Morgunblaðið - 15.08.1997, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.08.1997, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Frekari lækkanir á Verðbréfaþingi í gær Markaðsvirði fjögurra fyrirtækja lækkað um tæpa 6,8 milljarða Lækkun hlutabréfavísitölu VÞI 5,7% á tveimur vikum Spá um milliuppgjör hjá fyrintækjum á Verðbréfaþingi Milliuppgjör 1996 Spá um 6 mán. uppgjör 1997 1. Samherji Milljónir króna - 350 2. ísiandsbanki 270 360-500 3. Síldarvinnslan 376 250-400 4. SR-Mjöl 164 190-230 5. Þormóður Rammi 104 90-230 6. Olíufélagið 171 75-170 7. Grandi 215 0-300 8. Haraldur Böðvarsson 178 350-420 GENGI hlutabréfa fór áfram lækk- andi í gær, fjórða daginn í röð. Lækkaði hlutabréfavísitala Verð- bréfaþings um 0,67% og hefur hún þá lækkað um 5,7% frá því þessi lækkunarhrina hófst í lok júlí. Ástæða þessara lækkana virðist sem fyrri daginn vera sá skjálfti sem hljóp í hlutabréfamarkaðinn í kjölfar nokkuð lakari afkomu Eim- skipafélagsins, Flugleiða, Skeljungs og Hampiðjunnar í milliuppgjörum félaganna, sem birt hafa verið á undangengnum dögum. Hefur lækkun á gengi þessara bréfa leitt lækkun vísitölunnar að undanförnu og hefur samanlagt markaðsvirði þessara félaga nú lækkað um tæpa sjö milljarða króna á rúmum tveimur vikum. Hlutabréf Hampiðjunnar hafa lækkað um 35% Mest hefur Iækkunin orðið á hlutabréfum í Hampiðjunni, eða rúm 35% frá því félagið birti miili- uppgjör sitt í lok síðasta mánaðar. Hlutabréf í Flugleiðum hafa hins vegar lækkað um 19%, í Skeljungi um 16% og í Olíufélaginu um 14%. Þá hafa hlutabréf í Eimskip lækkað um 7,6%. V/H hlutfall þriggja þessara fyr- irtækja getur þó enn talist nokkuð hátt, en ef miðað er við afkomu þeirra á síðari hluta síðasta árs og fyrri hluta þessa þá mælist V/H hlutfall Skeljungs vera 77,6, Hampiðjunnar 72,8 og í tilfelli Eimskipafélagsins mælist það 31,3. V/H hlutfall Flugleiða mælist hins vegar aðeins 7,6, en til þess að átta sig betur á þessu stærðum, er gjarnan talið eðlilegt að V/H hlutfall fyrirtækja sé á bilinu 15-20, en slíkan samanburð verður þó alltaf að meta eftir aðstæðum hveiju sinni. Þau félög sem lækkuðu hvað mest í gær voru Þróunarfélag ís- lands 3,8%, Hampiðjan, 3,5%, Flug- leiðir 3,1% og Eimskip 2,7%. Hlutabréf félaga með auðkenni á Opna tilboðsmarkaðnum fóru heldur ekki varhluta af þessari hrinu og lækkað gengi hlutabréfa í Krossanesi um tæp 8% og hluta- bréf í Fiskiðjusamlagi Húsavíkur lækkuðu um 5,1%. Hins vegar hækkuðu hlutabréf í Snæfellingi um 6,3%. Frekari lækkanir framundan Þeir aðilar sem Morgunblaðið ræddi við á verðbréfamarkaði í gær voru einhuga um að mikill skjálfti væri í hlutabréfamarkaðnum nú, enda hefðu flest þau milliuppgjör sem birst hefðu til þessa verið mun lakari en búist hefði verið við. Al- mennt hefði verið reiknað með góðri afkomu fyrirtækja á fyrri árshelm- ingi, m.a. í ljósi góðs efnahags- ástands. Því væri ekki ólíklegt að lækkan- ir myndu halda áfram út þessa viku en meiri óvissa ríkti hins vegar um framhaldið. Það myndi líkast til ekki taka að skýrast fyrr en fleiri milli- uppgjör væru komin inn og skiptu þá mestu