Morgunblaðið - 18.09.1997, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 15
Vatnsvörn til að verja
skó vetrarhörkunni
Það er frekar leiðinlegt
að ganga í skóm með
hvítum saltrákum. Guð-
björg R. Guðmunds-
dóttir komst að því að
vatnsvöm er lykilorðið
þegar verja þarf vetr-
arskó fyrir vondu veðri.
„Til að skórnir haidi lagi og útliti
er frumskilyrði að sinna vatnsvörn
reglulega,“ segir Jónína Sigur-
björnsdóttir skósmiður hjá Skó-
vinnustofu Sigurbjörns. „Skórnir
em úðaðir vikulega yfir veturinn eða
jafnvel oftar.“
Hvítu saltrákirnar úr
skónum sjálfum
Hvítar saltrákir sem koma gjarn-
an á skó á veturna segir Jónína að
séu sjaldnast til komnar vegna salts
á götum úti. „Þegar leðrið í skónum
er sútað er það sett í saltpækil. Við
að fá á sig vatn dregst saltið fram
í skónum. Vatnsvömin kemur í veg
fyrir þetta.“
- Hvernig á að þrífa saltið af
skónum sé það á annað borð komið
í ljós?
„Ekki með kaffi og ekki með
vatni. Hvorttveggja kann að skilja
eftir sig bletti. Eina ráðið er að
nota leðursápu. Margir nota kalt
vatn til að þrífa skóna en alla jafna
ætti að forðast slíka aðferð. „Leð-
ursápa er best og það þarf ekki
mikið af henni.“
Heitur áburður smýgur
betur inn í skinnið
Þegar búið er að þvo skóna á að
bera á þá áburð og bursta síðan.
Jónína segist alltaf nota bursta við
að bera á skóna því þannig nuddist
næringin inn í þá. Þá bendir hún á
að best sé að hafa bursta með hross-
hárum til verksins og það á iíka við
burstana sem notaðir em til að
bursta sjálfa skóna með. „Það þarf
að bursta skóna hratt til að áburð-
urinn hitni. Þannig næst fram best-
ur gljái á skóna og næringin nudd-
ast vel inn.“
Leðurfóðraðir skór
æskilegastir
Þegar talið berst að gæðum þess
skótaus sem íslendingar ganga í
segir Jónína þau afar misjöfn. „Það
er hægt að fá mjög vandaða skó
og síðan algjört drasl líka. Oftast
endurspeglast gæðin í verðinu. Sjálf
passa ég alltaf upp á að skórnir
mínir séu úr leðri eða rúskinni og
síðan er mikilvægt upp á vellíðan
að þeir séu leðurfóðraðir. Ef þeir
eru fóðraðir með leðri laga skórnir
sig betur að eigandanum og fólk á
síður á hættu að svitna.“
- Hugsa íslendingar vel um
skóna sína?
„Það er allur gangur á því en þó
held ég að þeir séu fleiri sem hirða
þá vel en ekki. „Það segir líka ýmis-
legt um fólk sem er vel klætt og
snyrtilegt en í óburstuðum skóm,“
segir Jónína. „Hugsi fólk vel um
skóna sína verður það líka fljótt
vart við hvort þeir eru að byrja að
gefa sig. Það er bæði auðveldara
og ódýrara að fara með skó til skó-
smiðs þegar þeir eru að byija að
gefa sig en þegar komið er í óefni.
Að auki endast skór miklu betur sé
hugsað um þá.“
Rúskinnssteinn nauðsynlegur
Þegar Jónína er spurð hvernig halda
eigi rúskinnsskóm fallegum talar
hún um að rúskinnssteinninn sé
málið. „Til eru bæði rúskinnsburstar
og steinar og með því að bursta
Morgunblaðið/Kristinn
JÓNÍNA Sigurbjörnsdóttir skósmiður.
lUlunið
Reima frá
þegar farið er
í skó.
Notið skó-
horn því ef
stigið er á
hælkappann
sjálfan getur
hann brotn-
að.
MUNURINN er mikill og margir
segjast lesa ýmislegt um persónuleik-
ann ef hann er á illa hirtum skóm.
Hvernig á að
bursta leðurskó
1. Séu skórnir óhreinir á ekki
að þrífa þá með köldu vatni
því það getur skilið eftir
bletti. Notið leðursápu við
þrifin.
2. Notið bursta við að nudda
skóáburði inn í leðrið.
3. Burstið skóna með bursta
sem gerður er úr hrosshárum.
Til að fá fram góðan gljáa
þarf áburðurinn að hitna. Það
þarf því að bursta hratt yfir.
4. Munið síðan að vatnsveija
skóna oft yfír vetrartímann.
