Morgunblaðið - 04.11.1997, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1997
Borgarstjón um fjárhagsvanda
Sjúkrahúss Reykjavíkur
Fullyrðingum
fjármálaráðherra
vísað á bug
INGIBJORG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri vísar í bréfi til fjármála-
ráðherra á bug fullyrðingum hans
um að ekki hafi verið gerð minnsta
tilraun til að efna samkomulag um
aðgerðir í rekstri Sjúkrahúss
Reykjavíkur. Stjóm og fram-
kvæmdastjórn sjúkrahússins hafa
verið reiðubúnar til þess að stuðla
að framgangi samkomulagsins.
Bréf borgarstjóra er svar við bréfi
fjármálaráðherra til borgarráðs, þar
sem gerð er athugasemd við bókun
borgarráðs vegna fjárveitinga til
Sjúkrahúss Reykjavíkur í fjárlaga-
frumvarpinu. Borgarstjóri rifjar upp
að fjármálaráðherra, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra og borgar-
stjóri hafi gert með sér samkomulag
um aðgerðir í rekstri spítalans og að
í minnisblaði ráðuneytisstjóra fjár-
málaráðuneytisins, skrifstofustjóra
heilbrigðisráðuneytis og borgarlög-
manns er vakin athygli á að Sjúkra-
hús Reykjavíkur eigi við fjárhags-
vanda fyrri ára að glíma.
Ekki tekið á vandanum
Jafnframt segir: „Samkomulagið
tók ekki á þessum vanda og er fjár-
málaráðherra um það kunnugt. í
minnisblaðinu kemur einnig fram að
áætlanir sjúkrahúsanna í Reykjavík
bendi til enn frekari fjárþarfar en
áætlanir gerðu ráð fyrir í apríl sl.
en samkomulagið miðaðist við fjár-
þörf samkvæmt áætlun eftir rekstur
fyrsta ársfjórðungs þessa árs. Pjár-
málaráðherra var því fullkunnugt
um að samkomulagið frá 12. sept-
ember leysti ekki að fullu fjárhags-
vanda sjúkrahúsanna í Reykjavík á
þessu ári. Fjárhagsvandi Sjúkrahúss
Reykjavíkur á þessu ári er nú áætl-
aður 144 m.kr. og samkvæmt upp-
lýsingum frá Ríkisspítölum er áætl-
aður halli 155 m.kr. á þessu ári.
í bréfi borgarstjóra segir að í
greinargerð með samkomulaginu
komi fram að gera megi ráð fyrir
10 m.kr. í sparnaði í rekstri sjúkra-
húsanna í Reykjavík á þessu ári ef
ráðist verði í þær aðgerðir til hag-
ræðingar sem nefndar eru. Sam-
komulaginu hafi því ekki verið ætlað
að leysa að fullu vanda sjúkrahús-
anna í Reykjavík vegna ársins í ár.
Um þetta sé fjármálaráðherra kunn-
ugt. Samkomulagið geri ráð fyrir
að sparnaður vegna aðgerða sem
fyrirhugað sé að grípa til geti num-
ið um 205 m.kr. á árinu 1998. Til
þess að sá sparnaður náist verða
allir þættir samkomulagsins að
ganga eftir en Sjúkrahús Reykjavík-
ur hafi þá ekki alla á valdi sínu.
Bent er á að jafnframt hafi athygli
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins verið vakin á að yfirfara
þurfi betur þær forsendur sem út-
reikningarnir byggjast á.
Ráðuneytisins að hafa eftirlit
Loks segir að það sé heilbrigðis-
ráðuneytisins að hafa eftirlit með
framkvæmd samkomulagsins og að
aðilum þess ætti að vera ljóst að
gert er ráð fyrir verkefnaflutningi
milli sjúkrahúsanna og hugsanlegum
breytingum á rekstrarformi ákveð-
inna eininga. „Stjórn og fram-
kvæmdastjórn Sjúkrahúss Reykja-
víkur hafa verið reiðubúnar til þess
að stuðia að framgangi samkomu-
lagsins og er verið að fara yfir fjár-
hagslegar afleiðingar þess að flytja
deildir milli aðalbyggingar og Grens-
áss. Hins vegar geta stjórnendur
Sjúkrahúss Reykjavíkur ekki borið
ábyrgð á þeim þáttum samkomu-
lagsins sem varða tilflutning verk-
efna milli sjúkrahúsa."
