Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 25 LISTIR Sársauki ástar og dulmagn bernsku MÖRG íslensk skáldverk koma út hjá Forlaginu fyrir jólin. Flest eru eftir kunna höfunda. Eftir Sigurð Pálsson kemur út ný ljóðabók: Ljóðlínuspil. Alveg nóg er skáldsaga eftir Þórunni Valdimars- dóttur. Þetta er að sögn hispurslaus saga um unga nútímakonu sem brýt- ur af sér gömul boð og bönn og kýs frelsið, ástar- og spennusaga. Rúnar Helgi Vignisson sendir frá sér skáld- söguna Astfóstur. Síðasta ljóðabók Sigfúsar heitins Daðasonar nefnist Og hugleiða steina. Hann var langt kominn með að ganga frá bókinni þegar hann féll frá. Þorsteinn Þorsteinsson gengur endanlega frá_ bókinni til prentunar. Arngunnur Ýr Gylfadótt- ir gerir teikningar. Enn fremur kem- ur út geisladiskur með flutningi Sig- fúsar á eigin ljóðum. Upptökurnar eru úr fórum Ríkisútvarps-Sjón- varps. Ulfabros er fyrsta ljóðabók Önnu Valdimarsdóttur sálfræðings. Ljóðin lýsa reynslu konu vegna svika í ást- um, vonbrigðum, reiði og djúpstæð- um sársauka en ekki síður baráttu, sátt og loks sigurgöngu nýrrar ást- ar. Dagbók Ertu er fyrsta prósaverk Diddu en Forlagið hefur áður gefið út eftir hana ljóðabókina Lastafans og lausar skrúfur. Systkinin Sigrún og Þórarinn Eld- járn eru höfundar barnaljóðabókar- innar Halastjörnu. Aðrar barnabæk- Sigfús Guðbergur Daðason Bergsson ur Forlagsins eru Kynlegur kvistur á grænni grein eftir Sigrúnu Eld- járn, Skessan eftir Guðrúnu Hannes- dóttur og Bréfið til Jóa eftir Rögn- vald Finnbogason og Tryggva Ólafs- son. Faðir og móðir og duimagn berns- kunnar nefnast bernskuminningar Guðbergs Bergssonar færðar í skáldskaparbúning. Bernskan er séð með augum fullorðins manns sem reynir að sjá sjálfan sig gegnum foreldrana og umhverfið. Leikföng ieiðans eftir Guðberg koma út í end- urskoðaðri kilju. Páll Pálsson ritar Minningar Kristins Hallssonar og út kemur rit- gerðasafn eftir Svövu Jakobsdóttur. Kristján Gíslason er höfundur bókarinnar Ofurlaxar og aðrir minni sem er bók um veiðiskap. Bókin ís- lenskir hvalir verður gefin út á ís- lensku, ensku og þýsku. Fimm barnaleikrit í Mögnleikhúsinu MÖGULEIKHÚSIÐ, barnaleikhús við Hlemm, er nú að hefja áttunda leikár sitt. Á verkefnaskrá vetrar- ins verða að þessu sinni fimm barnaleikrit, auk heimsókna er- lendra leikhópa og fleiri viðburða. Leikárið hefst á því _ að farið verður með leikritið „Ástarsaga úr fjöllunum“ í leikferð um Vest- firði. Leikritið er byggt á sam- nefndri sögu Guðrúnar Helgadótt- ur ög hefur verið sýnt í leikskólum og grunnskólum víða um land í rúm tvö ár. Mun fjöldi sýninga nú vera farinn að nálgast 150. Síðar í mánuðinum verður farið í leikferð um landið með leikritið „Einstök uppgötvun eða Búkolla í nýjum búningi". Leikritið var frumsýnt á síðasta leikári og var að miklu leyti unnið í spunavinnu leikhópsins. Þar er sagan um Bú- kollu skoðuð í nokkuð nýju ljósi. Báðar þessar sýningar verða sýndar áfram í leikskólum og grunnskólum í vetur. I byijun október er von á danska barnaleikhúsinu Det lille turnéteat- er í heimsókn með sýninguna „Od- ysseus“ eða „Ódysseifur". Þar er sagan um ferðir Ódysseifs flutt á frumlegan hátt af einum leikara og einum tónlistarmanni. í tengslum við heimsókn Det lille turnéteater verður haldið barna- leikhúshátíð í Möguleikhúsinu dag- ana 4.