Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Farþegnm með Sævari
fækkar á milli ára
FARÞEGUM með Hríseyj-
arfeijunni Sævari fækkaði
í sumar miðað við sama
tímabil í fyrra og er
fækkunin mest í ágúst.
Farþegar í ágúst sl. voru
6.629 á móti 7.804 í sama
mánuði í fyrra. Hins vegar
voru farþegar heldur fleiri
í júní og júlí í ár en í fyrra.
Heildaríjöldi farþega tímb-
ilið maí til ágúst í ár var
25.006 en var 25.680 á
sama tímabili í fyrra og
25.801 árið 1995. Árið
1992 var fjöldi farþega yfir
sumarmánuðina um
33.800.
Gunnar Jónsson sveitarstjóri í
Hrísey segir þessa fækkun farþega
mikið áhyggjuefni. „Við höfum
verið að velta þessari þróun fyrir
okkur án þess að menn hafi
ákveðna skýringu á fækkuninni. Á
þessum árum höfum við t.d. verið
að eyða svipuðu fjármagni í aug-
lýsingar og í fyrra kom út auglýs-
ingabæklingur."
Farþegar 10.000 fleiri
árið 1992
Gunnar segir að töluvert sé um
að útlendingar sæki Hrísey heim
en í sumar hafi þeir hópar sem
þangað komu á vegum ferðaskrif-
stofa verið minni en áður. Hann
segir að eftir 10. ágúst detti ferða-
mannastraumurinn niður og eftir
mi7 \ ®
Morgunblaðið/Kristján
ÁRIÐ 1996 var heildarfarþegafjöldi með
Hríseyjarferjunni Sævari um 45.500 en árið
1992 voru farþegar um 10.000 fleiri.
það sé nær eingöngu um að ræða
helgarheimsóknir á veitingastað-
ina sem standi alla jafna fram í
októberbyijun.
í júlí í sumar var haldin fjöl-
skylduhátíð í Hrísey og þá helgi
var fjöldi farþega með Sævari á
milli 1.800 og 1.900 manns, sem
er svipaður farþegafjöldi og allan
febrúarmánuð.
Úttekt gerð á ferðamálunum
Farþegafjöldi Sævars allt árið í
fyrra var 45.530 og svipaður árið
1995. Árið 1992 var heildarfjöldi
farþega 55.574, eða um 10.000
fleiri en í fyrra. Miðað við 300
króna meðalfargjald er því tekj-
utap skipsins um 3 milljónir króna
milli áranna 1992 og 1996.
Hreppurinn hefur fengið
einnar milljónar króna styrk
til að gera úttekt á ferða-
málunum og segir Gunnar
stefnt að því að setjast yfir
þau mál og leita leiða til
að snúa þróuninni við. í
sumar voru haldnar fimm
myndlistarsýningar í fé-
lagsheimilinu Sæborg sem
er nýmæli og segir Gunnar
þær hafa vakið verðskuld-
aða athygli.
Á þessar fimm sýningar
komu um 1.300 gestir, eða
að meðaltali um 260 á
hveija sýningu. Til gamans
má geta að íbúafjöldi í Hrís-
ey er nú um 240. Gunnar segir
stefnt að því að bjóða áfram upp
á sýningar í eyjunni yfir sumartím-
ann.
Endurbygging „Gamla
Syðstabæjar"
Síðastliðinn vetur var félagið
Hákarla-Jörundur stofnað, en til-
gangur þess er að vinna að uppbygg-
ingu „Gamla Syðstabæjar", vera i
forsvari fyrir framkvæmdum og afla
flár til verksins. Endurbætur á hús-
inu, sem er kjallari, hæð og ris, eru
kostnaðarsamar og er verið að leita
leiða til að fjármagna þær. Fram-
kvæmdir eru hafnar en markmiðið
er að húsið verði safnhús og hýsi
muni er tengjast hákarlaveiðisögu á
Eyjafjarðarsvæðinu.
Hundur réðst að saulján ára pilti og beit hann
Varð dauð-
hræddur
ERIK Newman, 17 ára nemi í Verkmenntaskólanum
á Akureyri, varð fyrir heldur óskemmtilegri reynslu
síðasta sunnudag. Hann var ásamt bróður sínum að
viðra hundinn sinn, Toby, í brekku ofan við versiun-
ina Brynju í Innbænum þegar tveir hundar koma
aðvífandi, hundur ogtík. Þeir voru ólarlausir. Hund-
urinn, sem að sögn Eriks er labradorblendingur,
slóst í smá stund við Toby, en þegar hann hafði
bitið hana í lærið og dregið hana til leist Erik ekki
á blikuna.
„Ég reyndi að stía þeim í sundur, en þá skipti
engum togum, hundurinn réðist að mér og beit
mig, fyrst í þumalfingurinn og fór bitið gegnum
nöglina og svo beit hann mig í handlegginn,“ sagði
Erik. „Hann hristi mig til og ég varð dauðhræddur.“
Það var Toby sem kom Erik til bjargar, hún flaug
á hundinn og beit hann í eyrað og hætti hann þá
árás sinni á piltinn.
Toby gat ekki stigið í löppina í tvo daga eftir bit
hundsins og Erik gerir ráð fyrir að sín sár grói á
tveimur til þremur vikum. Erik fór strax á slysa-
deild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri þar sem
hann fékk m.a. viðeigandi sprautur. Á vinstri hand-
Morgunblaðið/Kristján
ERIK Newman með hundinn sinn, Toby, en
pilturinn og hundur hans urðu fyrir árás labrad-
orblendings síðasta sunnudag.
legg hans eru djúp för eftir vígtennur hundsins, sem
ekki var hægt að sauma.
