Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 49
ÍDAG
Árnað heilla
Q pT ÁRA afmæli. í dag,
U tJ fimmtudaginn 18.
september, verður níutíu og
fimm ára Gunnar Magnús-
son frá Sæbakka, síðar
Karlsbraut 15, Dalvík.
Hann dvelur nú á Dalbæ,
dvalarheimili aldraðra á
Dalvík.
BRIDS
Umsjón (iuðmunilur l’áll
Arnnrson
HELSTU sveifluvakarnir í
sveitakeppni eru spil sem
liggja á landamærum
slemmu og geimsamninga.
Spil dagsins er af þeim
toga, en það kom upp í
fyrstu lotu bikarúrslitaleiks
Sveins Aðalgeirssonar og
Samvinnuferða/Landsýnar:
Spil 13. Norður gefur;
allir á hættu.
Norður
♦ 3
¥ ÁG94
♦ G74
♦ G8653
Austur
♦ D1076
iii; r
♦ K109
Suður
♦ ÁKG9
V -
♦ KD983
♦ ÁD72
Á báðum borðum opnaði
austur á einu eðlilegu laufi,
sem suður doblaði. Síðan
skildu leiðir. í opna salnum
voru Sveinn Aðalgeirsson
og Guðmundur Halldórsson
í NS, en Karl Sigurhjartar-
son og Þorlákur Jónsson í
AV:
Vestur Norður Austur Suður
Karl Sveinn Þorl. Guðm.
Pass 1 lauf Dobl
1 hjarta Pass 2 hjörtu Dobl
Pass Pass Pass
Karl velur að melda eitt
hjarta við doblinu og eftir
það geta sagnir varla þróast
nema á einn veg. Þorlákur
styður hjartað og Guðmund-
ur doblar aftur úttektir, sem
Sveinn passar niður með svo
öflugan hjartalit. Út kom
spaði og Guðmundur tók þar
þijá slagi og gaf makker svo
stungu. Síðan bættust við
tveir slagir á tromp, einn á
tígul og einn á lauf: 800 í
NS. Sem er ekki alvarlegt
tap fyrir AV í ljósi þess að
geim vinnst auðveldiega á
hendur NS. En slemma
stendur ekki, því vömin fær
alltaf slag á tígulás og einn
á lauf. í lokaða salnum voru
Helgi Jóhannsson og Guð-
mundur Sv. Hermannsson
með spil NS gegn Hermanni
Friðrikssyni og Hlyni Angan-
týssyni:
Vestur Norður Austur Suður
Hlynur Guðm. Hermann Helgi
- Pass 1 lauf Dobl
Pass 1 hjarta Pass 2 tíglar
Pass 3 tígiar Pass 3 spaðar
Pass 3 grönd Pass 4 lauf
Pass 4 hjörtu Pass 4 spaðar
Pass 6 tíglar Allir pass
Hér passar Hlynur opnun-
ardobl suðurs og Helgi og
Guðmundur fá fritt spil. Sex
tíglar fóru auðvitað einn nið-
ur og Bikarmeistaramir
unnu 14 IMPa.
Vestur
♦ 8542
V D10876
♦ 1065
♦ 4
^/\ARA afmæli. I dag,
• \/fimmtudaginn 18.
september, verður sjötugur
Ari F. Guðmundsson,
fyrrverandi starfsmanna-
sljóri Landsbanka Is-
lands, Birkihæð 8,
Garðabæ. Hann er staddur
erlendis um þessar mundir.
Ljósmyndastúdíó Pétur
Pétursson
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 31. maí í Háteigs-
kirkju af sr. Jakobi Hjálm-
arssyni Berglind Marinós-
dóttir og Hörður Filips-
son.
JT /~áÁRA afmæli. Á
O V/morgun, föstudaginn
19. september, verður
fimmtugur Róbert Svav-
arsson, Gónból 5, Njarð-
vík. Af því tilefni mun hann
og kona hans Hafdís Gunn-
laugsdóttir, taka á móti
gestum í Golfskálanum
Leiru á afmælisdaginn frá
kl. 20.
Ljósmyndastúdíó Pétur
Pétursson
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 2. ágúst í Lágafells-
kirkju af sr. írisi Kristjáns-
dóttur Gunnar Ellert
Geirsson og Ingibjörg
Hlínardóttir. Þau era bú-
sett í Danmörku.
Með morgunkaffinu
Gleymum því í augnablik
að ég er markaðssljóri
hér, stjórnarformaður,
stærsti hluthafinn og
tengdasonur stofnanda
fyrirtækisins...
Nú erum við í svörtustu
Afríku.
COSPER
þínum til að fegra þig.
STJORNUSPA
ftlr l'ranccs Drake
MEYJA
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert trúhneigður og
hefurgaman a f að velta
fyrir þér vandamálum
lífsins og tilverunnar.
Hrútur [21. mars - 19. apríl) Atburðarás þér ókunn mun reynast þér mjög hagstæð í vinnunni. Gættu þess þó að ofmetnast ekki. Sinntu vinum þínum í kvöld.
Naut (20. april - 20. maí) Þú ert efins gagnvart sam- starfsmanni þínum en þér er óhætt að treysta honum eins og sjálfum þér. Þá mun starf ykkar heppnast vel.
Tvíburar (21.maí-20.júni) Þér hefur gengið vel varð- andi langtímaáætlun og hlýtur verðskuldað lof yfir- manna þinna.
