Morgunblaðið - 18.09.1997, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 18.09.1997, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 31 Morgunblaðið/Ámi Sæberg i flytur ræðu sína í tilefni af 80 rráðs Islands í gær. að líta á menntun sem mikilvæga fjár- festingu á nýrri öld. Hins vegar væri margt í búskap hins opinbera og vel- ferðarkerfmu sem þyrfti að betrum- bæta. Til að mynda væri samneyslan hátt hlutfall af landsframleiðslu sam- anborið við önnur lönd og velferðar- kerfið þyrfti að endurskipuleggja með það fyrir augum að skapa einstakling- unum betri skilyrði til þess að ráða eigin málum. „í þessum efnum þurfa sveitarfélögin að taka sér tak og stöðva eða draga úr sjálfvirkni félags- legra útgjalda. Núverandi skipan þessara mála er um margt úreit og óhagkvæm, enda var grunnur lagður að henni við allt aðrar aðstæður en menn sjá fyrir á næstu öld.“ Davíð sagði einnig að á síðustu árum hefðum við lagt góðan grund- völl að áframhaldandi sókn til bættra lífskjara á nýrri öld. „Nýting mikil- vægustu auðlindar okkar byggist á aðferð, sem að flestra áliti er talin skila mestri hagkvæmni, þótt auðvit- að sé deilt um fiskveiðistjórnunar- kerfið og til séu góðir menn sem trúa því af einlægni að hægt sé að auka afrakstur sjávarútvegsins með því að leggja á hann nýja skatta í stórum stíl. Við höfum gjörbreytt efnahags- umgerðinni og tryggt stöðugleika. Við höfum þannig reynslu af því að skipulagsbreytingar skila árangri. Þessum breytingum þarf að halda áfram og ég sé einmitt fyrir mér mikilvægar breytingar á á íslenskri efnahags- og þjóðfélagsgerð á næstu árum. Markaðsbúskapur verður efld- ur, menntakerfið bætt og opinber búskapur endur- skipulagður. Staða íslands í alþjóðlegu umhverfi nýrr- ar aldar mun ráðast af verulegu leyti af því hvern- arkerf- rf að skipu- 9ja ig til tekst í þessum efnum.“ Davíð sagði að hið áttræða Versl- unarráð hefði miklu hlutverki að gegna. Auka þyrfti svigrúm fólks og fyrirtækja til þess að sjá málum sínum borgið. „Leikreglur eiga að vera fáar, einfaldar og skýrar - og umfram allt sanngjarnar. Ríkisvaldið á að gefa þeim sem afl hafa og áræði víðtækt svigrúm til athafna, en það má aldrei líða að slíkt svigrúm sé misnotað svo að þeir sem höllum fæti standa um lengri eða skemmri tíma, troðist und- ir. Gamla kjörorðið „íslandi allt“ verð- ur merkingarlítið ef sérhver þegn þess getur ekki heilshugar og af sannfær- ingu tekið undir það.“ Ernir eru af ýmsum sagðir skaðvaldar í æðarvörpum en verulegt tjón er fátítt Stormasöm sambúð ama og æðarbænda Æðarbændur hafa oftsinnis talið sig verða fyrir búsifjum af völdum ama. Einnig eru dæmi þess að bændur telji emi valda að lambadrápi. Öminn er alfriðaður og í saman- tekt Omars Friðrikssonar kemur fram að ríkið hefur aldrei viðurkennt bótaskyldu vegna tjóns af völdum friðaðra dýra. Athuganir sýna þó að verulegt tjón af völdum ama er fátítt. Varpútbrei tjón af þei • Verulegt tjón • Lítið eða óverulegt tjón og meint ÆÐARBÆNDUR og samtök þeirra hafa