Morgunblaðið - 19.10.1997, Page 24
*24 B SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dagbók
I't»fg Páskóla
íslands
/*DAGBÓK Háskóla íslands 20. til
25. október. Allt áhugafólk er vel-
komið á fyrirlestra í boði Háskóla
íslands. Dagbókin er uppfærð reglu-
lega á heimasíðu Háskólans:
http://www.hi.is
Mánudagurinn 20. október:
Magnús Jóhannesson verkfræð-
ingur og ráðuneytisstjóri umhverfis-
ráðuneytis fiytur erindi í umhverfis-
málstofu verkfræðideildar kl. 17:00
í stofu 158 í húsi verkfræðideildar
á Hjarðarhaga 2-6 og nefnir hann
erindi sitt: „Sjálfbær þróun“.
Miðvikudagurinn 22. október:
--«• Dr. R.S.J. Sparks, eldfjallafræð-
ingur við háskólann í Bristol í Eng-
landi, sem er hér á landi í boði Sig-
urðarsjóðs, mun halda þrjá fyrir-
lestra á ensku á vegum Jarðfræðafé-
lags íslands. Fyrsti fyrirlesturinn
verður fluttur í stofu 101 í Lögbergi
kl. 20:30 og nefnist: „The Eruption
of the Soufriere Hills Volcano,
Montserrat".
Hilmar Jensson rafgítarleikari
heldur háskólatónleika í Norræna
húsinu kl. 12:30. Verkið sem flutt
verður nefnist: STILLA I-IV. Að-
gangur 400 kr. Ókeypis fyrir hand-
hafa stúdentaskírteinis.
Fimmtudagurinn 23. október:
Prófessor Duncan B. Forrester
heiðursdoktorsefni guðfræðideildar
mun halda gestafyrirlestur kl. 14:00
í hátíðasal Háskólans í aðalbyggingu.
Nefnist fyrirlestur hans: Passion and
Practice in Christian Theology.
Dr. R.S.J. Sparks, eldfjallafræð-
ingur við háskólann í Bristol í Eng-
Iandi, mun halda tvo fyrirlestra í
stofu 101 í Lögbergi kl. 16:00 á
vegum Sigurðarsjóðs og Jarðfræða-
félags íslands. Fyrirlestrarnir nefn-
ast: „The Physical Volcanology and
Evolution of Lascar Volcano, Chile“
og „The Cause and Consequences
of Pressurisation in Lava Dome Er-
uptions".
Gitte Mose lektor í dönsku við
háskólann í Ósló flytur fyrirlestur
sem nefnist: Punkter. Fragmenter.
Minimalistiske tendenser i dansk
90’er litteratur. Fyrirlesturinn verð-
ur haldinn kl. 15:00 í stofu X í Aðal-
byggingu.
Kristján Steinsson læknir og dokt-
orsnemi heldur fyrirlestur í málstofu
læknadeildar í sal Krabbameinsfé-
lags íslands í Skógarhlíð 8 kl. 16:00.
Fyrirlestur sinn nefnir hann: „Rauð-
ir úlfar á íslandi".
Þorgerður Einarsdóttir félags-
fræðingur flytur fyrirlestur á vegum
Rannsóknastofu í kvennafræðum í
stofu 101 í Odda kl. 17:15. Fyrirlest-
ur sinn nefnir hún: „Hvað veldur
kynbundnu vali lækna á sérgrein?
Um sundurleitni og kynjamismun
innan læknastéttarinnar“.
Föstudagurinn 24. október:
Ágúst Kvaran prófessor flytur
fyrirlestur í málstofu efnafræðiskor-
ar í stofu 158 í húsi VR-II við Hjarð-
arhaga kl. 12:20. Fyrirlesturinn
nefnist: „Samtíma gleypni fjölda
ljóseinda í efnum: gleypniferii, mæl-
ingar og túlkanir".
Kesara Anamthawat Jónsson
lektor flytur fyrirlestur í málstofu
líffræðistofnunar kl. 12:20 í stofu
G-6 að Grensásvegi 12 um „Mel-
gresi og villihveiti á íslandi".
Prófessor Leif Grane heiðursdokt-
orsefni guðfræðideildar mun halda
gestafyrirlestur i hátíðasal Háskól-
ans kl. 14:00. Nefnist fyrirlestur
hans „Tro og tradition“.
Laugardagurinn 25. október:
Háskólahátíð Háskóla íslands
með brautskráningu kandídata hefst
í Háskólabíói kl. 14:00.
Almenn íslensk orðabók, staða og
stefnumið. Málþing verður haldið í
fundarsal Þjóðarbókhlöðu kl. 13:00-
16:45. Meðal þeirra sem leggja
munu orð í belg eru: Mörður Árna-
son, Guðrún Kvaran, Jón Hilmar
Jónsson, Eiríkur Rögnvaldsson,
Kristín Bjarnadóttir, Dóra Haf-
steinsdóttir, Ásta Svavarsdóttir, Ari
Páll Kristinsson.
Sýningarq
Stofnun Árna Magnússonar í
Árnagarði. Handritasýning opin al-
menningi í Árnagarði þriðjudaga,
miðvikudaga og fimmtudaga kl.
14-16.
Landsbókasafn Islands - Há-
skólabókasafn: Prestaskólinn í
Reykjavík 150 ára, 1847-1997, sýn-
ing á ritum í guðfræði í sýningarsal
Þjóðarbókhlöðu.
Námskeið á vegum Endur-
menntunarstofnunar HI vikuna
20.-25. október:
20. okt. kl. 8-12 og 21. okt. kl.