máli uppgjör sjávarútvegs- fyrirtælqanna og Islandsbanka. „Verði milliuppgjör þessara fyrir- tækja lakari en markaðurinn hefur verið að reikna með þá gætum við allt eins séð lækkun hlutabréfavísi- tölunnar um 10-15%,“ sagði einn viðmælenda blaðsins á hlutabréfa- markaði. Enn miklar væntingar gerðar til afkomu lykilfyrirtækja Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu virðast verðbréfamiðlarar al- mennt gera ráð fyrir nokkuð betri afkomu fyrirtækja á fyrri árshelm- I \ I ingi nú en á sama tíma í fyrra. Hér er um að ræða spá nokkurra verð- bréfafyrirtækja um afkomu 8 stærstu fyrirtækjanna á verðbréfa- þingi, sem enn hafa ekki birt milli- uppgjör. Þessum tölum ber þó ekki alltaf saman og má t.d. sjá í tilfelli Granda hf. mjög mismunandi spár um af- komu félagsins á þessu tímabili. Þær hljóma upp á allt frá 0 upp í 300 milljóna króna hagnað og er í síðarnefnda tilfellinu einkum verið að horfa til söluhagnaðar fyrirtæk- isins af hlutabréfum þess í SH sem seld voru fyrir skömmu. Almennt er þó búist við lakari rekstraraf- komu hjá fyrirtækinu á fyrstu sex mánuðunum. Meiri bjartsýni er hins vegar ríkj- andi um afkomu þeirra fyrirtækja sem stunda mikið veiðar á uppsjáv- arfiski, líkt og HB og Síldarvinnsl- an. Þá eru miklar væntingar gerðar til afkomu íslandsbanka, og er þar verið að horfa til möguleika á minnkandi afskriftarþörf bankans, sem gæti bætt afkomu hans veru- lega. Viðmælendur blaðsins töldu | þessar væntingar að nokkru leyti þegar vera komnar inn í núverandi ' hlutabréfaverð, og því væri alls | óvíst að gengi þeirra hækkaði, jafn- vel þó svo afkoma fyrirtækjanna stæði undir væntingum. Sem dæmi má nefna að miðað við núverandi gengi hlutabréfa í íslandsbanka þarf árlegur hagnað- ur fyrirtækisins að vera í kringum 1 milljarð svo hlutabréfamarkaður geti vel við unað. Milliuppgjör upp j á 500 milljóna króna hagnað gæti . því hugsanlega aðeins stutt við núverandi gengi. Hins vegar er bent á að við núver- andi ástand á hlutabréfamarkaði kynni góð afkoma að létta nægilega á áhyggjum manna til þess að knýja gengi bréfanna upp á við. Morgunblaðið/Kristinn Mikill áhugi á verslunar- rekstri í Leifsstöð ÓMAR Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri markaðs- og kynn- ingarsviðs flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli, kynnti í gær, ásamt fulltrúum Ríkiskaupa og flugvallarins, þau tólf verslunar- og þjónusturými og langtímabíla- stæði sem boðin hafa verið út til leigu á Keflavíkurflugvelli. Mik- ill áhugi hefur verið fyrir útboð- inu og hafa hátt í hundrað manns komið I Leifsstöð þau tvö skipti sem væntanlegum bjóðendum hefur verið boðið upp á að skoða þau rými sem í boði eru. Tilboð skulu berast Ríkiskaup- um, umsjónaraðila útboðsins, eigi síðar en kl. 11, miðvikudag- inn 27. ágúst nk. og opnun til- boða fer fram síðar þann dag í Borgartúni 6. Tilboð skulu gilda í 10 vikur eftir opnun en reiknað er með að samningar verði gerð- ir 1. nóvember. Þá hafí bjóðend- ur tvo mánuði til að undirbúa opnun verslana og þjónustu í flugstöðinni en rekstur skal geta hafístþann l.janúar 1998. Armannsfell