Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Átök sljórnarflokkanna um ráðningu fréttastjóra Sjónvarps Framsókn bauð mála- miðlun um flesta um- sækjendur nema Elínu Samstarf ríkisstjómarflokkanna um málefni Ríkisútvarpsins í útvarpsráði virðist í upp- námi vegna ráðningar fréttastjóra Sjón- varpsins. Framsóknarflokkurinn hefur lagst eindregið gegn áformum sjálfstæðismanna um að ráða Elínu Hirst í starfíð. Pétur Gunnarsson kynnti sér málið. TVEIR ráðherrar Framsókn- arflokksins, Finnur Ing- ólfsson og Halldór Ás- grímsson, munu hafa beitt sér gegn ráðningu Elínar Hirst í starf fréttastjóra Sjónvarpsins samkvæmt heimildum blaðsins. Einnig munu framsóknarmenn hafa boðið mála- miðlun um Áma Þórð Jónsson og raunar gefið til kynna að þeir gætu fellt sig við flestalla úr hópi umsækj- endanna sjö aðra en Elínu. Nú telji þeir hins vegar fullreynt að sjálfstæð- ismönnum verði ekki þokað. Gissur Pétursson, fulltrúi Fram- sóknar í ráðinu, staðfésti í samtali við Morgunblaðið að hann hefði ráð- fært sig við þingflokk framsóknar um málefni Ríkisútvarpsins og rætt ráðningu fréttastjórans í víðu sam- hengi við formann þingflokksins. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, formaður Útvarpsráðs fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, vildi ekki ræða um ráðningu fréttastjóra til Sjón- varpsins þegar til hans var leitað í gær. Þórunn Gestsdóttir, annar full- trúi Sjálfstæðisflokksins, kvaðst ekki hafa orðið vör við pólitísk átök um ráðningu fréttastjóra. „Um þetta mál vil ég ekki segja annað en það að mér fínnst að það séu margir vel hæfir einstaklingar meðal umsækjenda," sagði Björn Bjamason menntamálaráðherra. „Lögum samkvæmt ber Útvarpsráði að segja álit sitt á þeim og undan því verður ekki vikist. Síðan er það útvarpsstjóra að veita starfíð." Um það hvort samráðherrar hans í ríkisstjóm hefðu haft samband við hann út af þessu máli sagði Bjöm svo ekki vera. „Þetta mál er náttúru- lega til umræðu manna á meðal en það hefur ekki verið sérstakt sam- band haft við mig út af því af ráð- herram Framsóknarflokksins." Um hvort hann hefði orðið var við and- stöðu framsóknarmanna við ráðningu Elínar Hirst kvaðst hann hafa séð það í blöðum að menn væru að taka afstöðu til einstakra umsækjenda. Gissur Pétursson, sem er varafor- maður Útvarpsráðs, dró ekki dul á í samtali við Morgunblaðið að ráðning fréttastjóra hefði leitt til átaka milli fulltrúa stjómarflokkanna. Aðspurð- ur um afskipti forsvarsmanna og ráðherra framsóknar af málinu sagð- ist Gissur vera valinn ti! setu í ráðinu af þingflokki Framsóknarflokksins sem fulltrúi flokksins í Útvarpsráði og kjörinn af Alþingi. „Ég hef auðvit- að þingflokkinn sem mitt bakland og ber undir hann margvísleg málefni sem lúta að Ríkisútvarpinu og Út- varpsráð er að fást við; skipulagsmál og þar með talið ýmsar mannaráðn- ingar og fleira.“ Um það hvort hann hefði rætt þetta mál við ráðherra flokksins sagðist Gissur ekki hafa verið í beinu sambandi við ráðherra flokksins vegna þessa heidur hafí hann rætt málið við Valgerði Sverrisdóttur, formann þingflokksins, í víðu sam- hengi. Hann var spurður hvort segja mætti að hann ynni þá samkvæmt flokkslínu í Útvarpsráði. Gissur sagði: „Þegar ég starfa í Útvarpsráði starfa ég þar sem fulltrúi Framsóknar- flokksins og það er svo með aila þá sem þama era inni og það er yfírsk- in að segjast vera eitthvað annað að mínu mati. Þetta er pólitísk stjórn og ríkisstofnanir heyra með einum eða öðram hætti undir hið pólitíska vald.