Morgunblaðið - 04.11.1997, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Mögnuð
byijun á
stífri tón-
leikaferð
Brussel. Morgunblaðið.
FYRSTU tónleikar Bjarkar í mik-
illi yfirreið til kynningar á geisla-
plötunni Homogenic voru í Bruss-
el á sunnudagskvöld. Blaðamaður
Morgunblaðsins sótti tónleikana
og ræddi við nokkra gesti í troð-
fullu 2.000 manna húsi og svo
hljóðfæraleikara nýkomna af
sviðinu.
Tónlistarfólkið var ánægt með
byijun ferðarinnar á sunnudag
og gestir í Sehaerbeek-salnum
sömuleiðis, þeir sögðu Björk sama
við sig þótt tónlistin væri orðin
alvarlegri. Eina kvörtunin var:
þetta voru alltof stuttir tónleikar.
Með Björk spila 8 ungir íslend-
ingar, íslenski strengjaoktektinn,
með Jón R. Örnólfsson í farar-
broddi. Auk þess er á sviðinu raf-
tónlistarmaður sem sér um tölvu-
takta en alls eru 25 manns, tækni-
menn, þjálfarar og aðstoðarfólk,
í föruneyti söngkonunnar.
Skömmu eftir tónleikana í
Brussel var haldið til Amsterdam
þar sem spilað var í gær. Þar verða
bækistöðvar hópsins í nokkra daga
og farið akandi til Frankfurt á
morgun og Rotterdam á fimmtu-
dag. Þar koma Björk og strengja-
sveitin fram í útsendingu MTV-
tónlistarsjónvarpsins á verðlauna-
afhendingu ársins. Þar spila einn-
ig hljómsveitir eins og U2, Bon
Jovi, Spice Girls og Aerosmith.
Svo verður haldið til Ítalíu,
Frakklands, Bretlands og Norð-
urlanda og síðan gert hlé fyrir
Bandaríkjaferð í desember. Björk
mun síðan hefja upptökur á nýrri
plötu í ársbyijun. Hún hefur sagt
Homogenic í núinu eða næstum
því miðað við Debut og Post, þar
sem hún vann úr eldri hugmynd-
um.
Fjórir
sóttuum
Skálholt
FJÓRAR umsóknir hafa borist
um embætti sóknarprests I Skál-
holti og tvær um Hallgrímssókn.
Þeir sem sækja um Skálholt
eru séra Axel Amason, Stóra-
Núpi, séra Baldur Kristjánsson
biskupsritari, séra Egill Hall-
grímsson, Skagaströnd, og séra
Hörður Þ. Ásbjömsson.
Um embætti sóknarprests í
Hallgrímssókn sækja séra Sig-
urður Pálsson, sem nú gegnir
starfi aðstoðarprests þar, og
séra Yrsa Þórðardóttir, fræðslu-
fulltrúi kirkjunnar á Austur-
landi.
Reuters/Yves Herman
Nokkrir
teknir með
fíkniefni
LÖGREGLAN í Reykjavík handtók
tvö ungmenni í vesturborginni á
laugardag. Annað þeirra var flutt í
athvarf lögreglu fyrir unglinga og
síðan komið í heimahús. í fórum
hins fundust ætiuð fíkniefni og var
hann því vistaður í fangageymslu.
Tveir réðust inn í íbúð manns í
Þingholtunum í Reykjavík árla
morguns á laugardag. Veittu þeir
húsráðanda nokkra áverka svo flytja
varð hann á slysadeild. Árásarmenn
voru flúnir af vettvangi er lögreglan
kom, en vitað var um deili á þeim.
Lagt var hald á tæki til neyslu fíkni-
efna.
Þá var bíll stöðvaður í miðborg-
inni og voru tveir menn handteknir
er ætluð fíkniefni fundust á þeim
auk hnífa sem ekki eru í samræmi
við gildandi reglur. Mennirnir, sem
eru 37 og 33 ára, vom vistaðir í
fangageymslu. Þá var tvennt hand-
tekið á Arnarhóli er í fómm þeirra
fundust fíkniefni og tæki til slíkrar
neyslu. Voru það 20 ára piltur og
17 ára stúlka.
í Austurstræti vorú' einnig hand-
teknir þrír tvitugir piltar er ætluð
fíkniefni fundust í fórum þeirra.
-----» ♦ ♦
Kappakst-
ursbifreið
til sýnis
RENAULT Williams Formula 1
kappakstursbíll kemur til landsins
fimmtudaginn 4. nóvember á veg-
um B&L.
Renault Williams varð heims-
meistari í ár í Formula 1 og hefur
Renault nú unnið 6 heimsmeistar-
atitla í röð í Formúla 1.
Verður bifreiðin til sýnis hjá
B&L helgina 8. og 9. nóvember.
