Morgunblaðið - 21.02.1997, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 21
VALDASKIPTI í KÍNA
mikill málafylgjumaður. Hann á
einnig fleiri óvini en keppinautur-
inn.
Li átti stóran þátt í þeirri
ákvörðun að beita hervaldi á Torgi
hins himneska friðar og hefur aldr-
ei losnað við smánarblettinn sem
fylgdi blóðbaðinu. Hann hefur þó
lagt mikið kapp á að bæta ímynd
sína, ferðast um Kína, kysst börn
og þeir eru orðnir ótalmargir sem
hann hefur heilsað með handa-
bandi.
Forsætisráðherrann er verk-
fræðingur og menntaður í Sovét-
ríkjunum eins og Jiang og var eitt
af mörgum börnum sem Chou
En-lai, fyrrverandi forsætisráð-
herra, og kona hans ólu upp. Li
átti frama vlsan innan kommún-
istaflokksins þegar á æskuárunum
og aðrir embættismenn hafa sakað
hann um hroka.
Vegna skapferlis Lis og harð-
línustefnu hefur alltaf staðið styr
um hann. Jafnvel móðir hans for-
dæmdi hann sem umhyggjulausan
son þegar hún lá banaleguna á
sjúkrahúsi í Peking árið 1985.
Menntamenn hafa stundum haft
Li að spotti og segja hann ekki
mjög greindan. Hann hefur þó
reynst slyngur og þrautseigur
stjórnmálamaður og haldið lengur
velli en margir bjuggust við.
Helsti vandi Lis felst í því að
samkvæmt stjórnarskránni getur
hann ekki gegnt forsætisráðherra-
embættinu lengur en fram á næsta
ár. Framtíð hans kann því að ráð-
ast á þingi kommúnistaflokksins í
október.
Þingforsetinn
valdamikill
Á meðal annarra áhrifamanna
í Kína er Qiao Shi, forseti þings-
ins, sem er 73 ára og hefur beitt
sér fyrir auknum áhrifum lög-
gjafarsamkundunnar. Hann var
eitt sinn talinn líklegur til að taka
við embætti flokksleiðtoga, enda
Nýr lík-
ofn fyrir
Deng
Peking. Reuter.
ÆÐSTA líkbrennsla Kína tek-
ur splunkunýjan og sérpantað-
an líkofn í notkun til þess að
brenna Deng Xiaoping, drottn-
ara Kína, til þess að komast
megi hjá því að aska hans
blandist ösku óæðri manna, að
sögn kínverskra heimilda.
Babaoshan-líkbrennslan
hafði búið sig undir andlát
Dengs og flutt inn og sett upp
nýja ofninn fyrir nokkrum
árum. í þessari stofnun hafa
nær allir kínverskir ráðamenn
verið brenndir eftir andlát sitt.
Yfirvöld í Peking hafa lagt
ofuráherslu á að ekki verði
gengið á akurlendi borgarinn-
ar og því hvatt til líkbrennslu
í stað greftrunar. Deng tók
ákaft undir það sjónarmið. Lík
Maós Tsetungs formanns var
þó ekki brennt eftir andlát
hans 1976, heldur smurt og
varðveitt í grafhýsi á Torgi
hins himneska friðar í Peking.
Þar liggur það á börum og er
til sýnis.
Utför Dengs hefur verið
ákveðin næstkomandi þriðju-
dag, 25. febrúar og verður at-
höfnin í Höll alþýðunnar í Pek-
ing. Að ósk Dengs mun líkið
ekki liggja þar á börum. Hann
var ætíð andvígur persónu-
dýrkun sem var einkennandi
fyrir Maó og sagðist einungis
vilja einfalda og látlausa minn-
ingarathöfn.
náinn bandamaður Dengs, en hefur
virst sætta sig við að standa í
skugga Jiangs og Lis. Hann stjórn-
aði áður öryggislögreglunni og
hefur mikil völd og áhrif, að mati
fréttaskýrenda.
„Hann er alvörugefinn og fá-
máll maður og almennt álitinn
áreiðanlegur, hæfur og framsýnn
stjórnmálamaður," segir í ævisögu
hans.
„Gorbatsjov Kína“
Zhu Rongji, sem er 69 ára, er
varaforsætisráðherra og oft nefnd-
ur „Gorbatsjov Kína“ vegna bar-
áttu sinnar fyrir efnahagsumbót-
um, en sjálfur hefur hann óbeit á
því auknefni. Hann er þekktur sem
sáttasemjari í erfiðum deilum og
þarf oft að takast á við ýmis vanda-
mál sem fylgja efnahagsumbótun-
um, t.a.m. verðbólgu, gjaldþrot rík-
isfyrirtækja, reiða bændur og
spillta embættismenn.
Zhu var áður borgarstjóri
Shanghai og framtíð hans í stjórn-
inni ræðst af því hvernig honum
gengur að leysa þau ijölmörgu
vandamál sem eru á hans könnu.
Áhrifamiklir
öldungar
Yang Shangkun, sem er níræður
og fyrrverandi forseti landsins,
reyndi að notfæra sér stuðning
sinn innan hersins og náin tengsl
við Deng til að verða æðsti leiðtogi
landsins. í byijun áratugarins var
hann álitinn næstæðsti embættis-
maður Kína og líklegastur til að
verða valdamestur eftir fráfall
Dengs. Metnaður hans og framap-
ot innan hersins færðu honum hins
vegar marga óvildarmenn og Deng
lagðist að lokum gegn honum og
knúði hann til að draga sig í hlé
árið 1993 eftir að hafa gegnt for-
setaembættinu í fimm ár.
Yang gegndi mikilvægu hlut-
verki í aðgerðunum gegn náms-
mönnunum í Peking 1989.
Peng Zhen, sem er 95 ára, var
náinn bandamaður Dengs og hefur
haft mikil áhrif á bak við tjöldin
þótt hann hafi látið af öllum emb-
ættum sínum. Hann var borgar-
stjóri Peking í 15 ár og var áður
forseti þingsins. Hann kemur
stundum fram opinberlega í hjóla-
stól og virðist við góða heilsu mið-
að við aldur.
Zhao Ziyang er 78 ára og hafði
yfirumsjón með róttækum efna-
hagsumbótum en féll í ónáð. Hann
var eitt sinn álitinn líklegur arftaki
Dengs og varð leiðtogi kommún-
istaflokksins í nóvember 1987, þeg-
ar margir af gömlu byltingarmönn-
unum drógu sig í hlé. Átján mánuð-
um síðar komu öldungamir aftur
fram á sjónarsviðið og studdu kröfu
harðlínumanna um að honum yrði
vikið frá vegna félagslegs umróts
sem umbótastefna hans olli.
Áður en mótmælin á Torgi hins
himneska friðar voru kveðin niður
ræddi Zhao við leiðtoga náms-
mannanna og bað þá með tárin I
augunum að láta af mótmælunum.
()'M(a
Úr sögu daganna eftir Árna Bjömsson
„Nokkuð var ort um Góu á 17.-19. öld sem
dóttur Þorra eða eiginkonu. Var þá
stundum reynt í gamni að skjalla hana til
að bæta veður... Heitið konudagur er
kunnugtfrá miðri 19. öld og ernú útbreytt.
Sá siður að eiginmenn gefi konum sínum
blóm á konudaginn hófst á sjötta áratug
20. aldar."
...Látið blómin tala
Blómaverslanimar
- fagmennska ífyrirrúmi
(SLENSK
GARÐYRKjA
- okkar allra vegna!