif kommúnistaflokksins minnkað. Jiang virðist hins vegar ánægð- ari með gang mála í Shanghai, þar sem afskipti ríkisvaldsins af efna- hagnum eru meiri. Hann virðist tregur til að einka- væða ríkisfyrirtæki, en ekki af hugsjónaástæðum, heldur vegna þess að hann óttast götumótmæli verkamanna sem gætu misst vinnuna vegna einkavæðingarinnar. Ekki flekkaður af blóðbaðinu Jiang er ekki talinn eins valdboðsgjarn og forverar hans. Hann ræddi við lýð- ræðissinna sem tóku þátt í námsmannamótmælunum árið 1987 og hvatti þá til að snúa sér aftur að náminu. Hann er ekki talinn hafa verið með í ráðum þegar ákveðið var að beita hernum til að kveða niður mótmælin og var í Shanghai á þeim tíma. Hann hefur þó tekið hart á and- ófi gegn kommúnistaflokknum. Hann bannaði dagblað í Shanghai árið 1989 vegna gagnrýni þess á flokkinn og fyrirskipaði aftökur nokkurra lýðræðissinna eftir blóðs- úthellingarnar í Peking. Flokkur- inn hefur hert tök sín undir stjórn Jiangs á síðustu árum, þannig að því sem næst allir andófsmenn landsins eru annaðhvort í útlegð eða fangelsi. Tvíræð stefna Jiang tók þátt í menningarbylt- ingunni en það hafði þó ekki áhrif á frama hans eftir að henni lauk árið 1976. Hann var skipaður að- stoðarráðherra í iðnaðarráðuneyt- inu árið 1982 og borgarstjóri Shanghai 1986. Litið var á Jiang sem hæfan og umbótasinnaðan borgarstjóra en hæfileikar hans sem gestgjafa eru taldir hafa ráðið úrslitum um að hann komst til æðstu metorða í kommúnistaflokknum. Deng og helsti keppinautur hans, Chen Yun, voru tíðir gestir í Shanghai og Jiang lagði sig í framkróka við að sýna þeim fyllstu virðingu. Öldungarnir hrifust af þessum vel menntaða manni og þótt þeir deildu um flest voru þeir sammála um að Jiang væri best til þess fall- inn að taka við leiðtogahlutverk- inu. Þeir völdu hann að hluta til vegna þess að hann var óflekkaður af blóðbaðinu í Peking en tvíræð stefna hans var honum einnig til framdráttar. Deng leit á hann sem umbótasinna en Chen áleit hann harðan kommúnista, sem hægt væri að treysta til að standa vörð um flokkinn og draga ekki um of úr ríkisafskiptunum í efnahagnum. Li á marga óvildarmenn Margir telja að enginn stjórn- málamaður í Kína verði jafn öflug- ur og valdamikill og Deng á næstu árum og að hópur áhrifamanna í stjórnmálaráði flokksins geri út um málin og taki stærstu ákvarð- anirnar. Fari svo gæti Li Peng gegnt miklu hlutverki, en hann hefur verið forsætisráðherra frá árinu 1987 og deilt völdunum með Jiang frá blóðsúthellingunum í Peking. Li, sem er 68 ára, hefur oft virst öflugri stjórnmálamaður en Jiang og er sagður metnaðargjam og JIANG Zemin, LI Peng, forsætis- forseti Kína. ráðherra Kína. Yfirvöld vilja forðast að óánægja námsmanna og verkafólks fái útrás við andlát Dengs Deng dásamaður í viðvörunargrein Reuter. Peking. ÞÁTTUR Deng Xiaopings í at- burðunum á Torgi hins himneska friðar í byijun júní 1989 er dásamaður í opinberri minningar- grein um drottnara Kína, sem kínversk yfirvöld sendu frá sér í gær. Er það túlkað sem viðvörun til Kínveija að hafa sig hæga á þessum tímamótum. „Frammi fyrir pólitískum róst- um innanlands sem á alþjóðavett- vangi seint á níunda áratugnum og í upphafi þess níunda var af- staða [Kommúnista] Flokksins og ríkisstjómarinnar, rækilega studd af félaga Deng Xiaoping og öðr- um öldungum, ótvíræð,“ sagði í greininni. Að fmmkvæði stúdenta hófst barátta fyrir lýðræðisumbótum í Kína vorið 1989. Á endanum var alþýðuhemum sigað á umbóta- sinna og lyktaði mótmælum þeirra með blóðbaði er skrið- drekasveitir voru sendar inn á Torg hins himneska friðar. Áætl- að hefur verið að þá hafi mörg þúsund manns týnt lífi. Vestrænir stjómarerindrekar í Peking sögðu hina beinu skírskot- un til baráttu stúdenta fyrir lýð- ræðisumbótum vera augljósa við- vörun. Kínverskir leiðtogar eru sagðir vilja tryggja að stúdentar og verkamenn grípi ekki tækifær- ið við andlát Dengs og tjúki út á götur til að fá útrás fyrir óánægju sína, m.a. vegna atvinnuleysis og mikillar verðbólgu. Stjórnvöld í Peking vilja aukin- heldur forðast endurmat á stjórn- arárangri Dengs og atburðunum á Torgi hins himneska friðar, að sögn stjórnarerindreka. Hermt er að morðin á torginu séu enn ofar- lega í hugum fjölmargra í Kína sem hafi verið gróflega misboðið með því mikla ofbeldi sem beitt var gegn friðsamlegum mótælum lýðræðissinna. „Skilaboðin eru þessi: „Lítið ekki á þetta sem ykkar tækifæri til þess að rifja það upp. Nú er hvorki stund né staður“,“ sagði vestrænn stjórnarerindreki. Hann sagði að jákvæður undir- tónn væri í minningargreininni og eftirmenn hans væru ekki til- búnir að hefja rökræður um árangur Dengs, eins og drottnar- inn gerði sjálfur strax eftir dauða Maós. „Þeir eru ekki komnir á 70:30 stigið,“ sagði hann og skír- skotaði til þess dóms Dengs um stjórnartíð Maós að hún hefði verið 70% jákvæð en 30% nei- kvæð. Vel smurð kúgunarvél Mannréttindasamtökin Amn- esty International sögðu í gær, að ein arfleifð Dengs væri „vel smurð harðræðis- og kúgunar- vél.“ Af ótta við óstöðugleika eftir andlát Dengs var kúgun aukin á síðasta ári, að sögn Amnesty, einkum bitnaði það á hópum sem þorðu að viðra óánægju sína. Hvöttu samtökin kínverska ráðamenn til að halda áfram umbótum á sviði dóms- og rétt- arfars. „Valdaskiptin að Deng frágengnum verða prófsteinn á hvaða stefnu mannréttindamál kunna að taka í Kína,“ sagði í yfirlýsingu Amnesty.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.