Morgunblaðið - 18.09.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 13
FRÉTTIR
VEIÐI er fyrir nokkru lokið í vötnum og ársprænum á Arnarvatns-
heiði. Þegar veður hafa verið hagstæð þar efra hafa margir átt
dýrðarstundir við veiðiskapinn eins og Jón Bergsson sem er hér
ásamt konu sinni, Guðrúnu H. Sederholm, með afia þeirra hjóna.
SVFR leigir
Norðurá til 2002
STANGAVEIÐIFÉLAG Reykjavík-
ur verður með Norðurá í Borgar-
firði á leigu til sumarsins 2002, eft-
ir að samkomulag náðist þar að lút-
andi í síðustu viku. Veiðifélag Norð-
urár samþykkti þá tilboð SVFR á
félagsfundi, en SVFR hefur haft ána
á leigu um langt árabil og núgild-
andi leigusamningur hefði runnið
út eftir sumarið 1998.
„Þetta sýnir vilja beggja aðila í
verki og fyrir SVFR var brýnt að
ganga frá þessu því það eru fleiri
aðilar sem telja sig geta selt í ána
og hefðu viljað leigja hana. Við
höfum haft þá reglu að gefa ekki
upp leiguupphæðir, höfum litið á
það sem trúnaðarmál milli SVFR
og landeigenda, en ég get þó sagt
að leiguupphæðin hækkar um 10%.
Það hefur verið þensla á markaðn-
um að undanförnu og ég tel að
Norðurá þoli dálitla hækkun, hún
hefur verið aflahæsta áin síðustu
sumur og er það enn í ár ef aðeins
eru skoðaðar náttúrulegar laxveiði-
ár,“ sagði Friðrik Þ. Stefánsson for-
ínaður SVFR í samtali við blaðið.
Góðar sjóbirtingsgöngur
Rífandi veiði hefur verið í Hörgsá
á Síðu er veður hefur leyft og að
sögn kunnugra er mikill fiskur í
ánni, sérstaklega í hyljum neðarlega
á svæðinu. „Nokkrir félaga minna
voru að koma úr ánni. Þeir áttu tvo
daga og voru líka í Eldvatni á
Brunasandi. Seinni daginn gátu þeir
ekkert veitt vegna veðurs, en veiðin
hjá þeim var 16 fiskar eftir fyrri
daginn. Nær allt stórir birtingar,
en einnig nokkrar bleikjur sem þeir
fengu í Eldvatni. Þar hefur sjóbirt-
ingsveiðin einnig verið að glæðast.
Rúmlega 100 birtingar eru komn-
ir úr Hörgsá og hafa flestir veiðst
síðustu tvær til þijár vikurnar. Þeir
stærstu eru 12-14 punda og menn
hafa séð enn stærri fiska í ánni,“
sagði Jón Marteinsson, einn umsjón-
armanna Hörgsár og Eldvatns í
samtali við blaðið.
%
Viðskiptakort BYKO
er einföld leiö til aö koma
þeim lagfæringum og
breytingum á kortiö sem
þú hefúr veriö aö hugsa um.
Hvort sem þú vilt
staðgreiðsluafslátt eða
komast í reikning þá er þetta kortið
sem kemur þér af stað. Og ef þú hyggur á
stærri framkvæmdir ættir þú að hafa samband
viö Viðskiptaráðgjöf BYKO í síma 515 4000
eöa
ll.in 4000
Þar er alltaf svigrúm til samninga.
Sláðu til því allt sem þú þarft aö gera er aö fylla út
umsókn hjá okkur eöa hringja og Viðskiptakortið er þitt.
habitat
KRINGLUNNI
ú/ ,f >
5 BVKO
\
V
%
O'
*
■Rv
H
í KRINGLUNNI
Þess ber að geta að deila Bret-
lands og Færeyja um landgrunns-
lögsögu innan 200 mílna frá
ströndum landanna er aðskilið mál
frá deilu þeirra um landgrunnsrétt-
indi á Hatton-RockalI-hásléttunni,
utan 200 mílna, en þar gerir ísland
einnig kröfu til landgrunnsréttinda.
Idir í öllum BYKO versiunum, í Byggt og Búiö og í Habitat