Morgunblaðið - 18.09.1997, Page 51

Morgunblaðið - 18.09.1997, Page 51
morgunblaðið FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1997 51 FÓLK í FRÉTTUM Væntanlegar kvikmyndir í Sambíóin L.A. Confidental - Kevin Spacey ræðir CONTACT - Ellie (Jodie Foster) vill ná sambandi við FATHER’S Day - Billy Crystal og Robin málin við leikstjórann Curtis Hanson. peimverur. Williams grfnast saman. NÚ þegar haustar að er tilvalið að líta á hverju kvikmyndahús borgai-- innar ætla að gleðja bíógesti með fram að jólum. Sambíóin bjóða að vanda upp á fjölbreytt úrval mynda. Síðustu helgi var frumsýnd hjá þeim spennumyndin „Breakdown" með Kurt Russell í aðalhlutverki en næsta mynd á dagskrá er geimdram- að „Contact”. „Contact" er byggð á metsölubók vísindamannsins Carl Sagan og fjallar um fyrstu samskipti mann- kynsins við vitsmunalegar verur frá öðrum hnetti. Óskarsverðlaunahaf- inn Jodie Foster leikur vísinda- manninn Ellie Arroway sem þráir að finna svör við stóru spurningum lífs- ins. Hún vinnur við að hlusta eftir skilaboðum utan úr geimi. Einn dag- inn gerist hið óvænta. Ellie fær skilaboð frá annarri stjörnu, Vega. Hefst nú barátta hennar fyrir því að fá að svara Vegabúum og fara á vit þeirra. „Contact" er leikstýrt af Robert Zemeckis en helstu hlutverk, fyrir utan Foster, eru í höndum Matthew McConaughey, James Woods, John Hurt, Tom SkeiTÍtt, og Angelu Bas- sett. Myndin verður væntanlega frumsýnd hjá Sambíóunum 26. sept- ember. í Iqölfar „Contact" kemur „Con- spiracy Theory“ með Mel Gibson og Júliu Roberts, en báðar þessar myndir eru meðal tíu vinsælustu kvikmynda sumarsins í Bandaríkjun- um. Richai'd Donner leikstýrir þess- ari sögu um leigubílstjóra í New York (Gibson) sem trúir því að sam- særi leynist bak við alla hluti. Á bak við ruglið í honum virðist leynast ein- hver sannleikur og þegar lífi hans er ógnað tekst honum að sannfæra lögfræðing- inn Alice (Roberts) um að hjólpa sér, en hún á líka sín myrku leyndarmál. Spennan heldur áfram því 24. október verður hasarmyndin Air Force One frum- sýnd. Harrison Ford leikur James Mars- hall, forseta Banda- ríkjanna, sem lendir í því að vera rænt um borð í flugvél sinni Air Force One. Höfuð- paur hryðjuverka- mannanna er leikinn af Gary Oldman, Glenn Close fer með hlutverk varaforset- ans, og eiginkona Marshall er leikin af Wendy Crewson. Leikstjóri er Wolfgang Peterson en hann á að baki myndir eins og „Das Boot“, „In the Line of Fire“, og „Outbreak". í byrjun nóvember kemur síðan sakamálamyndin „L.A. Confidential". Myndin gerist á sjötta ái'atugnum í Los Ang- eles. Glamúr, spilling, metnaður, og ástriður fléttast saman þegai- þrír lögreglumenn heQa rannsókn á dul- arfullu fjöldamorði. Kevin Spacey, Guy Pearce, og Russell Crowe takast í við per- sónur lögreglumann- anna, en í öðrum stór- um hlutverkum eru Danny DeVito, Kim Basinger, og David Strathairn. „L.A. Con- fidential“ er leikstýrt af Curtis Hanson en myndin er byggð á skáldsögu James Ellroy. Gamanmyndin „Father’s Day“ með þeim Robin Williams og Billy Crystal kemur síðan í Sambíóin 14. nóvember. Peir félagar lenda saman í ævintýralegri ferð þegar þeir reyna að hjálpa vandræðaunglingi sem báðir telja sig hafa feðrað. Ivan Reit- man („Ghostbusters“, ,,Twins“) leik- stýrir hamaganginum. I nóvember er einnig væntanleg gamanmyndin „For Rosanna” með Jean Reno og Mercedes Ruehl. Myndin gerist á Ítalíu og fjallar um hjónin Roseanne og Marcello. Hún er hjartveik og á bara eina ósk, að