Morgunblaðið - 15.08.1997, Page 26

Morgunblaðið - 15.08.1997, Page 26
AÐSENDAR GREINAR 26 FÖSTUDAGUR 1-5. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ Vegagerð ríkisins og öryggi íbúa í Rangárvallasýslu SU AKVORÐUN Vegagerðar ríkisins að leggja niður starf- semi áhaldahúss Vegagerðarinnar á Hvolsvelli og þar með að fækka starfsmönn- um sínum í héraðinu eru okkur Rangæing- um mikil vonbrigði. Undanfarna mán- uði höfum við því mið- ur orðið að sjá á eftir mörgum störfum úr sýslunni í kjölfar þess að fyrirtæki hafa verið að sameinast og hag- ræða í rekstri sínum. En hvert og eitt starf er okkur mikils virði, ef halda á uppi því þjónustustigi sem nútíma- samfélag gerir kröfu til. Þegar lit- ið er á aðstæður í Rangárvalla- sýslu, þá er það vegakerfið sem er lífæð þessa byggðalags. Rangárvallasýsla er mikið land- búnaðarhérað sem er með öllu hafnlaust. Eingöngu er hægt að treysta á samgöngur á landi. Nauð- synlegt er að tryggja öryggi íbú- anna eins og kostur er þar með landsamgöngurnar. Ráðamönnum þjóðarinnar ber skylda til að meta þessar aðstæður í ljósi staðreynda. Samgöngur innanlands gegna lyk- ilhlutverki í atvinnuþróun og byggðarþróun og Sjálfstæðisflokk- urinn hefur ávallt lagt áherslu á að treysta byggð í landinu með traustum, hagkvæmum og örugg- um samgöngumannvirkjum og öflugri þjónustu við landsmenn. Forsenda þess að þéttbýlisstaðir og sveitir, sem tengjast eða geta tengst með daglegum, öruggum samgöngum, eigi möguleika á að mynda samfellt atvinnu- og þjón- ustsvæði, er að vegakerfið sé gott og viðhald þess sé í höndum heima- manna. Ef mannlíf á að geta þrif- ist með eðlilegum hætti er fjöl- breytt atvinnulíf eitt af því mikil- vægasta, allt annað kemur á eftir. Það er og yfirlýst stefna íslenskra stjórnvalda að efla at- vinnu á landsbyggð- inni og flytja verkefni út á land, eftir því sem við verður komið. Það verður því ekki séð hvernig þessi aðgerð Vegagerðarinnar sam- rýmist þeirri stefnu. í kjölfar samdráttar í landbúnaði og þeirrar staðreyndar að með meiri hagræðingu í búrekstri hefur árs- verkum fækkað til muna í greininni án þess að fram- leiðsla hafi minnkað. Vegna þeirra breytinga sem orð- ið hafa í landbúnaði verða margir að sækja sér vinnu um nokkurn veg. Börnum og unglingum er ekið daglega í skóla allan veturinn. Flytja þarf mjólk og aðrar afurðir búanna. Síðast en ekki síst er það aukin umferð ferðamanna og upp- bygging ferðaþjónustu. Allt þetta kallar á að vegasamgöngur séu góðar og þjónusta Vegagerðarinn- ar standist auknar kröfur í við- haldi vega og mannvirkja, sem tengjast þeim. Ef til náttúruhamfara kemur, eldgos, jarðskjálftar eða flóð, geta mannvirki orðið illa úti. Meðal ann- ars vegna þeirrar staðreyndar að tvö stórfljót renna í gegnum sýsl- una, annarsvegar Markarfljót og hinsvegar Þjórsá, er það krafa okkar að hér í sýslu sé til staðar vinnuflokkur og tæki til vegagerð- ar. Á fundi með vegamálastjóra, aðstoðarvegamálastjóra, um- dæmisverkfræðingi og starfs- mannastjóra Vegagerðarinnar með sveitarstjórnarmönnum Hvols- hrepps og Rangárvallahrepps í sumar kom ekkert það fram sem réttlætir það að leggja niður starf- semi Vegagerðar ríkisins á Hvols- velli. Fram kom að ekki væri mik- ils sparnaðar að vænta fyrr en eft- ir mörg ár og ekki var á þessum fundi hægt að lofa okkur betri þjónustu. Það er því erfitt að sjá