Morgunblaðið - 15.08.1997, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 15.08.1997, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Peningaþvætti: ÉG er bara lagður í einelti, Hallvarður minn. Hér er hver seðill handskrúbbaður áður en hann fer í vélina, enda hvergi blett né hrukku að sjá . . . Morgunblaðið/Þorkell Öryggissvæðið breikkað VEGAGERÐARMENN eru að breikka öryggissvæðið fyrir ofan kafla vegarins um Óshlíð, milli Hnífsdals og Bolungarvíkur. Með þessari framkvæmd er verið að reyna að laga versta gijóthruns- staðinn, það er 250-300 metra kafla yst á svokölluðum Skriðum, að sögn Gisla Eiríkssonar, um- dæmisverkfræðings Vegagerðar- innar á Isafirði. Við veginn eru strengd net sem ætlað er að stöðva grjótið en þau hafa ekki þolað álagið. Gisli segir að með því að breikka öryggissvæðið sé verið að minnka grjóthrunið og auka möguleika netanna á að taka við því grjóti sem áfram fell- ur úr hliðinni. Áætlaður kostnað- ur við verkið er 12-13 milljónir kr. Heimildarmynd um ris, veldi og fall SÍS ÁSGEIR Friðgeirsson blaðamaður vinnur nú að gerð heimildarmyndar um Samband íslenskra samvinnufé- laga. Að sögn Ásgeirs mun myndin heita Ris, veldi og fall Sambandsins, verður í þremur þáttum þar sem einn verður helgaður risi, annar veldi og hinn þriðji falli SÍS. Ásgeir sagði að mikið af gömlu myndefni væri til úr sögu SIS allt aftur til fjórða áratugarins og mundi það skila sér vel í myndinni, einkum fyrstu tveimur þáttunum. Ásgeir sagði að rauði þráðurinn í þáttunum væri umfjöllun um hug- myndir og hugsjónir stofnenda og aðstandenda Sambandsins og afdrif þeirra hugmynda. „Við reynum að fjalla um pólitískt og félagslegt hlutverk hreyfingar- innar og greina mikilvægi þess þátt- ar,“ sagði Ásgeir. „Við skoðum endalok fyrirtækisins í þessu sögu- lega samhengi við upprunann og framvinduna en ekki eins og um- ræðan var undir lokin þegar stund- um var talað um SIS eins og hvert annað fyrirtæki. Fyrir mjög marga var það allt annað og miklu meira.“ Styrkir úr Menningarsjóði útvarpsstöðva Fyrir hönd Saga Film verður Sig- urbjörn Aalsteinsson kvikmynda- gerðarmaður framleiðandi myndar- innar, sem hefur hlotið 2 milljóna króna styrk úr Menningarsjóði út- varpsstöðva. Ásgeir hefur unnið að undirbúningi myndarinnar í fjóra mánuði. Ásamt honum verða skráð- ir fyrir handriti Stefán Pálsson og Magnús Sveinsson, sem eru að ljúka námi í sagnfræði frá Háskóla Islands og voru ráðnir til rannsókn- arstarfa í tengslum við handrits- skrifín, sem eru vel á veg komin. Tökur myndarinnar hefjast á morgun norður í Þingeyjasýslu, m.a. á Ystafelli í Köldukinn þar sem samvinnuhreyfingin var stofnuð eins og minnisvarði á staðnum er til marks um. Stefnt er að því að myndin verði tilbúin í fyrri hluta febrúarmánaðar. Ráðstefna um rannsóknir tannlækna Glerjungs- eyðing vaxandi vandamál Peter Holbrook NORDISK Odontolog- isk Forening, NOF, sem er félag norr- rænna tannlækna sem stunda rannsóknarstörf, mun í næstu viku halda ár- legan aðalfund sinn hér á landi. Peter Holbrook hefur setið í stjórn NOF í nokkur ár og er nú forseti þess. Hann var beðinn um að gera grein fyrir NOF. „Nordisk Odontologisk Forening, NOF, var stofnað árið 1917 sem skandinavísk- ur rannsóknarhópur um tannlæknavísindi. Árið 1920 var stofnað svipað félag í Bandaríkjunum sem nefnt var International Associ- ation for Dental Research, IADR. Það félag þróaðist smám saman í alþjóðasamtök og árið 1969 gekk NOF til liðs við þau. IADR hafði alltaf verið deildaskipt og við sameininguna varð NOF að Norðurlandadeild innan alþjóðasamtakanna. Á Islandi voru þeir tannlækn- ar sem stunda rannsóknarstörf ýmist félagar í norrænu, bresku eða bandarísku deildunum uns íslensk deild var stofnuð innan Norðurlandadeildarinnar árið 1990.