vera grafin við hlið dóttur sinnar en kirkjugarðurinn er óðum að fyllast og spurning hvort hún fái hinstu ósk sína uppfýllta. Leikstjóri er Paul Weiland en hann hefur m.a. stýrt „City Slickers 2“ og unnið með Row- an Atkinson sjónvarpsþætti um „Mr. Bean“. í lok nóvember verða tryllirinn „Fire Down Below“ og nýjasta Disn- ey teiknimyndin „Hercules" frum- sýndar. Bardagasfjaman Steven Segal ber hitann og þungann af „Fire Down Below“. Hann leikur umhverf- isverndarsinnann Jack Taggart sem við upphaf myndarinnar hefur bara eitt i huga, að hefna dauða náins starfsfélaga. Mai’g Helgenberg, Harry Dean Stanton, Stephen Lang, og Kris Kristofferson fylla upp í hlut- verkagalleríið í myndinni en leikstjóri er Felix Enriquez Alcala. Aðdáendur Disney-teiknimynda geta síðan glaðst fyrir jólin þegai- „Hercules" birtist á hvíta tjaldinu. Söngur, grín, og gleði einkenna þess frásögn af grísku goðsagnahetjunni Herkúles. Bíógestir geta einnig hlegið með frumskógarmanninum George um jólin í „George of the Jungle” en spennufíklar fá sinn skammt hjá sjálfum 007 en „Tomor- row Never Dies“ verður væntanlega frumsýnd 26. desember. Herkúles og James Bond mæta til leiks CONSPIRACY Theory - Julia Roberts veit ekki hvort hún á að trúa frá- sögnum Mel Gibson. Björk fer í taug- arnar á Callagher NOEL Callagher, annar bræðranna úr bresku sveitinni Oasis, hefur ekkert mildast við vel- gengnina. Engin plata hefur selst hraðar í Bret- landi en nýjasta breið- skífa Oasis „Be Here Now“. Engu að síður gefur hann sér tíma til að láta aðrar rokkstjörnur fá það óþvegið. Hann lýsti nýlega áliti sínu á rokkhótíðum: „Við viljum helst ekki spila í ferðafjölleikahúsi á borð við Lollapalooza vegna þess að hálfvitar á borð við Courtney Love fylgja alltaf með í pakkanum.” Aðspurður um Alanis Morissette sagði hann: „Það þarf að flengja hana duglega. Hún fer í taugarnar á mér eins og Björk og Sinéad O’Connor." Fyrsta smáskífan af „Be Here Now“ var með laginu „D’You Know BRÆÐURNIR Noel og Liam Callagher í farabroddi bresku sveitarinnar Oasis. What I Mean“. Hún kom út í júlí og ,er þegar orðin söluhæsta smáskífa Oasis frá upphafi. Næst kemur lagið „Stand By Me“ út á smáskífu með þremur nýjum lögum. Útgáfudagur- inn verður 22. september. „Stand By Me“ er þegar komið í þriðja sæti X-listans. auca rossi Snyrtivörukynning í dag frá kl. 14-18. Frí kynningarförðun. S P E S HAALEITISBRAUT S 8-60, SÍMI 581 3525 í KVÖLD KL. 20.30 OPNUM VIÐ FORMLEGA NÝTT HÚSNÆÐI í SÍÐUMÚLA 34. VIÐ ÞAÐ TÆKIFÆRI OPNUM VIÐ GLÆSILEGA SÖLUSÝNINGU Á VERKUM ÞORVALDAR SKÚLASONAR. VIÐ OPNUNINA MUN SIGRÚN HJÁLMTÝSDÓTTIR FLYTJA NOKKUR LÖG VIÐ UNDIRLEIK ÖNNU GUÐNÝJAR GUÐMUNDSDÓTTUR. VIÐ BJÓÐUM VIÐSKIPTAVINI OG VELUNNARA OKKAR VÉLKOMNA. BORG Siðumúla 34 Barnaljósmyndir • Fermingarmyndir Brúókaupsmyndir • Stúdentamyndir PÉTUR PÉTURSSON LIÓSMYNDASTÚDlÓ Laugavcgi 24 101 Reykjavik Sími 552 0624 Sekkja- trillur Góð vara, -ótrúlegt verð Aðeins kr. 7.617.- með vsk. SUNDABOfíG 1. fíVK • SlMI 668 3300 • FAX 568 3305 | á Fimmtudagur 18. sept. Kl. 17.00 Síðdegisdjass á Jómfrúnni við Lækjargötu: Djassklúbbur RúRek: Kvartet Ómars Axelssonar. Ókeypis aðgangur. Kl. 21:00 Afmælishátið Árna ísleifssonar i Súlnasat Hótel Sögu. Miðasala í Japís Brautarholti og við innganginn Kt. 22:00 RúRek á miónætti: Spuni i tali og tónum á Jómfrúnni við Lækjargötu. Ókeypis aðgangur. Miðapantanir i sima 551 0100. Námufélagar Landsbankans fá afslátt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.