Morgunblaðið - 04.11.1997, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hagnaður Samvinnuferða-Landsýnar 8,5 milljónir fyrstu níu mánuðina
Ofyrirsjáanleg gengis-
þróun rýrði afkomuna
Seinkun á birtingu sex mánaða uppgjörs vekur efasemdir á verðbréfamarkaði ,
Samviiiíiijferúir-Laiitlsýii Úr reikningum jan. - sept. 1997 1 ^ ^ ——Á
Rekstrarreikningur 1997 1996 Breyling
Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld 1.511,3 1.495,6 1.194,4 1.147,1 +26,5% +30.4%
Rekstrarhagnaður Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 15,7 (3,0) 47,2 (7,4) -66,7% -59,5%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 12,7 39,8 -68,1%
Hagnaður ársins 8,5 26,7 -68.2%
Efnahagsreikningur 30. september 1997 1996
| Eignir: \ Milljónir króna
Fastafjármunir 175,6 163,1 +7,7%
Veltufjármunir 610,8 343,8 +77,7%
Eignir samtals 786,4 506,9 +55,1%
I Skuldir og eigið fé: \ 30. iúní
Skuldir Milljónir króna 693,9 %
Eigið fé 198,8 %
Skuldir og eigið fé samtals 892,8 %
Sjóðstreymi Veltufé frá rekstri (30,3) %
HAGNAÐUR ferðaskrifstofunnar
Samvinnuferða-Landsýnar hf.
fyrstu níu mánuði ársins nam alls
8,5 milljónum króna, en á sama
tímabili í fyrra nam hagnaðurinn
26,7 milljónum. í tilkynningu fé-
lagsins til Verðbréfaþings í síðustu
viku segir m.a. að það sem öðru
fremur hafi rýrt afkomu félagsins
á tímabilinu hafi verið ófyrirsjáan-
leg gengisþróun á helsta markaði
íslenskra ferðaskrifstofa, Þýska-
landsmarkaði. Þá hafi gengisþróun
einnig áhrif á dönskum markaði,
en gengi þessara gjaldmiðla féll á
tímabilinu um 10%.
Heildarveltuaukning innanlands-
deildar á tímabilinu var 34% sem
rakið er til aukinnar markaðssóknar
á mörkuðum í Danmörku, Tævan
og Ítalíu. Hefur eftirspurn eftir
ferðum til íslands á þessum svæð-
um aukist, bæði einstaklingsferð-
um, hvataferðum og skipulögðum
hópferðum. Farþegum fjölgaði
verulega í hópferðum/orlofsferðum
frá íslandi á þessum fyrstu níu
mánuðum eða um tæplega 30%.
Samvinnuferðir birtu einnig sex
mánaða uppgjör sitt í síðustu viku
með níu mánaða uppgjörinu og
kemur þar fram að tap fyrstu sex
mánuðina nam um 28 milljónum,
en samanburðarhæfar tölur liggja
ekki fyrir yfir sama tímabil í fyrra.
„Útkoman veldur verulegum
vonbrigðum"
Ferðaskrifstofan er gagnrýnd
töluvert í Morgunfréttum Viðskipta-
stofu íslandsbanka í gær. Þar kemur
fram að útkoma félagsins valdi veru-
legum vonbrigðum því rekstraráætl-
anir félagsins hafi gert ráð fyrir 48
milljóna króna hagnaði fyrir skatta
fyrstu níu mánuðina. „I fréttatil-
kynningu frá félaginu kemur fram
að skýringar á slakri afkomu hafí
verið fyrirsjáanleg gengisþróun á
þýska markinu og dönsku krón-
unni,“ segir í fréttabréfínu. „Það
sem vekur hvað mesta athygli fyrir
utan slaka afkomu er töf á birtingu
á sex mánaða milliuppgjöri félags-
ins, en tap fyrstu sex mánuði ársins
reyndist vera rúmar 28 milljónir. í
október óskað VÞÍ [Verðbréfaþing
íslands] eftir skýringu á því af
hveiju væri ekki búið að birta sex
mánaða uppgjör fyrir félagið. Ferða-
skrifstofan gaf þær skýringar að
ekki væru til samanburðartölur frá
fyrri árum fyrir fyrstu sex mánuði
ársins, en til væru samanburðartölur
fyrir 9 mánuði. Með tilliti til hversu
skammt væri í birtingu níu mánaða
uppgjörs þá teldi ferðaskrifstofan
hagsmunum hluthafa best borgið
með því að birta sex og níu mánaða
uppgjör samtímis þar sem þær upp-
lýsingar væru betri og gæfu réttari
mynd af rekstrinum."