“ - Hvemig leggst ráðstefnan í Þsl „Eg hef fundið fyrir miklum áhuga á þessari ráðstefnu. Það stefnir í metþátttöku með 260 þátttakendum frá 18 löndum, sem er tvöfalt fleiri en verið hafa á ráðstefnum NOF undanfarin ár. Ég geri ráð fyrir að staðsetn- ingin hafí sitt að segja, að fólki fínnist spennandi að koma til ís- lands, en einnig erum við með góða fyrirlesara víðsvegar að úr heiminum. Á meðal þeirra eru 20 Islendingar, sem er mjög góð þátttaka sé litið til þess að það eru einungis 30 Islendingar í fé- laginu.“ - Hvernig er dagskrá ráð- stefnunnar? „Dagskráin hefst með stjóm- arfundi NOF á miðvikudag. Einnig mun félag bamatann- lækna á Norðurlöndum, NFP, halda ráðstefnu hér á miðviku- dag þar sem fyrirlesarar frá Bandaríkjunum og Noregi munu m.a. fjalla um bamasjúkdóma og óttaslegin böm. Þátttakendur á þeirri ráðstefnu geta síðan sleg- ist í hóp okkar hinna á fímmtu- dag, fóstudag og laug- ardag þar sem flutt verða rannsóknarer- indi. Við stefnum á að skapa vinalegt um- hverfi og leggjum áherslu á að yngri vísindamenn sem eru að byrja sinn starfsferil, fái tæki- færi til að koma rannsóknum sínum á framfæri." - Um hvað verður fjallað í þessum erindum? „Fjallað verður um alls kyns tannlæknavísindi auk þess er komið verður inn á aðrar grein- ar sem tengjast tannlækningum svo sem efnafræði, líffræði og faraldsfræði. Á ráðstefnunni verða bæði umræðufundir um ákveðin efni og frjáls erindi. Á meðal þess sem við munum fjalla um á um- ►Peter Holbrook er fæddur í Warrington á Englandi. Hann lagði stund á tannlækningar við Edinborgarháskóla og útskrif- aðist þaðan árið 1972. Hann lauk doktorsprófi í örverufræði árið 1976. Þá starfaði hann sem lektor í Manchester í tvö ár og lauk þaðan sérfræðingsprófi í tannlækningum. Að því loknu fór hann aftur til Edinborgar þar sem hann var Iektor í ör- verufræði við háskólann auk þess sem hann starfaði á sýkla- deild og lauk sérfræðingsprófi í sýklafræðilækningum. Peter flutti til Islands árið 1981 og hefúr starfað við Há- skóla Islands síðan. Hann er forseti NOF auk þess sem hann er í yfirstjórn IADR. Hann er kvæntur Helgu Ögmundsdótt- ur, forstöðumanni Rannsóknar- stofú Krabbameinsfélags ís- lands í sameinda- og frumulíf- fræði, og eiga þau tvo syni. ræðtifundi er mikilvægi tann- vemdar. Heilbrigðisyfírvöld vilja skiljanlega spara fjármagn til tannvemdar þar sem mjög hefur dregið úr tannskemmdum en spumingin er hversu langt megi ganga í þessum sparnaði. Sýnt hefur verið fram á að með minnkaðri tannvemd koma tannskemmdir mjög fljótt upp aftur. Þetta má t.d. sjá þar sem fátækt er í stórborgum bæði á Englandi og í Þýskalandi. Við munum bæði velta því fyrir okk- ur hvemig best sé að verja því fjármagni sem veitt er til tann- vemdar og hvernig efla megi skilning á því að það kosti ekki bara að gera við tennur heldur einnig að halda þeim heilum.“ - Munið þið fjalla um einhver ný vandamál? „Já, á fimmtudag verðum við t.d. með stóran umræðufund um glerjungseyðingu, sem er sívax- andi vandamál á Vesturlöndum. Samspil munnvatns og drykkju- vara orsakar það að sýrur, bæði úr gosdrykkjum og ávaxtasafa, eyða glerjungnum. Þetta er vandamál sem mjög erfítt er að eiga við auk þess sem viðgerðir á þessum skemmdum era mjög dýrar.“ Tannskemmdir fljótar að koma upp aftur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.