Morgunblaðið - 15.08.1997, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 47
FÓLK í FRÉTTUM
AÐDÁENDUR Keanu Reeves eru óneitanlega fleiri en aðdáendur hinna meðlima hljómsveitarinnar.
Keanu
Reeves
átón-
leikaferð
►LEIKARINN Keanu Reeves lif-
ir engu munaðarlífi þrátt fyrir
að fá um 700 milljónir króna fyr-
ir hverja mynd sem hann leikur
í. Keanu hefur búið á hótelum
undanfarin ár og hefur engan
áhuga á að kaupa sér íbúð eða
hús. Efnisleg gæði eru því í lág-
marki hjá þessum dáða leikara
og miðast við að auðvelt sé að
ferðast með þau.
Undanfarið hefur kappinn,
sem einnig er tónlistarmaður,
verið á tónleikaferð um Banda-
ríkin með hljómsveit sinni
„Dogstar". Hann segist því búa
við lítinn svefn, lélegt hljóðkerfi
og skyndibitamat um þessar
mundir. Keanu segist þó kunna
sér hóf og drekkur til dæmis aldr-
ei gosdrykki fyrir tónleika því
sykurinn hafi svo slæm áhrif á
hann.
Hann gekk til liðs við hljóm-
sveitina árið 1994 og að sögn
félaga hans er erfitt að Keanu
sé frægur leikari því í hvert skipti
sem eitthvað jákvætt kemur fyrir
hljómsveitina er fyrsta hugsunin
sú að það sé tilkomið vegna Ke-
anu. Það er ekki auðvelt að vera
rokkhljómsveit með frægan leik-
ara innanborðs.
Ekki í kjól
LEIKARINN og leikstjórinn
Clint Eastwood stóð frammi
fyrir erfiðri ákvörðun fyrir
skömmu þegar hann var við
tökur myndarinnar „Midnight
in the Garden of Good and
Evil“ sem hann leikstýrir sjálf-
ur. Eastwood hafði áhuga á að
leika eitthvað lítt áberandi hlut-
verk eða svokallað „feluhlut-
verk“ í myndinni en það eina
sem var í boði var hlutverk
klæðskiptings. Eftir mikla um-
hugsun ákvað hann að enginn
kvikmyndahúsagestur hefði
áhuga á að sjá sjálfan „Dirty
Harry“ klæðast kjól. Kvenlega
hlið Clint Eastwood verður því
að bíða betri tíma.
KEANU Reeves nýtur sín vel á sviði en hefur þó ekki tileinkað
sér alla ósiði rokkstjarna.
HLJÓMSVEITIN „Dogstar" er auk Keanu þeir Rob Mailhouse
og Bret Domrose.
Hilmar Sverrisson
heldur uppi léttri og góðri stemningu
á Mímisbar.
m
-þín saga!
ILEIT
AÐPÖNDUM
BANDARÍSKA leikkonan Debra
Winger hóf fyrir skömmu leit að
pandabjörnum í Kína ásamt tíu
ára syni sínum Noah. í för með
þeim mæðginum var sjónvarps-
fólk, en pandan er táknræn fyrir
dýraverndun því aðeins um 800
pöndur eru eftir í heiminum.
Debra og Noah ferðuðust um
2.400 kílómetra til að hitta fyrir
helsta pöndu-sérfræðinginn, pró-
fessor Pan Wenshi, og á endanum
fundu þau sex mánaða gamla
pöndu sem Noah nefndi „Faith“
eða von á íslensku. „Þegar ég hóf
ferðina hélt ég að pandan ætti sér
ekki viðreisnar von en eftir að ég
hitti vini pöndunnar eins og pró-
fessor Pan þá held ég að hún eigi
einhverja möguleika,“ sagði De-
bra Winger.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR,
KORTASALAN HEFST MÁNUDAGINN
18. ÁGÚST
Stóra svið kl. 20.00:
HIÐ LJÚFA LÍF
eftir Benoný Ægisson með tónlist eftir KK og
Jón Ólafsson.
Frumsýning föstudaginn 29. ágúst.
Höfuðpaurar sýna:
HÁROGHITT
eftir Paul Portner
Lau. 16/8, örfá sæti laus,
lau. 23/8, uppselt,
sun. 24/8, örfá sæti laus,
lau. 30/8, sun. 31/8.
Stóra svið kl. 14.30:
Ljóðatónleikar Gerðubergs:
ÍSLENZKA EINSÖNGSLAGIÐ
Flytjendur: Björn Jónsson, Gunnar Guð-
bjömsson, Elsa Waage, Finnur Bjamason,
Hanna Dóra Sturludóttir, Ingveldur Ýr Jóns-
dóttir, Judith Gans, Þóra Einarsdóttir og
Jónas Ingimundarson
laugardaginn 16/8 kl. 14.30.
Miðasalan er opin daglega frá kl. 13.00 til
18.00 og fram að sýningu sýningardaga.
Símapantanir vlrka daga frá kl. 10.00.
GREIÐSLUKORTA|>JÓNUSTA.
Sími 568 8000 — Fax 568 0385.
BORGARLEIKHÚSIÐ
ag. uppsel
Lau. 23. ág. uppselt
Sun. 24. ág. uppselt
Lau. 30. ág. örfá sæti laus
Sun. 31. ág. örfá sæti laus
„Snilldarlegir kómískir tajrtæ
leikaranna ...„Þau vom
satt að segia morðfyndin„.“
(SADV)
\ sýningar hefjast kl. 20
Miðasala opin 13-18
ALLTAF FYRIR OG EFTIR LEIKHÚS KRINGLUKRÁIN
1 ( MAT EÐA DRYKK É LIFANDI TÓNLIST ÖLL KVÖLD - á góðri stund 1
„Sumarsmellurinn 1997^
„Uppsetningin... ervillt á
agaðan hátt, kraftmikil og
hröð og maður veit aldrei
á hverju er von næst". DV
„...bráðfyndin...“ Mbl
_ iýn-
Lau. 16. agust örfá sæti laus
Fös. 22. ágúst miðnæturs. (kl.( 231,
Sýningar hefjast kl. 20 ivTarkMedöff
Baltasar Kormakur • Margret Vilhjalmsdóttir
Benedikt Erlingsson • Kjartan Guðjónsson
Leikstjóri: Magnús Geir Þórðarson
Miðasölusími
552 3000