Morgunblaðið - 15.08.1997, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 21
ERLENT
Rússar
hafna
rannsókn
RÚSSAR hafa lagt bann við
því að norsk hafrannsóknar-
skip kanni ástand fiskistofna
á rússneskum svæðum í Bar-
entshafi. Því kann svo að
fara að kvótar á þorski og
öðrum fiskitegundum verði
lækkaðir á næsta ári, vegna
þeirrar óvissu er ríkir um
ástand stofnanna. Fimm
rannsóknarleiðangrum norð-
manna á rússnesk svæði hef-
ur verið vísað á brott án þess
að rússnesk yfirvöld hafi gef-
ið nokkra skýringu þar á.
Norska utanríkisráðuneytið
hefur reynt að greiða rann-
sóknarskipunum leið og
hyggst senda formieg mót-
mæli vegna þessa til yfir-
valda í Moskvu, að því er
blaðið Nordlys greinir frá.
Haft er eftir talsmanni ráðu-
neytisins að Norðmenn líti
þetta mjög alvarlegum aug-
um og að þeir muni ítreka
við Rússa að samstarf við
kannanir á ástandi fiskistofna
séu af hinu góða.
Konungur
neitar
NORODOM
Sihanouk,
konungur
Kambódíu,
neitaði því í
gær að hafa
lagt blessun
sína yfir
nýja ríkis-
stjórn í land-
inu á fundi með Úng Huot,
sem tilnefndur hefur verið
fyrsti forsætisráðherra. í bréfi
til sonar síns, Norodoms
Ranariddhs, segir konungur-
inn að hann hafi aldrei gefið
Ung titilinn fyrsti forsætis-
ráðherra, sem samkvæmt lög-
um tilheyri Ranariddh.
Óljós staða í
Tadjíkistan
HÚS leiðtoga uppreisnar-
manna í Tadjíkistan, Mak-
hmuds Khudoyberdyevs, varð
fyrir árás í gær, og þótti það
benda til að brestur væri kom-
inn í samkomulag leiðtogans
og stjórnarinnar um að
Khudoyberdyev drægi sig og
hersveitir sínar í hlé. Fréttarit-
ari Reuters hafði eftir leiðtog-
anum að hann teldi stjórnar-
herinn bera ábyrgð á árásun-
um.
Tíu ár frá
dauða Hess
LÖGREGLA í Þýskaiandi býr
sig undir átök við hópa nýnas-
ista um helgina, þegar tíu ár
eru liðin frá því Rudolf Hess,
fyrrum staðgengill Adolfs
Hitlers, fyrirfór sér í Spandau-
fangelsinu í Berlín. Hess
hengdi sig í rafmagnssnúru
17. ágúst 1987, og á undan-
förnum árum hafa ungir, öfga-
sinnaðir hægrimenn í Þýska-
landi og öðrum Evrópuríkjum
minnst dagsins. I fyrra voru
160 hægrisinnaðir óeirðasegg-
ir handteknir á þessum degi í
Þýskalandi og hundruð nýnas-
ista börðust við lögreglu í
Noregi, Svíþjóð og Danmörku.
Frakkar dregnir fyrir dómstóla
vegna ónógrar fuglaverndar
Brussel. The Daily Telegraph.
FRAMKVÆMDASTJÓRN
Evrópusambandsins hyggst
stefna Frakklandi fyrir Evr-
ópudómstólinn í Lúxemborg
fyrir að vanrækja verndun
sjaldgæfra farfugla við árósa
Signu.
Frakkar hafa lengi deilt
við framkvæmdastjórnina um
fuglavernd. Á leiðtogafundi ESB í Madríd fyrir
hálfu öðru ári réðst Chirac, forseti Frakklands, á
Santer, forseta framkvæmdastjórnarinnar, fyrir
að reyna að stytta tímabilið, sem franskir bænd-
ur mega nota til að skjóta
fugla.
Framkvæmdastjórnin hef-
ur nú stefnt Frökkum fyrir
að bijóta reglur ESB um
fuglavemd með því að van-
rækja verndun farfugla í vot-
lendinu við ósa Signu. Eink-
um setur stjórnin fyrir sig
tilvist efnaverksmiðju á svæðinu, sem hún segir
að muni án efa spilla lífsskilyrðum fuglanna.
Framkvæmdastjórnin segir að samkvæmt til-
skipun um vernd villtra fugla frá 1979 beri
frönskum stjórnvöldum að gera stærri hluta
votlendisins í nágrenni Le Havre og Rouen að
sérstöku verndarsvæði. í tilskipuninni eru taldir
upp tugir fugla sem verpa á votlendi, þar á
meðal spónanefur, mýrarheiðir, engirella og
bjúgnefja, og farfuglar sem þurfa á öruggum
áfangastað að halda.
Ekki er óþekkt að franskir stjórnmálamenn
taki fuglavernd mátulega alvarlega. Bæði Mitterr-
and sálugi og Alain Juppé, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, viðurkenndu opinberlega að þykja góðir
dultittlingar, sem þykja mesta lostæti í Frakk-
landi — en eru hins vegar friðaðir með lögum.
.PedaiOOO sn.þvottavéf Stiglaus hitastillir
Hraðþvottakerfi (30 min.) 15 mismunandi kerfi.
Tekur 5 kg.
jSOQ vi. þvottavél, 13 þvottakerfi
‘ Sjþárnaðarkerfi - Flýtiþvottakerfi,
Vinduöryggi
■\í 1000 sn. þvottavél, 17 þvottakerfi,
ullarvagga, sparnaðarkerfi, tekur 5 kg.
M>Oi 1200 sn. þvottavél, 13
Fi, ullarvagga, sparnaðarkerfi,
tekur 5 kg.
JOol uppbvottavél, tekur
inna stell, 3 Kerfi, Aqua Stop
flæðiöryggi, hljóölat
þvottavél, tekur 12 manna
stell, lágvær, 4 þvottakerfi
rirlÍIIH þurrkari, tekur 5 kg.,
120 mín prógram, 2 hltastillingar o.mfl.
dlil baraklaus þurrkari, tekur 6 kc
120 mín prógram, 2 hitastillingar o.ml
Hl'estfrost kæliskápur oa frystir
Hæð: 185 cm, breidd: 59,5 cm
SIEMENS
________ ippþvottavél,
stell, 3 þvottakerfi, Aqua S1
tekur 12 manna
topflæðiöryggi,
eldavél, 4 hraðsuðuhellur, undir
og yfirhiti, grill. Hæð:90/92 cm,
breidd: 59,5 cm, dýpt: 60 cm
erum
VERIÐ VELKOMIN I VERSLUN OKKAR
Gneiöslukjör við allra hæfi
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
kæliskápur með 141. frysti
Hæð 85 cm, breidd: 55 cm
hernsendngarþiánusta þjónusta viögeröarþjónusta
Verð kr. stgr.
Verð kr. stgr.
Verð kr. stgr.
Verð kr. stgr.
Verð kr. stgr.
Verð kr. stgr.
Verð kr. stgr.
Verð
Verð kr. stgr.