iðulega á undanförn- um árum kvartað til yfirvalda vegna tjóns af völdum arna í æðarvörpum. Nokkur tilfelli hafa komið upp á þessu ári þar sem æðar- bændur telja að ernir hafi valdið tjóni í varplöndum, skv. upplýsingum Arna Snæbjömssonar, hlunnindaráðunaut- ar Bændasamtaka Islands. I Morgun- blaðinu fyrir skömmu sagðist Guð- mundur Agnar Guðjónsson, bóndi á Harastöðum í Dalasýslu, fara fram á skaðabætur vegna meints tjóns sem hann sagði að ernir hefðu valdið hjá sér. „Æðarbændur hafa löngum kvartað undan þessu og margir þeirra talið sig verða fyrir tjóni og sumir hafa augljóslega orðið fyrir tjóni,“ segir Arni. „Örninn hefur gegnum tíðina gert tilfallandi usla og óskunda hjá æðarbændum hér og þar. Þetta mál er þó flókið vegna þess að annar fuglvargur kemur oft í kjölfarið og vinnur tjón sem hann hefði tæpast getað ef örninn hefði ekki komið fyrst. Á þá að kenna erninum það eða ekki? Um það deila menn. Frá sjónarhóli æðarbænda veldur örninn ekki síður óbeinu tjóni, hann veldur styggð og hrafnar og máfar eiga oft auðveldara með að koma í kjölfarið," segir hann. Erfitt að sýna fram á tjón Örninn er alfriðaður og hefur ríkis- valdið aldrei viðurkennt bótaskyldu vegna tjóns af völdum friðaðra dýra. Magnús Jóhannesson, ráðuneytis- stjóri í umhverfisráðuneytinu, bendir á að mjög erfítt sé að sýna fram á tjón af völdum arna. „Það er grund- vallaratriði í skaðabótarétti að ljóst liggi fyrir hver skaðinn er,“ segir hann. Umræða um skaðsemi arnarins kom upp á Alþingi í maí á seinasta ári. Þar hélt Gísli S. Einarsson Al- þýðuflokki því fram að hér væri um grafalvarlegt mál að ræða fyrir bænd- ur sem ættu að nokkru eða ____ verulegu leyti afkomu sína undir nytjum af æðardúni og í eggverum. Benti þing- maðurinn á að það gæti tekið 20-30 ár að koma æðarvarpi af stað að nýju þar sem það hefði lagst af vegna skaðsemi arnarins. Krafðist hann svara um bótaskyldu ríkisins vegna tjóns af völdum arna. Guðmundur Bjarnason ítrekaði þá afstöðu sem stjórnvöld hafa fylgt, að ekki sé hægt að ætlast til þess að ríkið bæti tjón af völdum dýra sem eru friðuð. Fátítt og staðbundið Árið 1994 skilaði Kristinn H. Skarphéðinsson, líffræðingur á Nátt- úrufræðistofnun íslands, ítarlegri skýrslu um tjón af völdum arnarins í æðarvörpum og voru meginniður- stöður hans þær að þótt ernir hefðu valdið tjóni sem gæti verið tilfinnan- Arnarsetur og arnarpör 1913-1991 Svæði Þekkt arnarsetur 1913 1920 1939 1959 1964 1969 1981 1987 1991 Faxaflói 29 6-7 2-3 2-3 0 0 1 6 7 8 Suðurhl. Breiðafjarðar 23 3-4 2-3 3-4 5 5 5 8-9 9-10 11-12 Norðurhl. Breiðafjarðar 27 10-13 10-13 11-13 11 11-12 12 13-14 13-14 12-13 Vestfirðir 21-23 1-5 1-5 5-6 5 5 4-5 6 7 7 Húnaflói 14 0 0 1 0 0 0 0 0 0 Aðrir landshiutar 37-40 5 1 1 0 0 0 0 0 0 Alls 149-155 25-34 16-25 23-28 21 21-23 22-23 33-35 36-38 38-40 Þriðjungur bænda sagð- ist hafa orðið fyrir tjóni legt fyrir einstaka bændur þá sé veru- legt tjón af völdum arna fátítt og staðbundið. Æðarvarp er nytjað á 200 jörðum í heimkynnum arnarins