“ Varðandi ástæður andstöðu sinnar og framsóknarmanna gegn ráðningu Óskast strax fyrir fjársterka kaupendur Staðgreiðsla — einbýli — sérhæð Höfum sérlega fjársterkan kaupanda að góðri sérhæð, einbýii eða parhúsi í Þingholtum, vesturbæ eða Seltjarnarnesi. Verð- hugmynd 12—18 millj. Nánari upplýsingar veita Bárður eða Þórarinn Einbýli — raðhús — Grafarvogi — Garðabæ Traustur kaupandi óskar eftir góðu raðhúsi eða einbýli í Graf- arvogi, Garðabæ eða Kópavogi. Verðhugmynd 13—20 millj. Sérhæð í austurbænum eða Kópavogi óskast Nánari upplýsingar veita Bárður, Ingólfureða Þórarinn. Vantar 3ja—4ra herb. — vesturbæ — miðbæ — austurbæ Höfum trausta kaupendur utan af landi að 3ja—4ra herb. íbúð- um. Kjallari, hæð eða ris. Allt kemur til greina. Sterkar greidslur. Nánari upplýsingar veita Bárður, Ingólfur eða Þór- arinn. Valhöll fasteignasala, sími 588 4477. Elínar Hirst, fyrrverandi fréttastjóra Stöðar 2, sagði Gissur Pétursson málið ekki snúast um andstöðu við Elínu heldur væri hann hlynntur því að menn störfuðu í samræmi við það skipulag sem í gildi væri á frétta- stofu Sjónvarps. „Það er ákveðið skipulag í gildi á fréttastofunni staðfest af útvarps- stjóra um að varafréttastjóri inn- lendra írétta sé staðgengill frétta- stjóra. í ljósi þess að þetta er tíma- bundin ráðning, aðeins til 16 mán- aða, hefði ég talið þetta rökrétt fyrir- komulag. Svo vill til að varafrétta- stjóri innlendra frétta er Helgi H. Jónsson. Það er ekki meginmálið heldur hitt að það er ákveðið kerfí í gangi sem er búið að staðfesta. Mín afstaða er sú að það skipti máli fyrir starfsfólkið sem leggur sína starfs- ævi í það að leggja þessari stofnun gagn þurfí að vera framgangskerfi sem virkar þannig að fólk geti unnið sig upp.“ Gissur sagði að fjölmiðlun á ís- landi hefði gjörbreyst síðustu ár og staða fréttastjóra væri mjög mikil- væg. „Það er undir öllum kringum- stæðum nauðsynlegt að það sé staðið að þeirri ráðningu á þann hátt að í þann stól setjist faglega hæfur stjórn- andi og maður sem þokkaleg sátt er um.“ Gissur Pétursson og Guðrún Helgadóttir, útvarpsráðsfulltrúi Al- þýðubandalags, settu bæði út á það hvemig staðið var að aðdraganda fréttastjóraráðningarinnar. „Meðan Útvarpsráð var í sumarleyfi var nú- verandi fréttastjóra gefíð leyfi í 16 mánuði til annarra starfa innan stofn- unarinnar," sagði Guðrún Helgadótt- ir. „í stað þess að þá tæki við varaf- réttastjóri var staðan auglýst. Það er enginn vafí á að það hefur hindr- að ansi marga í að sækja um þessa stöðu að hún er auglýst til takmark- aðs tíma. Umsóknir urðu því aðeins sjö en það er allt ákaflega hæft fólk og valið því mjög erfítt. Mér fínnst staða fréttastjóra Ríkisútvarps og sjónvarps afskaplega þýðingarmikil. Það ber að vanda það val vel. Þess vegna hefur staðið í mér að átta mig á því hver kosturinn væri bestur. Við fengum afar takmarkaðar upplýs- ingar um umsækjendur og hversu líklegir þeir væru til að stýra frétta- stofunni." Tek ekki þátt í pólitískum hráskinnaleik Guðrún sagði að umsækjendur hefðu ekki einu sinni veríð kallaðir í viðtal hjá stjórnendum stofnunar- innar og því kvaðst hún hafa óskað eftir öðrum fresti á afgreiðslu máls- ins til að umsækjendur gerðu Út- varpsráðinu grein fyrir hugmyndum sínum um stjórn fréttastofu, ,',til þess að ég að minnsta kosti gæti áttað mig á því hver mér fyndist lík- legastur til að gegna þessu starfí. Ég dreg ekki dul á að ég tel ýmissa breytinga þörf á fréttastofu og ég vil gjarnan heyra hvaða hugmyndir menn hafa um það og eftir því mun ég greiða atkvæði. Ég tek ekki þátt í neinum pólitískum hráskinnaleik varðandi fréttastjórastarfíð.