Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 43 Úrslitaskákin í kvöld? SKÁKÞING ISLANDS Stig 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 Vinn. Röð: 1 Rúnar Sigurpálsson 2.275 0 0 0 1/2 1 0 0 11/2 10>11 2 Jón Viktor Gunnarsson 2.315 1 1 0 1/2 1 1 1/2 1 5 3.. 3 Jóhann Hjartarson 2.605 1 1 1/2 1 1 1 1 61/ 1.-2. 4 Bragi Þorfinnsson 2.215 1 /2 1/2 1 0 0 0 3 7. 5 Gylfi Þórhallsson 2.330 1/2 0 0 1/2 0 1/2 0 11/2 10.-11 6 Áskell Örn Kárason 2.305 0 0 0 0 0 0 0 0 12. 7 Hannes Hlífar Stefánss. 2.545 1 1 1 1 1 1/2 1 6!4 1.-2. 8 Jón Garðar Viðarsson 2.380 1/2 1 0 1 0 1 1 4!4 4.-5. 9 Þorsteinn Þorsteinsson 2.305 0 1 1 0 0 0 1/2 2!4 8.-9. 10 Þröstur Þórhallsson 2.510 0 1 1/2 1 0 1 1 4!4 4.-5. 11 Arnar Þorsteinsson 2.285 y2 0 1 1 1 1/2 0 4 6. 12 Sævar Bjarnason 2.265 1 0 0 1 0 0 1/2 2!4 8.-9. SKAK Alþýðuhúsiö á Akur- cyri, 9. — 20. scpt. SKÁKÞING ÍSLANDS, LANDSLIÐSFLOKKUR EFSTU menn á mótínu, þeir Jóhann Hjartarson og Hannes Hlífar Stef- ánsson tefla innbyrðis í kvöld. Hann- es hefur hvítt. Skákin hefst kl. 17 í Alþýðuhúsinu við Skipagötu. Það má búast við því að til tíðinda dragi á milli kl. 20 og 21. Það er ólíklegt að nokkur annar keppandi nái að ógna veldi þeirra Jó- hanns og Hannesar. Jón Viktor Gunnars- son hefur staðið sig mjög vel. Hann er aðeins 17 ára gamall og þarf að fá tvo og hálfan vinning úr fjór- um síðustu skákunum til að hreppa sinn fyrsta áfanga að al- þjóðlegum meistara- titli. Hannes Hlífar tefldi af miklu öryggi gegn Rúnari Sigur- pálssyni í sjöundu umferðinni á þriðjudagskvöld. Hann- es tók litla áhættu í skákinni og vann um síðir í endatafli. Gylfí Þórhalls- son, stigahæsti skákmaður Akur- eyringa, tefldi skemmtilega gegn Jóhanni Hjartarsyni og stóð vel að vígi um tíma. En þá fór hann of geyst í sakirnar og Jóhann vann með laglegri fléttu: Hvítt: Gylfi Þórhallsson Svart: Jóhann Hjartarson Sikileyjarvörn e4 - e5 2. Rc3 - Rc6 3. g3 - Bc5 4. Bg2 - d6 5. d3 - Rge7 6. Rge2 - Rd4 7. Be3 - Rec6 8. h3 - Rxe2 9. Rxe2 - Bxe3 10. fxe3 - Be6 11. Dd2 - Re7 12. 0-0-0 - c6 13. Kbl - Dc7 14. d4 - 0-0 15. g4 - b5 16. Rg3 - a5 17. Rf5 - Rc8 18. h4 - Rb6 19. Df2 - a4 20. Bh3 - Rc4 21. g5 - Bxf5 22. exf5 - exd4 23. exd4 - Hfe8 24. f6 - He3 25. Bf5 - a3 26. Bd3 - Hae8 27. Hdel - H3e6 28. Hxe6 - Hxe6 29. Bxc4? Miklu betra var 29. b3! og hvít- ur hefur góða stöðu. Það var einnig hægt að leika því einum leik áður. Næsti leikur fer svo alveg með hvítu stöðuna. 29. - bxc4 30. Hel?? - Db6 31. b3 31. - Dxd4! 