Morgunblaðið - 15.08.1997, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 11
FRÉTTIR
Sjúkraþjónusta
aukín við Bláa lónið
Morgunblaðið/Kristinn
INGIBJÖRG Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra, og Grímur Sæ-
mundsen, framkvæmdasijóri Bláa lónsins hf., ætla að vinna
saman að markaðssetningu Bláa lónsins á erlendri grund.
Rannsóknir stað-
festa lækninga-
mátt lónsins
HEILBRIGÐIS- og tryggingaráðu-
neytið hefur veitt 3,8 milljónir
króna til rekstrar sólarhringsvistun-
ar á hótel Bláa lóninu á árinu. Með
sólarhringsvistuninni verður auð-
veldara fyrir sjúklinga utan af landi
að notfæra sér meðferðarúrræði í
Bláa lóninu. Niðurstöður rannsókna
sýna að mjög góður árangur við
meðferð psoriasis- og exemsjúkl-
inga fæst með böðun í lóninu og
ljósameðferð.
Á blaðamannafundi Ingibjargar
Pálmadóttur, heilbrigðisráðherra,
voru kynntar niðurstöður nefndar
um uppbyggingu við Bláa lónið.
Nefndin var skipuð af Guðmundi
Bjarnasyni, fyrrverandi heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra, árið
1991. Ingimar Sigurðsson, formað-
ur nefndarinnar, sagði að af því að
vitað hefði verið að vinnan tæki
langan tíma hefði verið ákveðið að
veita jafnóðum upplýsingar um nið-
urstöður rannsókna. Niðurstöðurn-
ar hefðu því þegar nýst við upp-
bygginguna við lónið.
A vegum nefndarinnar voru
framkvæmdar þtjár lækningar-
rannsóknir undir stjórn dr. Jóns
Hjaltalín Ólafssonar yfírlæknis.
Fyrsta rannsóknin var gerð árið
1992. Rannsóknin var stutt og
kostnaði haldið í lágmarki ef ljóst
yrði að engin áhrif fengust. Eftir
að jákvæðar niðurstöður fengust
var annarri rannsókn ýtt úr vör
árið 1993. Rannsóknin var lengri
en hin fyrri og samanburðarhópur
fenginn til að fá sömu meðferð og
rannsóknarhópurinn án baða í lón-
inu. Lokarannsóknin til að kanna
hve oft þyrfti að meðhöndla sjúkl-
inga í lóninu til að árangur næðist
fór fram á árunum 1994 og 1995.
Niðurstöður rannsóknanna sýna
að mjög góður árangur við meðferð
psoriasis- og exemsjúklinga fæst
með böðun og ljósameðferð í lóninu.
Samvinna við
markaðssetningu
Nefndin stóð fyrir þremur líf-
ríkisrannsóknum og leggur til að
þeim verði haldið áfram. Með tilliti
til niðurstaðna úr lækningarrann-
sóknum er lagt til að meðferðin sé
rækilega kynnt á erlendri grund
með markaðssetningu í huga.
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigð-
isráðherra, segir að samstarf verði
á milli Bláa lónsins hf. og heilbrigð-
isráðuneytisins um að ná samning-
um við heilbrigðisráðuneyti annarra
landa um að fá hingað erlenda
sjúklinga til lækningar. Þegar hefur
verið gengið frá samningi um með-
ferð 40 Færeyinga í Bláa lóninu á
næstu tveimur árum. Danir hafa
ennfremur sýnt áhuga á því að
senda sjúklinga hingað.
Önnur hlið markaðssetningarinn-
ar felst í því að skýra frá niðurstöð-
um rannsókna í lóninu í erlendum
vísindatímaritum og hafa þegar
birst greinar um lækningamátt
lónsins í nokkrum virtum vísinda-
tímaritum.
Áðurnefnd nefnd leggur til að
gerð verði könnun á vegum mennta-
málaráðuneytis og iðnaðarráðu-
neytis í samráði við Háskóla Is-
lands, Iðntæknistofnun og Orku-
stofnun um hvort raunhæft og
æskilegt sé að koma upp alþjóðlegu
fræðslusetri fyrir vísindastarfsemi
tengdri jarðfræði og háhitaorkunýt-
ingu á Biáa lóns-svæðinu í því skyni
SAMKVÆMT áhorfskönnun Gall-
ups sem gerð var dagana 17.-30.
júlí er ekki marktækur munur á
horfun á fréttir Ríkissjónvarpsins
og Stöðvar 2.
