Morgunblaðið - 15.08.1997, Síða 24

Morgunblaðið - 15.08.1997, Síða 24
ÍS Vtí(í I TSÍIOA .cI rfUDAdl ITScV'i 24 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST-1997 MÓMÓxm.ADlÐ r_ LISTIR Eins langt og skugginn endist um stofur í SÍÐUSTU ljóðabók sinni, Kyij- álaeiði (1995), yrkir Hannes Sig- fússon um eldri ár en líka æsk- una. Öldungurinn lítur um öxl og sér kynslóða sína hverfa í móðu. Nú sér skáldið lengra. Lítill snáði stígur sín fyrstu spor að þrepskildi nýrrar aldar þrem kynslóðum framar. Þótt svipir reiki skáldsins, kannist ekki við sig og spyiji um önnur hús, er ekki allt hverfult. Framtíð snáðans er að minnsta kosti efni í ljóð. í Kyijálaeiði er tungumálið lykill skáldsins að veröld- inni. Það er leikur, málseiður. í ljóðum Hannesar Sigfússon- ar var tungumálið oft sjálft yrkisefnið, viðhafnarmikið og sjaldan einfalt. Aftur á móti er þróun í átt að meiri einfaidleika í síðustu bókunum, Lágu muldri þrumunnar (1988), Jarðmunum (1991) og Kyijálaeiði. Upphafið myndmál Dymbilvöku (1949) kemur í hugann eða inn- gangsljóð Imbrudaga (1951): í þoku ljósri vindar vefa úr viði feysknum bleikan eld á eyri fljóts er augum dylst en eyru lýstur þungum niði í lotum eins og lyft sé hurð frá leynidyrum augna minna sem ljúkast aftur undur hægt Og inni sefur þú Eins og fleiri skáld ól Hannes með sér þann draum að geta ort einföld og auðskilin ljóð, skorinorð kvæði sem höfðuðu beint til les- enda. Hann taldi sig þó ekki hafa náð þessu takmarki, en hann er næst því í síðustu bókunum. Þess- ar bækur eru ekki eins og eftir skáld sem er að hætta að yrkja heldur eins og nýtt tímabil, dyr sem opnast svo vísað sé til loka- ljóðsins í Kyijálaeiði sem tjáir hið gagnstæða. Dymbilvaka, þessi einkennilegi hljómmikli ljóðabálkur, verður að öllum líkindum talinn meðal höf- uðverka Hannesar Sigfússonar. Dymbilvaka tjáir efa og angist samtímans á áhrifaríkan hátt. Önnur ljóð freistast ég til að nefna meðal þeirra helstu: Vetr- armyndir úr lífí skálda og Viðtöl og eintöl úr Sprekum á eldinn (1961), Eldflaugina úr Jarteiknum (1966). Að eigin sögn gekk Hannesi illa að verða skorinorður og færa má rök fyrir því að sum ljóða hans í félagslegum anda séu ekki sér- staklega vel heppnuð þrátt fyrir Morgunblaöið/Einar Falur Hannes Sigfússon þróttmikið málfar og víða skáld- legar myndir. Hannes langaði ekki einungis til að vera skorinorður heldur var honum umhugað um að skrifa skáldsögur, helst Skáldsöguna með stórum staf. Skáldsagan Strandið (1955) þykir kannski ekki meðal helstu skáldsagna kyn- slóðar Hannesar, en er afar merki- leg stutt saga með ljóðrænu andrúms- lofti. Sama er að segja um hina skáld- söguna sem Hannes sendi frá sér: Ljósin blakta (1993). Hún leynir á sér. Hannes Sigfússon orti ljóð sín á tíma sem var andsnúinn skáldum, þegar mest var lagt upp úr því að fínna að þeim og skamma þau fyrir að kunna ekki að yrkja. Þetta var oftast látið nægja, en fáum datt í hug að lesa bæk- urnar. Hannes var ekki þannig gerður að hann leitaði eftir félagsskap annarra, bækur og skáldskapur voru hans líf: „Allt umfram það var hulið hálfrökkri annarstaðar á sviðinu", skrifar hann í minninga- bók sinni, Flökkulífi (1981). Hann var þó í félagsskap ungra rithöf- unda á yngri árum og átti nokkra trausta vini meðal þeirra. Það var löngum gott að ræða við Hannes. Þegar ég spjallaði við hann í tilefni útkomu Kyijálaeiðis lagði