Krabbi (21. jún! - 22. júlí) Vandasamt verkefni bíður þín í vinnunni en ef þú tek- ur það réttum tökum mun þér vel famast. Notaðu eig- in hæfileika.
Ljón (23.júlí-22. ágúst) Margt gengur þér í haginn í samskiptum við annað fólk. Öll vinátta byggist á því að gefa og þiggja.
Meyja (23. ágúst - 22. september) <t$ Ferðalög gætu reynst þér erfið en ef þú gefur þér nægan tíma þá mun allt ganga þér í vil.
Vog (23. sept. - 22. október) Þú þarft á allri þinni ein- beitingu að halda í starfi þinu. Eitthvað dregst úr hömlu en það mun ekki bitna á frama þínum.
Sporddreki (23. okt. - 21. nóvember) Einhveijir stinga að þér trúnaðarapplýsingum úr starfi sínu. Farðu vel með slíkar upplýsingar og vemd- aðu heimildamenn þína.
Bogmaður (22. nóv. -21. desember) Nú þarftu að taka á honum stóra þínum í vinnunni og sjá skóginn fyrir trjám. Þegar þú hefur náð heildar- sýn, leysast málin af sjálfu sér.
Steingeit (22. des. - 19. janúar) Nú er rétti tíminn til að gæta fengins fjár í stað þess að eyða því. Haltu fyr- irætlunum þínum fyrir sjálfan þig.
Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Þú hefur gaman af að starfa með fólki og átt ekki að setja þig úr neinu tæki- færi á því sviði.
Fiskar (19.febrúar-20. mars) Spennandi fréttir berast þér úr fjarlægð. Það er óþarfi að hlaupa upp til handa og fóta en reyndu að gera þér gott af upplýsingunum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
RANNÍS
Rannsóknaráð íslands
auglýsir styrki úr
eftirfarandi sjóðum:
■ Vísindasjóði er hefur það hlutverk að efla
vísindarannsóknir.
■ Tæknisjóði er hefur það hltuverk að styðja
nýsköpun í íslensku atvinnulífi með því að efla
tækniþekkingu, rannsóknir og þróunarstarf.
■ Bygginga- og tækjasjóði er hefur það hlutverk að
styrkja tækjakaup og uppbyggingu á aðstöðu til
rannsókna í vísindum og tækni.
Umsækjendur geta verið:
■ Vísindamenn og sérfræðingar.
■ Háskólastofnanir og aðrar vísinda- og
rannsóknastofnanir.
■ Fyrirtæki, einstaklingar og samtök er hyggjast vinna
að rannsóknum og nýsköþun.
Veittir eru fimm tegundir styrkja úr
ofangreindum sjóðum sem hér segir:
1. „Verkefnastyrkir“ til fræðilegra og hagnýtra
verkefna. Miðað er við að uþþhæð styrkja geti
numið allt að 5.000 þús. kr.
Umsóknarfrestur er 1. nóvember 1997.
2. „Forverkefna- og kynningarstyrkir".
■ til undirbúnings stærri rannsókna- og
þróunarverkefna, allt að 600 þús. kr.
■ til að fylgja eftir og koma á framfæri niðurstöðu
verkefna sem lokið er.
Umsóknarfrestur er opinn en umsóknir afgreiddar
15. janúar og 15. maí.
■ „Evrópustyrkir" til undirbúnings evrópskra
samstarfsverkefna, allt að 300 þús. kr.
Umsóknarfrestur er opinn.
4. „Starfsstyrkir"
Veittar eru tvær tegundir starfsstyrkja:
„Rannsóknastöðustyrkir“ eru veittir úr Vísindasjóði
til tímabundinna starfa vísindamanna, er nýlega hafa
lokið doktorsprófi eða hlotið samsvarandi menntun
við viðurkennda háskóla. Styrkir eru veittir til allt að
3ja ára við innlenda stofnun og nema launum sér-
fræðings.
Umsóknartrestur er 1 .nóvember 1997.
„Tæknimenn í fyrirtæki" er heiti styrkja sem veittir
eru úr Tæknisjóði til fyrirtækja í þeim tilgangi að ráða
vísinda- og/eða tæknimentnað fólk til starfa. Styrkir
eru veittir til allt að 3ja ára og nema hálfum launa-
kostnaði sérfræðings.
Umsóknarfrestur er 15. janúar 1998.
5. „Bygginga- og tækjakaupastyrkir"
Veittir eru styrkir úr Bygginga- og tækjasjóði til að
styrkja kaup á tækjum og búnaði og byggja upp
aðstöðu til rannsókna fyrir vísinda- og rannsókna-
starfsemi.
Umsóknarfrestur er 15. janúar 1998.
Eyðublöð á tölvudisklingi og leiðbeiningabæklingur
verða tilbúin til afhendingar fimmtudaginn
18. september nk. hjá Rannsóknarráði íslands,
Laugavegi 13, sími 562 1320, fax 552 9814.
Eyðublöðin er einnig hægt að ná í á Internetinu á
heimasfðu RANNÍS. Slóðin er: http://www.rannis.is
Góðir skór á stráka
og stelpur
stærðir 22-36 svartir
verð frá
3.990
smáskór
i bláu húsi viö fákafen sími 568 3919
- kjarni málsins!