Mörg umferðaróhöpp
í fyrstu hálkunni
á Suðvesturlandi
HÁLKA sem varð í slyddu og snjó-
komu á suðvesturhorni landsins á
sunnudagskvöld gerði ökumönnum
víða erfitt fyrir. Voru rúmir tveir
tugir bíla skildir eftir á Hellisheiði
og Þrengslavegi og allmargir
árekstrar urðu á höfuðborgarsvæð-
inu. Lítið var um slys á fólki.
Sex manns voru flutt á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur eftir
árekstri tveggja jeppa á Nýbýlavegi
við Reykjanesbraut í Kópavogi.
Hafði annar jeppinn oltið og voru
kona og íjögur börn úr honum og
ökumaður hins jeppans flutt á slysa-
deild en meiðsli voru óveruleg. Tvö
önnur umferðaróhöpp urðu í Kópa-
vogi sem bæði mátti rekja til hálk-
unnar og valt bíll i öðru tilvikinu.
tm.
Bókabúð
Máls og menningar
Síðumúla 7
Mikið úrvai af kertum
og servíettum,
ikii verðiækkun.
ÉÉái
WMBBŒEM
Bvidi iiienniny
Laugavegl 18 • Síml 515 2500 • Síðumúla 7 • Síml 510 2500
! MÓRGUNBÍÁÐIÐ
FRÉTTIR
Skip Úthafssjávarfangs sökk við strönd Bandaríkjanna
Áhöfninni bjargað
NORTHERN Voyager, 53 metra
frystiskip sem var að hluta í eigu
Samherja, Síldarvinnslunnar og SR-
mjöls, sökk skammt undan Gloucest-
er norðaustur af Boston á sunnudag.
Fimmtán manna bandarískri áhöfn
skipsins var bjargað og engin slys
urðu á mönnum. Ekki er vitað hvers
vegna leki kom að skipinu.
Þegar óhappið varð voru skipveij-
ar að frysta síld og var skipið nærri
landi. Ríflega 200 tonn af frystum
afurðum voru um borð. Veður var
mjög slæmt á þessum slóðum. Leki
kom að Northem Voyager og kom
bandaríska strandgæslan á staðinn
með dælubúnað. Eftir nokkurn tíma
kom í ljós að dælurnar höfðu ekki
undan og fór áhöfnin frá borði og
um borð í skip strandgæslunnar.
Skipið sökk um miðjan dag að ís-
lenskum tíma.
Samheiji, Síldarvinnslan og SR-
mjöl stofnuðu hlutafélagið Úthafs-
sjávarfang nú í haust um fjárfesting-
ar og rekstur erlendis á sviði útgerð-
ar, landvinnslu og sölu sjávarafurða.
Samheiji réðst fyrr á árinu í rekstur
tveggja togara, sem gerðir voru út
frá austurströnd Bandaríkjanna og
gekk hið nýja hlutafélag inn í þann
rekstur. Úthafssjávarfang átti 75%
hlut á móti 25% hlut bandarísks
fyrirtækis í hlutafélagi, sem átti 49%
í útgerð togaranna.
Ekki farnir að huga
að nýju skipi
Togararnir tveir, Northern Voya-
ger og Northern Traveler voru báðir
að veiðum við austurströndina þegar
óhappið varð á sunnudag. Northem
Traveler, sem er nokkru minna skip
en Voyager, varð ekki fyrir neinum
skakkaföllum. Að sögn Björgólfs
Jóhannssonar, framkvæmdastjóra
nýsköpunar- og þróunarsviðs Sam-
heija, voru bæði skipin endurnýjuð
að verulegu leyti í sumar og settar
í þau nýjar vinnslulínur. „Northern
Voyager hóf veiðar í lok ágúst,“
sagði Björgólfur.
„Það er svo stutt frá því að við
misstum skipið að við höfum ekki
enn áttað okkur á hvert framhaldið
verður og vitum ekki núna hvers
vegna skipið sökk. Okkur er efst í
huga að áhöfnin er hólpin og erum
ekkert farnir að huga að því að fá
nýtt skip. Skipið var tryggt og á
næstu dögum verður unnið að upp-
gjöri tryggingabóta.“
Umræðufundur í Háskólanum um lögleiðingu hnefaleika
Morgunblaðið/RAX
SIGURBJÖRN Sveinsson, læknir, leggur áherslu á mál sitt með handahreyfingu, en áhugi andmæl-
anda hans, Bubba Morthens, virðist ekki ýkja mikill.
Skortur á langtímarann-
sóknum á heilsu iðkenda
SKORTUR er á langtímarann-
sóknum á áhrifum ólympískra
hnefaleika á heilsu þátttakenda.
