Morgunblaðið - 21.02.1997, Side 22

Morgunblaðið - 21.02.1997, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR . Morgunblaðið/Rax SINFONIUHLJÓMSVEIT Islands spilar við opnun menningarsetursins í Nuuk. Uffe Ellemann hrósar sinfóníunni Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. EINN af þeim, sem hrifust af leik Sinfóníuhljóm- sveitar íslands þegar hún lék við opnun menningar- setursins nýja í Nuuk á Grænlandi, var Uffe Elle- mann-Jensen, formaður Venstre og fyrrum utanrík- isráðherra Dana. í fréttabréfi sínu, sem gefið er út á heimasíðu flokksins, hrósar hann hljómsveitinni í hástert fyrir hrífandi leik og þykir hlutur Dana við opnun hússins hafa verið heldur rýr miðað við þessa íslensku kraftbirtingu. Tónleikana segir hann hafa verið „dúndurtón- leika: Sinfóníuhljómsveit íslands hóf fyrstu stóru óperutónleikana í Katuaq, hinu nývígða menningar- setri, með forleikinn að Skjónum þjófótta eftir Ross- ini. Þetta var í fyrsta skipti að fullskipuð sinfóníu- hljómsveit leikur á grænlenskri jörð. Og hvílík spila- mennska. Þeir lögðu sálina óskipta í leikinn - og á eftir svitnuðum við áheyrendur í lófunum .. Heimsókn Sinfóníuhljómsveitarinnar var gjöf ís- lands og ég þori varla að hugsa út í hvernig tókst að koma hörpunni og kontrabössunum fimm til Nuuk, en allt var þetta þarna og það mátti bæði heyra og sjá!“ Djöflaeyjan slær í gegn á kvikmyndahátíðinni í Berlín Berlín. Morgunblaðið. MYND Friðriks Þórs Friðrikssonar Djöflaeyjan hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda og bíógesta á Berl- inale. Myndin hefur verið sýnd í tvígang og í bæði skiptin fyrir fullu húsi. Ahuginn á myndinni sýnir að óþarft er að kynna Friðrik Þór fyrir þýskum kvikmyndaunnendum eftir að Börn náttúrunnar voru hér í bíó svo mánuðum skipti fyrir örfáum árum. Margir bíógestir voru eilítið slegnir að sýningu lokinni yfir harð- ærinu í myndinni því flestum eru rómantísku senurnar í Börnum nátt- úrunnar í fersku mynni. Þýski meðframleiðandi myndarinn- ar, Peter Römmel, sagði í viðtali að það sérstaka við Friðrik væri að hann hjakkaði aldrei í sama farinu og að með hverri mynd væri hægt að búast við einhveiju alveg nýju. Og það er einmitt sá hæfíleiki Friðriks sem gagnrýnendur lofa sem mest. I „Tagesspiegel" segir t.d. að myndin sé meistaraverk leikstjóra sem hafí tæra sýn á það sem hand- verk hans eigi að ná fram hverju sinni úr góðu handriti og afbraðgshópi leik- ara. Þar segir jafnframt að Friðrik hafí enn einu sinni sannað að hann búi einfaldlega yfir hæfíleikum sem ekki verði lærðir. Það er sjaldan að myndum takist á svo sérstakan og mannlegan hátt að koma áhorfendum fullkomiega úr jafnvægi. í rauninni fjallar myndin um allt er viðkemur hinu mannlega; ást og hatur, líf og dauða, gleði og sorg. Gamansemi og harmur fléttast sam- an en skilaboðin eru hrein og bein: lífíð heldur áfram sama hvað á bját- ar. í ofannefndu blaði segir ennfrem- ur að kollegamir í samkeppninni geti hrósað happi yfír að myndin sé ekki í hópi þeirra sem keppa um titil- inn að þessu sinni. Ari Kristinsson, tökumaður mynd- arinnar, fær í öðru tímariti mikið lof fyrir áhrifaríkar myndir sem gera það að verkum að mann langar mest að sjá myndina strax aftur. Friðrik Þór er nú staddur hér í Berlín til að fylgja myndinni eftir á hátíðinni. CRILLBOÐ! SAFARÍKUR KJÚKLINCUR EÐA4 ELDSTEIKTIR HAMBOR6ARAR A ADEINS 790 KR. SLAKAÐU NÚÁMEÐ FJÖLSKYLÞUNNI, SLEPPTU /AATARCERÐINNIOC NÝTTU ÞÉR FRÁBÆRTTUBOÞ Á VÍBON. ÞÚ FÆRÐ ÞÉR ANNAÐHVORT CRILLAÐAN SAFARÍKAN KJÚKLIN6, BEINTAFTEININUM, EÐA 4 ELDSTEIKTAOC ILMANDI HAMBORCARA Á APEINS790 KRÓNUR. BORÐAÞU Á STAPNUM EPA TAKTU MEO HEIM. TILBODID CILDIR TIL1. MARS. KRÓNUR KRÓNUR CÓÞURSTAÐUR Myrkir músíkdagar Guðsþjónusta í tónum KVENNAKORINN Vox feminae heldur tónleika í Digraneskirkju í kvöld kl. 20 þar sem flutt verður eins konar guðsþjónusta í tónum. Verk Þorkels Sigurbjörnssonar, Missa Miniscula, verður flutt en það er byggt upp eins og messa. Sibyl Urbancic, sem stjómar kórn- um ásamt Margréti J. Pálmadótt- ur, segir að verkið verði ekki flutt í einni lotu heldur verði skeytt inn í það alþýðlegri söngvum. „Verkið er svolítið erfitt í flutn- ingi og áheyrnar svo að léttari lög verða flutt inn á milli sem myndu þá vera lögin sem söfnuðurinn væri að syngja