Héraðsdómur dæmir í máli á hendur þremur karlmönnum og tveimur konum
Hollendingur dæmd-
ur í 6V2 árs fangelsi
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær þijá karlmenn og tvær
konur í fangelsi fyrir aðild að fíkni-
efnamáli. Þyngsta dóminn hlaut 56
ára Hollendingur, Albart Jan van
Houten, 6 'h árs fangelsi. Hann var
dæmdur fyrir innflutning á miklu
magni af hassi, amfetamíni og e-
pillum.
flkureyri þrisuar
sinnum á dag
Bókanir: 570 8090
ISLANDSFLUG
gerir fleirum fært ad fljúga
Albart var ákærður fyrir að hafa
flutt 15 kíló af hassi, 3 kíló af
amfetamíni og 5-600 e-pillur hing-
að ti! lands um borð í bifreið, sem
kom til landsins með Norrænu í
september í fyrra. Þá var hann jafn-
framt ákærður fyrir að hafa flutt
hingað til lands tæp 10 kíló af hassi
í desember í fyrra. Tollverðir í Leifs-
stöð stöðvuðu þá för hans og 51
árs hollenskrar konu og fundu hass-
ið í farangri þeirra.
Samstarf gegn afplánun
í Hollandi
Eftir að Albart var handtekinn
lýsti hann vilja sínum til samstarfs
við lögreglu í því skyni að upplýsa
hveijir væri viðtakendur hassins hér
á landi, gegn því að hann fengi að
afplána væntanlegan refsidóm í
Hollandi.
Dómurinn sakfelldi Albart fyrir
ákæruatriði, að öðru leyti en því
að gegn eindreginni neitun hans
þótti ekki sannað að hann hefði flutt
meira en 1,5 kíló af amfetamíni til
landsins.
Þá komst dómurinn að þeirri nið-
urstöðu að hollenska konan, sem
var í för með Albart í desember,
hafi vitað um meðhöndlun fíkniefna
þegar hún var einnig með í för í
september og því hafi henni verið
ljóst til hvers desemberferðin hafí
verið farin. Var hún dæmd í 15
mánaða fangelsi.
36 ára íslensk kona, Lára Dís
Sigurðardóttir, var dæmd í fangelsi
í 3 'h ár fyrir að taka við og geyma
fíkniefni, 300 grömm af amfetamíni
og 480 e-pillur. Þá var bent á að
hún hefði komið á samböndum Al-
barts og íslendinga og vitað að efn-
ið væri til söludreifingar.
Rúnar Kolbeinn Óskarsson, 40
ára, var dæmdur í 4 ára fangelsi
fyrir aðild sína að málinu. Hann
var fundinn sekur um að hafa tek-
ið við fíkniefnunum af Láru Dís
og keypt hass af Albart. Hins veg-
ar var hann sýknaður af ákæru
um tilraun til að kaupa 6 kg af
hassi til viðbótar af Albart, en lög-
regla hafði þá sett gerviefni í pakk-
ann í stað hassins. Til stóð að taka
samtal Albarts og Rúnars upp, en
upptakan mistókst „af óskýrðum
ástæðum" eins og segir í dóminum.
Var talið að gegn eindreginni neit-
un Rúnars hefði ekki tekist að
sanna að hann hefði ætlað að
kaupa kílóin sex, en hins vegar var
sannað að hann tók við efninu og
kvaðst hann sjálfur hafa ætlað að
taka það til geymslu.
f
Ásgeir Ebeneser Þórðarson, 47
ára, var dæmdur í 3 ára fangelsi.
Hann var fundinn sekur um að
hafa keypt 2 kíló af hassi af Al-
bart og 1 kíló af amfetamíni, en
verulegan hluta amfetamínsins
seldi hann tveimur mönnum.
Hættuleg fíkniefni
í niðurstöðu héraðsdómara, Guð-
jóns Marteinssonar, Amgríms ís-
bergs og Skúla J. Pálmasonar, er
lögð áhersla á hve hættuleg fíkni-
efni amfetamín og e-pillur eru og
að tekið sé mið af því við saknæmi
brotanna.
Frá refsingu fólksins dregst
gæsluvarðhaldsvist, í tilfelli hol-
lenska fólksins frá 12. desember í
fyrra, Rúnars frá 13. desember í
fyrra, Láru Dísar frá 4. janúar til
13. febrúar sl. og frá 22. febrúar
til dóms og Ásgeirs Ebenesers frá
31. desember til 17. janúar sl.
Veijendur fengu dæmdan máls-
kostnað, 600 þúsund krónur hver.
Sakborningunum er gert að greiða
fjóra fimmtu hluta málsvarnar-
launa, en ríkissjóður greiðir fimmt-
ung. Sakarkostnað að öðru leyti
greiða ákærðu óskipt, þar á meðal
600 þúsund krónur í saksóknar-
laun.