Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 211. TBL. 85. ÁRG. FIMMTUDAGUR18. SEPTEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Liturinn afhjúpar sálarlífíð London. The Daily Telegraph. ÞEIR sem kaupa bláa bfla eru oft hugmyndasnauðir, þeir sem velja silfurgráa bfla montnir og þeir sem aka á bflum í fólum lit- um eru að öllum líkindum á leið til sálfræðings, samkvæmt nýrri rannsókn breskra sálfræðinga. Sálfræðingarnir könnuðu lita- val rúmlega þúsund ökumanna og komust að þeirri niðurstöðu að litur bflanna gæfi mun skýr- ari mynd af persónuleika manna en fata- eða íbúðaval þeirra. Eigendur bíla í fölum litum, svo sem ljósbrúnna eða dauf- blárra, reyndust til að mynda líklegri til að eiga við þungljmdi að stríða en þeir sem velja aðra jiti. Fimmtungur þeirra viður- kenndi að hafa fengið „þung- lyndisköst" síðustu þrjú árin, en aðeins einn af hverjum 25 þeirra sem eiga græna eða rauða bfla og einn af hverjum 40 þeiiTa sem velja svarta, bláa eða silfur- gráa bfla. Sálfræðingarnir segja að þeir sem velja svarta bfla séu yfir- leitt metnaðargjarnir og þeir sem eiga græna bíla íhaldssam- ir. Eigendur rauðra bfla séu hins vegar yfirleitt félagslyndir og hvatvísir. Tugir ríkja fallast á drög að sáttmála um jarðsprengjur Reuter Tólf manns farast Norður-írskir sambandssinnar gefa eftir í þyrluslysi í Bosníu TÓLF manns fórust þegar þyrla flaug á ija.ll í miðhluta Bosníu í gær. Þyrlan var á leið með hátt- setta embættismenn á vegum Sam- einuðu þjóðanna og fleiri alþjóða- samtaka til fundar við yfirvöld í bænum Bugojno. Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýskalands, sagði að fimm Þjóð- verjar, fimm Bandaríkjamenn, Breti og Pólverji hefðu farist. Áhöfn þyrlunnar, fjórir tíkraínu- menn, hefði komist lífs af. Vestrænir embættismenn sögðu að háttsettur þýskur stjórnarer- indreki, Gerd Wagner, hefði verið á meðal þeirra sem fórust. Wagner hefur starfað sem aðstoðarmaður Carlos Westendorps, fulltrúa Sam- einuðu þjóðanna í Bosníu, og gegndi veigamiklu hlutverki í frið- arumleitunum í landinu. Kinkel sagði að þyrlan hefði lent í mikilli þoku og flogið á fjallið um leið og hún hefði komist út úr þokubakkanum. Á myndinni er verið að flytja einn tíkraínumannanna á sjúkra- hús. Vilja taka þátt í viðræðunum Belfast. Reuter. FLOKKAR norður-írskra sam- bandssinna sendu í gær fulltrúa sína til viðræðna við breska emb- ættismenn í Belfast til að gagnrýna Sinn Fein, stjórnmálaflokk Irska lýðveldishersins (IRA). Sambands- sinnamir ræddu ekki við fulltrúa Sinn Fein en sögðust ætla að taka þátt í friðarviðræðunum í Belfast til að tryggja að ekki yrði gengið að kröfum lýðveldissinna, se_m vilja að Norður-Irland sameinist Irlandi. Sambandssinnarnir höfðu neitað að mæta á fundarstaðinn í tvo daga og bresk og írsk stjórnvöld sögðu tilslökun þeirra mikilvægan áfanga í tilraunum til að koma friðarviðræð- unum á skrið. „Fasistaeðlið“ afhjúpað David Trimble, leiðtogi Sam- bandssinnaflokks Ulster (UUP), stærsta flokks sambandssinna, sagði að sendinefnd sín hefði farið í Stormont-kastala, þar sem friðar- viðræðurnar fara fram, til að ræða við breska embættismenn. „Við er- um ekki hér til að semja við þá [for- ystumenn Sinn Fein] heldur til að veita þeim mótstöðu, afhjúpa fas- istaeðli þeirra," sagði Trimble. „Við höfum ekki boðið þeim að samn- ingaborðinu. En við hræðumst þá ekki. Við rennum ekki af hólmi.