Morgunblaðið - 21.02.1997, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 47
________BRÉF TIL BLAÐSIMS__
Opið bréf til Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra
Öllum þeim sem sendu mér gjafir og kveðjur
9. febrúar sl. fœri ég innilegar þakkir og óska
þeim langra lífdaga.
Gunnar Grímsson,
Fannborg 9, Kópavogi.
Frá Jóni Þór Helgasyni:
FÖSTUDAGINN 14. febrúar, barst
vinnuveitendum, og ykkur sem sitja
í ríkisstjórn, kröfugerð stærstu fé-
laga launþega. Stórfelld hækkun
launa, lækkun skatta og jöfnun líf-
eyrisréttinda og lækkun tolla á inn-
fluttum landbúnaðarvörum, til að
,jafna“ lífskjörin í landinu og kaup-
mátt.
Þið hafið 11 daga til að ákveða
ykkur hvort það verður verkfall eða
að þið gangið að kröfum Alþýðu-
sambandsins. Undarlegur þessi
stutti tími, þeir eru búnir að hafa
allan þann tíma sem þurfti til að
berja saman kröfugerð. Eru for-
ystumenn ASI ekki á himinháum
launum frá „hinum fátæka verka-
manni“ til að gera kröfugerðir?
Athyglisvert er, að um það bil sem
fresturinn rennur út situr sex-
mannanefnd og ákveður hvort það
eigi að hækka búvörur og þar með
laun bænda. Auðvitað veit Alþýðu-
sambandið að í búvörusamningnum
eru ákvæði um þessa innflutnings-
tolla og þeim verður ekki breytt,
en samkvæmt búvörusamningnum
eiga tollarnir ekki að lækka á samn-
ingstímanum, en þeir vita að þeir
geta haft áhrif á þig og fengið þig
til að koma í veg fyrir hækkanir á
landbúnaðarvörum sem eiga að
ganga í gildi 1. mars.
Ríkisstjórnin hefur alltaf látið
undan kröfum verkalýðsins í land-
búnaðarmálum síðan 1988, enda
hafa laun bænda sáralítið hækkað
síðan þá. Davíð, manstu eftir þegar
Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi
fjármálaráðherra, kom í sjónvarp
og tilkynnti kotroskinn að stórtíð-
indi í samningamálum aðila vinnu-
markaðarins væru um það bil að
gerast. Það væri búið að gera kjara-
samning sem væri mótandi fyrir
kjarasamninga næstu ára. Seinna
var þessi samningur kallaður fyrsti
þjóðarsáttarsamningurinn. Eitt at-
riðið í samningnum var að landbún-
aðarvörur áttu ekki að hækka á
samningstímabilinu. Þetta ákvæði
hefur síðan verið í öllum samningum
vinnumarkaðarins, með hrikalegum
afleiðingum fyrir bændur. í tölum
er þetta þannig að almennt verðlag
hefur hækkað um 73,09% síðan
1988, en landbúnaðarvörur og þá
laun bænda innan við 5%. Þetta
hefur haft hrikalegar afleiðingar
fyrir þúsundir bænda. Nú er staðan
sú að 40% bænda eru á vonarvöl,
en aðeins 2% verkafólks. Eru þessar
tölur í samræmi við kröfur ASÍ-mill-
anna um kjarajöfnun? Miðað við
þær kröfur ætti að lækka laun
verkafólks.
Hefurðu, Davíð, velt fyrir þér
hvers vegna þessi tala nær að vera
svona há? Það segir sig sjálft að
breytingarnar í landbúnaði hafa
ekki verið svo örar að einn morgun
vakni 25% bænda upp sem fátækl-
ingar, og nokkrum vikum seinna
15% í viðbót. Nei, ekki alveg. Þessi
tala hefur vaxið jafnt og þétt í gegn-
um tímabil „þjóðarsáttar". Margir
bændur hafa orðið gjaldþrota og
misst allar sínar eigur og þurft að
byija upp á nýtt með tvær hendur
tómar. Þetta eru menn sem oftast
eru komnir yfir fimmtugsaldurinn
og eru ekki með neina verkmennt-
un. Oft enda þeir í illa launaðri erfið-
isvinnu á lægsta taxta og halda því
áfram að vera fátækir.
Síðan bætast alltaf fleiri og fleiri
í hóp bænda sem lifa undir fátækt-
armörkum. Fátækt hjá bændum er
gríðarleg, enda hef ég verið spurður
að því hvernig bændur lifi við þess-
ar aðstæður. Gamall kínverskur
málsháttur segir: Það verður enginn
ríkur af miklum tekjum, heldur að-
eins af litlum útgjöldum. Málið er
nefnilega það, að fátæktarmörk eru
skilgreind eftir neysluvísitölunni,
sem síðan má gróflega skipta upp
í þijá flokka: 1. Lífsnauðsynjar
(matvæli, húsnæði, rafmagn og hiti)
35%. Þar af íslenskar landbúnaðar-
vörur 5%. 2. Nauðsynjar (bíll og
fatnaður) 25%. 3. Munaður (tóm-
stundir, ferðalög, happdrætti o.fl.)