Gengi bréfa nú um þriðjungi
lægra en í útboði
Viðskiptastofa íslandsbanka
bendir á að gengi hlutabréfa í Sam-
vinnuferðum hafi lækkað jafnt og
þétt frá 24. júlí úr 3,6 í 2,4 eða
um 33%. „í júlí var einnig haldið
hlutafjárútboð þar sem nokkrir af
stærri hluthöfum buðu til sölu hlut-
afé að nafnvirði 4 milljónir á geng-
inu 3,4. í útboðslýsingu með útboð-
inu kemur fram að rekstraráætlun
geri ráð fyrir sömu afkomu og árið
1996, þ.e. 38 milljóna króna hagn-
aði og að í lok júlí bendi ekkert til
annars en að sú áætlun standist.
Það er ekki traustvekjandi að for-
ráðamenn fyrirtækisins fylgist ekki
betur með gengismálum, en að þeir
geri sér ekki grein fyrir því að það
sem þeir kalla ófyrirsjáanlega geng-
isþróun á danskri krónu og þýsku
marki var þegar komið fram í lok
júlí. Gengi dönsku krónunnar og
þýska marksins gagnvart íslensku
krónunni hækkaði nefnilega frá lok
júlí til loka septembermánaðar. Það
vekur spurningar um það hvenær
sex mánaða uppgjörið hafi legið
fyrir og hvaða hluthafar hafi haft
hagsmuni af því að birta ekki sex
mánaða uppgjör fyrr en með níu
mánaða uppgjörinu. Það þjónar svo
sannarlega ekki hagsmunum þeirra
hluthafa sem keyptu bréf á genginu
3,4 í hlutafjárútboðinu."
Ekki náðist í Helga Jóhannsson,
framkvæmdastjóra Samvinnuferða-
Landssýnar.
Belgar !
handtaka
yfirmann
banka í Lux
Briissel. Reuter.
BELGAR hafa handtekið
Damien Wigny, aðalfram-
kvæmdastjóra Kredietbank )
Luxembourg og ákært hann
fyrir íjársvik.
Wigny er sakaður um skatt-
svik og brot á lögum um efða-
skatt. Margt bendir einnig til
þess að hann hafi verið viðrið-
inn peningaþvætti og hann
virðist hafa verið „höfuðpaur"
í glæpsamlegum samsæri" að
sögn rannsóknardómara sem
stjómar rannsókninni.
Tóbaksauður
Wigny er 55 ára gamall
sonur fyrrverandi dómsmála-
ráðherra Belgíu. Að sögn dóm-
arans var hann handtekinn í
sambandi við rannsókn á
skattsvikum Ritu Verstraeten,
sem fékk mikil auðæfi í arf
frá belgískum tóbaksauð- |
manni.
Wigny er grunaður um að
hafa átt þátt í skattsvikum I
ásamt Ritu Verstraeten að
sögn Leys. Hann sagði að
200-300 önnur meint skatt-
svikamál hjá Kredietbank
Luxembourg væm í rannsókn.
Hagnaður
YW eykst l
Wolfsburg, Þýzkalandi. Reuters. f
VOLKSWAGEN AG hefur
skýrt frá því að vegna aukinar
sölu og meiri skilvirkni hefði
nettóhagnaður fyrirtækisins
aukizt um 83% á fyrstu níu
mánuðum ársins.
Hagnaðurinn nam 852 millj-
ónum marka á tímabilinu og
sala jókst á sama tíma um 13% j
í 84 milljarða marka að sögn
fyrirtækisins.
Rekstri Skýrr snúið til betri vegar á fyrstu 9 mánuðum ársins
Hagnaður
nam 24,3 millj-
ónum króna
HAGNAÐUR Skýrr hf. fyrstu 9
mánuði þessa árs nam 24,3 millj-
ónum króna. Þetta er ívið betri
afkoma en gert var ráð fyrir í
rekstraráætlun fyrirtækisins fyrir
þetta tímabil. Á sama tímabili í
fyrra nam tap félagsins hins vegar
tæplega 21 milljón króna.
Rekstrartekjur Skýrr á tímabil-
inu voru einnig lítillega hærri en
áætlanir gerðu ráð fyrir eða 683
milljónir. Þetta er u.þ.b. 22% aukn-
ing á rekstrartekjum félagsins frá
því á síðasta ári.
Öll markmið fjárhags-
áætlunar náðust
Að sögn Hreins Jakobssonar,
nýráðins framkvæmdastjóra
Skýrr, voru í fjárhagsáætlun sett
fram þau markmið að snúa tapi
ársins 1996 í hagnað á þessu ári,
auk þess að bæta þjónustu þess.
Hann segir að öll markmið fjár-
hagsáætlunarinnar hafí náðst og
horfur séu á því að rekstraráætlun
ársins muni sömuleiðis standast,
en þar er gert ráð fyrir 32,5 millj-
óna króna hagnaði.
í viðræðum við erlent
hugbúnaðarfyrirtæki
Hreinn segist ánægður með
þann árangur sem náðst hafi og
bjartsýnn á framhaldið. Fyrirtækið
hafí mótað sér þá stefnu að ein-
beita kröftum sínum að því sem
það og starfsfólk þess geri best
ásamt því að bæta þjónustu við
núverandi viðskiptavini.