tilganginn með þessari aðgerð, þegar á sama tíma er verið að Rangárvallasýsla er hafnlaus og landsam- göngur gegna lykilhlut- verki í atvinnu- og byggðaþróun sýslunnar. Drífa Hjartardóttir fer þess á leit við sam- gönguráðherra að hann endurskoði þá ákvörðun að leggja niður starf- semi Vegagerðar ríkis- ins á Hvolsvelli. færa aukin verkefni til sveitarfé- laganna. Halldór Biöndal ráðherra sam- göngumála hefur staðið sig mjög vel sem yfirmaður vegamála og undanfarin ár má segja að unnið hafi verið hvert stórvirkið af öðru. Því kom þessi ákvörðun, að leggja niður starfsemi Vegagerðarinnar, íbúum sýslunnar mjög á óvart. Við förum þess á leit við ráðherra að þessi ákvörðun verði endurskoðuð og komið verði til móts við óskir heimamanna og að Vegagerðin verði starfrækt áfram á Hvolsvelli. Hiifundur er bóndiað Keldum og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi. Drífa Hjartardóttir Samileikurinn um HAUSTIÐ 1989 flutti Leikfélag Reykjavíkur starfsemi sína í Borgarleikhúsið, og sagði þar með upp leigusamningi sínum við Iðnó, sem var í eigu þriggja verkalýðsfé- laga í Reykjavík, ein- staklinga og Alþýðu- flokksins. Skömmu seinna hafði vinur minn Guðlaugur Tryggvi Karlsson hag- fræðingur samband við mig og bar mér boð framkvæmdastjóra hússins, Jóns Árna- sonar, að húsið væri falt. Hafði þá stjórn hússins og framkvæmdastjóri í mörg ár reynt að vekja áhuga íslenskra stjórn- valda á húsinu og borgarstjómar Reykjavíkur, en ávallt gengið bón- leið til búðar. Enginn opinber aðili hafði þá áhuga á Iðnó eða yfirleitt lét sig varða, hvað um það hús yrði. í samtölum við Jón fram- kvæmdastjóra tjáði hann mér að leigutekjur hefðu verið látnar ganga til viðhalds húsinu, en ástand þess, yfirhöfuð, væri vissu- lega slæmt, svo slæmt, að þegar þessar tekjur skiluðu sér ekki til viðhalds, væri viðbúið að húsinu væri stórhætta búin, t.d. af raf- magnslögn og gæti það þá brunnið til ösku á nokkrum klukkutímum. Einnig væru allar pípulagnir léleg- ar og þakjárn í hörmulegu ástandi. Væri húsinu því stórhætta búin, bæði af vatnsskemmdum og fok- hættu. Sérstakt hlutafélag Ég átti 17 bakarí í fullum rekstri, sem ég hafði mörg hver byggt upp sjálfur frá granni og hafði þess vegna mjög góða aðstöðu með fráþæra iðnaðar- menn. Ég kvaddi nú þessa vini mína á vett- vang til þess að skoða húsið. Reyndist ekkert ofsagt af því lélega ástandi, sem Jón hafði lýst. Ég hafði hins veg- ar áhuga á kauptilboð- inu vegna frægðar hússins og legu. Ætlaði að stofna sérstakt hlutafélag um reksturinn. Vildi setja á stofn kaffileikhús, jafn- vel með gistiaðstöðu. Semja við skólana um afnot, sem og fleiri aðila, þar sem margir frægir Islend- ingar hafa átt sína fyrstu opinbera spor á fjölum Iðnóar. Svo ekki sé minnst á þá frábæra einstaklinga, sem þar hafa starfað og félagasam- tök. Eignarlóð hússins taldi ég aft- ur á móti eðlilegt að Reykjavíkur- borg keypti, enda á hún flestar lóð- ir á svæði sínu. Þetta tilboð fór fyrir stjórn húss- ins og Reykjavíkurborg ætlaði að kaupa lóðina. Vora nú iðnaðarmenn á mínum vegum á fullu við lág- marksaðgerðir, til að bjarga húsinu og tryggja að ekki kviknaði í því eða flæddi. Þá höfðu við samband við Ingi- mund Sveinsson, arkitekt, sem góðfúslega var hugmyndasmiður Einstaklingsframtakið var tekið af á einni nóttu, segir Sveinn Kristdórsson, það reyndist lokadrama þessa