“ Áður hafði Trimble krafist þess að Sinn Fein yrði meinað að taka þátt í friðarviðræðunum vegna sprengjutilræðis í lögreglustöð á Norður-írlandi í fyrradag. Trimble sagði þó í gær að UUP myndi taka þátt í friðarviðræðunum til að tryggja að Norður-írland yrði áfram hluti af Bretlandi. „Meðan sambandssinnar sitja við samninga- borðið verður Irland ekki samein- að,“ sagði hann. Reuter DAVID Trimble, leiðtogi Sambandssinnaflokks Ulster, ræðir við fréttamenn fyrir utan Stormont-kastala í Belfast. Clinton neitar að undirrita bannið Reuter STUÐNINGSMENN tillögu um að stofnað verði þing í Wales hvetja ökumenn í Cardiff til að samþykkja hana í þjóðaratkvæðinu í dag. Walesbúar kjósa um eigið þing London. Reuter. BRESKA stjórnin skoraði í gær á Walesbúa að samþykkja tillöguna um eigið þing en gengið yerður til atkvæða um hana í dag. Áhuginn á auknu sjálfræði er miklu minni í Wales en í Skotlandi en skoðana- kannanir benda þó til, að það verði samþykkt. John Preseott, aðstoðarforsætis- ráðherra Bretlands, sagði í Newport í Suður-Wales í gær, að velskt þing myndi koma landsmönnum að gagni í mennta-, heilbrigðis-, húsnæðis- og atvinnumálum auk þess sem það væri liður í að færa breska stjórn- skipan til nútímalegs hoi-fs. Atkvæðagreiðslan er í samræmi við þá stefnu Verkamannaflokksins að færa aukið vald út í héruðin. Felld fyrir 18 árum I Wales talar aðeins fimmtungur landsmanna velsku og áhugi hinna 80% á eigin þingi er ekki mikill. Sams konar tillaga var raunar felld með þremur fjórðu atkvæða fyrir 18 árum en í skoðanakönnun um síð- ustu helgi kom fram, að 37% eru hlynnt eigin þingi en 29% andvíg. Þriðjungurinn var óákveðinn. ■ Tveir menningarheimar/18 Washington. Reuter. BILL Clinton, forseti Bandaríkj- anna, tilkynnti í gær að þarlend stjórnvöld myndu ekki undirrita sáttmála um bann við notkun á jarðsprengjum. Gerði forsetinn grein fyi'ir öðrum skrefum sem Bandaríkjastjórn teldi rétt að taka til að draga úr þeim skaða sem sprengjurnar valda. Hann gaf enn- fremur varnarmálaráðuneytinu fyr- irmæli um að þróa vopn sem geri jarðsprengjur úreltar fyrir árið 2006. Bandaríkjastjórn telur mjög mið- ur að ekki skyldi nást samkomulag um drög að sáttmála um bann við notkun jarðsprengna, sem Banda- ríkin geta verið aðilar að, að því er Mike McCurry, fréttafulltrúi Bandaríkjastjórnar, sagði í gær. Tugir ríkja lýstu í gær yfir stuðn- ingi við sáttmáladrögin á ráðstefnu sem stendur í Ósló, en áætlað er að sáttmálinn sjálfur verði undirritað- ur í Ottawa í Kanada í desember. McCurry sagði á blaðamannafundi að Bandaríkin teldu eigi að síður rétt að vinna að útrýmingu jarð- sprengna í heiminum. Vill tryggja öryggi hermanna Bandaríkjamenn vildu að sátt- málinn heimilaði þeim að halda þeim sprengjum sem þeir hafa í Kóreu í allt að níu ár, og undanþága yrði gerð vegna sprengna sem eru þannig búnar að þær aftengjast nokkrum dögum eftir að þeim er komið fyrir í jörð. Clinton sagðist telja að Kóreuskilmálinn væri nauð- synlegur til þess að vernda banda- ríska hermenn við skyldustörf þar. Sagðist forsetinn ekki vilja auka hættuna sem þeir væru í. „Sem æðsti yfirmaður hersins mun ég ekki senda hermenn okkar til að verja frelsi okkar og annarra án þess að gera allt sem ég get til að tryggja að öryggi þeirra verði eins mikið og mögulegt er,“ sagði forset- inn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.