Morgunblaðið - 21.02.1997, Síða 46
46 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
HAf&lPOZ, HAWJÞ/6FKA
Qömuj iÚPNUNW /HEE>
BHAUÐ/Ð íALMBNN/N6S-
6AGÐ/NUAiJ
Grettir
Ljóska
Smáfólk
AND I CONCLUPE MY
REPORT BY0FFERIN6
THI5 5U66E5TI0N...
A5 SOON AS A CHILD
15 BORN,HE OR SHE
5H0ULP 0EI5SUED A
D06 AND A BANJO..
MAAM? THAT'S RI6HT..
A FAMILY OF EI6HT..
EI6HT D06S AND
EI6HT 0ANJOS.
YE5( MAAM..
WE'RE TALKIN6
HAPPINESS HERE!
Og- ég lýk skýrslu minni
með því að leggja fram
þessa tillögu ...
Jafnskjótt og barn fæðist
yrði honum eða henni af-
hentur hundur og
banjó...
Kennari? Það er rétt...
átta manna fjölskylda...
átta hundar og átta
banjó ...
Já, kennari... við
erum að tala um
hamingju hérna!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Ljósmynd/Einar Hannesson
SKAFTÁ, ofan brúar hjá Klaustri.
Skaftá og
Vatnamótin
Frá Einari Hannessyni:
SKAFTÁ í Vestur-Skaftafellssýslu
er 70 km að lengd og á upptök í
Skaftáijökli. Sjávarós Skaftár er
hins vegar í Veiðiósi, hjá svo-
nefndri Mávabót, sem er í 18 km
fjarlægð í suð-austur frá Kirkju-
bæjarklaustri. Náttúrufegurð er
mikil á þessum slóðum, sem kunn-
ugt er; gróið land, hraun og sand-
ar, auk vatnsfallanna.
Mikill breytileiki í rennsli
Breytileiki Skaftár er mikill í
rennsli og legi. Regluleg hlaup
koma í ána vegna umbrota undir
jökli, sem oftar en ekkj hlýtur að
valda tjóni á fiski í ánni sjálfri.
Sumstaðar fellur hún í stokk, eins
og hjá Hunkubökkum, enda að-
þrengd þar af Skaftáreldahrauni,
sem rann 1783, en annars staðar
breiðir hún úr sér, eins og neðan
brúnna hjá Klaustri. Hluti af vatn-
inu klýfur sig frá á efri hluta árinn-
ar og fellur til Kúðafljóts hjá Ásum.
Þessi kvísl nefnist Eldvatn, en hinn
hluti vatnsins fellur austur með
Síðunni. Þá flutti Skaftá sig um
set, um 1970, úr eigin ósi, ef svo
má segja, ögn austar, í Veiðiós.
Grenlækur, sem fylgt hafði Skaftá,
varð eftir við tilfærsluna. Þannig
gerir náttúran sjálf ýmsar breyt-
ingar á landi og legi í tímans rás.
Á fyrri tíð var sjóbirtingsveiði
stunduð með þeim hætti að dregið
var fyrir með netum á ósasvæðum
Skaftár og varð hún víðfræg sakir
góðs veiðifangs oft á tíðum. Í byrj-
un sjöunda áratugarins varð breyt-
ing á í þessu efni, fyrirdráttur af-
lagður. Stofnuð voru samtök 1964,
Veiðifélag Skaftár, um veiði og
ræktun. Félagið tekur til fiskgenga
hluta Skaftár og aðliggjandi veiði-
svæða og hefur innan sinna vé-
banda um 22 jarðir. Núverandi
formaður þess er Eyþór Valdimars-
son, Ásgarði.
Aðilar að veiðifélaginu fara
sjálfir með sinn veiðirétt, hver fyr-
ir sínu landi. Þeir nýta hann sjálfir
með veiði í net eða á stöng, eins
og sumir gera við Skaftá og hliðar-
ár eða leigja hann öðrum til
stangaveiði, eins og landeigendur
við árnar hafa sameinast um að
gera, svo sem fram kemur hér á
eftir.
Vatnamótin vinsæl
Til Skaftár á leið hennar til sjáv-
ar fellur vatn úr ýmsum straum-
vötnum, eins og Geirlandsá, Stjórn
og Hörgsá um Breiðbalakvísl, auk
Fossála. Þar sem vatn úr þessum
straumvötnum sameinast Skaftá
niðri á sandinum nefnist Vatna-
mót. Það er þekktur veiðistaður,
sem skilar góðri veiði á sjóbirt-
ingi, oft vænum fiski.
Jarðir, sem land eiga að Breið-
balakvísl, Hörgsá, Fossálum og við
Vatnamót eru: Breiðabólsstaður,
Keldunúpur, Kirkjubæjarklaustur,
Hörgsdalur, Hörgslandsþorp,
Fossjarðir og Þverá.
Keflvíkingar með sterk ítök
Stangaveiðifélag Keflavíkur
hefur leigt veiði í Vatnamótum um
árabil, auk Geirlandsár og Breið-
balakvíslar. Keflvíkingar eru með
veiðihús á Vatnamótasvæðinu, þar
sem veiðimenn geta haft sína
hentisemi með gistingu og fæði.
Um veiðitímann 1995 fengust á
stöng í Skaftá, fyrst og fremst í
Vatnamótum, 388 urriðar. Árið
1988 voru fiskarnir hvorki meira
né minna en 1.288 talsins, en önn-
ur hin seinni ár hefur veiði verið
svipuð og 1995, auk óverulegrar
veiði á bleikju, allt samkvæmt
skýrslum Veiðimálastofnunar.
I Skaftá ofan Vatnamóta og að
áramótum Holtsár og Skaftár, sem
er í 36 km fjarlægð frá sjó, en þar
eru einmitt talin vera efri mörk
fiskgenga hluta hennar, falla
nokkrar ár, eins og Holtsá, Fjaðrá
og Tungulækur. Jarðir, sem land
eiga að þessum ám eru í Skaftár-
hreppi: Skál, Holt, Heiði, Hunku-
bakkar, Ytri-Dalbær, Hólmur, Nýi-
bær, Kirkjubæjarklaustur, Hæðar-
garður, Eystri- og Ytri-Tunga og
Ásgarður.
EINAR HANNESSON,
fulltrúi hjá Landssambandi
veiðifélaga.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.