Morgunblaðið - 15.08.1997, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 15.08.1997, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 25 LISTIR ERLENDAR BÆKUR GULUR HUND- UR OG TVI- BURAMORÐ Lítill, gulur hundur „A Little Yellow Dog“. Pocket Books 1997. 308 siður. andaríski rithöfundurinn Walter Mosley hefur með nokkrum saka- málasögum um eink- aspsæjarann Easy Rawlins í Los Angeles komist í fremstu röð saka- málahöfunda vestanhafs. Þekkt- asta saga hans er sjálfsagt byijun- arverkið, „Devil in a Blue Dress“, sem hlaut hvarvetna góða dóma. Mosley var tekið fagnandi sem nýrri og einstakri rödd í hópi saka- málahöfunda og Hollywood fékk þegar á honum áhuga og kvik- myndaði söguna í snarheitum með Denzel Washington í hlutverki Easy Rawlins. Myndin kom hingað til lands og var sýnd í Stjörnubíói. Síðan hefur Mosley farið batnandi með hverri nýrri bók ef marka má skrifin um hann vestra. Lítill, gulur hundur eða „A Little Yellow Dog“ kom út í vasabroti á þessu ári og er firnaskemmtileg lesning. Easy Rawlins Mosley skrifar spæjarasögur mjög í hefð Chandlers og Ham- metts en sveigir hana að sínum eigin lögmálum. Höfuðpersóna ekki. Raunsæið sagði honum þeg- ar hann fór upp á kennslukonuna Idabell Turner á kennaraborðinu áður en hringt var inn að því mundu fylgja vandræði en að það væri í formi hundtíkarræfilsins óraði hann ekki fyrir. Idabell nefnilega hverfur eftir að Easy hefur lofað að taka að sér þann gula og fljótlega eftir það finnst maðurinn hennar myrtur og tví- burabróðir hans einnig. Tvíbura- morð. Sjaldan er ein báran stök í lífi Easys. Löggan, sem hefur lag á að hræða kalla eins og Easy, grunar hann um græsku og ef Easy ætlar að sleppa út úr þessu með Idabell og hundinn og tvíbur- ana og sitthverju fleiru, verður hann að leysa málið sjálfur. Hann sem var að koma sér upp einhvers konar vísi að hversdagslegu lífi með því að fá sér fast starf við skólann. Öóruvisi Los Angeles Walter Mosley kemur öllu þessu heim og saman í skemmtilega skrifuðum texta sem einkennist af þurrum, kaldhæðnislegum húmor, brakandi ekta mannlýsingum og samtölum sem gaman er að hlera. Mosley er ekki að lýsa þeirri Los Angeles sem frægust er fyrir Hollywoodstjörnurnar og glamúrpartíin. Hans heimavöllur BANDARÍSKI sakamálahöfundurinn Walter Mosley skrifar um Easy Rawlins í Los Angeles og gerir það firnavel. hans er svertinginn Easy Rawlins sem enn hugsar með trega til þátttöku sinnar í síðari heimsstyijöldinni og þekkir fleiri smákrimma og misindismenn í Los Angeles á upphafsárum sjöunda áratugarins en Kennedyarnir fatafellur. Og ekki bara að hann þekki þá í sjón eða sé málkunnugur þeim eða að þeir séu vinir hans, jafnvel verstu morðingjar, heldur þekkir hann inn á þá, þekkir eðli þeirra og þekkir hvernig þeir hugsa. Þess vegna er t.d. Raymond Mouse ennþá vinur hans þótt hann sé morðingi og hafi nýlega skotið og myrt besta vin sinn, sem jafnvel, það er ekki víst, var einnig faðir Mouse! Rawlins þekkir inn á fólk. Og hann þekkir stöðu þess í lífinu og hann þekkir sína stöðu í lífinu sem svertingi í Los Angeles. Þekkir hvernig hvíta fólkið kemur frani við svertingja og sýnir þeim lítilsvirðingu án þess að gera sér nokkra grein fyrir því. Kynþáttafordómarnir koma ekki síst fram í þeim sem reyna hvað mest að sýna það ekki. Easy reiðist því auðveldlega. Annars er Easy Rawlins sér- staklega dagfarsprúður maður, réttsýnn bæði og skynsamur og kannski fyrst og fremst einstak- lega raunsær. Hann þarf að vera það ef hann ætlar að komast lif- andi heim til sín á kvöldin til ki'akkanna tveggja sem hann hef- ur tekið að sér og nú nýlega, gula hundspottsins sem þolir hann er negrahverfin þar sem gilda sérstök lögmál og mannorð er metið dýrum dómum. Easy þekkir allt það betur en nokkur annar. Hann veit nákvæmlega hvernig hann á að leika hlutverk sitt hveiju sinni, hvað hann getur boðið og hvað hann getur fengið í staðinn, hvað hann má ganga langt og hvenær best er að stoppa. Stuttar og einfaldar athugasemdir hans, sem Mosley skýtur inn í frásögnina þegar við á, opna skilning bæði á manninum og umhvei-finu. Mosley lýsir höfuðpersónu sinni af frábæru innsæi og þekkingu á mannlegu eðli þegar það reynir að gera alltaf það sem rétt er og gott en ræður ekki alltaf við það eða hefur ekki tök á því og fær að finna fyrir því. Lítill, gulur hundur er fengur fyrir alla þá sem njóta góðra sakamálasagna. Hún er mjög skemmtileg, vel skrifuð og mótuð og með aðalpersónu sem auðvelt er að samsama sig, bæði í veikleika og styrk. Sagan er spennandi og fyndin og full af sannleika urn tilvei-una sem nær langt út fyrir negi-ahverfinu í Los Angeles. Aðrar sögur Mosleys um Easy Rawlins og ekki hafa verið nefndar hér eru: Rauður dauði „A Red Dead“, Hvítt fiðrildi „White Butterfly", Svaria Bettý „Blaek Betty“, Draumur RLs „RL’s Drearn" og sú nýjasta sem heitir Farið á veiðat' eða „Gone Fishin’". Óvitlaust að kynna sér þær. Arnaldur Indriðason sumarvörum í BYKO, Nú stendur yfir rýminingarsala á sumarvörum í öllum verslunum BYKO. Slátturvélar, áburöur, garöverkfæri, hjólbörur, blómaker, garöhúsgögn, reiöhjól, útileguvörur, veiöivörur, gasgrill, leikjavörur og margt, margt fleira meö allt aö 40% afslætti. Komdu viö I BYKO og framlengdu sumariö meö frábærum tilboðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.