Af 1.200 manna úrtaki svöruðu
1.174 eða 71,3%. Af þeim horfðu
að meðaltali 30% á fréttir Stöðvar
2 en 29% á fréttir Ríkissjónvarps-
ins. í aldurshópnum 16-55 ára
horfðu 27% á fréttir Stöðvar 2 en
24% á fréttir Ríkissjónvarpsins og
telst það vera marktækur munur.
„Við erum hæstánægð," segir
Páll Magnússon fréttastjóri Stöðv-
ar 2. „Reynslan hefur sýnt að það
er horft minna á fréttir yfir sum-
artímann, sérstaklega í júlí. Und-
m.a. að stuðla að auknum rann-
sóknum og til að efla svokallaða
vísindaferðamennsku. Hjá heil-
brigðisráðherra kom fram að ekki
hefði verið tekin afstaða til tillög-
unnar í ráðuneytinu.
Tæplega 1.800 nýtt sér
meðferðina
Formleg meðferð á vegum
göngudeildar fyrir sjúklinga með
húðsjúkdóma við Biáa lónið hófst
undir eftirliti húðsjúkdómalækna í
byijun árs 1994. Heilbrigðisyfirvöld
hafa kostað meðferðina með
greiðslum frá Tryggingastofnun
ríkisins. Alls hafa 1.772 sjúklingar
nýtt sér meðferðina. Af þeim koma
um 200 frá öðrum löndum, t.d.
Færeyjum, Danmörku, Svíþjóð,
Noregi, Hollandi, Englandi, Portú-
gal, Þýskalandi, Austurríki, Spáni,
Sviss og Bandaríkjunum.
anfarin ár hefur áhorfendum
frétta Stöðvar 2 fækkað hlutfalls-
lega meira en áhorfendum Ríkis-
sjónvarpsins, líklega vegna þess
að áhorf á sjónvarp hefst seinna
á sumrin. Þannig að þessar niður-
stöður eru sérstaklega ánægjuleg-
ar í því ljósi.
„Ég hef í sjálfu sér ekkert sér-
stakt að segja um þetta,“ segir
Bogi Ágústsson fréttastjóri Ríkis-
sjónvarpsins. „Munurinn er ekki
marktækur og það vakti athygli
mína að ekkert er talað um seinni
fréttir stöðvanna. Ég tel enga sér-
staka ástæðu til að bregðast við
fyrr en ég sé marktækari mælingu
sem nær yfir lengri tíma.
Jafnt horft á frétt-
ir beggja stöðvanna
muiguuuutuiu/ /\i imiuui
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík slökkti eld í fólksbíl í gær.
Eldur
í fólks-
bíl
ELDUR kom upp í fólksbíl sem
stóð við Laugaveg 82 upp úr klukk-
an hálftvö í gær. Samkvæmt upp-
lýsingum slökkviliðs olli bilun í
eldsneytiskerfi því að eldurinn
kviknaði. Bíllinn er ekki talinn
ónýtur en nokkrar skemmdir urðu
á leiðslum og málningu á vélarhlíf.
Um klukkustund síðar var til-
kynnt að kviknað hefði í loft-
pressu, sem notuð var til viðgerða
í Laugardalshöll. Vélin hafði verið
í gangi og starfsmenn verktakans
höfðu notað spýtu til að halda vél-
arhlífum opnum til kælingar. Þetta
hafði yfirhitnað með þeim afleið-
ingum að það kviknaði í loftpress-
unni og geymslukassa og allt log-
aði í kringum vélina, þ. á m. olía.
Mennirnir reyndu að slökkva eld-
inn en tókst ekki að ráða niðurlög-
um hans og kölluðu því á slökkvilið.
ÞEIR Jón Árnason, Kristinn Halldórsson og Jóhann Jóhanns-
son með fallega smálaxa úr Gljúfurá.