hann brosandi áherslu á leik- inn í bókinni og að ekki ætti að taka hana of alvarlega. Hann sagðist hafa verið fljótur að koma bókinni saman, en gleymdi að minnast á Jiað að hún speglaði heila ævi. An Iangrar reynslu og íhugunar hefði ekki verið unnt að setja þessi ljóð á blað. Hvað má til dæmis segja um Hverfleika?: Hnötturinn: glóaldin og myrkvað tungl ásamt sporhundi sínum og spegilmynd í svörtu og hvítu: tveir skildir sem hverfast samkvæmt lögmálum hringsóls og framvindu hjóla, frá fareind um kjama frá degi til dags frá ári til árs. Ég teygi skugga minn eins langt og hann endist áður en skyggir Meðal töfra ljóða Hannesar Sigfússonar eru óþol þeirra og óeirð. í Imbrudögum orðar skáldið þessa tilfinningu svo: „Ég stend á svölunum sem reika eins og myrkvuð stjarna/ sem hefur týnt braut sinni og eðlisþyngd/ í víðátt- um næturinnar/ völundarhúsi tímans og rúmsins". Jóhann Hjálmarsson Verkefnaskrá Leikfélags Reykjavíkur næsta leikár kynnt Tvö ný íslensk verk, Jökull, Turgenjev og fleiri Morgunblaðið/Ásdís FRÁ æfíngu á nýjum söngleik eftir Benóný Ægisson sem frum- sýndur verður 29. ágúst í Borgarleikhúsinu en tónlistina gera Jón Ólafsson og KK. Leikurinn heitir Hið ljúfa líf og gerist á íslenskri knæpu sem má muna sinn fífil fegri eins og flestir gesta hennar. TVÖ ný íslensk verk verða frum- flutt í Borgarleikhúsinu á komandi leikári en verkefnaskrá leikársins var kynnt í gær. Islensku leikritin tvö eru eftir Benóný Ægisson og Kristínu Ómarsdóttur en eins og í fyrra verður einnig sýnt leikrit eftir Jökul Jakobsson að þessu sinni. Þór- hildur Þorleifsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins, sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki hefði reynst unnt að halda úti þeirri áætl- un að frumsýna eingöngu ný íslensk leikverk á þessu ári, sem er hundrað- asta afmælisár Leikfélags Reykja- víkur. „Þetta reyndist ekki gerlegt vegna þess að við fengum ekki inn nógu mörg sýningarhæf verk eftir ís- lenska samtímahöfunda. Við getum ekki sýnt verk bara vegna þess að þau eru íslensk og ný. Að mínu mati er gróska í íslenskri leikritun en það er mjög vandasamt verk að skrifa leikrit og fáum tekst það í fyrstu tilraun. Borgarleikhúsið vill samt reyna að sýna verk eftir nýja íslenska höfunda því það hefur ákveðnu uppeldishlutverki að gegna í þessu tilliti; höfundar verða að fá sína æfingu eins og leikarar." Stóra sviðið Fyrsta verkið sem fmmsýnt verður á stóra sviðinu í ár er hið nýja verk Benónýs Ægissonar, sem heitir Hið ljúfa líf og er söngleikur. Tónlist gera Jón Ölafsson og KK. Verkið gerist á veitingastað eða knæpu í borginni sem má muna sinn fífíl fegri eins og flestir gestanna sem sækja hann. Ung og vegvillt söngkona slæð- ist þangað inn og rekst þar á ýmsa kynlega kvisti. Leikstjóri er Þórarinn Eyfjörð og meðal leikara eru Ari Matthíasson, Björn Ingi Hilmarsson, Eggert Þorleifsson, Guðlaug Elísabet Jóhannsdóttir og Jóhanna Jónas. Frumsýnt verður 29. ágúst. Galdrakarlinn í Oz er aðalbarna- leikrit ársins í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Leikstjóri og jafnframt danshöfundur verður Bretinn Kenn Oldfield en þetta er í fyrsta skipti sem hann leikstýrir í Borgarleikhús- inu. Oldfield hefur áður starfað hér á landi, meðal annars í Þjóðleikhús- inu. Með aðalhlutverk fer Sóley El- íasdóttir. Verkið verður frumsýnt 12. október. Feður og synir heitir leikrit