“ Guð- rún sagði t.d. að tengsl Elínar Hirst við Sjálfstæðisfiokkinn, ef einhver væru, skiptu sig ekki nokkru máli. Hún vildi ekki svara því að hveijum hún hallaðist fyrr en greinargerðirn- ar lægju fyrir. Guðrún sagði ljóst að málið hefði verið erfitt deilumál innan stjórnar- flokkanna og þar sem ekki hefði tekist að leysa það innan ráðsins hefði þurft að leysa það annars stað- ar og hún teldi það segja sig sjálft að ráðherrar hefðu komið að því máli. „Það þarf ekki 16 ára þing- reynslu til að sjá að það segir sig sjálft,“ sagði hún. TILLAGA Þórdísar Zoega að nýjum húsgögnum í móttökusal Höfða. Þórdís Zoega vinnur samkeppni um hönnun húsgagna í Höfða Nútímaleg hús- gögn og listræn Morgunblaðið/Kristinn INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarsljóri skoðar tillögur Þórdísar Zoega innanhússarkitekts. ÞÓRDÍS Zoéga, húsgagna- og innanhússarkitekt, hefur verið valin til að ljúka hönn- un húsgagna í móttökusal Höfða á fyrstu hæð, en til- laga hennar um hönnun húsgagnanna var valin úr hópi íjögurra tillagna í sam- keppni sem Reykjavíkur- borg efndi til fyrr á þessu ári. í niðurstöðu dómnefndar segir m.a. að í tillögu Þór- dísar sé leitast við að tvinna saman í eina heild, einkenni húsgagna frá því tímabili er Höfði var byggður, og nútímalegar áherslur í hönnun nytjahluta. Þá sé tillagan vel unnin jafnt í hagnýtu sem listrænu tilliti og feli í sér vand- aða lausn á flestum þeim áhersluatr- iðum sem skilgreind voru í verkefna- lýsingu. Reykjavíkurborg auglýsti í maí sl. eftir aðilum til að taka þátt í forvali vegna hugmyndasamkeppni um hönnun húsgagna í móttökusal Höfða, en þetta er í fyrsta sinn sem borgin efnir til slíkrar samkeppni. Sérstök dómnefnd valdi fjóra aðila, úr þeim 12 manna hópi sem sendi inn umsóknir í forvalinu, til að vinna að tillögum að húsgögnum í Höfða. Þeir voru: Erla Sólveig Óskarsdóttir, húsgagna- og iðnhönnuður, Guðrún Margrét Ólafsdóttir og Oddgeir Þórðarson innanhússarkitektar, Kristinn Brynjólfsson innanhúss- arkitekt og Þórdís Zoéga húsgagna- og innanhússarkitekt. Hveijum þátt- takenda voru greidd föst laun kr. 150.000 fyrir tillögugerðina. Kostnaður hönnunar og framleiðslu um 3,5 milljónir í verkefnalýsingu lagði dómnefnd m.a. áherslu á að hin nýju húsgögn féllu vel að aldri og virðuleik húss- ins, hlutföllum rýmisins og þeim húsbúnaði sem fyrir er í húsinu. Fyrrnefndir fjórir keppendur skiluðu inn tillögum 8. september sl. og valdi dómnefndin tillögu Þórdísar Zoéga. Miðað er við að útboðsgögn og teikningar liggi fyrir í lok þessa árs, en áætlað er að húsgögnin verði tekin í notkun á næsta ári. Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður við hönnun og framleiðslu húsgagnanna í móttökusalnum verði á milli 3 og 4 milljónir króna. V erkfalls varsla ástæða uppsagnar HRAÐFRYSTIHÚSIÐ Frosti hf. í Hnífsdal hefur fallist á að greiða starfsmanni hjá fyrirtækinu, Maríu Kristófersdóttur, bætur og máls- kostnað vegna uppsagnar á launalið vinnusamnings hennar um störf við gæðaeftirlit 9. júní sl. Þetta er nið- urstaða í réttarsátt sem náðist milli lögmanna deiluaðila vegna málsins í Félagsdómi sl. þriðjudag. ASI fór með málið fyrir hönd Verkalýðs og sjómannafélags Álft- fírðinga vegna Maríu og stefndi VSÍ fyrir Félagsdóm fýrir hönd Frosta hf. Stefnandi hélt því fram að fyrirtækið hefði gerst brotlegt við ákvæði laga um stéttarfélög og vinnudeilur þegar það sagði Maríu upp launalið vinnusamnings hennar og færði hana til í starfí, þar sem eina ástæða uppsagnarinnar hefði verið sú að eiginmaður Maríu hefði staðið í verkfallsvörslu, m.a. gegn Frosta hf. í verkfalli verkalýðsfélag- anna á Vestfjörðum sl. vor. Ástæðu ekki getið í uppsagnarbréfi í stefnunni kom fram að María hefði verið fastráðin hjá Frosta í yfir 20 ár og í starfi skoðunar- manns í rúmlega tvö ár. Var málsat- vikum svo lýst í stefnu að verk- stjóri hjá Frosta hefði komið að máli við Maríu 9. júní og sagt henni að hún ætti ekki lengur að vera í starfi gæðaeftirlitsmanns í fyrir- tækinu. Ástæðan væri sú að eiginmaður hennar hefði staðið í verkfalls- vörslu. Sama kvöld hefði syni Mar- íu verið falið að afhenda henni upp- sagnarbréf á launalið án þess að ástæðu væri getið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.