8- 15. Skráning hjúkrunar. - Nýtt
tölvukerfi fyrir skráningu hjúkrunar.
Umsjón: Ásta Thoroddsen, lektor á
námsbraut í hjúkrunarfræði HÍ.
20. okt. kl. 12:45-16:00. Nýjar
kröfur um framsetningu og innihald
ársreikninga. Kennari: Alexander
G. Eðvardsson löggiltur endurskoð-
andi hjá KPMG Endurskoðun hf.
20. okt. kl. 13-17:30. Heilbrigðis-
lögfræði fyrir stjómendur heilbrigð-
isstofnana. Kennari: Dögg Pálsdóttir
hrl.
Mán. 20. okt.-17. nóv. kl. 20:15-
22:15 (5x). Tónlist og heimspeki.
Er samsvörun milli tónlistar og
heimspeki hvers tíma? Kennarar:
Atli Heimir Sveinsson tónskáld og
Þorsteinn Gylfason heimspekingur
og prófessor.
20., 21. og 22. okt. kl. 16-19.
Áhættustjórnun. Kennarar: Yngvi
Harðarson cand. oecon og M.A. og
Sverrir Sverrisson Ph.D., báðir hag-
fræðingar hjá Ráðgjöf og efna-
hagsspám ehf.
20. og 21. okt. kl. 8:30-12:30.
EKG-túlkun (lífeðlisfræði, tækni og
túlkun). Kennari: Christer Magnús-
son hjúkrunarfræðingur á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur.
20. okt. kl. 13-17 og 21. okt.
9- 17. Lögfræðilegt vinnuumhverfi
byggingarfulltrúa. Kennarar: Elín
Smáradóttir hdl. hjá Skipulagi ríkis-
ins og Viðar Már Matthíasson pró-
fessor við Lagadeild HI.
Þri. 21. okt.-2. des. (frí 4. nóv.)
kl. 20:15-22:15 (6x). Hugmynda-
heimur eðlisfræðinnar. Hvernig lýsir
og skýrir hann veröldina? Kennari:
Þórður Jónsson Ph.D., kennilegur
eðlisfræðingur, Raunvísindastofnun
HÍ.
Þri. 21. okt.-4. nóv. kl. 20-22
(3x). Fjölmiðlaréttur. Valdir þættir
um réttarumhverfi fjölmiðlamanna.
Kennari: Páll Sigurðsson prófessor
við Lagadeild HI.
21. okt. kl. 13-18. Hópvinnukerfi
(Groupware). Ný aðferð til að auð-
velda samstarf innan fyrirtækja og
yfirsýn stjórnenda. Kennarar: Olafur
Daðason framkvæmdastjóri hjá
Hugviti hf. og Jóhann P. Malmquist
prófessor í tölvunarfræði við Há-
skóla íslands ásamt gestafyrirlesur-
um sem hafa reynslu af notkun hóp-
vinnukerfa.
22. og 24. okt. kl. 8:30-12:30.
Hvernig aflar þú þér upplýsinga um
markaðinn? Kennari: Skúli Gunn-
steinsson framkvæmdastjóri ÍM
Gallup o.fl.
22., 23. og 24. okt. kl. 9-17.
AutoCAD - grunnnámskeið. Kenn-
ari: Magnús Þór Jónsson prófessor
HÍ.
22. og 23. okt. kl. 8:30-12:30.
Unix 1. Kennari: Helgi Þorbergsson
Ph.D., tölvunarfræðingur hjá Þróun
ehf.
23. og 30. okt. kl. 13-16. Áfengis-
vandi á vinnustöðum. Er hægt að
taka á drykkjuvandamálum starfs-
manna? Kennarar: Þórarinn Tyrf-
ingsson yfirlæknir á Vogi og Einar
Gylfi Jónsson deildarstjóri Forvarna-
HpilHíir Q A A
24. okt. kÍ. 14-17:15. Alþjóðlegt
mat á lánshæfi (credit rating). Kenn-
arar: Ian Centis sérfræðingur hjá
Nomura Bank í London, Brynjólfur
Helgason aðstoðarbankastjóri
Landsbanka íslands og Ólafur
ísleifsson framkvæmdastjóri Al-
þjóðasviðs Seðlabanka íslands.
24. okt. kl. 9-17 og 25. okt. kl.
9-13. Sjálfsvígsfræði með sérstöku
tilliti til sjálfsvíga ungs fólks. Kenn-
arar: Wilhelm Norðfjörð og Hugo
Þórisson sálfræðingar.
Afmælispakki 2
POWER MACINTOSH
COLOR STYLEWRITER
ÁSAMT
Á AÐEINS
900,-
K*.
PowerMacintosh 5260
120 MHz PowerPC 603e, 12 MB vinnsluminni, 1200 MB harðdiskur,
áttahraða geisladrif 8 bita hljóð inn og út, 16 bita hljóð frá
geisladrifi, hægt að setja sjónvarpsspjald og mótald, localtalk
19.900,- stflr
i stað tistavefðs;
44.435,- »
í tilef1
7«isbIí Apple’
20 sfyklci Coior
getu|n v,ð !500'litaprentaGra’|(r þoflar
19.900>' *r .*««intos
keyP1
aðeins
Verð með
Apple Color StyleWriter 2500 prentara
96.306,- kr. stgr. án.vsk.
119.900,:..,
Ath»9ia'
i.
pple-umboði
holti 21, 105 Reykjavík, sími: 511 5111
mg: sala@apple.is Veffang: http://www.apple,i