byggt á skáldsögu Rússans Ivan Turgenjevs sem frumsýnt verður um áramót. Ingibjörg Haraldsdóttir þýð- ir verkið. Hingað til lands koma tveir rússneskir leikhúsmenn til að setja verkið upp en þeir eru leikstjórinn Alexsei Borodin, sem jafnframt ger- ir leikgerð, og leikmynda- og bún- ingahönnuðurinn Stanislav Bene- diktov. Að sögn Þórhildar er Borod- in leikhússtjóri við barna- og ungl- ingaleikhús í Moskvu sem nýtur mikillar virðingar en báðir hafa þeir starfað við mörg þekktustu leikhús heimalands síns og víða annars stað- ar í Evrópu. Aðspurð segist hún ekki óttast að uppfærslur af hinum svokallaða rússneska skóla hafi fengið misjafnar viðtökur hér á landi undanfarin ár. „Það er mikill marg- breytileiki í rússnesku leikhúslífi en þessi leikstjóri hefur á sér það orð að hafa einstakt lag á því að færa eldri verk til nútímaáhorfenda og því verður spennandi að sjá hvað hann gerir við Turgenjev. Annars þarf að fá fleiri erlenda leikhúsmenn til starfa hér. íslenskur leikhúsheim- ur er þröngur og veitir ekki af því að/á inn ný áhrif.“ íslenski dansflokkurinn flytur inn í Borgarleikhúsið í haust og mun setja upp sýningu með verkum eftir Ed Wubbe og Richard Wherlock. Sá fyrrnefndi er Isitdansstjóri Scapino dansflokksins í Rotterdam og sá síð- arnefndi er listdansstjóri í Luzern í Sviss. Frjálslegur klæðnaður nefnist svo franskur fiækjufarsi eftir Marc Camoletti. Þýðandi er Pétur Gunn- arsson. Frumsýnt verður 20. febr- úar. Litla sviðið Ástarsaga 3 nefnist nýtt leikrit eftir Kristínu Ómarsdóttur sem frumsýnt verður á litla sviðinu 12. september. Þetta er grallaralegt leikrit, að sögn Þórhildar, Ijóðrænt og fyndið og fjallar um myrkviði ástarinnar og utangarðsmanna. Leikstjóri er Auður Bjarnadóttir og leikarar eru Árni Pétur Guðjónsson, Þorsteinn Gunnarsson og Þórhallur Gunnarsson. Feitir menn i pilsum nefnist hrollvekjandi gamanleikur eftir Nicky Silver sem frumsýndur verður 18. október. Þýðing er eftir Anton Helga Jónsson. Leikstjóri er Þór Tulinius og leikarar eru Hanna Mar- ía Karlsdóttir, Halldóra Geirharðs- dóttir, Jóhann G. Jóhannsson og fleiri. Silver er bandarískur höfundur fæddur árið 1960. í nóvember verður frumflutt dag- skrá með lögum og_ textum Jóns Múla og Jónasar Árnasona sem nefnist Augun þín blá .... Sumarið 37 eftir Jökul Jakobsson verður frumsýnt 11. janúar í leik- stjórn Kristínar Jóhannesdóttur sem leikstýrði einnig Dóminó á síðasta leikári Borgarleikhússins. Haldið verður áfram að sýna Hár og hitt sem frumsýnt var fyrir skömmu. Heimsóknum grunnskóla- barna í leikhúsið verður haldið áfram en þær hafa verið fastur liður hjá Leikfélagi Reykjavíkur undanfarin ár. Einnig verður sett upp barnaleik- ritið Mirad, strákur frá Bosníu eftir Ad de Bont. Leikritið fjallar um líf Mirads, tólf ára drengs sem býr í litlum bæ, Foca í Bosníu þegar stríðið skellur á og feykir honum út í buskann. Eins og að elda góða súpu Þórhildur sagði að ágætlega hefði gengið að setja saman verkefnaskrá fyrir leikárið þrátt fyrir erfiðan fjár- hag ieikfélagsins. Hún sagði að eng- in sérstök viðmið hafi verið höfð í huga við val á verkefnum önnur en þau að verkefnaskráin yrði spenn- andi. „Mikill undirbúningur Iiggur á bak við þetta val. Leshópur hefur starfað að vali á verkefnum en í honum voru fjölmörg verk rædd áður en endanleg niðurstaða fékkst. Verkefnaskráin þarf að vera blanda af hinu og þessu, nýju og gömlu, innlendu og erlendu, gamni og al- vöru. Þetta er eins og að elda góða súpu, maður þarf að banda saman í réttum hlutföllum." Köld stemmning KVIKMYNPIR Stjörnuhíó/ Kringlubíó/ Sambíóin, Álfabakka BLOSSI/ 810551 ★ ★ ★ Leikstjóri: Júlíus Kemp. Kvikmynda- taka: Jón Karl Helgason. Handrit: Lars Emil Arnason. Aðalhlutverk: Páll Banine, Þóra Dungal, og Finnur Jóhannsson. 