Morgunblaðið - 04.11.1997, Síða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1997
MINIMIIMGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Ástkær maðurinn minn, faðir okkar, sonur,
bróðir og tengdasonur,
KJARTAN ÞÓR KJARTANSSON,
Heiðvangi 19,
Hellu,
lést af slysförum föstudaginn 31. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Hrafnhildur Einarsdóttir,
Elín Huld Kjartansdóttir,
Einar Aron Kjartansson,
Elín Sveinsdóttir, Kjartan Kjartansson,
Sigríður Kjartansdóttir,
Sveinn Kjartansson,
Þórir Kjartansson,
Ólafia Oddsdóttir, Einar Hróbjartsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
AGNES KRAGH,
Seljahlíð,
andaðist á heimili sínu aðfaranótt sunnudags-
ins 2. nóvember.
Hanna Fríða Kragh, Sveinn Jónsson,
Páll Júlíusson, Mai Wongphoothon,
Hans Kragh Júlíusson, Guðrún Alfonsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir minn, tengdafaðir, afi, langafi, mágur og
bróðir,
SIGURGEIR GÍSLASON
. húsasmíðameistari,
Grunarlandi 9,
Reykjavík,
andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnu-
daginn 2. nóvember,
Anna Rósa Sigurgeirsdóttir, Halldór Leifsson,
barnabörn, barnabarnabörn,
Fanney Samsonardóttir,
systur og mágar.
t
Hjartkær móðir okkar,
HELGA METÚSALEMSDÓTTIR
frá Egilsstöðum,
í Vopnafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn
31. október.
Börn, tengdabörn
og aðrir aðstandendur.
t
Elskulegi faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
SIGURÐUR JÓHANNSSON,
Kjarrvegi 10,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum föstudaginn
31. október.
Anna Áslaug Sigurðardóttir, Þorleifur Grímsson,
Ólafur Jón Sigurðsson, Valdís Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, fósturmóðir og amma,
SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR,
Samtúni 14,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
fimmtudaginn 7. nóvember kl. 13.30.
Jóna Kristín Jónasdóttir,
Guðrún Jónasdóttir,
Magnús Bjarni Guðmundsson,
barnabörn og aðrir aðstandendur.
LILJA GOÐMUNDA
ODDGEIRSDÓTTIR
+ Lilja Goðmunda
Oddgeirsdóttir
fæddist 3. júní 1931
í Vestmannaeyjum.
Hún var dóttir hjón-
anna Oddgeirs
Hjartarsonar raf-
virkja f. 15. júní
1902, d. 11. ágúst
1959, og Ástu Sig-
ríðar Ólafsdóttur f.
8. september 1904,
d. 13. desember
1985. Lilja kvæntist
þann 25. desember
1956 Ólafi Heiðari
4. september 1975
og Baldína Krist-
jánsdóttir f. 10. des-
ember 1896, d. 10.
júlí 1939. Börn Lilju
og Ólafs Heiðars: a)
Baldína Hilda f. 24.
september 1960, b)
Oddgeir Heiðar f.
28. nóvember 1965,
c) Ólafur Eggert f.
29. maí 1968. Fyrir
átti Lilja Ástu Sig-
ríði f. 27. maí 1950,
faðir Sigurður Guð-
mundsson f. 17. maí
1931.
ólafssyni f. 12. maí
1932. Foreldrar Ólafur Eggert
Þorsteinsson verksljóri, Akra-
nesi, f. 30. desember 1901, d.
Útför Lilju fer fram frá Foss-
vogskapellu í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Þriðjudaginn 4. nóvember verður
til moldar borin Lilja Goðmunda
Oddgeirsdóttir, kölluð Stúlla, og
langar mig að minnast þessarar
elskulegu frænku (systur) minnar
með nokkrum orðum. Stúlla var
fædd í Vestmannaeyjum og var
þriðja barn foreldra sinna, þeirra
Oddgeirs Hjartarsonar rafvirkja og
konu hans frú Ástu Olafsdóttur.
Eldri eru Guðbjörg og Ólafur, en
yngri Hjördís, sem er látin. Eg und-
irritaður, sonur Guðbjargar, var al-
inn upp hjá afa og ömmu og leit því
á Stúllu sem mína stóru systur og
erfítt er að lýsa því hvílíkan kær-
leika og væntumþykju_ hún sýndi
mér. Stúlla giftist ung Ólafí Heiðari
Ólafssyni, miklum mannkostar-
manni og öðlingi og áttu _þau þijú
börn, Baldínu, Oddgeir og Ólaf. Fyr-
ir átti Stúlla eina dóttur, Ástu, sem
Ólafur Heiðar gekk í föður stað.
Fyrir átti Ólafur Heiðar son, Liljar,
prýðis pilt og höfðu hann og hans
fjölskylda mikið og gott samband
við föður sinn og fjölskyldu hans.
Hjónaband Stúllu og Heiðars var
langt og farsælt svo missir Heiðars
er mikill.
Stúlla mín var sérstaklega lund-
góð kona og mikil húsmóðir sem
allir er hana þekktu kepptust við að
heimsækja því það var alltaf veisla
hjá Stúllu en ekki síst vegna hennar
Erfidrykkjur
H
H
H
H
H
Sími 562 0200
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
J I III I U L/
flIIIIIIIIIll
CiarðsKom
v/ Fossvogskirl<juga>*3
" 5ímt! 554 0500
hlýja viðmóts og væntumþykju
gagnvart fólkinu sínu svo allir fóru
betri menn af hennar fundi, sérstak-
lega yngsta fólkið sem dýrkaði hana
og dáði. Þegar ég hugsa til hennar
Stúllu minnar kemur svo ótal margt
upp í hugann. Hún var snillingur í
höndunum og þær voru ófáar flík-
urnar sem hún saumaði handa mér.