eða frá Hval- firði og vestur um og norður i Hrúta- fjörð. Könnun Kristins sumarið 1991 leiddi í ljós að rúmlega þriðjungur æðarræktarbænda sem hann talaði við taldi sig hafa orðið fyrir ágangi eða tjóni af völdum arna. Tæpur helmingur taldi tjónið ekki umtals- vert. Bændur á tíu stöðum, aðallega við norðanverðan Breiðafjörð, töldu erni vera viðvarandi vandamál og stundum valda stórtjóni. „Á einum bæ eru ernir taldir hafa valdið stór- tjóni 3-4 sinnum á síðastliðnum 40 árum og dúntekja rýrnað allt að 10-20 kg. í hvert sinn. Aðrir sem tilgreindu umtalsvert tjón undanfarin 25 ár (sjö talsins) töldu sig hafa tapað 1-5 kg af dúni sum ár vegna arna,“ segir í skýrslunni. Þar kemur einnig fram að í tveimur af hvetjum þremur tilfell- um þar sem meintir skaðvaldar voru þekktir, reyndust þeir vera flökkuern- ir. Rifrildisgangur á eyjunum „Örninn hefur verið í næstu eyju við mig um áratuga skeið,“ segir Steinólfur Lárusson, bóndi í Ytri- Fagradal á Skarðsströnd, sem kveðst nokkrum sinnum hafa orðið fyrir óbeinum skaða vegna arnarins. „Hreiðurfuglinn gerir ekki mikinn ________ skaða, það gerir ungfugl- inn, sem er að fljúga yfir og velja sér óðal. Það er rifrildisgangur og læti á eyjunum vegna þess,“ segir Steinólfur. Steinólfur segist hafa fært í tal við fuglaverndunarmenn að reynt yrði að flæma örninn úr varplöndunum upp í kletta, þar sem hann verpti áður en byggð lagðist af í eyjunum. „Þeir taka það ekki í mál. Ég vij alls ekki að þessi fugl útrýmist. Ég hef látið hann í friði og stuðlað að því að hann hefði framgang“ segir Steinólfur. Arnarstofninn hefur staðið í stað í rúman áratug. Samkvæmt talningu í sumar eru nú 38 arnarpör á landinu og vitað er um 31 arnarvarp í vor. Að meðtöldum ungfuglum er áætlað að arnarstofninn telji 130-140 fugla að hausti. Útbreiðslan er nú orðið mest bundin við Vesturland. Við Breiðafjörð hafa haldið til 25 af 38 arnarpörum á íslandi. Lambadráp úr sögunni? í skýrslu Kristins Skarphéðinsson- ar segir að lambadráp arna virðist að mestu vera úr sögunni. Vitnað er til rannsókna Agnars Ingólfssonar árið 1961 á meintu lambadrápi ama. Þær leiddu í ljós að ernir gátu aðeins hafa tekið lítinn hluta þeirra lamba sem þeim var kennt um að hafa drep- ið. „Langflestar fullyrðingar um að ernir hafí tekið lifandi lömb eru byggðar á veikum forsendum," segir f skýrslunni. I skýrslu Kristins er reynt að varpa ljósi á tjón á æðarvörpum af völdum ama og bendir höfundur á að í tveim- ur þriðju æðarvarpa hafí emir annað hvort ekki valdið skaða eða bændur teldu sig ekki hafa ástæðu til að kvarta undan örnum. Þar sem bændur til- greindu á hinn bóginn tjón var það oftast í því fólgið að emir fældu kollur úr varpi og máfar og hrafnar eyði- lögðu egg og dún i kjölfarið. íjöldi hreiðra sem eyðilagðist á þennan hátt skipti sjaldan meira en nokkrum tug- um. „Á undanfömum 20 árum hefur örnum verið kennt um stórtjón í 3-4 æðarvörpum en þar hefur orðið meira en 15% rýmun á dúntekju. Langmesta tjónið virðist hafa orðið á Miðhúsum