Morgunblaðið - 15.08.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.08.1997, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir FJOLA Borg Svavarsdóttir, ferðamálfulltrúi, og Anna Margrét Sæmundsdóttir sem vann í handverkinu þegar fréttaritari var á ferð. Ferðafólk kom í fótspor forsetans Búðardal - Upplýsingamiðstöð ferðamála er rekin í Dalasýslu fjórða sumarið. Eins og síðastliðið sumar er starfsemin til húsa að Vestur- braut 12c Búðardal og rekin í sam- vinnu við handverkshópinn Bolla. Starfsmenn Upplýsingamiðstöðv- arinnar eru tveir, þær Guðrún Vala Elísdóttir og Fjóla Borg Svavars- dóttir en aðstandendur handverks- hópsins u.þ.b. 30 konur úr Dala- sýslu, skiptast á að afgreiða hand- unna muni. Ferðaþjónusta í Dölum er vaxandi atvinnugrein og má nefna að „Dala- dagar“ sem haldnir eru ár hvert lapa til sín æ fleira ferðafólk. Áhugi ís- lendinga á Dalasýslu hefur vaknað og telja ferðamálafulltrúamir að þar komi tvennt til, annars vegar heim- sókn forseta íslands Ólafs Ragnars Grímssonar og konu hans Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur í Dalina í vor og hins vegar umfjöllum um Ei- ríksstaði, fæðingarstað Leifs heppna, og uppgröftur sem þar var gerður í sumar. Ekki spillir veðrið en það hefur verið óvenju gott í sumar. • 2560 MB Quantum harður diskur • 15" TARGA hágæða skjár • ATI Mach 2 MB skjákort • 16 hraða gcisladrif • Sound Blaster 32 hljóðkort • 120W hátalarar • Windows 95 • Auk þess fylgja með Lon og Don 6 íslenskir leikir, Intemetkynning hjá Xnet og 50% afsláttur af einu tölvu- námskeiði hjá Xnet MHz Intel ÖRGIÖRVI TARGA B.T Grensásvegl 3 • Síml 588 5900 • www.bttolvur.i8 J LANDIÐ Guðlaugur Wíum GYLFI Júlíusson og Jóhanna Júlíusdóttir við hvalhræið. * Ovissa um hvalhræ EKKI hefur verið tekin ákvörðun um hvað verður gert við hvalhræ- ið sem fannst á dögunum í fjöru vestan við Gufuskálavör í grennd Hellissands. Að sögn Arnar Tryggva Jo- hnsens bæjarverkfræðings Snæ- fellsbæjar er ekki hægt að kom- ast að hræinu nema gangandi og þyrfti að draga það út á sjó tíl að hreinsa það úr fjörunni. Örn segir hræið líta mjög illa út og varla vera hvalsmynd á því vegna rotnunar. Hann segir það tæplega 10 m á lengd og gæti því hafa verið kálfur. „Hvalurinn er ógeðslegur á að líta en ég tel enga umhverf- is- eða mengunarhættu stafa af hræinu,“ segir Orn. I sama streng tekur Helgi Jensson hjá Hollustu- vernd. Danskir dagar í Stykkis- hólmi DANSKIR dagar verða haldnir í fjórða sinn í Stykkishólmi dag- ana 15.-17. ágúst nk. Dagskrá er fjölbreytt að vanda. List- og sögusýningar standa yfir alla helgina í Norska húsinu og einnig verður málverkasýning í Verkalýðsfélagshúsinu. Hátíðin verður sett á föstu- dagskvöld með grillveislu, varð- eldi og brekkusöng. Þá verður bryggjuball og gestir eru vel_- komnir um borð í Brimrúnu. Á miðnætti verður flugeldasýning frá Súgandisey. Markaðstjald verður í mið- bænum, þar verða sölu- og kynningarbásar á laugardag og sunnudag ásamt skemmtiatrið- um. Kaffisala verður í höndum Lionskvenna. Fjölbreytt leik- tæki verða fyrir börn á öllum aldri í námunda við tjaldið. Formleg vígsla verður á nýja