32. c3 og hvítur gafst upp. Díonýsus sigrar í sveitakeppni Hellis Díonýsus klúbburinn sigraði í svei- takeppni Hellis, sem haldin var föstu- dagskvöldið 12. september. Sveitin hlaut samtals 25 vinninga í 9 umferð- um. Fyrir Díonýsus tefldu: 1. Magnús Ö. Úlfarsson 4 v. 2. Sigurbjöm Bjömsson 5 'A v. 3. Páll A. Þórarinsson 8 v. 4. Kristján Eðvarðsson 7'A Eins og sjá má er sveitin skipuð sterkum skákmönnum, sem eru nokkuð áþekkir að styrkleika. Það þarf því ekki að koma á óvart að neðri borðin voru drýgst í að tryggja sveitinni efsta sætið. Forskotið á næstu sveit var þó einungis einn vinn- ingur, en annað sætið hreppti Félag íslenskra fræða. Spekingarnir sem skipa þá sveit eru þeir Bragi Hall- dórsson, Jóhannes Gísli Jónsson, Jón Friðjónsson og Bjarni Ólafsson. Hart var barist um þriðja sætið. Þar urðu tvær sveitir jafnar að vinningum: Skákklúbbur Iðnskólans og Áss og co. Árangur Iðnskólamanna þarf ekki að koma á óvart, enda sigraði sveitin í klúbbakeppni Hellis sl. vor. Áss og co. er hins vegar ný sveit skipuð fjór- um systkinum með Helga Áss Grét- arsson stórmeistara í fararbroddi. Þetta er líklega einhver sterkasta systkinasveit heimsins um þessar mundir. Eftir stigaútreikning kom hins vegar í ljós, að Skáksveit Iðn- skólans hafði náð þriðja sætinu með minnsta mun og Áss og co. lentu í fjörða sæti. Röð sveitanna varð þessi: 1. Díonýsus 25 v. af 36 2. Félag íslenskra fræða 24 v. 3. Skákklúbbur Iðnskólans 23 'A v. 4. Áss og Co. 23'A v. 5. Netveijar 22'A v. 6. Skákklúbbur Framtíðarinnar 20 'A v. 7. Stórsveitin 20 v. 8. Smámeistarar 20 v. 9. Verð að fara 20 v. 10. BDTR 19 v. 11. The Grand Rock Club 17 v. 12. Óli H. 16 v. 13. Hani úti á túni 15'A v. 14. Hrókar alls fagnaðar 11 v. 15. Arnarsveitin 10 v. Alls tóku á sjöunda tug skák- manna þátt í keppninni. Tefldar voru 9 umferðir með 7 mínútna umhugs- unartíma. Skákstjóri var Vigfús Ó. Vigfússon. SÍF efst á Firmamóti SH _ Firmamót Skákfélags Hafnar- fjarðar fór nýlega fram í Miðbæ, Hafnarfírði. Úrslit urðu sem hér seg- ir: 1. SlF (Helgi Áss Grétarsson) 7 v. 2. Memphis (Bragi Þorfinnsson) 5 v. 3. VISA ísland (Davið Kjartanss.) 4 'A v. 4. -7. Hagtak (Páll Agnar Þórarinsson), íslandsbanki (Bergsteinn Einarsson), Búnaðarbankinn (Magnús Örn Úlfars- son) og Augnsýn (Björn R. Lárusson) 4 v. 8.