Morgunblaðið - 18.09.1997, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER1997 21
ísraelskir landnemar í Austur-Jerúsalem hvika hvergi
Flokksþing kínverskra kommúnista
Málamiðlun
Israelsstjóm-
ar hafnað
Jerúsalem. Reuter.
STJÓRNVÖLD í ísrael lögðu í gær fram málamiðlun-
artillögu í framhaldi af því að fjórar ísraelskar land-
nemafjölskyldur settust að í tveim húsum í hverfi
Palestínumanna í Austur-Jerúsalem á sunnudags-
kvöld. Bæði palestínskir ráðamenn og landnemamir
höfnuðu tillögunni umsvifalaust.
Moshe Peled, aðstoðarmenntamálaráðherra ísraels,
gerði grein fyrir tillögunni, og sagði að samkvæmt
henni hefði Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra,
sæst á lögmæti hústökunnar og rétt gyðinga til að
setjast að í austurhluta Jerúsalem. Fjölskyldurnar fjór-
ar myndu hins vegar hverfa á brott úr húsunum en
10 ungir menn yrðu þar áfram við Bibiíurannsóknir
og sjá um viðhald húsanna. Þegar viðgerðum á þeim
yrði lokið myndu fjölskyldurnar flytja þangað inn
aftur.
Hústakan sögð brot
á f riðarsamningum
Ahmed Tibi, ráðgjafi Yassers Arafats, forseta
heimastjórnar Palestínumanna, brást ókvæða við til-
lögunum og sagði að allir landnemarnir yrðu að verða
á brott úr húsunum. Arafat sagði að hústakan væri
brot á þeim samningum sem hann hefði gert við ísra-
ela, og að vonandi myndi þessi vandi leysast fljótt
því ella mætti búast við „mjög neikvæðum viðbrögð-
um.“
ísraelar hertóku austurhluta Jerúsalem í sexdaga-
stríðinu 1967 og segja borgina alla og óskipta vera
eilífa höfuðborg ríkis síns. Palestínumenn ætla austur-
hlutanum að verða höfuðstaður sjálfstæðs ríkis síns.
Fyrir réttu ári leyfði Netanyahu að opnun fornra
ganga nærri stað, sem múslímar álíta helgan, í austur-
hlutanum og í kjölfarið fylgdu óeirðir sem kostuðu
61 Palestínumann og 15 Israela lífið.
Reuter
BANDARÍSKI auðjöfurinn Irving Moscowitz,
umkringdur eigin lífvarðasveit, yfirgefur um-
deild hús í hverfi Palestínumanna í Austur-
Jerúsalem í gær.
Landnemarnir, sem settust að í húsunum tveim á
sunnudag, sögðu í gær að málamiðlunartillaga stjórn-
valda væri óásættanleg, og létu engan bilbug á sér
finna.
Bandaríski milljónamæringurinn Irving Moscowitz,
sem segist hafa keypt húsin og leigt fjölskyldunum
þau með löglegum hætti, ræddi við fólkið í um hálfa
klukkustund í gær, en hvarf á braut án þess að ræða
við fréttamenn. Hann sendi hæstarétti Israels beiðni
um að gefin yrði út tímabundin tilskipun sem mein-
aði Netanyahu forsætisráðherra að láta fjarlægja fjöl-
skyldurnar með valdi. Dómstóllinn tekur beiðnina
fyrir í dag.
Hægri hönd Jiangs
Zemins hækkuð í
tign innan flokksins
Peking. Reuter.
FLOKKSÞINGI kínverska komm-
únistaflokksins lýkur í dag. Á með-
al þeirra mála sem afgreidd verða
áður en þinginu lýkur eru kosning-
ar til mið- og framkvæmdastjórnar
flokksins. Búist er við að Zeng
Qinghong, einn helsti aðstoðarmað-
ur Jiang Zemins, verði hækkaður í
tign innan miðstjórnarinnar. í fram-
kvæmdastjórninni sitja sjö valda-
mestu menn fjölmennasta ríkis
heims, en búist er við að nýr borgar-
stjóri Peking, Jia Qinglin, Zhang
Wannian og Chi Hoatian hershöfð-
ingi nái kjöri til setu í henni.
Þingið samþykkti frambjóðenda-
lista til miðstjórnarinnar í gær, auk
frambjóðendalista til nefndar um
rannsóknir á agabrotum. í mið-
stjórninni sitja 189 fulltrúar auk
130 varafulltrúa sem taka sæti
þeirra í forföllum og eru frambjóð-
endur mun fleiri en sætin sem þeir
beijast um. Ekki var gefið upp
hvernig kosningarnar færu fram
en á síðasta flokksþingi var um
leynilegar kosningar að ræða.