íþróttavellinum á laugardag. Þar fer einnig fram eftir hádegi knattspyrnuleikur_ milli Snæ- fells og Víkings í Ólafsvík. Opið Golfmót Golfklúbbsins Mosta verður á Víkurvelli. Gönguferð- ir og hjólreiðaferðir verða um bæinn með leiðsögn. Uppboð verður i umsjón Lionsmanna. Unglingadansleikur þar sem hljómsveitin Soma leikur fyrir dansi. Á Hótel Stykkishólmi verður danskt hlaðborð og úr- slit í sönglagakeppninni um Danska lagið ’97. Síðan leikur hljómsveitin Milljónamæring- arnir ásamt Bjarna Ara og Ragga Bjama fyrir dansi. Hljómsveitin Stykk og trúbad- orinn James leika á Knudsen bæði föstudags- og laugardags- kvöld. Eyjaferðir bjóða ýmsar ferðir sérstaklega sniðnar við hæfi Danskra daga. Dagskrá Danskra daga lýkur svo með tónleikum í kirkjunni. Annað nýsmíðaverkefnið í Skipasmíðastöðinni á ísafirði Verður kjölfestan í starf- semi stöðvarinnar í vetur REYKJABORG ehf. í Reykjavík hef- ur samið við Skipasmíðastöðina hf. á ísafirði um smíði um það bil 50 tonna dragnótarbáts. Á síðasta ári smíðaði stöðin heldur minni bát, rækjubátinn Sandvík sem gerður er út frá Sauðárkróki. Eru þetta einu stálfiskiskipin sem smíðuð hafa ver- ið hér á landi síðustu árin. Báðir bátarnir voru teiknaðir af starfsmönnum Skipasmíðastöðvar- innar hf. Reyndar vinnur íslendingur sem búsettur er í Bandaríkjunum tölvuteikningar af skrokknum sjálf- um, svokallaða ferun, í samvinnu við starfsmenn stöðvarinnar. Senda þeir teikningarnar á milli sín með tölvupósti eftir því sem verkinu mið- ar áfram. Fjárfest í hönnun báta Nýi báturinn verður 18 metra langur og 5 ‘A metri á breidd. Hann verður afhentur kaupanda í lok apríl. „Þetta verkefni verður kjölfestan í starfsemi okkar í vetur og skapar auk þess verkefni hjá undirverktök- um,“ segir Sigurður Jónsson, fram- kvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar- innar hf. Hann segir áfram verða unnið að öflun verkefna af þessu tagi. „Okkur þætti gott að geta byij- að á stálvinnu í öðrum bát um ára- mót og svo koll af kolli.“ Segir hann fjölda verkefna á umræðu- og hönn- Morgunblaðið/Þorkell SIGURÐUR Jónsson framkvæmdasljóri Skipasmíðastöðvarinnar hf. á ísafirði. Á bak við hann sést Sandvik frá Sauðárkróki í ábyrgðarskoðun en báturinn var smíðaður í stöðinni á síðasta ári. unarstigi og er bjartsýnn á að sam- komulag náist um að minnsta kosti eina aðra nýsmíði í haust. „Við erum ekki með góða aðstöðu til að gera við stór skip og höfum því veðjað á nýsmíði. Á undanförn- um árum höfum við fjárfest umtals- vert í vöruþróun og hönnun 12 til 26 metra báta. Ég trúi því að við munum uppskera áfram eins og til hefur verið sáð,“ segir Sigurður. Telur hann að sú áhersla sem fyrir- tækið hafi lagt á að fá þessi verk- efni og samvinna við hugsanlega kaupendur sem m.a. felist í því að kaupandinn fær strax í hendur nýj- ar útfærslur eftir sínu eigin höfði, hafí leitt til þess að Skipasmíðastöð- inni hafi verið treyst fyrir þessum nýsmíðaverkefnum. Einnig hafi verið lögð áhersla á að skila verkun- um á réttu verði á umsömdum tíma. f ► ! 1 I > t * I I l i f I I I f I l t I t í. f 1 .1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.