Dauft í Þistilfírði
Veiði í Svalbarðsá, sem er ein af
aðalveiðiám Þistilfjarðar, hefur
verið rýr það sem af er sumri og
aðstandendur árinnar renna nú
hýru auga til haustsins og vonast
eftir góður göngum á endasprett-
inum. Aðeins um 70 laxar eru
komnir á land, en Jörundur Mark-
ússon leigutaki árinnar sagði veð-
urguðina eiga stóran hluta af sök-
inni, þar eð miklir hitar hefðu ver-
ið á þessum slóðum og áin væri
orðin vatnslítil og allt of heit.
„Hollin hafa verið að fá þetta
4-7 laxa hvert. Það er því ekki
steindautt, en þetta er samt ekki
mikili afli og alls eru þetta aðeins
um 70 fiskar. Þá er mjög lítið af
stórum laxi eins og reyndar hafði
verið reiknað með, en við höfðum
vonast eftir því að smálaxagöng-
urnar yrðu sterkar og myndu
þannig vega upp stórlaxaleysið.
Enn sem komið er hefur það ekki
gengið eftir, en við höfum alls
ekki gefið upp alla von, enda eru
mörg dæmi um góðar haustgöngur
á þessum slóðum," sagði Jörundur.
Góð tala í Stóru-Laxá
Veiði hefur verið fremur róleg
í Stóru-Laxá í Hreppum undir það
síðasta og kenna menn ekki síst
um miklum hitum sem verið hafa
á Suðurlandi að undanfömu. Þó
eru komnir á þriðja hundrað laxar
á land úr ánni og miðað við að
seinni hluti ágúst og september
eru oft og iðulega gjöfulustu hlut-
ar vertíðarinnar í ánni, telst talan
mjög góð. Milli 80 og 90 laxar eru
komnir af neðstu tveimur svæðun-
um, milli 70 og 80 af miðsvæðinu
og um 60 laxar af efsta svæðinu.
Stórar bleikjugöngur
„Ég veit ekki nákvæmar aflatöl-
ur, en ég hef heyrt á bændum
fyrir vestan að það eru verulega
stórar bleikjugöngur á ferðinni og
hollin eru að fá mikinn afla,“ sagði
Pétur Pétursson, einn leigutaka
Gufudalsár, Skálmardalsár og
Vattardalsár á Barðaströnd í sam-
tali við Morgunblaðið. Sem dæmi
nefndi Pétur að hópur sem var í
Gufudalsá veiddi 90 bleikjur þrátt
fyrir að illviðri skemmdi veiði-
möguleika helminginn af veiðitím-
anum. Þetta var rétt eftir verslun-
armannahelgina og sagði Pétur að
stærstu göngurnar hefðu verið að
byrja um það leyti. „Þær gefa
mikið þegar þær hrökkva á annað
borð í gang þessar ár, hollin eru
þá að fá vel á annað hundrað
fiska,“ bætti Pétur við. Mest af
bleikjunni er 1-2 pund og slangur
af 3 punda með.
Tækjaleiga
Lárus Gunnsteinsson í Skóstof-
unni á' Dunhaga hefur tekið upp á
þeirri nýjung að leigja veiðibúnað.
„Mér datt í hug að reyna þetta
þegar ég sá hversu sótt var í að
leigja hjá mér neoprene-vöðlur.
Það er nefnilega algengt að hingað
komi t.d. erlendir gestir og inn-
lendir aðilar vilja sýna þeim veið-
iárnar okkar. Ég keypti því á einu
bretti 16 Ron Thompson og Sage
flugustangir, 12 kaststangir og 5
maðkrennslisstangir, hjól og línur
og regnjakka auk þess sem ég jók
framboðið á vöðlum og klofstígvél-
um. Síðan lét ég þetta spyrjast og
undirtektirnar hafa verið með því-
líkum ólíkindum að þetta er allt
upppantað út ágúst. Ég trúði þessu
varla og verð með þetta áfram
næsta sumar, það er ekki spurn-
ing,“ sagði Lárus í samtali við blað-
ið.
0?
SSP
**" J&tir
sandalar
Verð:
Stærðir: 36-41
Teg: Yellow Stone
P ó s t s e n d n m s a m d æ g u r s
Ioppskórinn
Veltusundi v/ Ingólfstorg, sími 552 1212