40%. Þannig geta bændur lifað með
tekjur allt að 40% undir fátæktar-
mörkum án þess að þurfa að svelta,
en bóndinn lifir þá einungis lífinu
út af því að hann getur ekki annað.
Það sem bændur hafa lært betur
en aðrar stéttir síðustu ár er að lifa
af litlum tekjum. Þá list hafa bænd-
ur ekki lært af fúsum og fijálsum
vilja, heldur vegna ánauðar. En
núna langar mig að spyija þig,
Davíð: Ef við miðum okkur við kín-
verska málsháttinn og tölurnar sem
eru hér fyrir ofan, væri ekki næg
launabót fyrir launþega að senda
þá alla með tölu á fjármálanám-
skeið, til að skuldir heimilanna auk-
ist ekki í öfugu hlutfalli við tekju-
aukninguna eins og oft hefur gerst
hér á landi?
Eins og ég benti á í upphafi eru
kröfur ASÍ um niðurfellingu tolla á
landbúnaðarvörum ekkert annað en
Efni í fermingarfötin
Snið frá Burda, New Look og Kwivk Sew, auk
sníðablaða frá Burda, Knip o.fl. Allt til sauma.
VtRKA
Mörkinni 3,
sími 568 7477
Opið mánud.-föstud. kl. 10-18.
Laugard. kl. 10-14. til l.júní.
LANCOMEI
LANCÖME snyrtivörurnar
eru nú fóanlegaríversluninni.
Kynning í dag ó vorlitunum
ósamt fleiri spennandi
nýjungum.
Glœsilegur kaupauki
Sama verð og I Evrópu
BRÁ
taugavegi 66, slmi 5512170
- ■ ............ »
krafa um óbreytt verðlag á landbún-
aðarvörum. Ég spyr þig þess vegna,
Davíð Oddsson: Ætlar ríkisstjórnin
enn einu sinni að láta bændur blæða
vegna óréttlátra krafna verkalýðs-
hreyfingarinnar í garð bænda?
Hvaða rök eru fyrir því að hætta
við hækkun launa bænda? Offram-
leiðsla? Spurðu landbúnaðarráð-
herra um kjöt- og smjörfjallið. Of-
framleiðsla á landbúnaðarafurðum
heyrir sögunni til og á sama tíma
fer bændum fækkandi og engin ný
fjós eru byggð. Þetta á líklega eftir
að leiða til hruns mjólkurfram-
leiðslu. Hvernig eiga bændur að ná
fram hagræðingu með því að byggja
stærri fjós, þegar þeir hafa ekki
einu sinni tekjur til að lifa eins og
aðrir þegnar þessa lands? Auk þess
bendi ég þér á að fyrir skömmu var
birt könnun sem sagði að verð á
landbúnaðarvörum væri svipað og
í nágrannalöndum okkar. Milljón-
króna höfðingjarnir sem stjórna ASÍ
vilja ekkert vita af þessari könnun,
enda hæfir könnunin ekki stjórn-
málaskoðunum þeirra. í þeirra aug-
um er allt best í sameinaðri Evrópu.
JÓN ÞÓR HELGASON,
landbúnaðarverkamaður,
Lambhaga, Rangárvöllum.
Tækniwal Skeiftmni
rJ. 10.30-11.30:
Veraldarvefu ri n n,
ieiðb. um notV.un
Tæknívaí Hafnarfirð-'
ki. 12.30-13.30:
Veraidarveíurínn,
leiöb. um rsotkun
l 'erió velkomín!
Hallo! Littu inn á
laugardaginn og
kynntu þér
Veraldarvefinn!
&& Tæknivat
Reykjavikurvegi 64
220 Hafnarfirfti
Slmi 550 4020
Netfang:
108 Reykjavik
Netfang:
mottaka@taeknival.is fjordurOtaeknivalis
Fermingar
Sunnudaginn 9. mars gefur Morgunblaðið út hinn árlega biaðauka Fermingar, en um
4 þúsund ungmenni verða fermd nú í lok marsmánaðar og í aprílmánuði.
Er þetta í áttunda sinn sem slíkur blaðauki er gefinn út með upplýsingum á einum
stað um allt það sem viðkemur undirbúningi fermingardagsins.
í blaðaukanum verður m.a. rætt við fermingarböm og foreldra um undirbúninginn og
fermingardaginn. Fjallað verður um fatnað, hárgreiðslu,
veisluna ásamt uppskriftum af mat og kökum, skreytingar á fermingarborðið, fermingargjafir og
gefnir minnispunktar varðandi fermingarundirbúninginn.
Auk þess verður fjallað um fermingar íslenskra bama erlendis, tekin verða tali fermingarböm
fyrr og nú, skoðaðar gamlar fermingarmyndir ásamt fleim.
Allar nánari upplýsingar veita starfsmenn auglýsingadeildar
í síma 569 1171 eða með símbréfí 569 1110.
Skilafrestur auglýsingapantana
er til kl. 12.00 mánudaginn 3. mars.
IW@ir|5mMíiS»iS»
- kjarni málsinv!