Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 27
2 LISTIR
Utgáfa nýrrar barnabókar, Sagan af Músa-mús
Hetjan með litla hjartað
SAGAN af Músa-mús er eftir
Moshe Okon og Sigrúnu Birnu
Birnisdóttur. Myndir gerði Sara
Vilbergsdóttir og útgefandi er Mál
og menning. Bókin hefur verið send
forlögum í ísrael og í Bandaríkjun-
um og í október verður hún kynnt
á bókastefnu í Frankfurt.
Músa-mús er lítill músastrákur
sem bíður einn heima á meðan
mamma hans bregður sér í búðina
eftir osti. Hann sannfærir sjálfan
sig um að hann sé.ekkert hræddur
og að hann geti vel verið einn í
svolitla stund þrátt fyrir stöðuga
ógn af því að kötturinn láti sjá sig.
„í sögunni af Músa-mús er spurt
hvort manni leyfist stundum að
vera hræddur,“ segir Moshe. Hann
kemur frá ísrael og er lögfræðing-
ur með meistaragráðu í afbrota-
fræði en Sigrún Birna er blaðamað-
ur og rithöfundur. „Fyrir nokkrum
árum fjölluðu ísraelskir fjölmiðlar
mikið um hvort það væri við hæfi
að hermenn grétu við útfarir félaga
sinna. Mörgum þótti það ekki sam-
ræmast hetjuímynd hermannsins
að sýna tilfinningar," segir hann.
„Eins og börn í ísrael eru hvött
til að vera hetjur er börnum á Is-
landi sagt að vera stór og dugleg,“
segir Sigrún. „Músa mús bregst
við þessu á þann hátt að hann
viðurkennir ekki ótta sinn. Hann
stendur sig þó ágætlega og ræður
fram úr ýmsum vandamálum."
Myndirnar segja hálfa söguna
Moshe sagði Sigrúnu Birnu frá
hugmynd sinni að sögunni og í sam-
vinnu þeirra þróaðist sagan sem
Músa-mús
Sigrún skrifaði síðan á íslensku. Það
sem m.a. vakti fyrir þeim var að
setja saman sögu þar sem mynd-
skreytingar væru hluti frásagnar-
innar. Textinn lýsir hugsunum Músa
mús á meðan myndirnar skýra frá
raunverulegri atburðarás.
Þegar sagan var fullunnin sendu
þau Sigrún og Moshe hana frá ísra-
el, þar sem þau bjuggu, til íslands
og þar komst textinn í hendur Söru
Vilbergsdóttur, myndlistarmanns
og kennara, sem segir það hafa
verið gamlan draum sinn að mynd-
skreyta barnabækur. Hún segist
oft hafa verið ósátt við vandlega
unnar og ofurraunsæjar myndir í
barnabókum. „Ég er ekki frá því
að ég hafi notið góðs af barnanám-
skeiðum sem ég hef kennt í fjölda
ára og lært af vinnubrögðum barn-
anna,“ segir Sara. „Ég veit líka
hvað örvaði mig til myndsköpunar
sem barn og ákvað því að myndirn-
ar skyldu vera mjög litríkar og
áferð þeirra gróf. Mér finnst oft
vera lögð of mikil áhersla á tækni-
brögð í myndskreytingum bama-
bóka sem gerir það að verkum að
börnin hugsa með sér að svona
geti þau aldrei gert og missi jafn-
vel áhuga á að reyna.“
Músa-mús og Eplasneplar
á hebresku
Höfundarnir hafa ekki enn feng-
ið staðfest að Sagan af Músa-mús
verði gefin út í ísrael en teija allar
líkur á að svo verði. Þau segja að
það séu tugir barnabókaforlaga í
Israel og að þar séu hundruð bama-
bóka gefin út ár hvert. Moshe seg-
ir að söguna megi auðveldlega þýða
á ensku en auk þess sem hebreska
stafrófið sé lesið frá hægri til
vinstri og þar af leiðandi þurfi að
spegla myndunum hafi þau hugsað
sér að gera smávægilegar breyting-
ar á þeim. Þannig verði gönguskóm
pabba músar skipt út fyrir her-
mannaklossa sem leynist undir
hjónarúmi á hverju heimili í ísrael.
„Islenskir feður ganga á fjöll en í
Israel þekkja allir krakkar her-
mannaskóna því feður þeirra gegna
herskyldu í allt að mánuð á ári,“
segir Moshe.
Þau Sigrún og Moshe vinna að
Úrvals-fólks verð
3Q.Q40k[
á mann f tvibýli á hótel Glasgow Thistle og
einn dagur í Edinborg.
Innifalið: Flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli
erlendis, ísTensk fararstjórn og allir skattar
# ÚRVAL-ÚTSÝN
Lágtnúla 4: sírni 569 9300, grœnt tiúmer: 800 6300,
Haftiarfirði: sími 565 2366, Keflavtk: simi 421 1353,
Selfossi: sími 482 1666, Akureyri: simi 462 5000
- og bjá umboðsmönnum um land allt.
Fararstjóri:
Rebekka Kristjánsdóttir
Morgunblaðið/Ásdís
HÖFUNDAR sögunnar af Músa-mús. F.v. Moshe Okon, Sara
Vilbergsdóttir og Sigrún Birna Birnisdóttir.
fleiri verkefnum sem tengja saman
þessa tvo gerólíku menningar-
heima. Moshe segir að þegar þau
hafi flutt til íslands hafi fólk ráð-
lagt sér að lesa íslenskar
barnabækur til að æfa sig í tungu-
málinu. Hann hreifst svo af lestri
á bókinni Eplasneplar eftir Þóreyju
Friðbjörnsdóttur að þau hafa nú
þýtt bókina á hebresku og hún
verður von bráðar gefin út af for-
lagi í ísrael. Moshe segir allt eins
geta farið svo að þau þýði einnig
barnabækur úr hebresku á ís-
lensku. Sjálfur minnist hann ótal
heillandi frásagna úr eigin barn-
æsku sem gaman væri að deila
með íslenskum börnum.
Helena Rubinstein
Gull - sílfur - bronze - rautt - svart
Erto orðin þreytt ó
gómlu litunum þínum?
Langor þíg að prófa ftitthvuð
alveg n/tt og Öðrtmsi?
Kynnum nyja haust-
og vefruríitma
i dag og ó motgun.
Raupaukí fy%ír þegar keypt
er fyrir 3.000 kr. eðo meirtt.
tougavegi 66, $tmt 55J 2170