-10. Eimskip (Hrannar Baldursson), Filmur og framköllun (Kristján Eðvarðs- son), Bílþrif (Heimir Asgeirsson) 3'A v. Önnur fyrirtæki, sem tóku þátt í keppninni voru: Hvalur hf., Hafn- arfjarðarbær, Sparisjóður Hafnar- flarðar, Verslunarmannafélag Hafn- arfjarðar, Rafveita Hafnarfjarðar, Árni Grétar Finnsson hrl., Lands- banki íslands, Pústþjónusta BJB, Apótek Norðurbæjar, Leikbær/Rit- bær sf., AB-bílar ehf., Róbert S. Magnússon hárskeri, Ragnar Björns- son hf, Bifreiðaverkstæðið Loki hf., Fjölsport sf., íslensk matvæli, Gull- smiðjan, Bedco og Mathiesen hf., Blikksmiðjan Allt blikkverk ehf., Sælgætisgerðin Góa Linda, Bílakjall- arinn, Aðalskoðun hf., Teiknistofa Leifs Blumenstein, Sendibílastöð Hafnarfjarðar, Endurskoðunarstofan sf., Drift sf., Saltkaup og Delta hf. Skákfélag Hafnarfjarðar þakkar þessum aðilum fyrir stuðninginn. Atskákmót Reykjavíkur 1997 Atskákmót Reykjavíkur hefst laugardaginn 20. september og verð- ur framhaldið sunnudaginn 21. september. Taflið hefst kl. 14 báða dagana og tefldar verða níu umferð- ir eftir Monrad kerfi. Umhugsunar- tími er 30 mínútur á skák. Sigur- vegarinn hlýtur nafnbótina „At- skákmeistari Reykjavíkur 1997“ en auk þess verða veitt peningaverð- laun: 12 þús., 7 þús. og 5 þús. Þátt- tökugjald er kr. 1.200 fyrir 16 ára og eldri, en kr. 600 fyrir 15 ára og yngri. Skákmót þetta er haldið til skipt- is af Taflfélagi Reykjavíkur og Tafl- félaginu Helli. í þetta sinn heldur TR mótið og er teflt í félagsheimili TR í Faxafeni 12. Skemmtikvöld frestast Skemmtiklúbbur skákáhuga- manna hafði fyrirhugað að halda skemmtikvöld föstudaginn 19. sept- ember. Af ófyrirséðum ástæðum hefur stjórn klúbbsins ákveðið að fresta skemmtikvöldinu. Ný tíma- setning verður tilkynnt þegar hún liggur fyrir. Margeir Pétursson Daði Örn Jónsson Umboðsmenn: Akweyii, Rodiónoust Akrones, Hljómsýn, Byggingohúsið Blönduós, Kf Húnvetninga Borgornes, Kf Borgfirðinga Búðardolur, Bnar Stefónsson Djúpivogur, K.A.S.K. vöruhús Drongsnes, Kf Steingrhrofjorðor Egilsstaðir, KfHéroðsbúo Eskif|örður, ElisGuðnoson Fóskrúðsfjörður, Viðorsbúð Floteyri, Björgvin Þórðarson Grindavík, Rofborg Grundofjörður, Guðni Hollgrímsson Hofnorfj., Raftækjav. Skúlo Þórss., Rofmætti Hello, Mosfell Hellisondur, Blómsturvellir Hólmovik, Kf Steingrimsf|orðor Húsovík, Kf Þingeyingo Hvommstangi, Kf Vestur- Húnvetningo HvolsvÖllur, KR Rafmognsverkstæði Höfn Hornofirði, K.A.S.K. vöruhús ísof|örður, Póllinn Keflovík, Somkoup, Rodíókjollorinn Neskoupsstoður, Verslunin Vik Ólofsfjörður, Valberg, Rodlóvinnustofon Reyðorfjörður, KfHéroðsbúo Reykjavik, He'imskringlon Kringlunni Souðórkrókur, Kf Skagfirðingo Selfoss, Heimstækni Siglufjórður, Rafbær Vestmonneyjar, Eyjoradíó boriókshöfn, Rós Vopnofjörður, Kf Vopnfirðinga VíkMýrdal, Klokkur Hannes Hlífar Jóhann Stefánsson. Hjartarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.