Á meðal þeirra sem búist er við
að verði að víkja úr framkvæmda-
stjórninni eru Liu Huaqing hers-
höfðingi og Qiao Shi forseti kín-
verska þingsins en báðir hafa þeir
gagnrýnt Jiang Zemin, forseta og
leiðtoga kínverska kommúnista-
flokksins. Getum hefur hins vegar
verið að því leitt að Qiao Shi muni
taka við forsætisráðherraembætt-
inu af Li Peng á næsta ári, en Li
Peng verður samkvæmt lögum að
segja af sér eftir tvö fímm ára kjör-
tímabil.
Kenningar Dengs Xiaopings
lögfestar
Á dagskrá lokafundarins í dag
er einnig árétting ræðu sem Jiang
Zemin hélt við opnun þingsins fyrir
viku. í ræðunni upphóf hann Deng
Xiaoping, fyrrum leiðtoga Kína, og
kenningar hans sem m.a. miðuðu
að því að draga úr miðstýringu og
koma á efnahagslegum endurbót-
um.
Að loknum umræðum um ræðu
Jiangs Zemins verður gengið til
kosninga um stjórnlagabreytingu
sem miðar að því að gera kenning-
ar Deng Xiaopings að kennisetning-
um flokksins og þar með jafngildar
kenningum Mao Zedong. Þessi
breyting mun síðan auðvelda Jiang
Zemin að réttlæta eigin efnahags-
umbætur.
Á þinginu vakti athygli í gær,
að Raidi, forseti Tíbetþings, sem
er hollt stjómvöldum í Peking,
hældi þeim árangri sem náðst hefði
í baráttunni gegn aðskilnaðarsinn-
um í Tíbet, og sagði kínversk stjórn-
völd tilbúin til viðræðna við hinn
útlæga trúarleiðtoga Tíbetmanna,
Dalai Lama, með því skilyrði að
hann afsalaði sér fyrst öllu tilkalli
til veraldlegra valda.
Hægri mótor missti afl
FRUMATHUGUN á flugrita
norsku Super Puma þyrlunnar
sem fórst í byijun síðustu viku
hefur leitt í ljós að annar tveggja
mótora þyrlunnar hafi orðið afl-
vana 12 sekúndum áður en upp-
tökur flugritans stöðvuðust.
Að sögn norska blaðsins
Aftenposten var það hægri mótor
þyrlunnar sem missti skyndilega
afl.
Fram kemur, að í tilkynningu
frá flugslysarannsóknarnefnd-
inni segi, að ekki sé hægt á
grundvelli frumskoðunar á upp-
lýsingum á flugritanum að stað-
hæfa nokkuð um orsakir hreyfil-
bilunarinnar.
Stöðvaðu tímann næstu
arin
með því að nota
CELLULAR DEFENSE SHIELD
Kynning í dag og á
morgun, föstudag.
10% kynningarafsláttur
og fallegur kaupauki.
H Y G E A
<t n y r t i v ö r u í’ e rj l u n
Laugavegi
Húð þín endurheimtir
æskuljómann á ný -
(oökk sé stórkostlegri virkni
CELLULAR DEFENSE SHIELD
frá
laprairie
SWITZERLAND
heimsboxi
^imavöiiuiWi^Pyraunnar
teikhús Og smvýeikir i séröo^,- • Borg sem bragd er að
■ Afargt að sjá
í*st allt' Wnímlega það
_. ,’rS?emmtíie^rsfeoðunarietðtt
31.410 kr
Hafið sainband við söluskrifstofur
Fluglciða, umboðsmeun, fcrðaskrifstofumar
cða símsöludcild Fluglciða í síma 50 50 100
(svaraö m«ínud. - föstud. ki. 8 -19 og á laugard. kl. 8 -16.)
Vcfur Flugleiða á Intemetinu: www.icclandair.is
Nctfang fyrir almcnnar uppiýsingar: info@icelandair.is
Tnnifalið: flug, gisting og morgunvcrður og flugvallarskattar.
Gildirfrá 1. október.
Jl.TJU Al. á mann í tuibýli
i 3 nætui um helqi á Hotel Hoifolk Touieis.
FLUGLEIÐIR
Traustur tslensktir ferðafélagt
m