í messunni. Þessi lög eru ö!l Maríuljóð nema Faðir- vorið sem kemur á sínum stað í messunni. Hugsunin er sem sé sú að hafa messuform á tónleikunum þótt ekki sé um eiginlega guðsþjón- ustu að ræða með presti og öllu tilheyrandi." Verk Þorkels heitir Agnarsmá messa, eða Missa Miniscula, og var samin í tilefni af vígslu Einars bróður hans til prests 22. júní árið 1969. Tónarnir eru jöfnum f Félagar í samkórnum Björk Samkórínn Björk í söngferð SAMKÓRINN Björk úr Austur- Húnavatnssýslu heldur tónleika í Gerðubergi í Reykjavík laugardag- inn 22. febrúar kl. 14 og á Flúðum sama dag kl. 21. Í Gerðubergi stendur Gerðu- bergskórinn að tónleikunum með Björkinni og á Flúðum er Vörðu- kórinn, blandaður kór úr Ámes- sýslu, samstarfsaðili Bjarkarinnar að tónleikunum. Söngstjóri Bjarkarinnar er Pet- er Wheeler. Thomas Higgerson leikur undir á píanó. Auk hans eru fy'órir blásarar sem spila með í nokkrum jögum. Einsöngvari er Halldóra Á. Gestsdóttir. Söngstjóri Gerðubergskórsins er Kári Friðriksson. Undirleikari er Benedikt Egilsson á harmóniku. Söngstjóri Vörðukórsins er Edit Molnar og undirleikari Miklos Dalmay á píanó. Söngskrá þessara kóra er fjöl- breytt, lög eftir íslenska og er- lenda höfunda. Vinsæl lög karlakvartetts KARLAKVARTETTINN Út í vor- ið hedur söngtónleika í Hveragerð- iskirkju sunnudaginn 23. febrúar kl. 16. Efnisskráin hefur einkum verið sótt í sjóði Leikbræðra og MA- kvartettsins segir m.a. í kynningu, en kvartettinn hefur rúmlega 50 lög á efnisskrá sinni og verða um 20 þeirra flutt á tónleikunum að þessu sinni. Kvartettinn var stofnaður 1992. Hann skipa þeir Einar Clausen, Halldór Torfason, Þorvaldur Frið- riksson og Ásgeir Böðvarsson sem allir hafa verið félagar í Kór Lang- holtskirkju. Við hljóðfærið er Bjarni Þ. Jónatansson. Raddþjálf- ari er Signý Sæmundsdóttir söngvari. höndum felldir að hefðbundna lat- neska ordinarium-textanum og íslenskri þýðingu séra Sigurðar Pálssonar. Uppbygging messunnar (tón- leikanna) verður sem hér segir: Alleluja eftir Giacinto Scelsi, Frið- arbón og Dýrðarsöngur eftir Þor- kel, Salutatio Mariae eftir Jón Nordal, Ave Maria eftir Anton Heiler, Ave Maria eftir Giacinto Scelsi, Trúaijátning eftir Þorkel, Salve Regina eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Haustvísur til Máríu eftir Atla Heimi Sveinsson, Heilag- ur eftir Þorkel, Pater Noster eftir Giacinto Scelsi, Guðslamb eftir Þorkel og An Alleluia Super - Round eftir William Albright. Vox Faminae var stofnaður af nokkrum meðlimum Kvennakórs Reykjavíkur undir Stjórn Margrét- ar sem Antik-hópur og var mark- miðið að flytja eldri tónlist, andlega og veraldlega. Hópurinn hefur meðal annars haldið tónleika í Sel- tjarnameskirkju og Kristskirkju. Sibyl hefur verið í samstarfi við kórinn frá árinu 1995. Tónlistarskóli Borgarfjarðar Afmælis- tónleikar TÓNLISTARSKÓLI Borgarfjarðar er þijátíu ára á þessu ári. Af því tilefni heldur skólinn afmælistón- leika í Borgarneskirkju laugardag- inn 22. febrúar og hefjast þeir kl. 14. Flytjendur verða úr hópi fyrr- verandi og núverandi nemenda og kennara skólans. Tónlistarskóli Borgarfjarðar var stofnaður haustið 1967 að tilstuðl- an Tónlistarfélags Borgarfjarðar. Fyrsta árið stunduðu 39 nemendur nám við skólann og kennarar voru fjórir auk skólastjóra. f vetur eru nemendur um 200 og kennarar ellefu, en skólastjóri er Theódóra Þorsteinsdóttir. Til þessa hefur skólinn ekki haft fast aðsetur en kennsla fer fram á fjórum stöðum í héraðinu; Anda- kílsskóla, Kleppjárnsreykjaskóla og Varmalandi auk Borgarness, en þar fer kennslan fram í Grunn- skólanum, Borgarneskirkju og á heimilum kennara. Tónleikarnir eru öllum opnir og að þeim loknum verður boðið upp á kaffiveitingar. NEMENDUR Suzuki-deild- ar leika á Dvalarheimili aldraðra i Borgarnesi. ♦ ♦ ♦------ Heimur hrynur ALLIANCE Francaise býður í bíó í kvöld, föstudag, kl. 20.30. Að þessu sinni verður sýnd myndin „La Crise“, gamanmynd eftir Coline Serreau sem leikstýrði meðal ann- ars Þrír menn og barn. „La Crise“ fékk Cesarinn 1993 fyrir besta handritið. Aðgangur er öllum heimill og kostar ekkert inn. Myndin er á frönsku og er ótextuð. Alliance Francaise er til húsa að Austur- stræti 3 og er gengið inn frá Ing- ólfstorgi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.