Eg man eftir cowboy skyrtum og
Davy Crockett búningi þegar ég var
peyi í Vestmannaeyjum, svo aðrir
peyjar á svipuðu reki urðu grænir
af öfund. 0g alltaf hlakkaði ég jafn
mikið til þess á sumrin eftir að Stúlla
fluttist til Reykjavíkur, að fara suður
til hennar, en eftir að afi dó dvöid-
umst við amma oftast hjá Stúllu og
Heiðari á sumrin. En þegar ég lít
til baka er svo margs að minnast.
Ég var svo heppinn að veija dögum
með þeim mæðgum Stúliu og Inu
úti í Portúgal í júní ’96. Það verður
stór íjársjóður í minningunni, en þær
mæðgur voru mjög samrýndar og
samband þeirra sérstakt.
Það kom best í ljós þegar Stúlla
lá banaleguna hvað hún var dáð og
elskuð af öllum, því Heiðar, börn
hennar og ástvinir sátu hjá henni
öllum stundum.
Fallin er frá yndisleg kona sem
hugsaði um það eitt að gleðja og
þjóna öðrum. Gott er til þess að vita
að nú er erfíðum veikindum lokið
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um hclgar.
og að nú dvelur hún í paradís með
foreldrum, tengdaforeldrum og öðr-
um ástvinum í náðarfaðmi Guðs. Ég
kveð elsku hjartans Stúliu mína og
þakka henni fyrir allt og Guði fyrir
öll árin sem við áttum saman, því
það eru forréttindi að þekkja slíka
konu.
Óli Geir.
Fallin er frá einstaklega glaðlynd
og góð kona, elskuleg tengdam-
amma mín, hún Stúlla, er dáin eftir
löng veikindi. Mig langar að minn-
ast hennar hér í fáum orðum. Ég
var einn af þeim heppnu sem fengu
að kynnast þessari vel gerðu konu.
Það var þegar við dóttir hennar
kynntumst sem unglingar. Ég var
ungur þegar ég kom inn á heimili
tengdaforeldra minna og var mér
strax tekið einstaklega vel. Minning-
arnar hrannast upp þegar horft er
yfír farinn veg, og ylja manni um
hjartarætur á sorgartímum.
Ég minnist ferðalaganna, jólaboð-
anna og allra heimsóknanna. Alltaf
varst þú á þönum að þjóna þínu fólki.
Nú þegar þú ert horfin úr þessum
heimi vottar fyrir eigingirni hjá mér
yfir því að fá ekki að njóta lengur
samvista við þig.
Elsku Stúlla mín, ég vil að lokum
þakka þér fyrir allar samverustund-
irnar í gegnum árin, Guð blessi þig
og varðveiti.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
(Tómas Guðmundsson)
Þinn tengdasonur,
Kristján.
Þegar við hugsum til þín, elsku
Stúlla frænka, sjáum við þig fyrir
okkur skælbrosandi og hressa eins
og þú alltaf varst. Þú geislaðir svo
fallega af gleði og miklum lífskrafti
sem því miður slokknaði alltof
snemma. Það er eitthvað svo tákn-
rænt að þú skulir kveðja þennan
heim á fyrsta vetrardag. Þegar við
vorum lítii þá tengdum við nefnilega
sumarið við Stúllu frænku. Þið kom-
uð til Vestmannaeyja eða við fórum
„upp á land“ og þá var ævinlega
farið í Kópavoginn og síðar Dala-
landið. Alltaf fengum við höfðingleg-
ar móttökur. Okkur krökkunum
þótti alltaf jafn spennandi og
skemmtilegt að koma til ykkar Heið-
ars. Þótt þar væri fullt af börnum,
þótti þér ekkert tiltökumál að bæta
okkur í hópinn og sjálfsagt mál að
fá gistingu. Þú dreifst okkur með í
útilegur og veiðiferðir og varst vak-
andi yfir því að leyfa okkur að upp-
lifa það sem Vestmannaeyjar höfðu
ekki upp á að bjóða. Þú vissir alltaf
nákvæmlega hvað hitti í mark hjá
okkur krökkunum. Bleika kókómalt-
ið þitt er enn í fersku minni hjá
okkur. Það fékkst bara hjá Stúllu.
Við áttum ekki orð yfir allt það sem
Stúlla gerði fyrir okkur. Minningin
um þennan tíma skilur eftir sig
sælutilfinningu. Svona var Stúlla,
alltaf tilbúin tii að hjáipa, brosandi
og blíð.
Þú kunnir þá list að varðveita
barnið í þér og varst sannur félagi,
spjallaðir alltaf við okkur sem jafn-
ingi sama á hvaða aldri við vorum.
Þar sem þú varst, var alltaf kitlandi
hlátur og gleði.
Elsku frænka, þú varst tengiliður
LEGSTEINAR
SKEMMUVEGI 48, 200 KOP., SIMI: 557-6677/FAX: 557-8410
í stórum og rúmgóðum sýningarsal okkar
eigum við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir
legsteina og minnisvarða úr íslenskum og
erlendum steintegundum.
Yerið velkomin til okkar eða hafið
sambancl og fáið myndalista.