í Reykhólasveit, mest árið 1983 (um helmingsrýrnun á dúntekju), en einnig talsvert árið 1991. Bændur þar töldu sig hafa tapað 516.000 __________ krónum árið 1991 en dúntöl- ur liggja ekki fyrir,“ segir í skýrslunni. Hvað sem öðm líður virðist ljóst að stofnstærð æðarfuglsins stafar lítil ....... hætta af erninum. Orkuþörf arna svarar til þess, að þeir þurfi að éta hálft kíló af kjöti á dag. í skýrslu Kristins kemur fram að arnarstofn- inn sé áætlaður 130-140 fuglar að hausti og æðarstofninn um 970 þús- und fuglar, þar af eru um 680 þús- und á arnarsvæðunum vestanlands. Em því um 7.200 fuglar á hvern örn á landinu öllu. „Gróflega áætlað éta 135 ernir um 6.400 æðarfugla á hveiju ári eða um 0,65% af æðar- stofninum," segir þar. Hæstiréttur dæmdi bætur 1966 Hæstaréttardómur var kveðinn upp árið 1966 þar sem bónda í Hval- Arnarstofninn hefur staðið í stað undan- farin tíu ár látmm á Breiðafirði vom dæmdar bætur úr ríkissjóði vegna tjóns sem örn olli í æðarvarpi hans. Drap örninn tugi æðarfugla við hreiður vorið 1957 og taldi bóndi að um 1.000 af 3.000- 3.500 hreiðrum hefðu spillst af völd- um arnarins. Fór hann fram á að fá að drepa öminn. Fulltrúi í mennta- málaráðuneytinu synjaði beiðninni en taldi jafnframt að tjónið yrði bætt. Það var hins vegar ekki gert og höfð- aði bóndinn þá mál. Var ríkissjóður sýknaður í héraðsdómi en níu ámm eftir þessa atburði dæmdi Hæstiréttur bóndanum 15 þús. kr. bætur, sem vora um fimmtungur af upphaflegri kröfu hans. Skiptar skoðanir em um fordæmisgildi þessa dóms vegna ^ hugsanlegrar bótaskyldu ríkissjóðs en þetta er eina málið sem dæmt hefur verið í varðandi árekstra arna og æðarbænda, að því er fram kemur í skýrslu Kristins. Kristinn lagði til í skýrslu sinni að ríkisvaldið og æðarbændur tækju upp viðræður um lausnir og komist verði að raun um hvernig bændur vilji að tjón verði metið. Hann er þeirrar skoðunar að ríkið verði að fallast á að ernir geti og hafi valdið tjóni í æðarvörpum sem kunni að vera rétt- lætanlegt að bæta. Hins vegar þurfi æðarbændur að samþykkja að ernir séu hluti af náttúm landsins en ekki aðeins óæskileg aðskotadýr í æðar- vörpum. Lagði hann m.a. til að kann-^ aðir yrðu möguleikar á að koma á fót tryggingarsjóði til að bæta veruleg skakkaföll í æðar- varpi. Þó væri ljóst að margvísleg vandamál fylgdu bótagreiðslum. „Nær öll bótakerfi sem komið hefur verið á fót erlendis til að bæta tjón af völdum villtra dýra hafa verið misnotuð," segir í skýrslunni. I niðurlagi skýrslunnar segir Krist- inn: „Ef ekkert verður aðhafst í mál- unum er líklegt að vandinn muni aukast og gætu bændur þá tekið^ málin í sínar hendur. Það mun hvorki verða arnarstofninum til framdráttar né ímynd æðarbænda meðal almenn- ings, náttúmverndarsamtaka og er- lendra dúnkaupenda. Ekki er mælt með því að leyfa arnardráp, eyði- leggja arnarvarp í grennd við æðar- varp, né reyna að fækka örnum við Breiðafjörð með því að flytja þá í - aðra landshluta.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.