Þá sé einnig verið að kanna
möguleika á útflutningi til ná-
grannalandanna. Verðlag þar á
hugbúnaði og tengdri þjónustu sé
mun hærra en hér á landi og því
sé eftir miklu að slægjast með
útflutningi.
„Við teljum að við eigum erindi
inn á skandinavíska markaðinn og
teljum að við séum þar samkeppn-
isfær bæði hvað varðar gæði og
verð. Það lofar góðu og við erum
nú í viðræðum við erlent félag um
möguleika á samstarfí. Viðræð-
Skýrrhf
Úr árshlutareikningi
í milljónum kr.
Rekstur jan.-sept. 1997 jan.-sept. 1996
Tekjur 683,2 555,6
Gjöld -640,4 557,3
Fjármuntekjur -18,5 -19,2
Hagnaður 24,3 -20,9
Veitufé frá rekstri 94,6 40,7
Efnahagur 30.9.97 30.9.96
Eignir 649,8 613,7
Skuldir 471,0 411,4
Eigið fé 178,7 202,3
Eiginfjárhluitfall 28% 33%
Veltufjárhlutfall 1,49 1,48
urnar gera ráð fyrir ákveðnu til-
raunaverkefni og gangi það allt
eftir gæti samstarfíð orðið mun
meira seinna meir,“ segir Hreinn.
Skortur á starfsfólki vandamál
Hreinn segir stærsta vandamál-
ið hins vegar vera mikinn skort á
vel menntuðu starfsfólki í hugbún-
aðargerð. Það þurfi ekki annað en
að líta á atvinnuauglýsingarnar til
að sjá þá gríðarlegu eftirspurn sem
væri eftir hæfu fólki. Hins vegar
væri framboðið einfaldlega ekki
nægjanlegt og segir hann ástandið
í menntun á þessu sviði mikið
áhyggjuefni. Úr því verði að bæta.
Vill aukinn kraft
í einkavæðingu
VERSLUNARRAÐ Islands hvetur
stjórnvöld til að setja aukinn kraft
í einkavæðingu opinberra fyrir-
tækja og segir að færa megi rök
fyrir því að kröftug einkavæðing
hefði getað haft áhrif til stöðugleika
á hlutabréfamarkaði.
Verslunarráð hefur sent Davíð
Oddssyni forsætisráðherra bréf af
þessu tilefni og er þar bent á að
með einkavæðingu opinberra fyrir-
tækja megi minnka ríkisumsvif,
auka hagkvæmni í opinberum
rekstri, efla samkeppni, dreifa valdi
og styrkja hlutabréfamarkað. Jafn-
framt geti einkavæðing þjónað því
hlutverki að efla sparnað og slá á
þenslu.
Verslunarráðið telur að mikil-
vægt undirbúningsstarf fyrir einka-
væðingu hafi verið unnið af hálfu
ríkisstjórnarinnar. Bæði hafi verið
settar skýrar verklagsreglur og
nauðsynleg formbreyting átt sér
stað hjá ýmsum opinberum stofnun-
um. Þessum þætti sé nú hins vegar
lokið og komið að framkvæmdinni.
Þótt margt hafi áunnist á síðustu
árum, stundi hið opinbera enn um-
svifamikla starfsemi á sviði verslun-
ar, verksmiðjureksturs, fjármála-
starfsemi og ljarskiptaþjónustu, og
oft í samkeppni við einkaaðila.
Fram kemur að ráðið telji að
árangur yfirstandandi árs valdi
nokkrum vonbrigðum, einkum í ljósi
þess að árið hafí verið metár í við-
skiptum á hlutabréfamarkaði, og
ljóst sé að markaðurinn hefði hæg-
lega getað tekið við auknu fram-
boði hlutabréfa. Segir að færa megi
rök fyrir því að kröftug einkavæð-
ing hefði getað stuðlað að auknum
stöðugleika á hlutabréfamarkaði.
Framkvæmdastjóraskipti hjá
Afurðasölunni íBorgarnesi
ÍVAR Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri Afurðasölunnar í Borgarnesi,
hefur sagt starfí sínu lausu.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Ivar að fjölmargar ástæður lægju
að baki þessari ákvörðun. „Ég hef
starfað á þessum vettvangi undanf-
arin 8 ár og mér fínnst orðið tíma-
bært að flytja mig um set. Því er
hins vegar ekki að neita að mínar
áætlanir fyrir þetta fyrirtæki hafa
ekki allar gengið upp og því tel ég
einnig heppilegt að nýir menn fái
tækifæri," segir ívar.
Nýr framkvæmdastjóri hefur ekki
verið ráðinn enn.
i
I
>
í
I
í.
í
l
I