-5. október, þar sem saman verða komnar nokkrar þeirra leik- sýninga fyrir börn og unglinga sem í boði eru hjá leikhópum um þessar mundir. í lok hátíðarinnar verður haldið málþing um menningarstarf fyrir börn. í október hefjast að nýju sýning- ar á „Snillingum í Snotraskógi" eftir Björgvin E. Björgvinsson, sem sýnt var við miklar vinsældir í vor. Það er ævintýraleikrit með söngvum, sem segir frá kynnum skógarmýslu og íkornastráks í Snotraskógi. í nóvember er von á norska leik- hópnum Tripicchio, Underland og co. með sýninguna „K.M.K.K." eða „Kluss með klær og klesklyper". EINAR Áskell verður í Mögu- leikhúsinu eftir áramót. Þess má geta að leikhópurinn heimsótti Möguleikhúsið fyrir tveimur árum með sýninguna „Með bakpoka og banana", en í þessari nýju sýningu er fjallað um sömu persónur og í þeirri fyrri í nýjum ævintýrum. Undanfarin ár hefur skapast fyrir því föst hefð hjá Möguleikhús- inu að sýna sérstakar jólasýningar í desember. Jólaleikritið „Hvar er Stekkjarstaur?" verður sýnt í des- ernber, en það var frumsýnt fyrir jólin í fyrra og sýnt rúmlega fjöru- tíu sinnum. í janúar frumsýnir Möguleik- húsið leikgerð eftir hinum kunnu sögum sænska höfundarins Gun- illu Bergström um Einar Áskel. Sýningin hefur hlotið nafnið „Góð- an dag, Einar Áskell!" og er byggð á bókunum „Flýttu þér Einar Áskell", „Sveiattan Einar Áskell“ og „Góða nótt, Einar Áskell". Leik- gerðina gerði Pétur Eggerz í sam- ráði við höfundinn. Happafengur Veiöimannsins Ef þú verslar hjá Veiðimanninum færðu afhentan númeraðan happadrættismiða, merkir þér miðann og skilur eftir í lukkupotti í versluninni. Dregið er úr miöunum hálfsmánaöarlega um glæsilega vinninga. Laugardaginn 20. september kl.l 7, verða dregnar út vandaðar vöölur frá Ocean. Vinningshafi þann 6. september var Hrafnhildur Stefáns- dóttir og fékk hún afhenta ABU- Garcia veiðistöng frá Veiðimanninum. I Laugardaga frá 9-17 ^^llir^iöskiptavinfrVeiöimannsin^et^eki^át^^Iappafen^ Veiðimaðurinn hf. Hafnarstræti 5, sími 551*6760 Mb HJALPAR MEÐ HVERJUM BITA 3My!lan leggur kr. ainverju Heimilisbrauði í til hjálparstarfs. -k.l <SuT hjalparstofnun \Q£'J KIRKJUNNAR Þeöar þú kaupir Heimilisbrauð renna 3 Kf. af andvirði þess til að styrkja börn og unglinga til náms í Andhra Pradesh héraði á Indlandi. Nú er auðvelt að vera með - saman lyftum við grettistaki. Átakið stendurtil 31. október 1997. Fjárgæsluaðlli er Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis. <SlT hjálparstofnun Vnr/ kirkjunnar lífWJIA AUetT$l»C»f10fAK HKlÍft
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.