Slys eru þó algengari og alvar-
legri í ýmsum öðrum íþróttum,
til dæmis ákveðnum hestaíþrótt-
um, ísknattleik, kappakstri og
fótbolta.
Þetta var meðal þess sem fram
kom á umræðufundi sem Vaka,
félag Iýðræðissinnaðra stúdenta
í Háskóla íslands, hélt í gær.
Bubbi Morthens, tónlistarmaður
og áhugamaður um hnefaleika,
og Sigurbjörn Sveinsson, sljórn-
armaður í Læknafélagi íslands,
ræddu rökin fyrir og gegn lö-
gleiðingu ólympískra hnefaleika
og svöruðu spurningum áheyr-
enda.
Vankast að meðaltali í
hundruðustu hverri keppni
Bubbi lagði áherslu á það að
greinarmunur væri gerður á
áhugamannahnefaleikum og at-
vinnumannahnefaleikum og
sagðist ekki styðja lögleiðingu
síðarnefndu greinarinnar á Is-
landi. Hann benti á að miklar
varrúðarráðstafanir væru gerðar
til að verja þátttakendur í áhuga-
mannahnefaleikum meiðslum.
„Hnefaleikarar í þessari
grein vankast að meðaltali í
hundruðustu hverri keppni. Ef
það gerist þurfa þeir sérstakt
leyfi læknis til að mega halda
áfram keppni. Ef menn rotast er
þeim bannað að keppa að minnsta
kosti þijá mánuði á eftir. Reynd-
ar er enginn hvati til að rota
andstæðinginn því það gefur eng-
in stig.“
Siðferðileg spurning
eða smekksatriði?
Sigubjöm tók undir það að
mikill munur væri á áhugmanna-
og atvinnuhnefaleikum. Hann
sagði að rannsóknir hefðu sýnt
greinilega skaðlega áhrif hinna
síðarnefndu en mun óljósara væri
með þá fyrrnefndu. Að vísu hefði
komið í ljós í samanburðarrann-
sókn að ýmsir augnskaðar væru
n\jög algengir hjá þátttakendum.
Hann sagði að skortur væri á
langtimarannsóknum, enda
hefðu áhugamannahnefaleikar
með þeim reglum og öryggisráð-
stöfunum sem nú eru í gildi ekki
verið stundaðar lengi.
„Það getur verið að það verði
ekki hin læknisfræðilega hlið sem
ræður því hvort áhugamanna-
hnefaleikar verði leyfðir, heldur
heimspekileg eða siðfræðileg.
Kannski er þetta smekksatriði.
Ég viðurkenni að ég hef ekki
smekk fyrir hnefaleikum."
Sigurbjörn benti á að box væri
í eðli sínu öðruvísi en aðrar
íþróttir. „Markmiðiðin era önnur:
Að veikja varnir andstæðing-
anna, valda honum skaða, vanka
hann og rota.“
Hann lagði áherslu á að laga-
breyting um áhugamannahnefa-
leika yrði ekki þvinguð fram,
heldur færi fram umræða.
Rothögg og nefbrot algeng í
karate og tae-kwon-do
Bubbi benti á fjölmörg dæmi
um meiðsli í öðrum íþróttum sem
væru mun alvarlegri heldur en í
áhugamannahnefaleikum.
Augnáverkar væru til dæmis al-
gengir í handbolta. „f keppnum
í karate og tae-kwon-do er al-
gengt að menn nefbrotni eða rot-
ist. Menn eiga reyndar ekki að
komast upp með að gera það í
þessum íþróttum en gera það
samt.“
Bubbi sagði frá því að rætt
hefði verið um það í Svíþjóð að
banna áhugamannahnefaleika,
en eftir að skýrslur með saman-
burði við meiðsli í öðrum íþrótt-
um höfðu verið kannaðar hefði
verið hætt við.
„Ég fer fram á bláköld rök
fyrir því að banna eigi hnefa-
leika, en ekki tilfinningar og
smekk. Ég samþykki það að
hnefaleikar eru ákveðin tegund
af ofbeldi, en það gildir um allar
íþróttagreinar. Skák byggist á
sömu grundvallarforsendum og
hnefaleikar, að sigrast á vörnum
andstæðingsins, og í vissum skiln-
ingi að rota hann. Rannsóknir
hafa sýnt fram á það að hnefa-
leikamenn nota sömu svæði heil-
ans í keppni og skákmenn."
h
i
l
t
i
i
I
i
i
i
i
f
i
r
I
i
i
i
í
i
i
í
i
i
l
i