Þá minnka líkur á að saltrák-
ir komi á þá. Það er útbreidd-
ur misskilningur að saltið sé
af götunum. Leðrið er sútað
í saltpækli áður en skórnir
eru búnir til og ef þeir fá á
sig vatn leitar saltið fram.
5. Notið ekki kaffi við að taka
úr saltbletti. Kaffið skilur oft
eftir sig bletti.
skóna reglulega má halda þeim fal-
legum. Það á við um þessa tegund
skótaus eins og leðurskó að vatns-
vörn er nauðsynleg." Jónína segir
að ef rúskinnsskór séu orðnir snjáð-
ir sé til áburður í úðaformi sem
dragi fram gamla litinn í þeim.
- Hvað með fjallgönguskó og
aðra skó sem notaðir eru til útivist-
ar?
„Þá mæli ég oftast með leðurfeiti
og bendi sérstaklega á minkaolíuna
sem er hentug. Leðurfeiti er ekki
notuð á spariskó því hún gefur ekki
gljáa. Sé hún notuð þarf ekki að
vatnsveija skóna sérstaklega. Leð-
urfeitin vatnsver."
Mörg pör af sömu tegund
- Er algengt að fólk kaupi sér
eins skó ár eftir ár?
„Það er töluvert um það og jafn-
vel nokkur pör í einu en bara í mis-
munandi litum. Það er nú þannig
að margir eru með viðkvæma fætur
og ef þeir lenda á skóm sem henta
nota þeir tækifærið og kaupa nokk-
ur pör.“
Hægt að losna við táfýlu
- Hvað með vandamál eins og illa
lyktandi skó?
„Táfýla er viðkvæmnismál en hún
hefur í raun ekkert með þrifnað að
gera. Gerlar hafa tekið sér bólfestu
í skóm og til er sérstakur úði sem
drepur þessa gerla og gefur ferska
lykt,“ segir Jónína. „í þessu sam-
bandi vil ég benda fólki á að forðast
að lána skóna sína. Þá geta fóta-
sveppir eða gerlar flotið með þegar
skónum er skilað. Ég veit til þess að
á stöðum eins og í keilusölum þar
sem skór eru lánaðir er úði notaður
sem drepur gerlagróður. Auk þess
eru fáanlegar ilmkúlur í skó sem
margir nota í íþróttaskó sem liggja
kannski í tösku milli þess sem þeir
eru notaðir."
Gæruleppar hlýja
Þeir sem eru fótkaldir nota gjam-
an leppa í skó sína og Jónína segir
að hægt sé að fá þá með áli sem
einangrar og einnig með gæru. Sum-
ir nota leppa til að minnka skó eða
til að mýkra sé að ganga á þeim.
- En hvað með val á barnaskóm?
„Það á við um þá eins og aðra
skó, þeir þurfa að passa vel og vera
úr leðri og leðurfóðraðir. Ég bendi
hinsvegar foreldrum á að láta skó
aldrei ganga milli barna þ.e. mikið
notaða gönguskó. Böm ganga mis-
jafnlega til skótau og ef þau eru
látin ganga á skóm sem önnur börn
hafa átt kann það að skemma göngu-
lagið. Það er allt í lagi að láta spari-
skó ganga á milli og skó sem ekki
eru vel til gengnir.“
Gljáburstarnir góðir
- Hvað með sjálfglansefni sem
maður ber bara á og þarf ekki að
bursta?
„Ég hef fengið virkilega slæm til-
felli þar sem næstum ógerningur
hefur verið að þrífa skóna eftir að
slík efni eru notuð. Þetta er eins og
að klína einu málningalaginu yfir
annað. Það er í lagi af og til að
nota slík efni en ekki að staðaldri.
Gljásvampamir sem margir hafa
í töskunni eða bílnum og stijúka
yfír með til að ná af ryki og fá gljáa
em alls ekki slæmir. Þeir gefa meiri
gljáa og skemma ekki skó.“
Sigling og fegurstu
strendur heims.
Kjörval: Yikusigling +
vika á strönd. Engir staðir
komast nær paradís um
hávetur.
Aldrei betri kjör - ný
glæsihótel - allt innifalið
- lækkuð fargjöld.
Frábær kjör í febr. - apríl
(páskar).
mrnrsœ&í ^œlan^f
Bestu staðirnir:
Bangkok - Chiang Mai -
Phuket
Fá sæti eftir!
Á besta árstíma:
Brottf. 15. jan. ’98.
Verð frá kr. 99 þús. með
fararstjórn, 10-22 dagar.
attreisan
mikla
— 5 vikur frá 1. nóv.
— 3 sæti laus
Það besta í Austurlöndum
4. okt., 3 vikur í algjörum sérflokki.
2 forfallasæti iaus, ef pantað er strax.
Austurstræti 17
4. hæð
101 Reykjavlk
sfmi 562 0400
Fax 562 6564
FERÐASKRI