undirbýr skuldabréfaútgáfu UNNIÐ er að skuldabréfaútgáfu Ármannsfells hf. að andvirði 120 milljónir króna. Skuldabréfin eru til fimm ára með árlegum afborgunum vaxta og höfuðstóls. Skuldabréfin bera 7,20% vexti sem eru tryggðir vísitölu neysluverðs. Skuldabréfun- um fylgir áskriftarréttur sem veitir eigendum sínum rétt til að kaupa hlutabréf að nafnvirði 25% af nafn- virði skuldabréfanna í Ármannsfelli eftir fimm ár á ákveðnu gengi. Stefnt er að skráningu skulda- bréfanna á Verðbréfaþingi Islands en áskriftarréttindunum á Opna til- boðsmarkaðnum þar sem hlutabréf Ármannsfells eru á OTM en Ár- mannsfell hf. stefnir á skráningu í vaxtadeild Verðbréfaþings íslands, þegar og ef slík deild verður stofnuð. Framkvæmdir hafnar við Náttúrufræðihús Kaupþing hf. hefur umsjón með sölu skuldabréfanna. í útboðslýs- ingu kemur fram að tilgangurinn með sölu skuldabréfa og útgáfu áskriftarréttinda sé að fjármagna eigin framkvæmdir, aukin umsvif fyrirtækisins og einnig að lækka fjármagnskostnað. Árið 1996 nam tap Ármannsfells Skuldabréfunum fylgir áskriftarréttur á hlutabréfum 15 milljónum króna. Velta félagsins nam 1.131 milljón króna og rekstr- argjöldin 1.119 milljónum. Félagið vinnur nú að ýmsum byggingar- verkefnum, m.a. byggingu gufu- aflsvirkjunar á Nesjayöllum. Enn- fremur hefur tilboði Ármannsfells um byggingu Náttúrufræðihúss í Vatnsmýrinni verið tekið og eru framkvæmdir þegar hafnar. „Félagið hefur í auknum mæli ráðist í byggingarframkvæmdir í eigin reikning þar sem arðsemi þeirra framkvæmda er almennt betri en á almennum útboðsmark- aði, sem hefur verið í lægð undan- farin ár. Slíkar framkvæmdir eru fjármagnsfrekar eins og fjármagns- kostnaður undanfarin þrjú til fjögur ár hefur sýnt. Þrátt fyrir að útboðs- markaður fari nú batnandi hefur fyrirtækið í hyggju að halda áfram umsvifum í eigin reikning, ekki síst með áherslu á byggingu skrifstofu- o g atvinnuhúsnæðis en vaxandi eft- irspurn er eftir slíku húsnæði. Með ódýrara lánsfé á fyrirtækið að geta skilað auknum hagnaði og um leið arði til hluthafa sinna,“ segir í út- boðslýsingu Réttur til að breyta skuldabréfum í hlutabréf Skuldabréf með áskriftarréttind- um eru vaxtaberandi skuldabréf með afleiðu sem er tengd ákveðnu hlutabréfi. Áskriftarrétturinn veitir eiganda sínum réttinn til að breyta skuldabréfinu í hlutabréf á fyrir- fram ákveðnu gengi á ákveðnu tímabili. Víða erlendis er útgáfa slíkra bréfa algeng hjá fyrirtækjum. Með því að gefa út skuldabréf með áskriftarrétti geta slík fyrirtæki freistað fjárfesta til að taka þátt í fjármögnun áhætturekstrar. Fjár- festar geta þannig valið um að breyta áskriftarréttinum í hluta- bréf, sé gengið hagstætt, eða selt hann en að auki fá fjárfestar skuldabréfið greitt. Ákveði fjárfest- ir að breyta áskriftarréttinum í hlutabréf fær fyrirtækið nýtt fjár- magn inn í fyrirtækið. Með því að gefa út skuldabréf með áskriftar- rétti getur fyrirtækið oft fjármagn- að sig með hagstæðari vöxtum en það fengi ella þar sem hægt er að meta áskriftarréttinn til fjár. f > i \ i \ I l
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.