þáttar, til hugsjóna og velvildar minna manna. með okkur í þessu og lýsti jafnan ánægju sinni á því, að einstakling- ur brytist í jafn metnaðarfullt verk- efni. Allir voru sammála um það að steinanddyri sunnan hússins væri úr sér gengið, og væri smekk- legt að létt glerhýsi leysti það af hólmi með útsýni yfir tjömina. í rauninni gekk allt þetta samstarf undir lokin eins og í sögu og lá ekkert annað fyrir en að skrifa undir. Kostnaðaráætlun minna manna í útlögðum kostnaði við verkið, sem ég ætlaði að ljúka á nokkram áram, var um þijátíu milljónir króna. En fleiri hús era við tjörnina en Iðnó, m.a. undeilt ráðhús, sem nú þurfti að vígja. Sumir í þáverandi minnihluta ætluðu jafnvel ekki að mæta við vígsluna. Hvað var tekið til bragðs? Jú, á einni nóttu var ákveðið að slíta öllum samningum við mig, ganga samt inní hugmynd- ir mínar um útlit og rekstur á hús- inu og kaupa húsið á kostnað Borg- arsjóðs með óútfylltum tékka um öll útlát - til þess eins að þáver- Sveinn Kristdórsson Kvótamálið FYRIR tæpum ára- tug var rétt eitt lekt- orsmálið til umræðu. Dr. Hannes H. Gissur- arson hafði verið skip- aður lektor í stjórn- málafræði við Háskóla íslands, en tekið mis- jafnlega vel. Á fundi í félagsvísindadeild hafði hann ekki fengið eitt einasta atkvæði. Ég skrifaði 2 greinar um málið og sagði meðal annars, að yfir- burðir Hannesar væru þeir, að hann ætti ekki að vera að sækja um lektorsstöðu heldur prófessorsstöðu, væri hún tiltæk. Þetta hefir nú farið á þann veg: Dr. Hannes er orðinn prófessor Hannes. Er þá ekki „allt fengið“? Nei, ekki alveg. Uppi eru deilur með þjóðinni í stórmáli, miklu hagsmunamáli. Ástandið er þannig að árlega eru tugir milljarða króna af sameign þjóðarinnar gefnir tiltölulega litlum hópi manna. Þessi sameign, þetta verðmæti, er þannig til komið, að löggjafar- samkoman hefir skapað einokunar- aðstöðu fyrir takmarkaðan veiði- flota. Veiðiskip með kvóta fær því meiri afla en það myndi, væru veið- arnar ekki takmarkaðar heldur öll- um fijálsar. Auk þess er næsta víst að fiskverð hækkar við þetta. Það myndast einokunargróði. Hann rennur fyrst og fremst til þeirra fáu manna sem fá að nota ókeypis hinn takmarkaða veiðirétt innan fisk- veiðilögsögunnar. Þessi gróði er sköpunarverk Alþingis, alþingis- mannanna. Svona ástand er auðvit- að óþolandi til langframa. Hannes hefir nú birt 3 greinar í Morgunblaðinu um málið. Hinn 9. þ.m. birtir hann 3. greinina, þar sem hann dregur saman röksemdir sínar í stuttu máli. Kjarni málsins er þarna ljós. Þar með gín rökvilla hans við lesandanum. Iðnó andi minnihluti mætti þægur og prúður við vígslu ráðhússins. Útsvarsgreiðendur borga Eftirleikinn þekkja allir. Opinber kostnaðaráætlun við viðgerðirnar er nú komin á þriðja hundrað millj- óna. Húsið er fokhelt að utan og ekki hefur það brunnið eða flætt, sem ég reyndi einmitt svo mikið að koma í veg fyrir. Engin starf- semi í nokkrum mæli hefur verið í húsinu. Létti glerskálinn okkar, þar sem átti að leyfa áhugasömum fuglaskoðurum, með heitt súkku- laði í bollanum sínum, að virða fyrir sér svani og ástfangna fugla, varð allt í einu að einhvers konar svartri ljónstungu, sem Iðnó gamla rak útúr sér framan í þá, sem gleymdu orðum sínum og stefnu. Einstaklingsframtakið var nefni- lega tekið af á einni nóttu, það reyndist lokadrama þessa þáttar, til hugsjóna og velvildar