Erik þekkti ekki hundinn sem réðist á hann og
hefur ekki séð hann aftur, en hans hefur verið leit-
að í hverfinu.
Sólir og- svarthol
DR. GUNNLAUGUR Björnsson,
stjarneðlisfræðingur við Háskóla ís-
lands, flytur fyrirlestur næstkom-
andi laugardag, 20. september, kl.
14 í Oddfellowhúsinu. Er hann hluti
af fyrirlestraröð í tilefni af tíu ára
afmæli Háskólans á Akureyri.
í fyrirlestrinum verður fjallað um
nokkrar nýlegar uppgötvanir Hub-
blessjónaukans tengdar myndun sól-
stjarna og sólkerfa.
------» ♦ ♦
Kántrýball og
danskennsla
JÓHANN Örn Ólafsson danskennari
verður á Ráðhúskaffi á Akureyri
næstkomandi laugardagkvöld, 20.
september. Kl. 18 verða kenndir
nýir kántrýdansar og stendur tíminn
í 80 mínútúr og kostar 800 krónur
á mann.
K0RG i5S hljómborö
Akureyri,
sími 462 1415
Laugavegi 163,
símí 552 4515
Stórskemmtilegt heimilishljóðfieri á kr. 99.800.00
Og það er bara eitt afmörgum góðum frá KORG
ÞAU skipa nefnd sem falið er að ljúka endurbótum á gömlu
kirkjunni en vonast er til að verkinu ljúki á næsta ári.
Gamla kirkjan
í Stykkishólmi
endurbyggð
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
GAMLA kirkjan í Stykkishólmi var byggð
árið 1879. Það var Helgi Helgason tón-
skáld sem teiknaði hana.
Stykkishólmi - Gamla
kirkjan í Stykkishólmi
var byggð árið 1879 og
er því nærri 120 ára
gömul. Það var Helgi
Helgason, tónskáld og
húsasmiður, sem teikn-
aði kirkjuna og Jóhann-
es Jónsson, snikkari frá
Reykjavík, tók að sér
að byggja hana. Kirkj-
an stendur við Aðal-
götu, í hjarta bæjarins,
ásamt mörgum gömlum
húsum sem hafa verið
endurbyggð. Kirkjan er
óijúfanlegur hluti þess-
arar húsaþyrpingar og
því hefur verið áhugi
hjá heimamönnum að
varðveita hana. Fyrir
nokkrum árum var haf-
ist handa við að endur-
byggja kirkjuna en það
verk hefur iegið niðri í
nokkur ár.
í síðasta mánuði
skipaði sóknarnefnd
Stykkishólmskirkju
nefnd sem hefur það
verkefni að ljúka endurbyggingu
gömlu kirkjunnar. Nefndina skipa
Rakel Olsen, Dagbjört Höskulds-
dóttir, Ólafur Ólafsson, Bernt Sig-
urðsson, Gunnar Sturluson og Will-
iam Thomas Möller.
Nefndin hefur þegar hafið störf
og föstudaginn 12. september boð-
aði hún til fundar í gömlu kirkjunni
og gerði grein fyrir áformum sínum
um endurbyggingu kirkjunnar. Þar
mætti Hjörleifur Stefánsson arki-
tekt. Hann hefur gert úttekt á
gömlu kirkjunni og gert tillögur um
hvernig haga ber endurbyggingu.
Hann rakti sögu kirkjunnar og lagði
áherslu á listrænt gildi hennar og
mikilvægi í sögu Stykkishólms.
Áætlað er að það kosti um 10 millj-
ónir að ljúka við endurbygginguna.
Búið er lagfæra austur- og suður-
hliðar kirkjunnar.
Nú þarf að laga vestur- og norð-
urhliðarnar og fara yfir glugga.
Kirkjuturninn verður endurbættur
og honum breytt í upphaflega mynd
og kirkjuþakið klætt steinflísum
eins og var. Þá þarf að mála kirkj-
una í hólf og gólf.
Nefndarmenn vonast til að verkið
heíjist nú á haustmánuðum og verði
viðgerð kirkjunnar lokið að utan
fyrir áramót og verkinu öllu á næsta
ári, ef nægilegt fjármagn fæst.
Til að standa straum af þessum
kostnaði mun nefndin fara af stað
og leita eftir fjárframlögum frá
velunnurum í Stykkishólmi og um
allt land. Nú þegar hafa borist veg-
legar peningagjafir til verksins.
Húsnæðisvandi Grunnskóla ísafjarðar
Sex mögnleg’ar
lausnir bomar saman
ísafirði - Á sameiginlegum fundi
fulltrúa bæjarráðs og fræðslu-
nefndar ísafjarðarbæjar, sem hald-
inn var á mánudag, var samþykkt
að leggja til við bæjarstjórn ísa-
fjarðarbæjar að gerður verði sam-
anburður á mögulegum lausnum á
húsnæðisvanda Grunnskóla ísa-
fjarðar þar sem eftirtaldir kostir
verði skoðaðir sérstaklega. Ný-
bygging á Torfnesi, nýbygging á
Wardstúni, nýbygging á Skeiði,
nýbygging á Hauganesi, nýbygg-
ing á núverandi skólalóð með upp-
kaupum nálægra húsa og með end-
urbyggingu eldra húsnæðis við
Sundstræti þ.e. húsnæði Hrað-
frystihúss Norðurtanga.
Fundurinn lagði til að skipaður
verði þriggja manna starfshópur
auk bæjarverkfræðings og skóla-
fulltrúa sem skila eigi skýrslu til
fræðslunefndar og bæjarráðs um
framangreint efni fyrir lok október.