100 mín.Islensk. Kvik- myndafélag Islands/Islenska kvik- myndasamsteypan/Zentropa Ent- ertainments/Peter Rommel Filmproduction. 1997. TITILL gamla Talking Heads- lagsins „We’re on the road to now- here“ gæti hægilega verið yfir- skrift nýjustu íslensku kvikmynd- arinnar, Blossa/810551. í henni kynnumst við ungmennunum Stellu (Þóru Dungal) og Robba (Páli Banine) á stefnulausu ferða- lagi þeirra um hringveginn. Robbi er á flótta undan óhjákvæmilegu uppgjöru við eiturlyfjasalan, Ulf (Finn Jóhannsson), en flóttinn er jafn ómarkviss og þýðingarlaus og líf aðalpersónanna. Kvikmyndaleikstjórar taka stundum þá áhættu að velja fólk lítt þjálfað í leik til þess að túlka aðalhlutverk. Valið ræðst þá af útliti viðkomandi, hann eða hún eru aðalpersónan lifandi komin. Oft hefur útkoman verið stór mín- us fyrir mynd þar sem viðkomandi vantar gjörsamlega alla leikhæfi- leika, en með valinu á Þóru Dung- al og Pál Banine datt Júlíus Kemp í lukkupottinn. Þau eru ekki ein- göngu einstaklega fótógenísk, þeim tekst einnig að blása tölu- verði lífi í persónur Stellu og Robba. Þar sem áhorfandinn situr með þeim í bíl stóran hluta mynd- arinnar er eins gott að þeim tekst að halda athyglinni. Onnur hlutverk í myndinni eru jafnframt vel mönnuð, þó flest séu smá í sniðum. Finnur Jóhannsson sem eitraðar yfirmaður Robba kemur skemmtilega óvart. Gísli Rúnar Jónsson er óvenju fyndinn sem moldvarpa sem höndlar með stolna muni og Erlingur Gíslason fer vel með að breytast úr prests- ímynd í djöful á skömmum tíma. Einnig er gaman að fylgjast með Vilhjálmi Árnasyni sem ruglaða skrattakollinum, Stálmús, og Sig- uijóni Kjartanssyni í örhlutverki göngumannsins duglega. Útlit myndarinnar er vægast sagt vel heppnað. Hér er það „look“-ið sem skiptir máli og kvik- myndataka Jóns Karls Helgasonar á stóran þátt í að móta lúðalegan glamúrinn. Umgjörðin er neyslufélag hinnar alþjóðlegu unglingamenningar með tilheyr- andi fatnaði og tónlist. I viðtali í Morgunblaðinu lét handritshöf- undurinn, Lars Emil Árnason, hafa það eftir sér að Blossi væri undir niðri ádeila á neysluþjóðfé- lag nútímans. Það verður að segj- ast að sá broddur er ekki sérstak- lega beittur. Myndin er frekar speglun á ákveðnum lífsstíl, með öfgakenndum áherslum. Fjölmiðlasíbyljan er hluti af nú- tíma neysluþjóðfélagi og það er engin friður fyrir henni í Blossa, frekar en í raun. Tónlistin er nán- ast stöðugt áreiti, en valið á lögum og hljóðblöndunin er mjög vel af hendi leyst. Jafnframt er leikið á hljóðrásina á faglegan hátt eins og í Hong Kong hasarmyndum þar sem lágvær hljóð, t.d. að kveikja sér í sígarettu, er magnað upp til þess að skapa „cool“ stemmningu. Blossi er líka köld mynd. Hún er gerð úr mörgum sterkum þátt- um en tómhyggjan sem ræður ríkj- um í huga aðalpersónanna gerir það að verkum að myndina vantar alveg hjarta. Hún líður þess vegna hjá sem falleg ímynd en skilur ekki mikið eftir, ekki ósvipað og auglýsing. Anna Sveinbjarnardóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.