minna manna. Sömu tilfinningar bærast mér í brjósti til Iðnó, sem áður. Tungan svarta er horfin og við skulum bara gleyma því, sem liðið er. Sjálf- sagt verður fé útsvarsgreiðenda vel varið að lokum og ég ylja mér við það, að hafa með mínum mönn- um þó átt þátt í því að húsið er enn til, vonandi listrænni æsku framtíðarinnar til gleði og borg- arbúum öllum til yndisauka. Um slíka starfsemi er ég auðvitað allt- af til viðræðu. Höfundur er bakarameistari og ernú forstjóri Hótels Snæfells á Seyðisfirði. „Það sem Karl Marx skildi ekki, var að myndun einstaklings- bundinna eigna- eða nýtingarréttinda á náttúrugæðum er bezta leiðin til þess að tryggja skynsamlega nýtingu slíkra gæða.“ Já, og hvað svo? Jú, segir Hannes, þess- vegna verða þeir sem fara með þessar eignir að fá þær gefins í upp- hafi. Tökum tvo bændur sem dæmi. Annar erfir jörðina, sem hann býr á, fær hana gefins, hinn kaupir hana á fasteignamark- aðnum. Hvað tálmar því, að báðir fái búið við sömu skilyrði: notið náttúrugæða jarða sinna sem einka- Hlutur kvótans í aflaverðmætinu er, að mati Benjamíns H. J. Eiríkssonar, hreinn einokunargróði, skap- aður af ríkisvaldinu. eignar? Þetta þýðir einfaldiega það, að það er eins hægt að búa við einkaeignarréttarskipulagið þótt náttúrugæðin séu keypt. Tal Hann- esar um „skynsamlegri nýtingu fiskistofnanna" er því máli óskylt, hvort kvótarnir séu gefnir eða seld- ir. Svona röksemdir heita á ensku „red herring", rauð síld. Hvað er einokunargróði? Einok- unargróði er verðmæti sem skapað er með sérstakri aðstöðu, valdi af einhveiju tagi, valdboði, einokun eða fákeppni. Verðmætið verður til án tilkostnaðar, án þjónustu, án framleiðslukostnaðar. Hafirðu þessa aðstöðu, þetta vald, geturðu skapað svona verðmæti. Áfengis- og tóbakseinkasala ríkisins er ein- falt dæmi, takmörkun fiskveiðanna með valdboði, annað. Formælendur gjafastefnunnar draga alltaf athyglina frá því grundvallaratriði, að verðmæti kvótans er einokunar- gróði, skapaður af ríkisvaldinu. Útgerðarmaðurinn getur greitt allan útgerðarkostnaðinn af and- virði aflans og keypt kvótann að auki fyrir afganginn, sem myndazt hefir við það, að aðgengið að miðun- um er takmarkað - sem þýðir að meiri afli fæst með minni tilkostn- aði. Hlutur kvótans í aflaverðmæt- inu er augljóslega hreinn einokun- argróði, skapaður af ríkisvaldinu. Kvótarnir ganga kaupum og söl- um - þessir umframpeningar - fyrir tugi milljarða. Hvað hugsar þjóðin? Ríkisvaldið vantar peninga til hluta sem „við öll“ viljum: í heil- brigðisþjónustuna, skólakerfið og velferðina, svo eitthvað sé nefnt. Hvað leyfa alþingismennirnir sér að aðhafast - og aðhafast ekki - í alþjóðaraugsýn? Hver er skýring- in? Bera eigendur kvótanna fé í stjórnmálaflokkana? P.S. Síðan ofanskráð var sett á blað hefir prófessor Hannes enn birt skrif um þetta efni. Ég á við grein hans í Morgunblaðinu hinn 14. þ.m., „Gömul hugmynd gengur aftur“. Og enn gín við lesandanum ný rök- villa. Próf. Hannes líkir veiðileyfa- gjaldinu við jarðrentuskatt Henrys Georges. Gallinn við þessa samlík- ingu er sá, að jarðrenta þessi mynd- ast fyrir tilverknað markaðsafl- anna, fyrst og fremst aukningar mannfjöldans. Einokunargróði kvótanna myndast með valdboði löggjafans. Höfundur er hagfræðingur og fyrrv. bankastjóri. Benjamín H.J. Eiríksson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.